Morgunblaðið - 27.04.1983, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1983
7
Scarsdale
HÁDEGISVERDUR:
Túnfiskur eöa laxasalat (olíunni hellt
af), með sítrónu og vínediks-dressing.
Grapeávöxtur, eöa melóna, eöa
ávöxtur árstíöarinnar.
Kaffi/ te.
KVÖLDVERUR:
Niöursneitt grillaö lamb, öll sýnileg
fita sé fjarlægö.
Salat úr salatblööum, tómötum, gúrk-
um, selleríi.
Kaffi/ te.
14 daga kúrinn
í hádeginu
loríon
RESTAURANT
AMTM ANNSSTÍGUR 1
TEL. 13303
Nýtt frá Finnwear
WtSKl.
i
í tilefni af finnsku vikunni
gefum við 10% afslátt af öll-
um vörum frá Finnwear.
GEíSiB
H
Listasafn Einars Jónssonar veröur 60 ára á þessu ári, og í
tilefni afmælisins hefur veriö ákveöiö aö gera afsteypur af
lágmynd Einars Jónssonar „Fæöing sálarinnar", sem hann gerði
á árunum 1915—1918. Þar sem fjöldi afsteypanna er mjög
takmarkaöur, hefur stjórn safnsins ákveðiö að hver kaupandi
eigi þess kost aö kaupa eina mynd.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma safnsins 13797.
Sögulegar
kosningar
Dagblaðid-Vísir sagði f
forystugrein á mánudag:
„l>essar kosningar urðu
því sögulcgar. Óánsgja al-
mennings með ríkjandi
flokkakcrfi kemur glöggt í
Ijós. Kftir er að sjá hvort
þeir, sem veðjuðu á ný
framboð, telja sig fá full-
nægjandi lausn.
Lausafylgið hefur í vax-
andi mæli sett svip á kosn-
ingar hér á landi. Mjög
mikill hluti kjósenda hefur
verið og er á „rás“ milli
flokka og framboða. Sú tíð
virðist cndanlega liðin, að
flokkafylgið sé tiltölulega
stöðugt.
Skoðanakönnun DV
hafði í stórum dráttum
sýnt, við hvaða tilfærslum
á fylgi mátti búast. Engin
skoðanakönnun, gerð
nokkru fyrir kosningar,
getur auðvitað neglt niður
nákvæmlega, hvernig úr-
slitin verða. En það er
dæmt af samanburði milli
niðurstaða kannana og úr-
slita kosninga, hversu góð-
ar skoðanakannanir eru.
Rétt er að menn athugi, að
í því efni kom skoðana-
könnun DV miklu betur út
en aðrar skoðanakannanir,
sem gerðar voru fyrir þess-
ar kosningar.
Næstu daga verður þæft
um stjórnarmyndun. Fjölg-
un fylkinga á Alþingi gerir
hana örðugri.
En mikið er í húfi, að vel
takist til um myndun nýrr-
ar rfkisstjómar. Þjóðarbúið
má ekki við langvinnum
erfiðleikum á því sviði.
Hver dagur, sem aögerðir
gegn vandanum dragast,
getur orðið dýr.“
Alþýöubanda-
lagið ekki af
velta
1‘jóðviljinn sagði í
forystugrein í gær:
• l>að er auðfundið á
viðbrögðum hægri aflanna
Ummæli blaðanna
um kosningarnar
í Staksteinum í dag eru birtir kaflar úr
forystugreinum annarra dagblaöa um úr-
slit kosninganna. Alþýöublaöiö, Tíminn
og Þjóöviljinn skýra sjónarmið fiokka
sinna, en Dagblaðið-Vísir skrifar um sitt
„kosningamál“, skoðanakannanirnar.
að þeim finnst Alþýðu-
bandalagiö hafa komið
óþarflega vel út úr kosn-
ingunum. Miklar vonir
voru bundnar við það í
þeirra röðum að nýju fram-
boðin myndu taka svo mik-
iö fylgi af Alþýðubandalag-
inu að það yrði afvelta og
áhrifalaust eftir kosningar.
Kaunin varð önnur því að
Alþýðubandalagið fær ívið
skárri niðurstöðu á lands-
vísu nú eftir nær fimm ára
stjórnarsetu, heldur en það
fékk í kosningunum 1971
eftir 12 ára baráttu gegn
viðreisnarstjórn Sjálfstæð-
isflokks og Alþýðuflokks.
• (itkoma Alþýðubanda-
lagsins er áfall fyrir aftur-
haldið. I»að hefur styrk til
sóknar og varnar. Enda
þótt fylgi þess hafi talsvert
dalaö frá glanssigrinum
1978, og mikil eftirsjá sé að
því að ná ekki fjórða
manni G-listans á þing í
Keykjavík og þingsæti á
Vestfjörðum, hefur Alþýðu-
bandalagið engu að síður
fengiö sterkt, þjóölegt og
vinstri sinnað umboð. I‘að
hefur staðið af sér árásir
íhaldsins og samkeppni
nýrra framboða. Það getur
ótrautt blásið til sóknar á
ný og skapað enn sterkari
einingu gegn hægri öflun-
um í landinu."
Óveröskuld-
aður ósigur
Tíminn sagði í forystugrein
í gær:
Ef miðaö er við úrslit
síðustu kosninga er Ijóst,
að Alþýðuflokkurinn og
Framsóknarflokkurinn
hafa tapað mestu fylgi, en
Alþýðubandalagiö hefur
einnig misst umtalsverðan
hluta fylgis síns. Sigurveg-
arar kosninganna eru nýju
framboðin, Kvennalistarn-
ir og Bandalag jafnaðar-
manna, sem hafa saman
fengið 7 menn kjörna.
