Morgunblaðið - 27.04.1983, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 27.04.1983, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1983 Áhugi almenn- ings á fræðslu um krabbamein AÐALFUNDUR Krabbameinsfélags Reykjavíkur var haldinn 21. mars sl. Þar kom fram að greinilega verður vart mikils og vaxandi áhuga á fræðslu um krabbamein og krabbameinsvarnir. Á það við um skóla og félagasamtök jafnt sem einstaklinga. Skýrslur formanns og framkvæmdastjóra gáfu jafn- framt til kynna margþætt og öflugt fræðslustarf á liðnu starfsári. Félagið hélt sjálft tvo fjölsótta fræðslufundi á árinu, annan um lyfjameðferð og interferon-með- ferð við krabbameinum, hinn um krabbameinsleit. Einnig voru út- vegaðir fyrirlesarar og fræðslu- efni á marga fundi aðra, þar á meðal 8 fundi um krabbameinsleit sem kvenfélög á Vestfjörðum héldu fyrir forgöngu Sambands vestfirskra kvenna. Fræðslustarfið í grunnskólum landsins var að mestu leyti með sama sniði og undanfarin ár en þau mannaskipti urðu að Sigurður Ragnarsson fræðslufulltrúi lét af störfum í fyrravor en við tóku um haustið Einar Axelsson lækna- nemi og Ingileif Ólafsdóttir hjúkr- unarfræðingur. Á þessu skólaári eru allir 5.-9. bekkir á höfuðborg- arsvæðinu heimsóttir og nokkrar fræðsluferðir hafa verið farnar út á land. Fræðslustarf Krabba- meinsfélagsins í grunnskólunum miðar sem kunnugt er einkum að reykingavörnum en þær eru einn mikilvægasti þáttur krabba- meinsvarna. Starfsemin hefur í núverandi formi staðið rúm sjö ár og kannanir borgarlæknis hafa ítrekað sýnt að verulega hefur dregið úr reykingum grunnskóla- nema í Reykjavík frá því að hún hófst. Félagið stefnir að því að geta næsta haust gefið framhalds- og sérskólum kost á misjafnlega ít- arlegum námskeiðum um krabba- mein og krabbameinsvarnir. Sér- stök áhersla verður lögð á fræðslu um forvarnir við krabbameini. Guðbjörg Andrésdóttir hjúkrun- arkennari var í vetur ráðin til að vinna að þessi máli sérstaklega. Slík námskeið verða væntanlega einnig á boðstólum fyrir félög og fyrirtæki. Tveir nýir bæklingar voru gefn- ir út á starfsárinu, „Krabbamein í vör, munni og nefholi" eftir Stefán Skaftason yfirlækni og „Krabba- mein í eistum" eftir Geir Ólafsson lækni. Fimm áður útkomnir bækl- ingar voru endurprentaðir. Unnið var að bæklingi með leiðbeining- um um endurþjálfun fyrir konur sem brjóst hefur verið tekið af, væntanlegur er bæklingur um krabbamein í eggjastokkum. Tví- vegis þurfti að endurprenta leið- beiningaritið „Ekki fórn heldur frelsun" vegna mikillar eftir- spurnar frá fólki sem vildi hætta að reykja. Öll fræðslurit Krabba- meinsfélagsins eiga að liggja frammi á heilsugæslustöðvum. Út komu þrjú tölublöð af Tak- marki. Var því eins og áður dreift ókeypis til grunnskólanema um land allt og ýmissa annarra. Upp- lag Takmarks er 30 þúsund eintök. Krabbameinsfélag Reykjavíkur veitti að vanda nokkra styrki til utanferða á fundi og ráðstefnur um krabbamein og málefni krabbameinssjúklinga og studdi við bakið á Stómasamtökunum og Samhjálp kvenna. Einnig veitti fé- lagið styrk til útgáfu á riti Krabbameinsfélags íslands um krabbameinsskrána. Árgjald félagsins til Krabba- meinsfélags íslands og framlag til byggingarsjóðs félagsins nam á árinu samtals tæplega 2,4 millj. kr. Að langmestu leyti er þar um að ræða tekjur af Happdrætti Krabbameinsfélagsins en einnig að nokkru gjafafé. Formaður Krabbameinsfélags Reykjavíkur er Tómas Á. Jónas- son yfirlæknir en aðrir í stjórn Baldvin Tryggvason sparisjóðs- stjóri, Erla Einarsdóttir gjaldkeri, Jón Þ. Hallgrímsson læknir, Páll Gíslason yfirlæknir, Sigríður List- er hjúkrunarfræðingur og Þórar- inn Sveinsson læknir. Fram- kvæmdastjóri Krabbameinsfélags Reykjavíkur er Þorvarður Örn- ólfsson. (Úr frf'tlatilkynníngu.) Washington-pistill: Að lifa lífinu lifandi Kennedy Center var fagurlega uppljómað er okkur bar þar að garði. Prúðbúið fólk streymdi að ýmist gangandi eða akandi og virtist straumurinn endalaus. Það var reyndar ekki undrunarefni, því að í þessu geysistóra og glæsilega menn- ingarsetri geta verið 6 uppfærslur samtímis. Þetta kvöld var sýnt í Eisenhow- er-leikhúsinu leikrit eftir Moss Hartmann. í óperusalnum söng Placido Domingo. í tónleikasalnum lék Andrés Segovia