Morgunblaðið - 14.04.1983, Page 46

Morgunblaðið - 14.04.1983, Page 46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 1983 „Verður Örn með í sumar? ÖRN Óskarsson, hinn sterki bakvðrður, sem gekk til liðs við nýliða Þróttar í knattspyrnunni, á nú við meiðsli ( hásin að stríða og hefur reyndar átt (all- an vetur. Hann hefur verið í sprautu- meöferð til að ná bólgunni úr fætinum, og hefur hann ekkert getað æft meö félögum sínum, en aðeins getað trimmað. Nokkrar líkur eru taldar á því að hann fái bata en ef til þess kem- ur að hann þurfi aö fara í upp- skurð verður hann væntanlega frá í átta til tiu vikur og yröi þaö að sjálfsögðu mjög slæmt fyrir Þrótt, svo og íslenska landsliöiö. — SH. KKÍ með námskeið Körfuknattleikssamband íslands heldur A-stigs námskeiö í Vörð- uskóla 16. og 17. apríl. Nánari upplýsingar á skrifstofu KKÍ. Jóhann Ingi hefur mikið verið (fjölmiðlum vegna góðrar frammistöðu hjá liðinu sem hann þjálfar. Hér má sjá hvar útvarpsfréttamaöur er að fara að ræða við hann eftir sigurleik hjá Kiel. Eins og sjá má er Jóhann Ingi glaöur á svipinn enda tvö dýrmæt stig í höfn. Lið Jóhanns Inga hefur ekki tapað leik síðan 17. desember Kiel er nú í fjórða sæti í 1. deild í Vestur-Þýzkalandi THEW-Kiel, handknattleikslið það sem Jóhann Ingi Gunnars- son þjálfar, gerir það mjög gott í 1. deildar keppninni um þessar mundir. í fyrrakvöld sigraði liðið Nettelsted með eins marks mun, 22—21, eftir hörkuleik. Kiel-liðiö er nú í fjórða sæti (1. deild með 22 stig. Gummersbach hefur for- ystuna með 26 stig, Grosswald- stadt hefur 24 stig, og lið MTSV Schwabing er í þriöja sæti meö 23 stig. Kiel á sex leiki eftir, þrjá leiki á útivelli og þrjá leiki á heimavelli. Þetta er besti árangur THW-Kiel um langt árabil og hef- ur árangur liðsins vskið verð- skuldaða athygli f V-Þýskalandi. Mikið hefur verið fjallað um störf þjálfarans, Jóhanns Inga, og þann góða árangur sem hann hefur náð með liðsmönnum sín- um. — Ég get ekki veriö annaö en ánægöur meö þann árangur sem ég hef náð með liöið. Hann er framar björtustu vonum okkar allra. Liöiö hefur ekki tapað leik síðan 17. desember á síðasta ári. Og það var er viö lékum gegn Grosswaldstadt. Þá hefur þessi góöi árangur okkar orðið til þess aö þaö hefur verið uppselt á alla heimaleiki okkar hér í Kiel. Sjö þúsund manns á hverjum leik. Þetta eru forráðamenn liösins mjög ánægöir með, svo og hinn góöa árangur okkar. Ég get því ekki sagt annað en aö þetta gangi eins vel og kostur er sagöi þjálfari liðsins, Jóhann Ingi Gunnarsson, í spjalli viö Morgunblaöið í gær. Jóhann sagöi að næstu sex leikir liösins yrðu erfiðir. Hann ætti von á því að heimaleikirnir myndu vinnast, en tveir af þremur útileikj- um myndu tapast. En að sjálf- sögöu vonaöist hann eftir sigri í öllum leikjunum. Ef liö mitt veröur í einu af sex efstu sætunum í 1. deild þá er ég mjög ánægður með frammistööuna, sagöi Jóhann. — ÞR. • Þessi mynd er af öllum fararstjórum á Unglingameistaramóti fslands á skíðum sem haldið var á Akureyri um síðustu helgi. Hún var tekin í verðlaunahófi í Sjallanum á mánudaginn, en Skíðaráð Akureyrar veitti þeim þá öllum viðurkenningu fyrir frábært samstarf. Júdómót í Keflavík BARNA- og unglingamót í júdó fer fram laugardaginn 16. apríl kl. 14.00 í