Morgunblaðið - 27.04.1983, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1983
Lokaspretturinn í vestur-þýsku knattspyrnunni að hefjast:
Sex lið eiga möguleika
á að vinna titilinn í ár
Frá Jóhanni Inga Gunnarssyni,
fréttamanni Mbl. í Þýskalandi.
• Stuttgart og Bayern MUnchen skildu jöfn, 1:1, í Stuttgart á dögunum og þá var þeasi mynd tekin. Þýsku
landsliösmennirnir Karl-Heins Förster og Karl-Heinz Rummenigge í baráttu um boltann.
SJALDAN eöa aldrei hefur
keppnin um Þýskalandsmeist-
aratitilinn í knattspyrnu veriö jafn
spennandí og í ár. Þetta er í tutt-
ugasta skiptið sem leikiö er eftir
svokölluðu Bundesligufyrirkomu-
lagi. Áöur var liöunum skipt í
norður- og suðurriöil. Aldrei áður
í sögu Bundesligunnar hafa sex
lið átt möguleika á aö vinna titil-
inn, þegar svo fáar umferöir eru
eftir eins og raun ber vitni. Fimm
liö eru sem sagt á hælunum á
meisturum Hamburger Sportver-
ein. Þessi jafna keppni og mikla
spenna verður einnig til þess aö
það komist aftur í tísku aö fara á
völlinn.
Mikil vandamál steöja nú aö
vestur-þýskri knattspyrnu. Áhorf-
endum hefur fækkaö, árangur á al-
þjóölegum vettvangi er ekki alveg
eins góöur og oft áöur, félögin
berjast mörg í bökkum fjárhags-
lega. Erlend knattspyrnufélög sem
eru betur stæö fjárhagslega not-
færa sér þetta ástand til hins ýtr--
asta og reyna aö lokka til sín
snjöllustu knattspyrnumenn
Vestur-Þýskalands fyrir svimandi
upphæöir.
Þegar Werder Bremen (spútnik-
liöiö í Bundesligunni í ár) lék viö
Dortmund á dögunum sat herra
Bersellini, þjálfari AC Turin á italíu
á áhorfendapöllum og fylgdist
gaumgæfilega meö öllum hreyfing-
um eins efnilegasta knattspyrnu-
manns Vestur-Þjóöverja í dag,
Rudi Völlers. AC Turin geröi Brem-
en 4 milljóna marka tilboð. Vel-
gengni Werder Bremen að undan-
förnu og heilbrigö stjórn félagsins
hafnaði þessu draumatilboöi og
Rudi Völler veröur áfram í Bremen
a.m.k. til 1985.
Bayern Munchen gat haldiö í
Karl-Heinz Rummenigge og hafn-
aö ævintýralegum tilboöum ít-
alskra félaga meö hjálp Adidas-
skóverksmiöjunnar.
Hamburger Sportverein gat
nælt sér í Frans Beckenbauer meö
hjálp BP olíufélagsins. Aöeins meö
hjálp stóru fyrirtækjanna úr iönaö-
inum er hægt aö reka knattspyrnu-
félög í Bundesligunni í dag.
Skuldir félaganna i Bundeslig-
unni eru taldar vera á bilinu 40 til
50 milljónir marka og aöeins Köln,
Leverkusen, Dortmund og Mönch-
engladbach geta státaö sig af
jákvæöum reikningum. Hamburg-
er er taliö skulda 11 milljónir,
Stuttgart er í öðru sæti meö 6,5
milljónir, Bayern meö 4 og svo
framvegis.
Eitthvaö þarf aö gerast svo ekki
fari illa. Besta lausnin er auövitaö
aö keppnin sé jöfn og spennandi,
þá koma væntanlega fleiri áhorf-
endur.
Fimm félög fylgja nú fast á hæla
Hamburger Sportverein. Þau eru
Werder Bremen, Bayern Múnchen,
Stuttgart, Köln og Dortmund.
Hverjir eru raunhæfir möguleikar
þessara félaga á meistaratitlinum?
Sex fyrrverandi leikmenn þessara
ofannefndu félaga lýsa skoöun
sinni:
George Volkert, Hamburger
Sportverein: „Hjá Hamburg geta
allir stjórnaö leik liösins. Fyrir
keppnistímabiliö hélt ég því fram
aö félag mitt Hamburgef Sportver-
ein yröi meistari. Einfaldlega vegna
þessa aö í liöinu er valinn maöur í
hverju rúmi. Magath, Hrubesch,
Rolff, Kaltz geta allir stjórnaö
hraöanum í leiknum. Þar aö auki
ríkir mikiö samræmi í leik liösins
sem má fyrst og fremst þakka
snjöllum þjálfara liösins, Ernst
Happel. Hann fær alltaf þaö besta
út úr hverjum leikmanni liösins og
samvinna varnarinnar og sóknar-
innar er meö eindæmum góö. Öll
liö einbeita sér aö halda Hrubesch
niöri, en þá skora bara Jakobs,
Hartwig eöa Daninn Bastrup mörk
meö skalla."
