Morgunblaðið - 14.04.1983, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 1983
39
fclk í
fréttum
Elton John
berháttaði
+ Elton John setti nú um daginn
tínan næturklúbb í Túnis á annan
endann. Eftir dýrindis máltíö meí
vinum sínum og nokkrum kaup-
sýslumönnum, (Elton ætlar aö
auglýsa nýja gerö af sólgleraug-
um), tók Elton allt í einu upp á því
aö fækka fötunum og varó
smókingslaufan fyrst til aö fjúka
en nærbuxurnar síðastar.
Victoria Principal
„Pamela Ewing“
vitnar í skilnaðarmáli
+ Á meðan Pamela Ewing gerir
hvaö hún getur til aö halda í leif-
arnar af hjónabandi þeirra
Bobby Ewings á leikkonan sjálf,
Victoria Principal, í dálitlum erf-
iöleikum í sínu einkalífi, eins og
við höfum raunar sagt frá.
Sambýlismaður Principal
heitir Harry Glassman, velmeg-
andi lýtalæknir, og hafa þau ver-
iö óaöskiljanleg í níu mánuöi.
Harry er hins vegar giftur og nú
hefur konan hans stefnt honum
fyrir rétt og krefst þess aö hann
greiöi henni og börnunum um
375.000 kr. ísl. í framfærslueyri
á mánuöi.
Kona Glassmans, Jane, hefur
sundurliöaö reikninginn þannig:
Tæpar 19.000 kr. í föt á mánuði,
6.250 í snyrtivörur, 12.500 í
vinnulaun fyrir manninn sem
hugsar um pottaplönturnar og
slær grasflötina, 15.000 kr. fyrir
sálfræöinginn og 20.000 kr. fyrir
hvert barnanna þriggja.
„Og svo þurfum viö líka
eitthvað aö boröa,“ segir frú
Glassman og telur aö rúmar
250.000 kr. muni duga til þess.
Harry Glassman hefur um
12,5 milljónir kr. í tekjur á ári og
segist ekki geta undir nokkrum
kringumstæöum borgaö þessa
upphæð, eöa 4,75 millj. á ári.
Þaö er hins vegar hér sem Vict-
oria Principal kemur inn í mynd-
ina, því aö Jane hefur krafist
þess aö hún verði látin segja frá
því fyrir rétti hvaö Glassman
hefur gefiö henni mikiö síðustu
níu mánuöina.
„Ég ætla ekki aö láta snuöa
mig um einn einasta eyri þótt
Glassmann hafi fundiö sér ein-
hverja dúkku. Ég hef heldur
ekkert á móti því aö skilja viö
hann en þaö skal þó veröa hön-
um dýrt,“ segir Jane Glassman.
Dragtin
Ný sending í stærðum 36—38. Glæsilegt úrval,
gott verð.
Dragtin, Klapparstíg 37.
Sími 12990.
Strandamenn
Átthagafélag strandamanna heldur vor-
fagnaö í Domus Medica laugardag 16.
apríl kl. 21. Bingó og dans.
Stjórn, skemmtinefnd og
bygginganefnd.
SPUNNH) UM STALÍN
eftir MATTHÍAS JOHANNESSEN
klaufalega að orði við Stalín, þegar hann sagði: Ég er
lyfjafræðingur að mennt og það hefur komið sér vel. Ég
er af fátæku fólki. Ég er frá litlum bæ, en ég átti stóra
drauma. Og þessir draumar urðu stærri en lífið. Áþreif-
anlegri en veruleikinn. Ég reyndi að leika á hann eins og
vindhörpu, án þess hann tæki eftir. Það hafa margir
reynt, en veruleikinn lætur ekki að sér hæða.
