Morgunblaðið - 16.04.1983, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. APRÍL 1983
Héraðsvaka á Egilsstöðum **
Menningarsamtök Fljótsdalshér-
aðs gangast fyrir „Héradsvöku“
meö breyttu sniöi frá því, sem hefur
verið um skeið. Áform um enn frek-
ara átak í þessum efnum verður þó
að bíða betri tíma vegna aðvífandi
kosninga nú. I'að telst til nýbreytni,
að efnt er til fjölbreyttrar sýningar,
sem hlotið hefur heitið „Alþýðulist".
Aðilarnir eru alls níu talsins og
gripir fjölbreyttir að gerð: olíu-
í(TM ^
,.1
%.
Selma Jónsdóttir, forstöðumaður Listasafns íslands í sýningarsal Listasafns
íslands. Morgunblaðið / Kristján Einarsson.
Listasafn íslands:
Höggmyndasýning opnuð
í dag, laugardaginn 16. apríl, verð-
ur opnuð höggmyndasýning í Lista-
safni íslands. Á sýningunni eru verk
eftir Ásmund Sveinsson, Kinar
Jónsson og Sigurjón Ólafsson. I'á
eru á sýningunni Ijósmyndir eftir
einn þekktasta Ijósmyndara Banda-
ríkjanna, David Finn, af höggmynd-
um listamannanna. Finn tók þessar
myndir þegar hann var hér á ferð í
fyrra.
Sýningin verður opnuð klukkan
hálf tvö í dag og verður opin til 1.
maí sem hér segir: um helgar frá
13.30 til 22 og virka daga frá 13.30
til 18. Eftir 1. maí og til 15. maí
verður opið um helgar eins og áð-
ur, en síðan aðeins á þriðjudögum
og fimmtudögum frá 13.30 til 16.
málverk, vatnslitamyndir, stein-
myndir, teikningar, tréskurður,
vefnaður o.fl. Þótt flestir sýnenda
séu sjálfmenntað áhugafólk eru
sumir meðal þeirra menntaðir í
myndlist. Áformað er að slíkar
sýningar verði árlegur viðburður á
Héraði.
Héraðsvakan hófst með kvöld-
vöku í Menntaskólanum fðstudag-
inn 15. apríl en að lokinni vökunni
var sýningin opnuð.
í dag, laugardaginn 16. apríl, er
sýningunni „Alþýðulist" haldið
áfram frá kl. 14—21. Þá hefst kab-
arett í Valaskjálf (kl. 9 e.h.) sem
Leikfélag Fljótsdalshéraðs og
Tónkór Fljótsdalshéraðs sjá um.
Almennur dansleikur verður að
loknum kabarettinum með hljóm-
sveitinni Skruggum.
Á sunnudag kl. 14 verður sýn-
ingin „Alþýðulist" opnuð á ný og
við lok hennar kl. 18 er Héraðs-
vöku lokið.
Þórður Ilall ásamt tveimur verka sinna.
Morgunblaðid/Emilía
Þórður Hall opnar sýningu
í kjallara Norræna hússins
KLIIKKAN þrjú í dag opnar Þórður
Hall sýningu á myndverkum sínum í
kjallara Norræna hússins. Á sýning-
unni eru 51 mynd, 40 olíumálverk og
11 teikningar.
Þórður hefur tekið þátt í fjölda
samsýninga bæði hér heima og
erlendis, en síðasta einkasýning
hans var í Helsinki fyrir tveimur
árum.
Efnivið í myndir sínar sækir
Þórður einkum til náttúrunnar, en
flestar myndirnar eru lands-
lagsmyndir eða náttúruform. Sýn-
ingin er opin daglega milli 14 og
22 og stendur til 1. maí.
Rennt í gegnum listasöguna
— Guðmundur Björgvinsson opnar sýningu á Kjarvalsstöðum
stórar, sú stærsta er til dæmis 3x18
metrar.
Á sýningunni eru líka háraun-
GUÐMUNDUR Björgvinsson mynd-
listarmaöur með meiru opnar sýningu
á Kjarvalsstöðum laugardaginn 16.
apríl. Guðmundur sýnir 60 verk, unn-
in með akryl á striga. Listamaðurinn
lýsir sýningunni svo:
„Við getum sagt að sýningin sé
þrískipt. Kjarni sýningarinnar er
eins konar ferðalag í gegnum lista-
söguna. Ég tek listasöguna fyrir og
tjái mig um mörg helstu verk
hennar á expressionistískan hátt.
Við getum kallað þetta endurbæt-
ur, eða helgispjöll, eftir atvikum.
Það eru 35 myndir sem tilheyra
þessum kjarna og eru sumar ansi
sæjar myndir og síðan eru þarna
myndir sem eru einhvers staðar á
milli þess að vera raunsæjar og
raunvilltar. Mótífið er mannslík-
aminn og maðurinn sem slíkur, en
blóm eða landslag er hvergi að
finna á þessari sýningu."
Verkin á sýningunni eru unnin á
sl. tveimur árum, en fyrir hálfu
öðru ári var Guðmundur með sýn-
ingu á Kjarvalsstöðum og hefur
haldið tvær minni sýningar síðan, í
Djúpinu og Gallerí Lækjartorgi.
Sýningin opnar kl. 14 á laugardag-
inn.
Guðmundur Björgvinsson I góðum
félagsskap.
MorgunblaÖid/Kristján Einarsson.
r
Tíl unga
fólksins í
Reykjavík
Ungt fólk á samleiö meö Sjálfstæöisflokknum.
Hann hefur jafnan veriö brautryöjandi nýrra
hugmynda og hlýtt kalli ungs fólks í stefnu og
l störfum.
/ Nú er þörf nýrrar endurreisnar og Sjálfstæöis-
9 flokkurinn er tilbúinn aö hafa forystu fyrir
henni.
Komiö og kynnist nýjum viöhorfum í húsi ís-
lenzku óperunnar (Gamla bíó) laugardaginn
16. apríl kl. 13.45—16.00. Þar flytja ungir
sjálfstæöismenn ávörp og landskunnir
I skemmtikraftar koma fram.
Magnús Kjartansson
leikur létt lög frá kl.
13.45.
Stutt ávörp á milli
skemmtiatriða:
Árni Sigfússon,
Bessí Jóhannsdóttir,
Davíö Oddsson,
Geir H. Haarde.
Hljómsveitin
Þeyr
— fyrsta ís-
lenska
rokkhljóm-
sveitin í húsi
íslensku óper-
unnar —
Kynnir nýjar
stefnur.
r
Okeypis aógangur
á meðan
húsrúm leyfir
Þorgeir
Ástvaldsson
og Magnús
Ólafsson
skemmta.
Magnús er
jafnframt
kynnir.
Júlíus Vífill
Ingvarsson
Óperu-
söngvari
syngur.
Ný
viðhorf
x-D