Morgunblaðið - 27.04.1983, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 27.04.1983, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1983 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 180 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 15 kr. eintakið. Lausnarbeiðni á leiðinni Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í gær að biðjast lausnar á fimmtu- daginn. Er ekki að efa að þá feli forseti íslands stjórn- inni að sitja áfram sem starfsstjórn, þar til nýtt ráðuneyti hefur verið mynd- að. Eftir ríkisráðsfundinn mun forseti síðan ákveða hverjum verði falið umboð til stjórnarmyndunar. Mið- að við úrslit kosninganna og yfirlýsingar stjórnmálafor- ingja að þeim loknum virð- ist einsýnt, að frú Vigdís Finnbogadóttir ákveði að fela Geir Hallgrímssyni þetta umboð fyrstum manna. Þá ákvörðun tæki forsetinn í samræmi við þær hefðir sem hér hafa ríkt við stjórnarmyndanir. Morgun- blaðið vill hins vegar ítreka það sjónarmið sem sett var fram hér á þessum stað í gær, að eins og aðstæður eru nú er óeðlilegt að einhvers konar hringekja með stjórn- málaforingja innan borðs verði sett af stað í því skyni að forystumenn allra flokka fái umboð til stjórnarmynd- unar úr hendi forseta og tímamörk ráði því hve lengi þeir hafi það á hendi. Slíkur háttur að þessu sinni væri ekki annað en tímasóun. Eins og málum er nú komið er brýnt að hver stund verði skynsamlega notuð til að kanna þá möguleika sem eru til stjórnarsamstarfs. Nú þegar lausnarbeiðni fráfarandi ríkisstjórnar er á leiðinni er ekki tímabært að fullyrða neitt um það, hvernig tekst til um stjórn- armyndun. Því miður felst ekki í dómi kjósenda nein ótvíræð vísbending frá þeim um það, hvað við skuli taka. Hitt sýnast allir stjórn- málamenn vera sammála um þessa stundina að minnsta kosti, að Sjálfstæð- isflokkurinn sé eðlilegur burðarás í nýrri ríkisstjórn. Eins og fram kom í kosn- ingabaráttunni voru ýmis ágreiningsatriði milli sjálfstæðismanna og tals- manna annarra flokka í um- ræðum fyrir kosningar. Kosningaúrslitin gefa það síður en svo til kynna að ástæða sé fyrir Sjálfstæðis- flokkinn að slá af í sinni stefnu í viðræðum við aðra flokka, hins vegar næst auð- vitað ekki samkomulag um neitt nema með málamiðlun og til stjórnar á þessum örlagatímum á auðvitað ekki að stofna nema í góðum anda þar sem samstaða rík- ir til að standast þau miklu átök sem óhjákvæmileg eru eigi að bjarga þjóðarskút- unni úr 100% verðbólguofsa, upp úr skuldadjúpinu og sjá til þess um leið að áhöfnin hafi frið til að sinna í senn björgunarstörfum og verð- mætasköpun. Sagt hefur verið að lýð- ræðið sé tímafrekt. Það þurfi bæði tóm og þolin- mæði til að móta þá stefnu sem hefur þann byr sem krafist er í lýðræðisþjóðfé- lagi. Stjórnmálamönnum vegnar ekki vel nema þeir kunni hvort tveggja að skapa sér slíkan byr og nýta hann. Geti þeir sameinað þetta tvennt í ástandi eins og nú ríkir hér einblínir al- menningur ekki á klukkuna og dagatalið meðan rætt er um myndun nýrrar ríkis- stjórnar, heldur bíður von- góður eftir niðurstöðunni. Minnkandi atvinna Frá því var skýrt hér í blaðinu í gær, að gífur- leg vandræði steðji nú að ís- lenskum fataiðnaðarfyrir- tækjum og eru horfur á að fækka verði starfsmönnum á næstu vikum og mánuð- um. Þessi lýsing er ekki einsdæmi þegar litið er til atvinnulífsins í heild. Verð- bólguholskeflan sem fram- undan er mun til dæmis hafa mjög afdrifaríkar af- leiðingar fyrir sveitarfélög um allt land. Tekjur þeirra aukast ekki í samræmi við vísitölubundin útgjöld. Flest eru þau svo skuldum vafin fyrir að ekki er á þann bagga bætandi. Við blasir því, að þau verða að draga úr framkvæmdum til að halda í horfinu og bjarga sér undan gjaldþroti. Sam- dráttur opinberra fram- kvæmda á þessu sviði mun fljótt hafa áhrif á atvinnu- stigið. Fyrir utan þetta er svo ljóst, að sveitarfélögin hafa ekki fjárhagslegt bolmagn til að skapa skóla- fólki sumarvinnu í sama mæli og áður. AF ERLENDUM VETTVANGI eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR Tekst Mario Soares nú að mynda starfhæfa stjórn í Portúgal? ÚRSLIT þingkosninganna í Portúgal á mánudag koma ekki á óvart, spáin hafði verið nærri því eins. Sá vandi blasir við Mario Soares formanni Sósíalistaflokksins að verða annað tveggja að mynda minni- hlutastjórn, þar sem flokkur hans náði ekki hreinum meirihluta, ellegar freista þess að fá Sósíaldemókrataflokkinn undir forystu Mota Pinto til samstarfs, en þessir flokkar hafa samanlagt yfir sextfu prósent þing- manna á nýju portúgölsku þingi. ð blandast engum hugur um að Sósíalistaflokkurinn