Sjálfstæðisflokkurinn hef-
ur aðeins bætt stöðu sína,
en mun minna en forystu-
menn hans höfðu stefnt að,
auk þess sem formaður
flokksins missti þingsæti
sitt í Reykjavík.
Framsóknarmenn hljóta
að telja aö ósigur flokksins
— að missa 3 þingmenn og
6,4% atkvæðanna — sé að
verulegu leyti óverðskuld-
aður. Ljóst er að Fram-
sóknarflokkurinn tapar á
því aö hafa setið f ríkis-
stjórninni síöastliðinn vet-
ur án þess að hafa náð þar
fram nauðsynlegum að-
gerðum í efnahagsmálum.
Ráðherrar Sjálfstæðis-
flokksins í ríkisstjórninni
| fá hins vegar góða kosn-
ingu í sínum kjördæmum.
Alþýðubandlagið tapar um
2,4% atkvæðanna og ein-
um þingmanni, en þaö er
óneitanlega minna en ætla
mátti. Það hlýtur að teljast
óréttlátt að sá flokkurinn,
sem mest hefur á sig lagt
til þess aö knýja fram
nauðsynlegar efnahagsað-
gerðir, skuli tapa meira
fylgi en hinir, sem þar hafa
staðið til hliöar eða verið á
móti slíkum aðgerðum."
Sigur á skoð-
anakönnunum
Alþýöublaðið sagði í for-
ystugrein í gær:
Úrslit kosninganna eru
áfall fyrir Alþýðuflokkinn.
Flokkurinn tapar umtals-
verðu fylgi og fær nú sex
þingmcnn, en hafði níu áð-
ur. Hitt er svo annað mál,
að tveir þeirra þingmanna
Alþýöuflokksins sem féllu í
þessum kosningum, voru
mjög nærri því að ná kjöri.
Munaði þar aðeins örfáum
atkvæðum.
Hinu er heldur ekki aö
leyna að framboð Banda-
lags jafnaðarmanna var Al-
þýóuflokknum erfitt í þess-
um kosningum. Foringi
Bandalagsins, Vilmundur
Gylfason, kemur úr röðum
Alþýðuflokksmanna, sagði
skilið við flokkinn fyrir
fáum mánuðum og stofn-
aði þá hið nýja bandalag
sitt. Bandalagið virðist
hafa tekið umtalsvert fylgi
frá Alþýðuflokknum.
En þrátt fyrir slaka út-
komu Alþýðuflokksins í
þessum kosningum má þó
ekki gleyma því, að flokk-
urinn fékk miklum mun
betri kosningu, en
skoðanakannanir höfðu
gefið til kynna. Því verður
ekki á móti mælt að
skoðanakannanir hafa
óbein skoðanamyndandi
áhrif og ævinlega er erfitt
að heyja kosningabaráttu
þegar skoðanakannanir
sýna mjög slaka útkomu.
Samkvæmt skoðanakönn-
unum var Alþýðuflokkur-
inn nærri því að þurrkast
út af þingi. llrslit kosn-
inganna sýna hins vegar
allt aðrar og betri niður-
stöður fyrir llokkinn."
Hjálparstofnun
kirkjunnar:
300 tunnur
af síld til
Póllands
Á MIÐVIKUDAG var skipað í Laxá
rúmlega 300 tunnum af sfld sem
flytja á til Póllands á vegum Hjálp-
arstofnunar kirkjunnar. Fyrst verður
farið með sfldina til Svíþjóðar þar
sem henni verður pakkað í 5 kg
pakkningar, en þaðan verður sfldin
flutt til Póllands með bflum. Hjálp-
arstofnun kirkjunnar sendi fyrr í
vetur 500 sfldartunnur til Póllands
(50 tonn) ásamt 300 tonnum af
kindakjöti. Sfldin reyndist það vel
að Alkirkjuráðið — en Hjálparstofn-
un kirkjunnar starfar í umboði þess
hérlendis vegna Póllandshjálparinn-
ar — ákvað að kaupa nokkurt magn
af henni í viðbót.
Hjálparstofnun kirkjunnar
kaupir síldina af Síldarútvegs-
nefnd á mjög góðum kjörum, að
sögn Guðmundar Einarssonar
framkvæmdastjóra HK. Þar sem
mikilvægt er að koma síldinni sem
fyrst til Póllands, eða fyrir vorhit-
ana, var sænskt fyrirtæki, sem gat
pakkað síldinni strax fengið til
verksins, en það hefði tekið nokk-
urn tíma að afla nauðsynlegra tóla
til framkvæma pökkunina hér-
lendis. Það mun taka 2—3 daga að
umpakka síldinni.
Virðulegt hús við
Fjólugötu, Reykjavík
-"^^rnmmmmmmmmmmmmmmm
Vel byggt steinhús, aö grunnfleti ca. 95 fm. i kjallara
hússins er 2ja herb. íbúö, geymslur og þvottahús. Á
aöalhæöinni eru stofur, eldhús og lítil snyrting. Á efri
hæöinni eru 4 góð svefnherbergi, baðherbergi og
svalir. Geymsluris (manngengt) er yfir allri efri hæö-
inni. Húsiö er vel byggt og viðhaldi hefur veriö sinnt.
Húsiö stendur ofan viö götuna. Stór, ræktuö lóð.
Bílskúrsréttur.
Teikningar á skrifstofunni.
? 85009 — 85988
l
Dan V.S. Wiium, lögfra^ingur.
Ármúia 21. ólafur Guðmundsson sölum.
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm