Morgunblaðið - 27.04.1983, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1983
15
Þessi fremur óskýra mynd er tekin á hafsbotni. Ljósa rákin á myndinni sýnir staðinn, þar sem sérfræðingar sænska
hersins telja, að lítill kafbátur hafi legið um stund. símamynd Pressens Bdd.
Qlof Palme, forsætisráðherra Svíþjóðar:
Sjáum til þess, að slík
áreitni endurtaki sig ekki
Stokkhólmi. 26. apríl. Frá Guðfinnu Kagnars-
dóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
„SÆNSK landhelgi, strendur okkar
og hafnir og hernaðarlega mikilvæg
svæði hafa orðið fyrir áreitni eriendra
kafbáta. Slíkt er alvarlegt brot á regl-
um þeim sem gilda um samskipti
þjóða.“ Olof Palme, forsætisráðherra
Svíþjóðar var ómyrkur í máli þegar
hann tilkynnti álit ríkisstjórnarinnar
á kafbátamálinu.
„Við höfum borið fram kröftug
mótmæli við sovéska sendiherrann
í Stokkhólmi," sagði hann. „Sovét-
ríkin hafa gert sig sek um alvarlegt
brot á þjóðarréttinum og við for-
dæmum ólöglegar og skipulegar til-
raunir þeirra til þess að afla sér
upplýsinga um sænska landhelgi."
I mótmælum sínum til sovéska
sendiherrans krefst ríkisstjórnin
þess, að sovéska stjórnin gefi sjó-
her sínum skipanir, sem leiði til
þess, að sovéskir kafbátar haldi sig
héðan í frá utan sænskrar land-
helgi.
„Stjórnin minnir einnig á, að
sænski sjóherinn hefur fengið nýj-
ar og strangari reglur um hvernig
bregðast eigi við erlendum óboðn-
um kafbátum. Ef kafbátur frá er-
lendu ríki eða áhöfn hans verður
fyrir skaða, er það algerlega á
ábyrgð þess lands, sem óboðið fer
inn fyrir sænska landhelgi," sagði
Olov Palme. „Með þessu viljum við
hafa það á hreinu, að Svíþjóð mun
á allan hátt sjá til þess að slík
áreitni erlendra kafbáta muni ekki
endurtaka sig.“
Sovéskir smákafbátar í höfninni f Stokkhólmi:
Sveimuðu undir kili
bandarískra herskipa
Stokkhólmi, 26. aprfl. Frá Gudfinnu
Kagnarsdóttur, fréttaritara Morgunblaósins.
ÞAÐ VAR í september síðastliðnum,
að hjón, sem voru á gangi við strönd-
ina á Lidingö í NV-hluta Stokkhólms,
sáu dökka þúst fara í kaf rétt utan við
ströndina. Á eftir var mikil ólga í
sjónum. Sólarhring síðar sást kaf-
hátsloftnet upp úr sjónum í miðri
höfninni í Stokkhólmi.
Lögreglunni var tilkynnt um
bæði þessi atvik, en hún hristi bara
höfuðið og sagði að hér gæti ómögu-
lega verið um kafbát að ræða. Þeir
gætu ekki athafnað sig í svo grunnu
vatni. f dag vita þeir betur. Sönnun-
argögnin úr Hársfirðinum sýna, að
hér voru á ferðinni mjög smáir
kafbátar, trúlega ekki nema 3—4
metrar á hæð og þurfa aðeins 5—6
metra dýpi til að komast allra sinna
ferða.
Allt bendir því til þess, að það
hafi verið einn slíkur sovéskur smá-
kafbátur, sem kannaði aðstæður í
höfninni í Stokkhólmi einn sept-
emberdag í fyrra, á meðan sænska
lögreglan hristi höfuðið yfir ofsjón-
um manna um hábjartan daginn.
Það, sem kafbáturinn hefur trú-
legast verið að athuga í höfninni,
voru bandarísk herskip, sem voru
þar í heimsókn. Það, sem umræð-
urnar snerust aðallega um í Svíþjóð
þá stundina, var hvort bandarísku
herskipin væru búin kjarnorku-
vopnum. Engan grunaði þá, að und-
ir kili þeirra sveimuðu sovéskir
smákafbátar.
cru land, þeir Ijósu sjór. Inn á teikninguna hefur verið merkt hvar djúpsprengjum
var varpað og hvar botnsprengjur voru sprengdar. Djúpsprengjurnar eru auð-
kcnndar með blossa. Þá má einnig sjá hvar reynt var að hefta för kafbátanna með
þar til gerðum girðingum. Þær eru auðkenndar með feitum strikum.
Símamynd frá Pressens Bild.
Mikið mannfall í
loftárásum Iraka
Nicosia, Kýpur, 26. aprfl. AP.
TALA látinna borgara eftir loftárás
íraka á borgina Pol-E-Dokhtar var
dag í 21, og meira en hundrað
manns munu hafa særst, að því er
segir í fréttum opinberu írönsku
fréttastofunnar IRNA í dag.
I fréttinni segir að skóli, versl-
anir og fjöldi húsa hafi verið al-
gjörlega eyðilögð í árásinni á
mánudag. Björgunarmenn munu
hafa verið að störfum í nótt og
segir í fréttum að þeir séu enn að
finna lík í rústum húsanna.
í tilkynningu íraka í Bagdad-út-
varpinu í gær sagði að sveitir
flughersins hafi gert hnitmiðaðar
árásir á stöðvar í íran í gær, en
ekki var getið um árásir á þessa
borg, Pol-E-Dokhtar, sem er um
150 kílómetra frá landamærum ír-
aks og íran.
