Morgunblaðið - 27.04.1983, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. APRlL 1983
5
WMKagSSlK—=
’ÞETTfl ER 5VCHB flflflllECfl
MILLIFISKUR HJfl OKKUR"
Þakkir til
Austfirðinga
HUGHEILAR þakkir færum við öll-
um þeim í Austurlandskjördæmi,
sem studdu okkur í kosningabarátt-
unni með ráðum og dáð. Þar unnu
margar hendur létt verk með þeim
árangri, sem glæsilegastur er, og
markar tímamót í stjórnmálum
landshlutans. Of langt mál yrði upp
að telja allan þann fjölda einstakl-
inga, sem sérstakar þakkir eiga skil-
ið, en ítrekum að hér eiga allir for-
ystumenn flokksins í kjördæminu
óskilið mál, sem seint verður full-
þakkað.
Reykjavík, 26. aprfl 1983,
Sverrir Hermannsson,
Egill Jónsson.
Dómkórinn við
Náttsöng í
Hallgríms
kirkju
NÁTTSÖNGUR er nú aftur orðinn
reglubundinn þáttur í helgihaldi
Hallgrímskirkju eftir það hlé, sem
varð um föstutímann og fer nú fram
hvert miðvikudagskvöld kl. 22.00.
Þar flytja listamenn stutt tón-
verk eða ljóð og kirkjugestir sam-
einast í flutningi náttsöngs, tíða-
gjörðar eftir formi sem dr. Róbert
A. Ottósson og Sigurður vígslu-
biskup Pálsson settu saman og
gáfu út árið 1963.
I kvöld, 27. apríl, kl. 22.00 er kór
Dómkirkjunnar í Reykjavík gest-
ur Náttsöngs, en hann flytur valin
kórverk undir stjórn dómorganist-
ans Marteins H. Friðrikssonar.
Allir eru velkomnir til Náttsöngs,
en aðgangur er ókeypis.
FrétUtilkynning frá Listvinafélagi
llallgrímskirkju.
Prentvillur í
afmælisgrein
TVÆR slæmar prentvillur urðu í af-
mælisgrein Hannibals Valdimars-
sonar um Guðgeir Jónsson í Morg-
unblaðinu í gær.
Þar stóð, að „12 félög sögðu sig
úr Alþýðubandalaginu á árunum
1938—1940“ en átti að sjálfsögðu
að vera Alþýðusambandinu. Þar
stóð ennfremur að meðlimatala
Alþýðusambandsins hefði verið
komin upp í 200 þúsund árið 1944
en átti að vera 22 þúsund. Þetta
leiðréttist hér með.