Morgunblaðið - 27.04.1983, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1983
Karl prins
og Díana í
10 daga frí
Lundúnum, 26. aprfl. AP.
KARL prins og eiginkona hans hafa
ákveóið að hvflast í tíu daga á eyjunni
Eleuthera áður en þau halda heim eft-
ir sex vikna ferð um Ástralíu og Nýja
Sjáland, að því er segir í fréttum frá
Buckingham-höll í dag.
Talsmaður hjónanna sagði að þau
hefðu ákveðið að taka sér þetta frí
að ferðinni lokinni, í desember síð-
astliðnum, þegar þau gerðu sér
grein fyrir því hversu löng og erfið
ferð þeirra yrði.
Talsmaðurinn bætti því við, að
þess væri óskað að frí þetta yrði
virt af öllum sem einkaferð. Þau
eru væntanleg til Bretlands þann
10. maí.
Fundi slitið
Breski forsætisráðherrann, Margrét
Thatcher, tekur hér í höndina i
Helmut Kohl, kanzlara Vestur-
Þýskalands í Downing-stræti 10 á
föstudag, en þá kvöddust þau eftir
stutt fundahöld.
Sakharov boð-
in staða í Vín
Vín, 26. aprfl. AP.
AUSTURRÍKISMENN hafa ákveðið
að bjóða Andrei Sakharov eins árs
stöðu við háskóla samkvæmt beiðni
hans, að því að haft er eftir prófessor
nokkrum við Vínarháskóla í dag.
Peter Weinzierl, prófessor, sagði
að menntamálaráðuneytið hefði
gefið leyfi sitt fyrir þessu boði og
borist hefðu spurnir af því að Sakh-
arov myndi að öllum líkindum sam-
þykkja það. Einnig er álitið að
stjórnvöld í Sovétríkjunum séu
reiðubúin að veita honum leyfi til
fararinnar.
Sakharov, sem er eðlisfræðingur
að mennt og hlaut Nóbelsverðlaun-
in árið 1975, hefur verið rekinn í
„útlegð" til borgarinnar Gorky
vegna mannréttindabaráttu sinnar.
Hann hefur nokkrum sinnum
hafnað boði um heimsókn til Vest-
urlanda, þar sem hann óttaðist að
fá ekki að snúa aftur til heimalands
síns. _______ ________
Dæmdur í átján
ára fangelsi fyr-
ir morðtilraun
Beltast, 26. apríl. AP.
LIÐSMAÐUR hins útlæga írska þjóð-
frelsishers var í dag dæmdur í átján
ára fangelsi fyrir morðtilraun á her-
manni.
Dómarinn, John Macdermott lýsti
tilræðinu sem „kaldrifjuðu" og var-
aði við því að aðrir sem störfuðu á
vegum hryðjuverkasamtaka gætu
vænst þungra refsinga.
Erum fluttir —
Höfum stækkað
Háberg hf. hefur opnaö nýja varahlutaverslun
undir nafninu Bílaland, í Skeifunni 5, suður-
enda.
Meö tilkomu þessarar nýju verslunar getum viö
boöiö enn betri þjónustu viö stórbættar að-
stæöur.
Auk varahluta í rafkerfi bifreiða, þá bjóöum viö
fjölbreyttara úrval almennrar rekstrarvöru fyrir
bíla. Góö staösetning. Næg bílastæöi fyrir allar
stærðir bíla.
Veriö velkomin.
Bílaland — Háberg hf.
S: 84788 — S: 33345
,Kaf'bátaskvrslan“ opinboruð í Svíþjóð í gærmorgun:
Gátu athafnað sig
að vild án þess nokk-
ur yrði þeirra var
Stokkhólmi, 26. aprfl. Frá Guðfínnu Hagnars-
dóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÞAÐ VORU a.m.k. þrír sovéskir
kafbátar við Muskö-flotastöðina í
Hársfirði, sunnan við Stokkhólm í
haust. Þar af voru tveir kafbátanna
mjög litlir, svonefndir „mini“-
kafbátar af óþekktri gerð.
Auk þess voru trúlega þrír aðrir
kafbátar, einn lítill og tveir stórir, í
skerjagarðinum utan við Stokkhólm
á sama tíma. Þetta sýna niðurstöður
sænsku kafbátanefndarinnar, sem
birtar voru í dag. Sendiherra Sovét-
ríkjanna í Stokkhólmi var í dag kall-
aður á fund utanrfkisráðherra og
sendiherra Sviþjóðar í Moskvu var
kallaður heim til að fá upplýsingar
um málið.
„Það er augljóst, að hér var um að
ræða skipulagðar heræfingar á stóru
svæði í sænska skerjagarðinum,"
segir Sven Andersson, formaður
nefndarinnar, en sjálfur er hann
fyrrverandi utanríkis- og varnar-
málaráðherra Svía.
Kafbátafjöld
En það var ekki bara í október í
fyrra, sem sovéskra kafbáta varð
vart í skerjagarðinum sýnir kaf-
bátaskýrslan. I júní voru 4—5 kaf-
bátar við ströndina utan við Norð-
ur-Svíþjóð, í júlí varð þeirra vart
enn sunnar og í ágúst við Suður-
maralandsströndina. Og í september
bendir allt til þess að kafbáts af
„mini“-gerð hafi orðið vart í höfn-
inni í Stokkhólmi!
