Morgunblaðið - 16.04.1983, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. APRlL 1983
3
Frá sýningu grunnskólanema í Grindavík. Einn hópur tók sér fyrir hend-
ur umhverfi í heitum löndum og í því tilefni var reist þorp í einni
skólastofunni, eins og hér má sjá.
Ljósm. Mbl. Guðfinnur.
Þessir piltar unnu að verkefni er nefnist íþróttir í Grindavík og hér má
sjá afrakstur þess.
Sýning á verkum grunn-
skólanema í Grindavík
NÚ UM helgina verður í grunn-
skóla Grindavíkur sýning á verk-
um, sem nemendur hafa unnið að í
sérstakri starfsviku. Sýningin
verður frá 14—21 í dag og frá
13—18 á morgun, sunnudag.
Að sögn Gunnlaugs Dan
Ólafssonar skólastjóra er sýn-
ingunni ætlað að gefa mönnum
hugmynd um þá verkefnavinnu,
sem unnin væri í starfsvikunni. I
vikunni er regluleg kennsla lög
niður og nemendur vinna í stað-
inn að ýmsum viðfangsefnum,
flestum í stórum eða smáum
hópum.
Nemendur völdu verkefni að
eigin vali. Meðal viðfangsefn-
anna má nefna umhverfisvernd,
tónlist, tölvur, þróun skólastarfs
í Grindavík, íþróttir í Grindavík,
umferðin, heilsan og við, fæðan,
gamlir atvinnuhættir til sjávar
og sveita og níu ára nemendur
unnu verkefni er þeir nefndu
umhverfi í heitu landi og hafa
þess vegna reist lítið þorp í skól-
anum. Auk þess verða munir,
sem unnir hafa verið í hand-
mennt. Skólaútvarp starfaði alla
vikuna.
í grunnskólanum í Grindavík
eru 460 nemendur og tóku þeir
allir sem einn þátt í verkefna-
vinnunni. Starfsvikur af þessu
tagi eru haldnar annað hvert ár,
og er þetta önnur vikan af þessu
tagi.
Þá verða nemendur með
skemmtun fyrir foreldra á
sunnudagskvöldið og fer hún
fram í kvenfélagshúsinu og hefst
klukkan 21.
Barnalæknar vara
við notkun magn-
yls og asperíns
MORGUNBLAÐINU barst í gær
fréttatilkynning frá Félagi íslenzkra
barnalækna, sem er svohljóðandi:
„Samkvæmt upplýsingum heil-
brigðisyfirvalda, eins og komið hef-
ur fram í fjölmiðlum, er nú hlaupa-
bólufaraldur og inflúenzufaraldur í
landinu.
Félag íslenskra barnalækna vill
vekja athygli á eftirfarandi:
Á síðustu árum hafa rannsóknir
bent til þess að notkun á acetylsal-
icylsýru (Magnyl, Asperin) í sjúk-
dómum þessum gætu leitt til svo-
kallaðs Ray’s sjúkdóms. Ray’s
sjúkdómur er mjög sjaldgæfur
sjúkdómur, en alvarlegur, þar éð
fram koma heila- og lifrarskemmd-
ir hjá sjúklingunum.
Ennþá hefir hann ekki greinst
hér á landi með vissu.
. Enda þótt þetta orsakasamband
sé ekki fullsannað, hafa samtök
bandarískra barnalækna séð
ástæðu til að vara við notkun acet-
ylsalicylsýru (Magnyls, Asperins)
hjá börnum með ofangreinda sjúk-
dóma.“
Sigurður Pálsson
vígslubiskup
lætur af embætti
MEÐ bréfi til biskups, dagsettu 12.
apríl 1983, sagði séra Sigurður Páls-
son vígslubiskup starfí sínu lausu. í
bréfí vígslubiskups er tekið fram, að
það sé í tilefni þess að á þessu ári
eru liðin 50 ár frá prestsvígslu hans.
Séra Sigurður Pálsson var vígð-
ur sóknarprestur til Hraungerð-
isprestakalls í Árnesprófastsdæmi
28. maí 1933. Hann var vígður
vígslubiskup Skálholtsbiskups-
dæmis 1. sept. 1966. Öll þessi 50 ár
hefur hann haft á hendi opinbera
þjónustu innan kirkjunnar.