og þangað lá leið okkar og unga fólksins. Menn höfðu börn sín með sér. Enginn hefur gert jafnmikið fyrir gítarinn og Andrés Segovía. Hann hóf gítarinn til vegs og virð- ingar í heimi tónlistarinnar og fyrir Segovía hafa helstu tónskáld aldarinnar samið tónverk og til- einkað honum. Segovía hóf ungur nám í fiðlu- leik en sneri sér fljótlega að gít- arnum þrátt fyrir kröftug mót- mæli foreldra sinna og kennara. Þar sem honum reyndist ómögu- legt að finna hæfan kennara, gerð- ist hann sinn eigin leiðbeinandi. Aðeins 16 ára að aldri var hann orðinn þekktur í heimalandi sínu, Spáni. Síöan hefur hann verið óþreytandi og leikið í hljómleika- sölum um allan heim. Það var eftirvænting í salnum. Segovía gekk inn á sviðið. Hann heilsaði með því að lyfta gítarnum í átt til áheyrenda. Tónleikarnir hófust á Andante, Menuet og Rondo eftir Sor. Gítarinn virtist halda illa stillingu og varð af því mikil truflun. Torroba var næstur á efnisskrá. Verkið var nokkuð langt, og styrkur fingranna ekki alltaf jafn. Á miðhluta tónleik- anna lék Segovía verk eftir Bach. Þar kom fram Segovía sem flestir Hrafnista í Hafnarfirði. Nýtt happdrættisár að hefjast hjá DAS NYTT happdrættisár er að hefjast hjá Happdrætti DAS, en starfsár þess er frá maí til apríl ár hvert. Vinningar hækka mikið að verð- mæti, lægsti vinningur verður fimm- tán hundruð krónur, en sá hæsti, aðalvinningurinn húseign að eigin vali fyrir eina og hálfa milljón króna, segir í frétt frá happdrættinu. Vinningar til íbúðakaUpa verða ellefu, hver að upphæð 400 þúsund krónur. Ennfremur 100 bflavinn- ingar á 75 þúsund krónur og 300 utanlandsferðir á 25 þúsund krónur hver. Húsbúnaðarvinningar verða á 7500 kr. og 1500 kr. Samtals verða vinningar 7200, að heildarverðmæti kr. 32.682.000,- Mánaðarverð miða hækkar úr 40 kr. í 60 kr. Ársmiði 720 kr. Happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjómanna er nú að hefja sitt 30. starfsár, en það var stofn- sett af sjómannadagssamtökunum í Reykjavík og Hafnarfirði 1954. Á fyrstu níu árum þess rann ágóðinn óskiptur til byggingar Hrafnistu í Reykjavík, en þá var lögum þess breytt og 40% hagnaðarins síðan runnið til Byggingasjóðs aldraðs fólks sem styrkir byggingar dval- arheimila fyrir aldraða víðs vegar um land. 60% hagnaðarins hefur runnið áfram til bygginga Hrafn- istuheimilanna, nú seinustu árin til Hrafnistu í Hafnarfirði. Fyrsti áfangi Hrafnistu í Hafn- arfirði tók til starfa fyrir 5 árum, en það er almenn vistdeild fyrir 100 vistmenn. Annar áfangi Hrafnistu í Hafn- arfirði var svo tekinn í notkun í lok síðastliðins árs, en það er sér- hönnuð hjúkrunardeild fyrir 88 manns. Byggingu hennar er þó ekki lokið, þar sem eftir er að ljúka frágangi 1. hæðar þar sem verður fullkomin endurhæfingar- aðstaða, læknastofur, skrifstofur, sundlaug o.fl. Einnig er ólokið inn- réttingu 5. hæðar og frágangi lóð- ar. Þar sem seinasta ár var ár aldr- aðra, er athyglisvert og ánægju- legt að benda á að margar stúkur Oddfellowreglunnar og Lions- klúbbar, auk launþegasamtaka og sveitarfélaga, gengu til samstarfs við okkar samtök við byggingu hjúkrunarheimilisins. Og áfram skal unnið, því verk- efnin í hagsmunamálum aldraðra eru óþrjótandi. Samhliða því að ljúka hjúkrunarheimilinu er verið að skipuleggja og undirbúa fram- kvæmdir við byggingu verndaðra þjónustuíbúða fyrir aldraða og ör- yrkja í einnar hæðar smáhúsum í lóð Hrafnistu í Hafnarfirði, hvert með þremur litlum íbúðum af mis- munandi stærð. Væntanlegir íbú- ar þessara húsa munu eiga kost á aðstoð ef veikindi verða og að sækja þá félagslegu aðstöðu, vinnu- og tómstundasali, heilsu- rækt og annað það er vistfólk Hrafnistu í Hafnarfirði á að ganga að, sem og er í fullu sam- ræmi við ákvæði nýsamþykktra laga um málefni aldraðra. Ibúðir þessar verða ýmist byggðar með samstarfssamning- um við áðurnefnd mannúðar-, launþega- og sveitarfélög, íbúana sjálfa og aðstandendur þeirra eða af okkar samtökum, sem munu hafa veg og vanda af öllum fram- kvæmdum. Sala á lausum miðum í Happ- drætti DAS sem og endurnýjun ársmiða og flokksmiða stendur nú yfir. Dregið verður í 1. flokki hins nýja happdrættisárs 4. maí nk. Lyftugangur í Hrafnistu í Hafnarfirði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.