íþróttahúsinu v/Sunnubraut í Keflavík. Mótiö er á vegum júdódeildar UMFK, og er opiö öllum börnum og unglingum sem æfa júdó. Mótiö fer þannig fram aö hver viöureign er þrjár mínútur. Þyngdarflokkar skiptast þannig: 7—9 ára +35 og +35 kg, 10—12 ára +40 kg og +40 kg, 13—15 ára +62 kg og +62 kg. 13—15 ára opinn flokkur stúlkna. Keppt veröur á tveimur litlum völlum og foreldrar og velunnarar þessa unga fólks eru hvattir til aö mæta og aö sjálfsögöu aörír. Getrauna- spá MBL. -'S 3 3 e & o Sunday Mirror Sunday People Sunday Express News of the World -C a. 1 £ m ? á? SAMTALS 1 X 2 Arsenal — Man. Utd. 2 2 2 2 2 2 0 0 6 Brighton — Sheff. W'ed. 1 1 X 1 1 4 í 0 Coventry — Birmingham 1 1 1 X 1 X 4 2 0 Man. City — West Ham X X X 2 2 2 0 3 3 Notts. C. — Luton X 1 1 1 1 1 5 1 0 Southampton — Liverpool X 2 X X 2 2 0 3 3 Swansea — Stoke 1 1 X 2 X X 2 3 1 Tottenham — Ipswich 1 1 I 1 X 1 5 1 0 Watford — Nott. Forest 1 1 1 1 1 X 5 1 0 Chelsea — Newcastle 1 X X X 2 X 1 4 1 Derby — Barnsley 1 1 1 1 X X 4 2 0 Leeds — Fulham X 1 1 1 X 1 4 2 0 News of the World spáði ekki um leik Brighton og Sheffield Wednesday einhverra hluta vegna. Opna hollenska meistaramótið í júdó: Bjarni í átta manna úrslit ÍSLENSKIR júdómenn stóðu sig með ágætum á Opna hollenska meistaramótinu í júdó um síðuatu helgi, en það er sterkasta opna mótiö sem haldið er ( Evrópu. Bjarni Friðriksson komst ( 8 manna úrslit í sínum þyngdar- flokki en þar voru 45 keppendur. Þetta er geysifjölmennt mót og styrkleiki þess felst m.a. í því aö þaö sækja bestu júdómenn Aust- ur-Evrópu og einnig þeir bestu frá Bandaríkjunum og Kanada auk Vestur-Evrópumanna. Bjarni Friðriksson keppti í lótt- þungavikt (+95 kg) ásamt 45 öörum, sem kepptu í 12 riölum í forkeppn- innl. Bjarni komst auöveldlega upp í úrslitakeppnina eftir sigur yfir Harbs frá Vestur-Þýskalandi og van Rosmalen frá Hollandi sem hann vann báöa á ippon (fulinaöarsigri áður en lotu var lokiö). I úrsllta- keppninni sigraöi Bjarnl m.a. ung- verska landsliðsmanninn Istvan Szepesi, einnig á ippon. Þegar Bjarni var kominn í átta manna úr- slitin mætti hann Neureuter frá Vestur-Þýskalandi, fyrrverandi Evr- ópumeistara og margföldum verð- launamanni á heimsmeistaramótum og Ólympiumótum (fókk silfur á OL í Montreal 1976). Þetta var jöfn við- ureign og stigin jöfn en Þjóöverjan- um var úrskuröaöur sigurinn. Sigur- vegari í flokknum varð Robert van de Walle frá Belgíu, Ólympíu- meistarinn frá 1980, sem heimsótti íslenska júdómenn 1979. Annar varð Gurin frá Sovétríkjunum. Niels Hermannsson kepptl ( +70 kg flokki, en þar voru keppendur 67 að tötu. Níels varð annar í sínum riðli eftir að hafa sigraö Hollend- ingana Thijessen og Ned, báða á ippon. Var Níels þar með kominn í úrslitakeppnina, en tapaöi þar fyrlr van Heest frá Hollandi sem varð meistari í þessum flokki. Þriðji islenski keppandinn á mót- inu var Kolbeinn Gíslason sem keppti í þungavigt. Hann tapaði þremur viðureignum í riölinum, þar af tveimur naumlega eftir aö hafa haft yfirhöndina þar til í lokin. Komst hann því ekki í úrslitakeppn- Ina. Frammistaöa Bjarna og Níelsar er sérstaklega athyglisverö og Bjarni sýndi þaö enn einu sinni aö hann stendur bestu júdómönnum heims á sporði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.