Morgunblaðið - 14.04.1983, Side 23

Morgunblaðið - 14.04.1983, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 1983 23 Landfræðideild háskólans í Bern í Sviss bárust þessar myndir af íslandi frá NOAA-gervihnett- inum 23. mars sl. Þær eru teknar klukkan 2 e.h. að íslenskum tfma úr 800 km hæð. Skýjaþykkni hylur hafið allt í kringum landið en létt er yfir landinu sjálfu. Skyldi líka hafa verið svona létt yfir hugum lands- manna á þessari stundu? Lengst til hægri á stærri myndinni má greina útlínur suðurhluta Noregs og í norðri má grilla í Grænland. Það er mjög óalgengt að svo góðar myndir berist af Islandi. Móttökustöð landfræðideildarinn- ar í Bern er ein af fjórum slíkum stöðvum í Evrópu og hún getur fengið myndir úr NOAA-gervi- hnettinum fjórum sinnum á sól- arhring. Hann fer hring eftir hring í kringum jörðina en deild- inni berast ekki myndir teknar vestar en þessar. E1 Salvador: Pólitískir fang- ar látnir lausir San Salvador, 13, apríl. AP. STJÓRNVÖLD hafa látið lausan 31 pólitískan fanga á undanförn- um tveimur vikum, en svo mörg- um föngum hefur ekki áður verið sleppt á svo stuttum tíma frá því borgarastyrjöldin hófst í landinu fyrir þremur árum. Talsmaður stjórnarinnar sagði þetta ekki vera í neinum tengslum við frumvarp um sakaruppgjöf fyrir vinstri sinnaða uppreisnarmenn sem myndu hætta andspyrnu sinni og taka þátt í kosningum, sem fram eiga að fara í desember á þessu ári. Francisco José Guerrero, að- stoðarmaður Alvaro Magana forseta, sagði að lausn fang- anna nú væri til komin vegna þess, að ekki hefðu fundist nægar sannanir fyrir sekt þeirra. Þeir voru sakaðir um að „hafa tekið þátt í hryðju- verkastarfsemi". Ásakanir Spánverja alveg til- hæfulausar — segja Bretar um heimsókn skipa sinna til Gíbraltar Lundúnum, 13. aprfl. AP. BRESKA flugmóðurskipið „Invinc- ible“ ásamt tylft freigáta og annarra skipa koma tií Gíbraltar í kvöld, þrátt fyrir reiði spænskra stjórnvalda. Breska varnarmálaráðuneytið til- kynnti í dag að ásakanir sem fram hefðu komið í spænskum fjölmiðlum þess eðlis, að bresku skipin væru komin á vettvang til að kanna varn- ir Gíbraltar, væru með öllu tilhæfu- lausar. Talsmaður varnarmálaráðuneyt- isins sagði að ekki væru fyrirhugað- ar neinar æfingar á Gíbraltar og þessi fimm daga heimsókn væri að- eins árlegur atburður. Spænsk stjórnvöld sendu á mánu- dag breskum stjórnvöldum skeyti þar sem lýst er „áhyggjum og óánægju" vegna heimsóknarinnar. Þar segir einnig, að vera breskra skipa á þessum slóðum sé óæskileg og því bætt við, að „Spánn ítreki enn einu sinni ósk sina um að Gíbralt- ar-málið verði leyst með samning- um, í tengslum við niðurstöðu Sam- einuðu þjóðanna til að tryggja heild spænskra landsvæða". Spánverjar hafa löngum krafist yfirráða yfir Gíbraltar sem þeir létu af hendi við Breta í „Utrecht"- samningunum 1713. PLO hafði varað við Abu Nidal Parí.s, Lissabon, 12. aprfl. AP. ABU Iyad, einn af nánustu sam- starfsmönnum Yasser Arafats, sagði frönskum embættismönnum frá því á leynilegum fundi í desem- ber sl., að Abu Nidal-hreyfingin, sem segist bera ábyrgð á morði Palestínumannsins Issam Sartaw- is, hefði