Morgunblaðið - 16.04.1983, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. APRÍL 1983
21
Ágúst Petersen sýnir
í Listmunahúsinu
LAUGARDAGINN 16. aprfl kl. 14.00
verdur opnuð í Listmunahúsinu,
Lækjargötu 2, sýningin SKYGGNST
UNDIR SKELINA. Á þessari sýn-
ingu eru eingöngu manna- og
portretmyndir eftir Agúst Petersen.
Ágúst fæddist í Vestmannaeyj-
um 20. nóvember 1909. Hann
stundaði nám í teikningu hjá hin-
um kunna teiknara og gullsmið,
Birni Björnssyni, á árunum 1930
til 1931. Þá var hann við nám í
Myndlistarskólanum í Reykjavík
árin 1946 til 1953. Þar var aðal-
kennari hans Þorvaldur Skúlason.
Árið 1955 fór Ágúst i námsferð til
Frakklands og Bretlands.
Ágúst hefur haldið fjölda einka-
sýninga og tekið þátt í samsýning-
um bæði hérlendis og erlendis.
Sýning þessi er að hluta til sölu-
sýning en einnig eru margar
myndir fengnar að láni hjá söfn-
um og einstaklingum.
Sýningin er opin daglega frá kl.
10 til 18, laugardaga og sunnudaga
frá kl. 14 til 18. Lokað mánudaga.
Síðasti sýningardagur er 1. maí.
Ketill Larsen opnar sýningu
DAGANA 16.—23. aprfl, heldur Ket-
■II Larsen málverkasýningu að Frf-
kirkjuvegi 11. Sýninguna nefnir
hann „Ljós frá öðrum heimi“.
Þetta er 14. einkasýning Ketils.
Á sýningunni eru um 45 myndir.
Þær eru ýmist málaðar í olíu eða
acryl-litum. Einnig eru nokkrar
teikningar. Á sýningunni verður
leikin tónlist eftir Ketil af segul-
bandi, til að undirstrika blæbrigði
myndanna. Sýningin verður opin
alla dagana frá kl. 14—22.
(FrétUtilkynning)
JNeiOgistiMgiMfr
Áskriftarsíminn er 83033
81144
Grensásveg 3
33530
RENAULT
TRAFIC
Lipurogrúm-
góöur sendibíll
Framhjóladrifinn, rúmgóður og lipur sendi-
bíll. Sérstaklega hentugur fyrir fyrirtæki
til vöruútkeyrslu og sendiferða.
Vélastærð: 1397 cm bensín. 2068 cm diesel.
Burðargeta: 800 kg eða 1000 kg.
RENAULT er reynslunni ríkari.
KRISTINN GUÐNASON HF.
SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633