Sepp Maier, Bayern Múnchen:
„Ég aövara hér með Hamburger,
því aö fyrir nokkrum árum var for-
skot þeirra meira heldur en núna í
deildarkeppninni og þá var Bayern
auðvitaö meistari aö lokum. Bæöi
liöin eru álíka sterk hvaö liösskip-
an snertir. Aftur á móti held ég aö
Bayern liöiö sé haröara af sér und-
ir mikilli pressu. Ef til vill er þaö
eitthvaö erfiöara núoröiö þar sem
flestir þekkja oröiö vel leikstíl liös-
ins, sem ekki hefur breyst um ára-
raöir. Auk þess setja meiösli
Breitners strik í reikninginn. Bay-
ern þarf því aö þróa leikstíl sinn
áfram og breyta leik sínum til aö
koma andstæöingunum stööugt á
óvart."
Horst-Dieter Höttges, Werder
Bremen: „Möguleikar Bremen eru
sérlega góöir aö þessu sinni. Þeir
eiga auöveldasta prógrammiö eftir
í deildinni. Leikmenn liösins ná
sérlega vel saman og vinnur sem
ein heild inn á leikvellinum. Auk
þess eru engar stjörnur í liöinu á
borö viö Rummenigge og Breitner
hjá Beyern. Otto Rehagel þjálfari
Bremen hefur náö frábærum
árangri meö liðiö og er snjall aö
byggja upp unga leikmenn. Nægir
þar aö nefna Meier og Reinders,
Rehhagel er þjálfari sem kemur til
meö aö halda leikmönnum sínum
viö jöröina og f því felst einnig stór
möguleiki aö þeir vinni titilinn í ár.
Klaus Sieloff, VfB. Stuttgart: „I
fyrsta skipti á VfB Stuttgart nú
möguleika á meistaratitlinum.
Vörnin meö þá Förster-bræöur í
fararbroddi er örugg og meö
snjöllum miövallarleikmönnum
getur liöiö leikiö breytilega
knattspyrnu. Hver þeirra er einnig
frábær skotmaöur og getur skoraö
mörk aö löngu færi. Benthaus hef-
ur skipulagt leik liðsins og meiri
yfirvegun er í liöinu en oftast áöur,
þess vegna getur liðiö einnig náö í
stig á útivöllum. Það sem þó skiptir
mestu máli fyrir Stuttgart í ár er að
Sigurvinsson kom til liðsins, það
voru rnikil happakaup. Það spilar
einnig inn í að hann var lengi meidd-
ur og hefur því aukakraft í loka-
umferðirnar til að stjórna leik
Stuttgartliðsins."
Hans Tilkowski, Borussia
Dortmund: „Eiginlega hafði lið
Borussia góða möguleika til sigurs
í ár. Vörnin er til að mynda ein sú
þéttasta í Bundesligunni og fram-
línumennirnir geta svo sannarlega
bitið frá sér. Ef til vill er liðið ekki
nægjanlega mótað til að vinna
mótið í ár. Einnig þarf liðið að
venja sig við þá staðreynd að það
getur leikið meðal efstu liða og
trúa því. Auðvitað fylgir því auka-
álag að standa undir væntingum
þegar vel gengur og þá er alltaf
farið fram á betri árangur. Við
þessa staðreynd þurfa leikmenn
liðsins að lifa. Þessi hræðsla við
velgengni hefur best sýnt sig í
leikjum gegn HSV eða Bremen, ef
til vill er hér einnig um minni-
máttarkennd að ræða.“
Wolfgang Overath, FC Köln:
„Ég hef meiri trú á að annað hvort
Hamburger eða Bayern vinni titil-
1. Bayern Múnchen 62
2. VfBStuttgart 55
3. Hamburger SV 53
4. Bor. Dortmund +3 52
5. 1. FC Köln 47
6. WerderBremen +9 40
7. Mönchengladbach 37
8. Kaiserslautern +3 32
9. Eintr. Frankfurt 25
10. Fort. Dússeldorf 20
11. BayerLeverkuses +3 18
12. Hertha BSC Berlin 17
I.FCNúrnberg +3 17
14. Arm. Bielefeld 15
15. VfL Bochum 14
16. Schalke04 12
17. Eintr. Braunschweig 9
18. KarlsruherSC 9
• Þýska knattspyrnuritiö Kicker
gengst fyrir svokallaöri „Super-
ball“-keppni, þar sem blaöið
heiðrar félög fyrir skóknar-
knattspyrnu. Félögum er gefiö
stig fyrir hvern leik og því sem
flest stigin hlýtur yfir keppnis-
tímabiliö er veittur bikar í verö-
laun. Hér sjáum við hvernig staö-
an er í þessari keppni nú.
