Morgunblaðið - 14.04.1983, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 14.04.1983, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. APRlL 1983 35 að Sephardim falli vel mjög harð- skeytt stefna Likud gagnvart Aröbum. Margt af þessu fólki ólst upp í Arabalöndum og þurfti að þola harðræði og niðurlægingu af hendi Arabanna og þykir því ekki nema rétt mátulegt að Israelar séu nú herraþjóð. í þriðja lagi komi trúin og hefðin mjög við sögu. Hugmyndafræði Verkamanna- flokksins byggði á þeim kenning- um sionismans að koma á fót þjóðféiagi að vestrænni fyrirmynd og lögð mikil áherzla á kibbutz- uppbyggingu og ræktun jarðar- innar. Hins vegar kom meirihluti Sephardim yfirleitt af trúarlegum ástæðum til að uppfylla spádóm- inn. Þeir héldu sig vera að koma til lands, þar sem smjör draup af hverju strái og guð myndi leysa snöfurmannlega öll þeirra mál. Svo hafa þeir vaknað upp við vondan draum og eru margir treg- ir til að horfast í augu við veru- leikann. Begin hefur komið fram sem talsmaður hinnar gyðinglegu arfleifðar og hefðar og því er fjarska nærtækt að Sephardim halli sér að honum umfram Verkamannaflokkinn, sem Seph- ardim staðhæfa að séu að reyna að slíta tengslin við arfleifðina. Samyrkjubúastefnan er talandi tákn um hvað Ashkenazi Gyðing- ar hafa látið sitja í fyrirrúmi, en hún er svo aftur á nokkru undan- haldi nú, miðað við það sem var bæði fyrir stofnun Ísraelsríkis og fyrstu tvo áratugina. Sumir Sephardim standa á því fastar en fótunum, að þeir séu og langtum betur til þess fallnir að verða aðalmenn í hugsanlegum samningum við Araba vegna þess að þeir þekki arabískt eðli og upp- lag betur vegna uppruna síns. Þetta gengur að vísu þvert á allar tilfinningar þeirra i garð Araba, sem eru langtum öfgafyllri en inn- an Ashkenazi almennt, eins og áð- ur hefur komið fram. Afstaða Sephardim til Araba er ekki nei- kvæð að ástæðulausu, ( ýmsum löndum eins og til dæmis Marokkó og Jemen voru Gyðingar svín- beygðir og niðurlægðir — og þó talar eldri kynslóð Marokkó Gyð- inga eða Jemeníta af angurværð um heimaland sitt og heldur í heiðri ýmsa siði frá þessum lönd- um sem eru og ekki beinlínis allir gyðinglegir. Það er trúlegt að Sephardim telji að miklum meirihluta, að þó svo að hagur þeirra — einkum er átt við hina efnalegu afkomu — hafi heldur versnað undir stjórn Begins en hitt, að hann veiti þeim þó ákveðna forsjá. Þeir telja, og að mörgu leyti með réttu, að Ashken- azi Gyðingar líti niður á þá og þeir myndu verða endanlega undir ef Verkamannaflokksstjórn kæmist til valda. Það er líklega ekki fráleitt að rithöfundurinn Amos Oz hafi lýst þessu nokkuð vel í blaðagrein sem ég sá meðan ég var í ísrael. Hann sagði: »Ég var á kaffihúsi, þar sem meirihluti gesta var Sephardim. Karlmennirnir voru að dreypa á bjór og allt í einu var ég orðinn — sem kibbutznik — tákn og tals- maður Ashkenazi kúgunar og þeir beindu spjótum sinum að mér og sögðu: Þið bíðið færis að traðka okkur endanlega niður í svaðið. Á meðan Begin er við völd erum við öruggir. Hann stjórnar. Þó hafið þið fjármagnið, bankana, blöðin, Histadrut, sjónvarp og útvarp. Lengst af hafið þið stjórnað ísra- el. En hvað gerist svo. Við setturr Begin yfir ykkur. Og nú skuluð þif fá að súpa seyðið af því — leng lengi." texti: Jóhanna Kristjónsdóttir Þýsk-íslenska félagið í Köln: íslandsráð- stefna í níunda sinn HIN árlega íslandsráðstefna á vegum þýsk-íslenska félagsins í Köln var haldin fyrir nokkru í níunda sinn. Ráðstefnuna sóttu um 150 manns frá Köln og víðar. Um- fangsmikil bókasýning var í tengslum við ráðstefnuna. Gat þar að líta nýjar bækur á þýsku um íslensk efni, svo og eldri bækur úr safni íslands- vinarins Heinrich Erkes, en það myndar sérdeild í há- skólabókasafni Kölnar. Fyrirlestrar voru fluttir um fjögur ólík efni. Dr. Schníitgen flutti erindi um lögun og mót- un basalts á íslandi og Dr. Seewald talaði um trúarleg þróunarstig í bókmenntaverk- um Halldórs Laxness. Fyrirlesarar frá Germaníu voru Þórir Einarsson prófess- or er fjallaði um fiskveiðar á íslandi í efnahagslegu tilliti og Úlfur Friðriksson er flutti frá- sögn um íslendinga í útlönd- um og útlendinga á íslandi. Ráðstefnustjóri var H.G. Esser. Forseti þýsk-íslenska félagsins í Köln er Dr. Max Adenauer, fyrrverandi borgar- stjóri í Köln. (FrétUtilkynning frí Germanfn) iJPySur sKVNomerroR . Hamborgart tiuUskn í hádeginu, á kvoldin - heima í vinnunni, á ferðalógum, og hvar sem er. >sina standa í 5 mín.í heitu vatni í potti eða vaski, áður en hún er opnuð, og rétturinn er tilbuinn. Lykkjulok - enginn dosahnifur. Fæst í næstu verslun! Niðursuðuverksmiðjan ORA hf. Sendum um land allt. Útsölustaöir á Akureyri, Akurvík Glerárgötu 20. g*E irumarkaðurinn hf. túla 1A ni 86112.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.