Morgunblaðið - 16.04.1983, Qupperneq 12
Stjórnmálafundur Vorboðans í
Hafnarfirði á mánudagskvöld
SjálfsUeðiskvennafélagift Vorboöi í Hafnarfirði efnir til almenns stjórn-
málafundar nk. mánudagskvöld 18. aprfl kl. 20.30 í Sjálfstcðishúsinu {
Hafnarfirði. Ræður flytja Salome Þorkelsdóttir, alþm. og Kristjana Milla
Thorsteinsson, viðskiptafrsðingur.
Matthías Á. Mathiesen, alþm., Gunnar G. Schram, prófessor og Olafur G.
Einarsson, alþm. flytja ávörp.
Þá mun Júlíus Víflll Ingvarsson óperusöngvari syngja við undirleik Ólafs
Vignis Albertssonar og kaffiveitingar verða.
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. APRÍL 1983
ALÞINGISKOSNINGARNAR
Frá fundinum á ísafirði.
Fjölmennur stjórnmálafundur á ísafirði:
Framsóknarflokkur og Alþýðubandalag
bera ábyrgð á aukningu verðbólgunnar
— segir Matthías Bjarnason alþingismaður
Kosningasamkoma ungs
fólks í Operunni í dag
UNGA fólkið í Sjálfstæðisflokknum
efnir til kosningahátíðar í dag, laug-
ardag, í húsi Íslenzku óperunnar,
(Gamla Bíói) kl. 13.45-16.00. Þar
munu fulltrúar ungra sjálfstæðis-
manna flytja ávörp, þau Bessí Jó-
hannsdóttir, Ámi Sigfússon, Davíð
Oddsson og Geir H. Haarde.
Þá mun hljómsveitin Þeyr,
fyrsta íslenzka rokkhljómsveitin,
sem leikur í húsakynnum óper-
unnar, kynna nýjar stefnur, Þor-
geir Ástvaldsson og Magnús
Ólafsson skemmta og Júlíus Vífill
Ingvarsson, óperusöngvari syngja.
Magnús Kjartansson leikur létt
lög frá kl. 13.45.
Sjálfstæðiskonur á Suðurnesj-
um efna til fjölskylduhátíðar i
Stapa í Njarðvík í dag kl. 14.00.
Á þessari fjölskylduhátíð munu
koma fram fjölmargir skemmti-
kraftar úr Vogum, Grindavík,
Sandgerði, Garði, Njarðvík og
Keflavík. Að sögn aðstandenda
þessarar fjölskylduhátíðar
munu frambjóðendur Sjálfstæð-
isflokksins í kjördæminu mæta
„og sýna kannski á sér nýja
hlið“. Þessi fjölskylduhátíð á
Suðurnesjum er öllum opin.
Opið hús í Kópavogi í dag
Sjálfstæðisfélögin í Kópavogi
efna til opins húss í húsakynnum
Sjálfstæðisflokksins þar, í dag,
laugardag, kl. 15.00—19.00.
Kaffiveitingar verða og munu 6
efstu menn á framboðslista
Sjálfstæðisflokksins í Reykja-
neskjördæmi mæta, svo og Frið-
rik Sophusson, varaformaður
Sjálfstæðisflokksins. Forráða-
menn Sjálfstæðisfélaganna
hvetja stuðningsmenn D-listans
í Kópavogi og annars staðar í
kjördæminu til þess að koma í
Sjálfstæðihúsið á laugardaginn
og rabba þar yfir kaffiveitingum
við frambjóðendur flokksins og
oorn form nnn
SJÁLFSTÆÐISMENN héldu fjöl-
mcnnan stjórnmálafund á ísafirði sl.
miðvikudagskvöld, en frummælandi
á fundinum var Geir Hallgrímsson
formaður Sjálfstæðisflokksins. Auk
Geirs fluttu ávörp þrír efstu menn á
framboðslista flokksins fyrir kosn-
ingarnar, þeir Matthías Bjarnason
alþingismaður, Þorvaldur Garðar
Kristjánsson alþingismaður og Einar
K. Guðflnnsson stjórnmálafræðing-
ur.
Einar K. Guðfinnsson sagði í
ávarpi sínu að sagt væri að al-
menn pólitísk deyfð ríkti í landinu
og að minni áhugi væri vegna
kosninganna en venjulega. Hins
vegar væri það ekki reynsla
sjálfstæðismanna á Vestfjörðum
og væri það vonandi tákn þess að
hinn pólitíski leiði, sem um væri
rætt, væri ekki ríkjandi í Vest-
fjarðakjördæmi.