Ekki talin ástæða til að-
gerða í Fríhafnarmálinu
Rannsóknarlögreglustjóra ríkisins
hefur borist bréf frá ríkissaksóknara
þar sem fram kemur að ekki sé talin
ástæða til aðgerða varðandi ætlað
misferli verkstjóra í Fríhöfninni á
Keflavíkurflugvelli. Bréf ríkissak-
sóknara er svohljóðandi:
„Með bréfi, dags. 3. febrúar sl.,
senduð þér, hr. rannsóknarlög-
reglustjóri, embætti ríkissaksókn-
ara kærubréf Jóns A. Jónassonar,
dags. 26. janúar sl. ásamt fylgi-
skjölum varðandi ætlað misferli
verkstjóra í Fríhöfninni á Kefla-
víkurflugvelli með rangfærslu
stimpilklukkukorta og þá jafn-
framt frumgagna yfirvinnuskrán-
inga.
Málefni þetta var sent varnar-
máladeild utanríkisráðuneytisins
til álits og umsagnar. Umsögn
varnarmáladeildar hefur nú borist
embætti ríkissaksóknara í bréfi,
dags. 5. þ.m. Þar segir meðal ann-
ars svo:
„Að höfðu samráði við ríkisend-
urskoðunina taldi ráðuneytið ekki
ástæðu til frekari aðgerða, enda
stimpilklukka aðeins hjálpartæki
til þess að skrá vinnutíma, en for-
stjóri yfirfer stimpilkort og reikn-
ar sjálfur út vinnutíma. Taldi
ráðuneytið skýringar hans full-
nægjandi.
Sú var einnig skoðun meirihluta
fríhafnarstjórnar, en minnihlut-
inn (Jón A. Jónasson) lýsti yfir, að
hann myndi krefjast frekari rann-
sóknar."
Að fenginni þessari umsögn og
að lokinni gaumgæfilegri athugun
ákæruvalds á möguleikum til að
geta aflað lögfullrar sönnunar
fyrir refsiverðri háttsemi er eigi
krafist frekari aðgerða í málinu
eins og það liggur fyrir.“
ísafjörður:
Fimm til tíu ný lek-
andatilfelli á mánuði
ísafirði, 14. apríl.
TÍÐNI kynsjúkdóma hefur aukist
verulega á ísafírði síðustu mánuðina,
og að sögn Skúla Bjarnasonar yfír-
læknis við heilsugæslustöðina á ísa-
fírði hafa komið til meðferðar 5—10
ný tilfelli á mánuði frá því í haust.
í öllum tilfellum er um lekanda
að ræða, en vart hefur orðið af-
brigðis sem talið er vera komið frá
Grænlandi, en venjuleg penesílín-
lyf duga ekki gegn því, þó hægt sé
að lækna tilfellin með öðrum lyfj-
um. Hins vegar hefðu læknar
mestar áhyggjur af því að konur
gætu gengið lengi með sjúkdóminn
án þess að einkennin kæmu í ljós,
og veruleg hætta væri á að ófrjó-
semi leiddi af slíku. Hægt væri að
lækna sjúkdóminn í öllum tilfell-
um, en nauðsynlegt væri að fá
hann til meðferðar sem allra fyrst.
Ekki kvað Skúli ástæðu til að
ætla að lekandatilfellin mætti
rekja til komu grænlenskra sjó-
manna til bæjarins, en Grænlend-
ingar leggja upp rækju á tsafirði.
Sem kunnugt er eru kynsjúkdómar
alvarlegt vandamál á Grænlandi.
- Clfar
Qpið í dag til kl4
SAAB- eigendur athugið,
tökum þann gamla upp í nýjan
-eða seljum hann fyrir þig
ef þú vilt heldur. Mikil
eftirspurn tryggir hagstæð skipti.
TÖGCURHH
SAAB
UMBOÐIÐ
BÍLDSHOFÐA 16. SÍMAR 81530-83104