Morgunblaðið - 14.04.1983, Síða 20

Morgunblaðið - 14.04.1983, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 1983 ALÞINGISKOSNINGARNAR Kosningafundir Sjálfstæðisflokksins: Kapprædur milli ungra sjálfstæðis- og al- þýðubandalagsmanna í Sigtúni í kvöld — útifundur á Lækjartorgi á miðvikudag „SEGJA má að lokakadi kosningabaráttunnar hefjist í kvöld þegar ungliða- samtök Sjálfstæðisflokksins og æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins heyja kappræður í Reykjavík, sagði Inga Jóna Pórðardóttir, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, er hún var spurð um væntanlega framboðsfundi Sjálf- stæðisflokksins fyrir kosningar. Steingrímur Inga „Það er í ráði að halda slíka fundi í öllum kjördæmum landsins nk. laugardag og sunnudag, sagði Inga Jóna. Af öðrum kosninga- viðburðum má nefna að Sjálfstæð- isfélögin í Reykjavík eru með fund um húsnæðismálin í Valhöll í há- deginu á laugardag og að honum loknum verður kosningafundur ungs fólks haldinn í Gamla Bíói. Þar verða bæði flutt ávörp og skemmtiatriði. Þá er ráðgert að halda útifund á Lækjartorgi mið- vikudaginn 20. apríl nk. kl. 17.15 ef veður leyfir. Síðan verður opið hús fimmtudaginn 21. apríl í Valhöll kl. 14.30 þar sem boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá og sérstök skemmtiatriði fyrir börn,“ sagði Inga Jóna. Hún sagði ennfremur að frambjóðendur Sjálfstæðis- flokksins mundu halda áfram af fullum krafti að koma fram á vinnustaðafundum, en um 10—12 Akranes: Fundur um álmálið í kvöld Umræöufundur um álmálið verður á Akranesi í kvöld og mæta þar talsmenn Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Alþýðubandalags. Það er Verðandi, félag ungra sósíal- ista á Akranesi, sem býður til þessa fundar og verður hann haldinn í Rein, húsi Alþýðubandalagsins og hefst kl. 20.30. Fulltrúum Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks var boðið að koma á fundinn. Ræðumenn verða þeir Engil- bert Guðmundsson, Birgir ísl. Gunn- arsson og Guðmundur G. Þórarinsson. Fundurinn er öllum opinn. Kærufrestur vegna kjörskrár útrunninn: Fólk getur komist á kjörskrá með dómi ÞÓTT kærufrestur vegna kjörskrár sé útrunninn, er hægt að fá fólk dæmt inn á kjörskrá hjá dómstólum, samkvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk hjá Óskari Friðrikssyni, sem hefur umsjón með utankjörstaða- skrifstofu Sjálfstæðisflokksins. Óskar sagði að kærufresturinn hefði runnið út sl. fostudag, en þrátt fyrir það væri unnt að komast á kjörskrá með fyrrgreindum hætti. Jafnframt hvatti Óskar fólk til þess að kanna í tíma hvort það væri á skránni. óskar gat þess jafnframt að best væri að fólk sem kysi utan kjörstaðar kysi sem fyrst, því það þyrfti að koma atkvæði sínu í sitt kjördæmi og benti hann á að ef kjósendur kæmu slíkum kjörseðl- um á utankjörstaðaskrifstofu Sjálfstæðisflokksins, yrði séð um að atkvæðið kæmist á leiðarenda. óskar sagði að kosning á spítölum færi fram nk. laugardag og sunnu- dag og kæmi þá fógeti á spítalana og gætu sjúklingar þá kosið. Oskar sagði ennfremur að utan- kjörstaðaskrifstofan væri með bílaþjónustu og aðstoðaði fólk við að komast á kjörstað, ef eftir því yrði leitað. vinnustaðir eru heimsóttir dag- lega. Að sögn Ingu Jónu hafa flokknum einnig borist óskir um að hitta fólk að máli í heimahús- um og munu frambjóðendur Sjálf- stæðisflokksins verða við þeirri bón eftir föngum. Ennfremur er fyrirhugað að frambjóðendur ræði við fólk á götum úti og við verslan- ir um stefnumál flokksins. Inga Jóna bætti því við að landsmenn mundu fá kosningabækling heim- sendan um helgina, en þar verður stefna Sjálfstæðisflokksins kynnt. Frá utankjörstaöaskrifstofu Sjálfstæðisflokksins. Atvinnuvegimir hanga á horrim: Ríkisbáknið tútnar út ÞJÓÐARFRAMLEIÐSLA hefur staðnað. Þjóðartekjur rýrna. Rekstrarstaða atvinnuvega versnar; þeir sæta tapi, ganga á eignir, safna skuldum, þ.á m. erlendis. Þegar bryddar á at- vinnuleysi í ýmsum greinum þjóðarbúskaparins. Atvinnuleysi jókst um 100% milli áranna 1981 og 1982, en hið síðara árið vóru skráðir tvö hundruð þúsund atvinnuleysisdagar hér á landi — og stór hópur íslendinga starfaði erlendis. Skráð at- vinnuleysi í janúarmánuði sl. samsvarar því að 2.346 menn hafi verið á atvinnuleysisskrá allan þann mánuð, eða 2,2% vinnu- færra manna. Meðfylgjandi tafla sýnir fjölgun starfa annarsvegar hjá at- vinnuvegunum, sem þjóðarbúskapurinn og þjóðartekjurnar byggjast á, hinsvegar hjá því opinbera, ríki og sveitarfélögum. Hið opinbera sínnir og, nú orðið, áhættusömum atvinnurekstri, engu síður en stjórnsýslu- og þjónustustörfum. Opið hús í Kópavogi á laugardag SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN í Kópavogi efna til opins húss í húsakynnum Sjálfstæðis- flokksins þar nk. laugardag kl. 15.00—19.00. Kaffiveitingar verða og munu 6 efstu menn D-listans í Reykjaneskjördæmi mæta svo og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, Friðrik Sophusson. Forráðamenn Sjálfstæðisfélaganna hvetja stuðningsmenn D-list- ans í Kópavogi og annars staðar í Reykjaneskjördæmi til þess að koma í Sjálfstæðis- húsið á laugardaginn og rabba þar yfir kaffiveitingum við frambjóðendur flokksins og varaformann.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.