inn. Þessi lið hafa mesta reynslu
til að ná í nauðsynleg stig á úti-
völlum og leika undir mikilli
pressu, og jafnvel að sigra þó að
þau leiki ekki sérlega vei. Heppnin
fylgir þeim góðu. Ég óttast að
reynsluleysi Bremen, Stuttgart,
Dortmund og Köln verði til þess
að annað hvort þessara tveggja
ofannefndu liða vinni meistara-
tignina í ár.“
Shilton
fyrirliði
- átta leikir í kvöld
NOKKRIR leikir fara fram í kvöld í
Evrópukeppni landsliða í knatt-
spyrnu. Þeir eru þessir:
Belgía — A-Þýskaland (1. riölll)
Sovétríkin Portúgal (2. riöill)
England — Ungverjaland (3. riöill)
Danmörk — Grikkland (3. riöill)
Wales — Búlgaría (4. riöill)
Austurríki — V-Þýskaland (6. riöill)
Noröur-írland — Albanía (6. riöill)
Spánn — Irland (7. riðill)
Búiö er aö veija enska liöið sem
mætir Ungverjum á Wembley-leik-
• Peter Shilton.
vanginum og veröur þaö þannig
skipaö: Peter Shilton, Phil Neal,
Alvin Martin, Terry Butcher, Kenny
Sansom, Sammy Lee, Gary Mabb-
utt, Gordon Cowans, Luther Bliss-
ett, Peter White, Trevor Francis.
Shilton veröur fyrirliöi. Bobby
Robson, landsliösþjálfari Englend-
inga, sagöi í gær aö litlu heföi
munaö aö hann veldi Ray Wilkins,
frá Man. Utd., en hann heföi tekiö
Gordon Gowans, Aston Villa, fram
yfir, en Cowans átti frábæran leik
gegn Wales ekki alls fyrir löngu, en
þaö var hans fyrsti landsleikur
„Þaö veröur gott aö hafa Wilkins á
bekknum til aö grípa til ef okkur
vantar reynslumikinn stjórnanda á
miöjuna."
1982/83 | I 00 | | | j S j I 1 5 | * ] 1 1 * 2É § 1 { 5 i 3 «/>
Hertha Beriin K 20 1:1 285 0:1 1:3 1:1 10 85 OO 52 oo 33 02 13 5:1 25 10
Arm. Bielefeld 2:1 1 1:1 2.0 12 294 285 2:1 20 22 5:1 20 02 42 20 115 32 15
VfLBochum 4Æ 1:1 C 02 12 145 3:1 12 1:1 1:1 0:1 384. 32 3:1 OO 285 2:1 22
Braunschweig 1:0 3A 0* K 3:1 oo 2:1 10 2:4 1:1 21.5 22 46 384. 1:1 22 1:1 145
Werder Bremen 3:1 21.5 4.6 60 E 42 22 30 32 30 75 1:1 3:1 20 10 32 40 32
Bor.Dortmund 2:1 11:1 3:1 32 OO R 12 75 1:3 40 43 20 3 -3 46 215 40 20 1:1
Fort. Dússeldorf 1:1 2A 2« 85 304 23 S 4.8 00 2:1 43 20 215 2:1 35 3:1 3:1 1:1
Eintr. Frankfurt 3:1 2:1 0:1 0:1 285 3:1 22 P 1:1 304 20 30 50 30 10 30 14.5 30
HamburgerSV 1:1 3:1 0:0 40 1:1 285 20 30 0 1:1 40 14.5 30 43 1:1 30 62 304
Kalsersiautem 2:2 3Æ 7.5 32 2:1 02 3:1 30 215 R 70 32 20 30 32 2:1 20 46
KarisnjherSC 1:1 4.6. 0Æ 3:1 12 19.4 14.5 10 12 1:1 T 1:1 22 20 OO 284. 22 12
1. FC Köln 4A 10 4:1 3:1 2:1 22 40 22 1:1 30 4:1 Hl 184. 21.5 75 52 2:1 12
Leveriaisen 2:1 0:1 1Æ 10 115 12 3:3 1:1 0:1 OO 285 OO A 32 1:1 10 384. 05
Bor. M'gladbach 14.5 3:0 3:1 30 12 23 50 3:1 1:1 285 50 10 3:1 6 OO 12 oo 10
Bayem Munchen 30.4 5A 3:0 1:1 1:1 30 10 40 22 14.5 6:1 0:1 50 3:1 A 10 285 40
I.FCNúmberg 42 1:1 1:1 OO 20 32 3:1 215 22 1:1 3:1 2:1 75 10 46 Z 32 05
Schalke 04 2O 7.5 205 3:3 02 12 3:3 32 46 OO 10 10 20 20 12 0:1 1 15
VfB Stuttgart 215 22 52 40 4:1 2:1 1:1 4:1 12 1:1 4:1 285 5 3 85 1:1 30 2:1 N
• Á þessari töflu má sjá úrslit allra leikja í „Bundesligunni" í vetur. Auövelt ætti aö vera fyrir lesendur aö
skilja þetta. Tökum dæmi:. Hertha Berlin vann Bielefeld 2:0 á heimavelli sínum; nafn Herthu er lesiö lárétt
og Bielefeld lóörétt o.s.frv.