í undirhúningi fjöldamörg hryðjuverk í Evrópu og Bandaríkj- unum á þessu ári. Franska fréttastofan kvaðst hafa það eftir áreiðanlegum heimildum, að Abu Iyad, sem heitir réttu nafni Salam Khalaf, hefði haft samband við franska embættismenn 27. desember sl. og varað þá við fyrirhuguðum hryðjuverkum Abu Nidal-hóps- ins í Frakklandi, Italíu, Banda- ríkjunum og Líbanon. Abu Iyad var stofnandi Fatah-hreyfingarinnar ásamt Arafat og er grunaður um að hafa skipulagt hryðjuverkasam- tökin „Svarta september", sem myrti 11 ísraelska íþróttamenn á Ólympíuleikunum í Míinchen. I dag var flogið með lík Issams Sartawis frá Portúgal til Amm- ans í Jórdaníu en ekki er vitað hvenær útför hans fer fram. Einn maður er nú í haldi vegna morðsins, Marokkómaður sam- kvæmt vegabréfi en grunur leik- ur á að það sé falsað. öö PIOIMEER BÍLTÆKI — Viðkynnum bíltækjalínuna frá Pioneer, því nú er rétti tíminn til að endurnýja eða kaupa traust og hljómgott tæki í bílinn KP 7800 útvarpskassettutæki FM/MW/LW Fast stöðvaval Lagaleitari. spilar beggja megin, ATSC öryggikerfi ..Loudness". 6,5w Kr. 8.760.- KP 4800 útvarpskassettutæki FM/MW/LW PNS truflanaeyðir spilar beggja megin ATSC öryggiskerfi ..Loudness," 6 5w Kr. 7.080.- KP 3300 útvarpskassettutæki FM/MW/LW. PNS truflanaeyðir ..Autoreplay". ..Autoeject". 6,5w Kr. 5.820.- KE 1300 útvarpskassettutæki FM/MW/LW Fast stöðvaval ARCF kerfi stjórnar móttökustyrk snertirofar, „Loudness" 6,5w Kr. 8.870.- KE 5300 útvarpskassettutæki Quartz læstar stillingar ARC móttökustillir Sjálfvirkur stöðvaleitari Fastar stöðvastillingar Quartzklukka ..Loudness" 6,5w Kr. 11.520.- Ke* 33. ..Component" útvarpskassettutækl FM/MW/LW 15 fastar stillingar ..Dolby, Metal, Chrome" lagaleitari. ..Loudness" Tveirtónstillitakkar stjórnar sjálfvirkum loftneti ofl. Kr. 11.450.- > t n ~zr | t KE 4300 útvarpskassettutæki FM/MW/LW Fast stöðvaval ARC-kerfi. stjórnar rpóttökustyrk spilar beggja megin ..Loudness" 6 5w Kr. 10.150.- KP 707 ..Component" „Metal, Dolby" kassettutækl Tveir tónstillitakkar, ..Loudness" Kr. 8.060.- GEX 63 ..Component" FM/MW/LW útvarpstæki 15 fastar stöðvar, ..Loudness" Tveir tónstillitakkar ,,PNS, ARC" Kr. 9.220.- Ts162 Dx Niðurfelldir. tvöfaldir 40 — 20.000 Hz 20w Kr. 810.- TS 697 Niðurfelldir, tvöfaldir m/sérstaklega kröftugum bassa 30 — 22.000 Hz. 60w Kr. 2.530.- CD 5 ..Component" 5 banda tónjafnari Kr. 3.920.- Ts1644 Niðurfelldir, sérstaklega þunnir (4 sm) Tvöfaldir ..coaxial' — 20.000 Hz 25w Kr. 1.480.- TS 2000 Tvöfaldir 20 sm ..Woofer" 30 — 21.000 Hz, 60w Kr. 3.370.- GM 4 ..Component" 2x20w magnari Hz 30 — 30 000 Bjögun 0,06% Kr. 2.270.- TS mb Álímdir (t.d mælaborð, hurðir) Tvöfaldir, stillanlegir 350 — 22.000 20w Kr. 1.060.- BP 320 Kraftmagnari 2x20w Kr. 1.880.- GM 120 ..Component" 2x60w magnari Hz3ó — 30.000 Bjögun 0.04% Kr. 5.140.- TSW 203 Niðurfelldir 20 sm ..Woofer" 28—10.000Hz 60w Kr. 2.200.- BP 720 sambyggður Kraftmagnari og tónjafnari 60 — 10.000 Hz 20w ,,Echo" kr. 5.970.- IHUOMBÆRl HUÐM*HEIMIUS*SKRIFSTOFUTÆKI HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999-17244

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.