Morgunblaðið - 14.04.1983, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 14.04.1983, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 1983 33 Heildarsala Volvo jókst um 39% 1982 HEILDARSALA Volvo-samsteypunnar var á síðasta ári um 75.624 milljaröar sænskra króna, sem jafngildir liðlega 215.528 milljörðum íslenzkra króna. Til samanburðar var sala samstevpunnar á árinu 1981 aö upphæð liölega 54.407 milljarðar sænskra króna, sem jafnjjildir um 166.059 milljörðum íslenzkra króna. Söluaukningin milii ára er um 39%. Heildarsala Volvo í fólksbílum var að fjárhæð um 18.109 milljaröar sænskra króna, sem jafngildir um 51.610 milljörðum íslenzkra króna. Til samanburðar var sala Volvo í fólksbílum að fjárhæð um 13.569 milljarðar sænskra króna árið 1981, sem jafnj'ildir um 38.671 milljarði íslenzkra króna. Söluaukningin milli ára er um 33%. Sala Volvo í stærri bílum var að fjárhæð um 14.024 milljarðar sænskra króna í fyrra, sem jafngild- ir um 39.968 milljörðum íslenzkra króna. Til samanburðar var sala fyrirtækisins í stærri bílum árið 1981 að fjárhæð um 11.516 milljarð- ar sænskra króna, sem jafngildir um 32.821 milljarði íslenzkra króna. Aukningin milli ára er um 31%. Söluaukning Volvo-samsteypunn- ar er langmest í orkufyrirtækjum, en þar var salan í fyrra upp á 33.512 milljarða sænskra króna, sem jafn- gildir um 95.509 milljörðum ís- lenzkra króna. Til samanburðar var sala orkufyrirtækja Volvo á árinu 1981 að fjárhæð um 19.503 milljarð- ar sænskra króna, sem jafngildir um 55.583 milljörðum íslenzkra króna. Aukningin milli ára er því um 71%. Heildartekjur Volvo-samsteyp- unnar fyrir skatta voru um 2.440 milljarðar sænskra króna í fyrra, sem jafngildir um 6.954 milljörðum íslenzka króna. Til samanburðar voru tekjur samsteypunnar um 1.425 milljarðar sænskra króna á árinu 1981, sem jafngildir um 4.232 millj- örðum íslenzkra króna. Heildarrekstrarkostnaður Volvo- samsteypunnar á síðasta ári var um 70.992 milljarðar sænskra króna, sem jafngildir um 202.327 milljörð- um íslenzkra króna. Til samanburð- ar var rekstrarkostnaður samsteyp- unnar á árinu 1981 um 45.039 millj- arðar sænskra króna, sem jafngildir um 128.361 milljarði íslenzkra króna. Loks má geta þess, að tekjur Volvo á hvern hlut voru á síðasta ári um 30,90 sænskar krðonur, borið saman við 24,00 krónur árið 1981. Kanna sölumöguleika iðn- fyrirtækja í Færeyjum NÝTT verkefni hófst hjá Útflutnings- miðstöð iönaðarins í nóvember sl„ en markmið þess er að fjölga íslenzkum iðnfyrirtækjum í útflutningi. í þessu sambandi dvaldist starfsmaður Út- flutningsmiðstöðvarinnar í Eæreyjum fyrir skömmu og var það þriðja feröin, sem farin er á vegum þessa verkefnis til Færeyja. í fréttabréfi Félags íslenzkra iðn- rekenda, Á döfinni, segir, að mun meiri áhugi virðist fyrir þessu verk- efni en upphaflega var búizt við, þannig að frá upphafi þess hafi um 35 fyrirtæki snúið sér til Útflutn- ingsmiðstöðvarinnar og beðið um að sölumöguleikar þeirra yrðu kannaðir í Færeyjum. „Árangurinn hefur verið sá, að ein 10—12 fyrirtæki hafa nú þegar feng- ið eina eða fleiri pantanir og tals- verðar líkur eru fyrir því, að þessi tala eigi eftir að hækka þar sem enn er verið að vinna að málum nokk- urra fyrirtækja," segir ennfremur í fréttabréfinu. Seinni hluta aprílmánaðar mun Útflutningsmiðstöðin standa fyrir vélakynningu á nokkrum stöðum í Færeyjum í samvinnu við íslenzkt fyrirtæki og um mánaðamótin maí- júní er stefnt að því að fara til Fær- eyja og er þeim, sem áhuga hafa á, bent á að hafa samband við Jens P. Hjaltested hjá Útflutningsmið- stöðinni. VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMÁL - ATHAFNALÍF Umsjón: Sighvatur Blöndahl A II* ah KOMIÐ, SKOÐIÐ, MllV er OC SANNFÆRIST þegar þrennt er L 300 sendibíllinn frá MlTSUBISHl hefur sannað ágæti sltt á íslandi. Nú getum við boðið tvær nýjar gerðir: „LONCBODY" og „4WD". 4WD fulHEKLA Jj Laugavegi 170-172 Sir HF Sími 21240 þ! ipiðíl kvc ildl ill kl.2 » HAGKAUP Skeifunni15

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.