Einar sagði illt til þess að vita,
að vonbrigði manna með stjórn-
málaþróunina frá árinu 1978
leiddi til þess að tækifærissinnuð
stjórnmálasamtök hlytu byr undir
báða vængi. „Þeir menn sem enn
eru að bera á borð fyrir kjósendur
sömu klisjurnar og fyrir fjórum
eða fimm árum, eru ekki líklegir
til þess að boða betri tíð nú,“ sagði
Einar. „Við vandamál þjóðar
okkar verður ekki ráðið með er-
lendum stjórnskipunarhugmynd-
um, sem eiga ekki við hér á nokk-
urn hátt,“ sagði Einar K. Guð-
finnsson.
Helgi H. Jónsson
um varnarmálin:
„Þjóðviljinn ...
heiðarlegri en
MorgunbIaðið“
„Máltækið segir að margt sé
líkt með skyldum. Morgunblað-
ið og Þjóðviljinn eiga það sam-
eiginlegt að hræra saman
flokkspólitík og fréttum. Þjóð-
viljinn er þó að því leytinu til
heiðarlegri en Morgunblaðið,
að hann dregur enga dul á
þetta. Annað hef ég ekki við
Morgunblaðið að segja."
Þetta var svar Helga H.
Jónssonar, annars manns á
lista Framsóknarflokksins í
Reykjanesi, er Morgunblaðið
innti hann eftir afstöðu hans
til NATO og varnarsamstarfs
við Bandaríkin.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson
sagði í ræðu sinni að búa þyrfti að
þeim landshlutum sem verst væru
settir og höllustum fæti stæðu og
þar sem hættan á fólksflótta væri
mest. Ætti þetta einkum við um
Vestfjarðakjördæmi. „Núna bíða
okkar á Vestfjörðum risaverkefni,
kannski meiri verkefni og öriaga-
ríkari en við höfum haft við að
glíma í marga áratugi," sagði
Þorvaldur Garðar. Sagði hann að
ekki gæti gengið að hlutur Vest-
firðinga í sjávarafla og fisk-
vinnslu færi minnkandi borið
saman við landið. „Það verður að
snúa þessari þróun við, þannig að
okkar hlutur sé ekki minni en
hann hefur mestur verið áður,“
sagði Þorvaldur Garðar. Jafn-
framt gat hann þess að nauðsyn-
legt væri að styrkja landbúnað á
Vestfjörðum og ekki væri þolandi
að fleiri sveitir færu i auðn en nú
væri orðið. „Við verðum að stöðva
þessa þróun og síðan að snúa vörn
í sókn,“ sagði Þorvaldur Garðar
Kristjánsson.
Matthías Bjarnason sagði að
vinstri flokkarnir virtust ekki
gera sér grein fyrir því að þeir
tóku á sig þá miklu ábyrgð að
verðbólgan er nú um eða yfir
100%. Þeir töluðu eins og það
kæmi þeim ekkert við.
Það væri einkum skringilegt að
sjá leiðtoga Framsóknarflokksins
þegar þeir töluðu um þennan
vanda, það væri eins og hann
kæmi þeim ekki við. „Framsókn-
arflokkurinn og Alþýðubandalagið
bera ábyrgð á því að hafa aukið
verðbólguna og nú er hún orðin
svo risavaxin að það verður ekki
náð árangri nema með samstilltu
átaki og myndun sterkrar ríkis-
stjórnar,“ sagði Matthías.
Matthías sagði erfitt að svara
þeirri spurningu, hvað tæki við
eftir kosningar, en það myndi
þjóðin gera á kjördag. Eftir kosn-
ingar yrði að mynda ríkisstjórn,
sem þyrði að takast á við vandann.
Hins vegar sýndi reynsla síðustu
ára að Sjálfstæðisflokkurinn einn
væri í stakk búinn til að takast á
við þjóðarvandann.
,VIÐ ÁLÍTUM AÐ RETT SE
0G SJÁLFSAGT AÐ LEYFA EKKI
UMRÆÐUR NE GEFA F0LKI
K0ST Á AÐ VEUA UM NEITT
NEMA Á GRUNDVELLI
S0CIALISMANS
HJÖRLEIFUR GUTTORMSSON
iðnaðarráðherra
*£\
ÍSLENSK LEIÐ í
UNGIR Sjálfstæðismenn
hafa gefið út veggspjald,
þar sem vitnað er í skýrslur
Hjörleifs Guttormssonar,
iðnaðarráðherra, sem hann
ritaði þegar hann var við
nám í Austur-Þýskalandi
og sendi Sósíalistaflokkn-
um og Einari Olgeirssyni
greinargerðir um þróun
stjórnmála í kommúnista-
ríkjunum og æskilega
stefnu hér á landi.
Fjölskylduhátíð á Suðurnesjum
Skemmtikraftar frá Vogum, Grindavík, Sandgerði, Garði, Njarðvík og Keflavík