Eyru Stalíns eru viðkvæm og eiga erfitt með að greina
milli þess, sem er satt eða logið. Og Yagoda brosir með
sjálfum sér, þegar hann hugsar um, hvað hann hefur logið
miklu í þessi eyru. En hann var ekki einn um það. Þú
hafðir hugrekki, hafði Stalín sagt við hann. Og hann
svaraði: Ég var ekki einn þeirra, sem gerðu sig ánægða
með þægindin ein. Mitt takmark var að fá fimm mola í
kaffið í staðinn fyrir tvo. Það voru mín mistök. Ég hef
samt megnustu andstyggð á bruðli. Stalín varð sótsvartur
í framan. Nú kastaði tólfunum. Yagoda gerði sér grein
fyrir því. Nú var of seint að leita skjóls í þeim orðum
Stalíns, sem urðu honum minnisstæðust: Við skulum taka
höndum saman, því að óvinir ríkisins og samsærismenn
eru allt í kringum okkur, þetta nöðrukyn. Við stöndum
saman, trömpum þá undir fótunum! Sjálfur hafði Yagoda
harla viðkvæm meyjareyru, sem voru opin upp á gátt
fyrir ljúfsáru hvísli elskhugans. Nei, hann hristir höfuðið,
þetta er ekki góð samlíking. En alla vega: Stalín hafði
stutt hann upp á Everest stjórnmálanna. Ekkert stjörnu-
kerfi var svo vel upp byggt, að það kæmist í hálfkvisti við
kenningar hans og hugmyndir. Hann varð smám saman í
augum Yagoda eitt af alheimslögmálunum. Fyrirheit
hans gerðu sólkerfin að öldugjálfri. f vetrarbrautinni
verður alltaf að gera ráð fyrir, að loftsteinar hverfi út í
tómið, en þá brenna þeir upp.
Og Yagoda minnist þess, sem Stalín hafði sagt við
Mironow, yfirmann í öryggislögreglunni, þegar hann var
ásamt öðrum að reyna að fá Kamenev til að játa: Veiztu
hvað land okkar vegur mikið með öllum verksmiðjum,
vélum, her og hergögnum, og flotanum? Það veit enginn,
svaraði Mironov undrandi. Það hljóta að vera stjarnfræði-
legar tölur. Jæja, sagði Stalín, — og getur nokkur einn
maður staðizt slíka stjarnfræðilega þyngd? Nei, svaraði
Mironov. Ég vil játningu. Og ekkert annað, sagði Stalín
ögrandi. Með það veganesti hélt Mironov til Lúbjanka-
fangelsis.
Yagoda hafði heyrt Stalín tala um, að tímarnir minntu
á Róm, áður en kristindómurinn sigraði. Og endurreisn-
ina. Þá herjuðu margir sjúkdómar á löndin. Og heil
sólkerfi falskenninga brunnu upp í hvítum logum lyga og
galdurs: Við brennum sinuna, svo að grasið megi vaxa,
sagði Stalín fjálglega. Allar byltingar nema okkar hafa
farið út um þúfur. Af hverju? Af því þeir fórnuðu ekki
öllu fyrir byltinguna. Þegar þeir hættu að trúa á frönsku
stjórnarbyltinguna, þá hættu þeir að fórna fyrir hana, en
við fórhum öllu. Okkar ríki er byggt á sömu lögmálum og
stjörnukerfin, lögmálum eilífrar reglu, þar sem einstakir
loftsteinar þeytast út í myrkur og gleymsku og brenna
upp. Einu sinni varst þú þumalfingur á minni hægri
hendi, en það kom drep í fingurinn og verður að sníða
hann af. En það mun vaxa nýr þumall samkvæmt lögmáli
sósíalismans.
Yagoda horfir ósjálfrátt á þumalfingur hægri handar.
Hann beygir hann og lætur hann hverfa inn í lófann undir
hina fingurna. Hann minnist þess, hvað það fór illa í
hann, þegar Stalín sagði honum frá því, að hann væri að
lesa Fouché, lögreglustjóra Napóleons, eftir Stefan
Zweig. Og nú telur hann sjálfum sér trú um, að ofsókn-
irnar á hendur honum eigi rætur í þeirri bók. Hann varð
hræddur við Fouché. Það yfirfærðist á mig, hugsar Yag-
oda og virðir enn fyrir sér þumalfingur hægri handar. Það
er engu líkara en það sé honum hugarfró að sjá svart á
hvítu, að þumallinn er á sínum stað á h'endinni og gegnir
því hlutverki, sem honum er ætlað. Kannski hann eigi
einhverja von. Hann reynir að finna bjartar hliðar á þeim
örlögum, sem nú bíða hans, og ekki laust við að hann gæli
við blekkinguna. En hann veit, að Stalín er ekki einungis
KRAMHALD