er sigurvegari þessara kosninga, og í dag eða á morgun er trúlegt, að Eanes forseti feli honum að kanna möguleika á myndun stjórnar. Forsvarsmenn Sósíal- demókrataflokksins, Miðdemó- krataflokksins og kommúnista hafa allir viðurkennt sigur Sósí- alistaflokksins en aðeins komm- únistar hafa gefið afdráttar- lausa yfirlýsingu um að ríkis- stjórnarsamstarf komi ekki til greina. Stjórnmálaskýrendur töldu þann möguleika vera fyrir kosn- ingarnar, að Sósíaldemókratar og Miðdemókratar myndu hugs- anlega ganga í eina sæng og endurvekja samstarf þessara flokka innan Lýðræðisbanda- lagsins, svo fremri sem þeir flokkur Cunhals bætti við sig fylgi frá síðustu kosningum, fékk nú rösklega átján prósent. Útkoma Sósíaldemókrata- flokksins kom flatt upp á ýmsa sem höfðu gert ráð fýrir að fylg- ið myndi hrynja af flokknum eftir hina dæmalausu og mjög gagnrýndu stjórn Pinto Bals- emao síðustu árin. Mota Pinto, forvígismaður flokksins í kosn- ingabaráttunni og einn af mörg- um fyrrverandi forsætisráðherr- um, þótti skorta skírskotun til fólks, mörgum finnst hann lit- laus stjórnmálamaður, þótt eng- inn dragi í efa hæfni hans og góðar gáfur. En Sósíaldemókrat- ar mega í sjálfu sér una vel við að fá um 28 prósent atkvæða, eftir að hafa verið í forsæti rík- isstjórnar síðustu ár, sem bók- staflega talað hefur verið dug- Soares og flokkur hans fékk um 36 prósent atkvæða og um eitt hundrað þingmenn af 250. í síð- ustu kosningum fékk Sósíalista- flokkurinn um 31—32 prósent atkvæða og ýmsir höfðu á orði, að tími væri til kominn, að Soar- es segði af sér og leyfði nýjum mönnum að spreyta sig, enda væri af flestu sýnt að hylli hans meðal kjósenda og málflutning- ur flokksins næði ekki til fólks- ins á sama hátt og fyrr. En Soar- es þráaðist við og hefur nú upp- skorið ávexti erfiðis síns, þó að meirihluta fengi hann ekki — og hefur sjálfsagt ekki búizt við honum í neinni alvöru. Soares er 58 ára, hann er fæddur 16. des- ember, tvívegis hefur hann gegnt forsætisráðherrastarfi áð- ur. Árið 1975, ári eftir bylting- una í Portúgal, þegar kommún- istar voru allsráðandi í landinu og mikill kvíði var meðal þorra almennings um hvort lýðræðið nýfengna væri að fara fyrir lítið, skipulagði Soares flokksmenn sína um gervallt landið til mót- mælafunda og gangna. Þessir fundir voru iðulega haldnir í uUos ,U>U>h , axMuir lunto<t tamos Hvarvetna blöstu við veggspjöld ( Liasabon með myndum af Soarea. fengju góða útkomu í kosningun- um. Nú kemur á daginn að Sósí- aldemókratar hafa fengið um 28 prósent og Miðdemókratar losa 12 prósent — sem er töluverður fylgismissir hjá hinum síðar- nefnda. — Sameiginlega hafa þessir tveir flokkar þar af leið- andi möguleika á að koma sam- an meirihlutastjórn. Það er varla líklegt í bili, samstarfið innan Alianca Democratica var orðið báðum erfitt undir lokin og djúpstæður ágreiningur verður sennilega ekki upprættur í ein- um hvelli, þó svo að nýir menn hafi tekið við forystu beggja flokka. Miðdemókrataflokkurinn háði baráttu sína undir stjórn Lucas- ar Pires, nýs flokksformanns, sem er aðeins liðlega þrítugur að aldri og sýndi að margra dómi mikinn dugnað og útsjónarsemi í kosningarbaráttunni. Hann þyk- ir góður ræðumaður, höfðar til fólks með málflutningi sínum, en hefur sennilega goldið þess, að sögn heimilda Mbl. í Lissa- bon, hve ungur og tiltölulega lítt þekktur hann var. Kommúnista- Lucas Pires formaður Miðdemó- krata. laus hvernig sem á er litið. En samt er það gamla bar- áttuljónið og sjarmörinn Mario Soares, sem risið hefur úr ösku- stónni og mun nú leiða Portúgal að öðru óbreyttu á næstu árum. trássi við herinn, sem þá var mjög atkvæðamikill og mikið hugrekki og kjark þurfti til að bjóða byrginn þeim öflum, sem þá óðu uppi. Soares öðlaðist mikla aðdáun og virðingu landa sinna á þessum tíma og raunar var hann ásamt Cunhal þekkt- astur þeirra stjórnmálaforingja sem mynduðu flokka eftir bylt- inguna og hafði verið í útlegð í París lengi. Efnahagsmál settu svip sinn á kosningabaráttuna í Portúgal enda hafa þau ekki á níu ára lýð- ræðisskeiði staðið svo illa sem nú. Erlendar skuldir nema yfir 13 milljörðum dollara og við- skiptahallinn á síðasta ári varð um 5 milljarðar. Verðbólgan er um 25 prósent, atvinnuleysi hef- ur aukizt, menntamál landsins hafa aldrei komizt í fullkomið lag eftir óstjórn kommúnista þar 1974—1975, mengun og óþrif eru vaxandi vandamál. Það er áreið- anlegt að Soares og þeir sem hann velur sér til fylgdar verða að bretta upp ermarnar, spýta í lófana og hefjast nú snarlega handa.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.