„Kvef ‘ orsökin að
hvarfi Chernenko
- segir í tilkynningu frá skrifstofu hans
Moskvu, 26. aprfl. AP.
KONSTANTIN U. Chemenko, sem
talið er að sé einn helsti andstæðingur
Yuri V. Andropov í stjórnmálum, hefur
náð sér eftir „Iftils háttar kvef' og
mun snúa aftur til starfa innan tíðar,
segir í tilkynningu frá skrifstofu hans í
dag.
Spurningar um heilsu hans vökn-
uðu fyrr í þessum mánuði þegar
hann var ekki viðstaddur athöfn í
Berlín, þar sem allir leiðtogar aust-
antjaldsríkjanna voru samankomn-
ir til að halda hátíðlegt 100 ára dán-
arafmæli Karls Marx.
Austur-þýskir stjórnarerindrekar
sögðu að sovéskir embættismenn
hefðu tjáð sér að Chernenko væri
veikur og gæti af þeim sökum ekki
verið viðstaddur hátíðahöldin í
Berlín, en ekki reyndist unnt að fá
nánari upplýsingar um heilsufar
hans. Þegar hann var síðan einnig
fjarri hátíðahöldum í Moskvu í síð-
astliðinni viku töldu vestrænir
fréttaskýrendur að annað hvort
væri hann alvarlega sjúkur eða ekki
lengur í náðinni.
Chernenko var einn helsti stuðn-
ingsmaður Brezhnevs, sem lést 10.
Veður
víða um heim
Akureyri 5 léttskýjað
Amsterdam 16 heióskýrt
Aþena 26 skýjaö
Barcetona 17 léttskýjaó
Berltn 20 heióskírt
Brilssel 18 skýjaó
Chicago 21 heióskírt
Dublin 12 heióskirt
Genl 13 skýjaö
Helsinki 15 heiðskírt
Hong Kong 29 heiöskírt
Jóhannesarborg 20 heiðskírt
Kaupmannahöfn 11 skýjaó
Lissabon 17 skýjað
London 16 rigning
Los Angeles 21 heióskírt
Madrid 14 skýjaó
Malaga 20 lóttskýjaó
Mallorca 20 léttskýjaó
Mexíkóborg 31 heióskírt
Miami 27 heióskírt
Nýja Delhí 38 heiöskfrt
New York 12 heiósklrt
Ósló 10 heióskírt
París 16 skýjaó
Perth 26 heiðskírt
Reykjavík 6 léttskýjað
Rómaborg 22 heióskírt
San Francisco 15 skýjaó
Stokkhólmur 14 skýjað
Sydney 22 skýjaó
Tókýó 26 skýjaó
Vancouver 13 rigning
Vínarborg 19 heióskírt
Þórshöfn 5 alskýjað
nóvember síðastliðinn, og talið er að
hann hafi verið sá sem Brezhnev
kaus helst að yrði leiðtogi Sovétríkj-
anna að sér látnum.
Andropov
skrifar
banda-
rískri stúlku
Manchester, Maine, 26. aprfl. AP.
TÍU ÁRA gömul stúlka, sem fékk
bréf frá leiðtoga Sovétríkjanna,
Yuri V. Andropov, þar sem hann
lofar því að Sovétrfkin muni
aldrei verða fyrri til að nota
kjarnorkuvopn, segir að sá hluti
bréfsins sem hún haldi mest upp
á sé þar sem hann líki henni við
persónu í bók eftir Mark Twain.
Samantha Smith skrifaði
Andropov bréf fyrir skömmu
þar sem hún óskaði honum til
hamingju með nýja starfið og
spurði síðan:' „Hvers vegna viltu
sigra heiminn, eða að minnsta
kosti okkar land?“
Komið var með enska þýð-
ingu á svari Andropovs á heim-
ili hennar í gær, þar sem hann
segist sjá af bréfi hennar að
hún sé mjög „hugrökk stúlka"
sem minni sig á „Becky" í bók-
inni „Tom Sawyer" eftir Mark
Twain.
Samantha sagðist líta á þetta
sem gullhamra og sagði þetta
sanna að Andropov væri ekki
eins vondur maður og hún hafði
ímyndað sér.
Bretland:
Steel leiðtogi
í kosningum
London, 26. apnl. AP.
DAVID Steel, leiðtogi Frjálslynda
flokksins í Bretlandi, mun verða í far-
arbroddi fyrir kosningabandalagi
frjálslyndra og jafnaðarmanna í næstu
kosningum en Roy Jenkins, formaður
nýja Jafnaðarmannaflokksins, mun
verða forsætisráðherra ef sigur vinnst.
Steel greindi frá þessu í sjón-
varpsviðtali nú um helgina og sagði
vera um þetta samkomulag við
Jenkins. Flokkarnir ættu þó eftir að
leggja blessun sína yfir það. Marg-
aret Thatcher verður að boða til
kosninga fyrir maí á næsta ári en
almennt er búist við þeim í haust.
Nýi Jafnaðarmannaflokkurinn
var stofnaður árið 1981 og er klofn-
ingshópur úr Verkamannaflokkn-
um. Frjálslyndi flokkurinn var
stofnaður árið 1828 og er það megin-
takmark kosningabandalags þe-s-
ara tveggja flokka, að binda e
þau tök, sem íhaldsflokk’
Verkamannaflokkurinn ’
breskum stjórnmálur- gi.