„Þessir „mini“-kafbátar eru af áð-
ur óþekktri gerð,“ segir Sven And-
erson. Þeir komast í gegnum skörð
og sund, sem venjulegir kafbátar
kæmust aldrei í gegnum. Þess vegna
hefur engum dottið í hug að vera á
varðbergi gagnvart kafbátum svona
innarlega í skerjagarðinum."
Ekki hafa fundist nein tæki eða
hlutir úr kafbátunum, en kafbáta-
nefndin telur sjálf fullsannað, að um
sovéska kafbáta hafi verið að ræða í
öllum þessum tilvikum. „Það má,“
segir í skýrslunni, „telja fullsannað,
að þeir kafbátar, sem orðið hefur
vart innan sænskrar landhelgi frá
því 1980 hafi í nær öllum tilfellum
verið frá Sovétríkjunum."
Nefndin byggir niðurstöður sínar
á vitnisburði fjölmargra, sem séð
hafa kafbátana, lýst þeim og teiknað
þá. Sömuleiðis á mælingum og rad-
arsendingum, svo og útvarpssend-
ingum frá kafbátunum. Önnur hljóð-
merki frá kafbátunum sýna einnig
að þeir eru sovéskir. Ekkert hefur
komið fram, sem sýnir, að hér gætu
NATO-kafbátar hafa verið á ferð.
Spor á hafsbotni
Kafbátanefndin lagði einnig fram
kvikmyndir frá sjávarbotninum í
Hársfirði, sem sýna spor eftir kaf-
bátana. M.a. sést, að um tvær litlar
kafbátagerðir er að ræða. Annar
kafbátanna hefur flutt sig eftir sjáv-
arbotninum með beltum og sáust
förin greinilega. M.a. sást hvernig
kafbáturinn hefur beygt frá klettum,
sem urðu á vegi hans á sjávarbotnin-
um. Það synir einnig, að áhöfn hefur
verið um borð. Auk þess sáust
greinileg för eftir botn annars lítils
kafbáts á svipuðum slóðum.
Það er augljóst, að hér er um
skipulagðar heræfingar að ræða,
segir í skýrslunni, og kafbátum
fjölgar ár frá ári. Auk þess virðast
þeir vera farnir að vera við alla
sænsku ströndina og á hvaða árs-
tíma sem er.
„En það alvarlegasta er kannski,"
segir Sven Andersson, „að kafbát-
arnir hafa haldið áfram að halda til
og æfa sig i sænska skerjagarðinum
eftir kafbátaleitina miklu í Hárs-
firðinum, þó svo sænsk skip og þyrl-
ur hafi nú leyfi til að varpa að þeim
sprengjum þegar við fyrstu sýn.
Þetta sýnir eindæma frekju og ögrun
við landið."
Það er augljóst, að Svíþjóð er illa í
stakk búin til að verjast slíkum
heimsóknum, segir í skýrslunni.
Kafbátavarnirnar eru miðaðar við
stóra kafbáta af venjulegri gerð, en
ekki litla kafbáta, sem geta smogið
um öll sund og þurfa ekki nema 5—6
metra dýpi til að athafna sig. Það
var þessvegna ómögulegt fyrir
sænska flotann að hafa hendur í
hári kafbátanna í Hársfirði. Á með-
an netsprengjur og bátar vöktu yfir
aðalsundunum sunnan og norðan í
Hársfirðinum, þar sem haldið var að
eina undankomuleið bátanna væri,
fóru þeir trúlega allra sinna ferða út
og inn úr firðinum um grunn sund,
þar sem enginn var á verði.
Trúlega, segir í skýrslunni, voru
þrír kafbátar í Hársfirði þegar bát-
anna varð fyrst vart, þann 5. október
sl. haust, einn stór og tveir litlir.
Stóri kafbáturinn fór trúlega strax í
burtu er hann skynjaði að með hon-
um var fylgst, en þeir litlu voru trú-
lega í firðinum í nokkra daga. Allt
bendir til þess, að slíkir „mini“-
kafbátar geti verið í kafi vikum sam-
an.
Djúpsprengjur
Það voru svo hljóðmerki og send-
ingar frá þessum litlu bátum, sem
urðu til þess, að sænski herinn varp-
aði djúpsprengjum dag eftir dag í
von um að neyða kafbátinn, sem
haldið var að væri aðeins einn, upp á
yfirborðið. „En þessar sprengjur
höfðu ekkert að segja,“ segir Sven
Andersson. „Við vorum allt of var-
kárir og höfðum heldur ekki réttu
vopnin." Nú hafa Svíar framleitt
nýtt tundurdufl, sem leitar sjálft
uppi skotmark sitt og veldur það
miklu tjóni á kafbáti, að hann neyð-
ist til að koma upp á yfirborðið.
En það vantar samt mikið upp á
að Svíþjóð geti varist slíkum heim-
sóknum. Ströndin er 2.700 kílómetra
löng og það vantar bæði rétt vopn,
þyrlur, báta og annan útbúnað til
þess að geta leitað uppi óboðna gesti.
Kafbátavörnum hefur lítið verið
sinnt á undanförnum 20 árum, segir
í skýrsiunni, en eftir kafbátaleitina
miklu á Hársfirði hefur skilningur
manna aukist á nauðsyn þess að
verjast erlendum kafbátum. Kaf-
bátanefndin leggur nú til að varið
verði 200-250 milljónum sænskra
króna til þess að kaupa m.a. fjórar
þyrlur, sérstaklega útbúnar til kaf-
bátaleitar. „En þrátt fyrir það er
enn langt í land áður en við getum
ábyrgst að erlendir kafbátar leynist
ekki við sænsku ströndina," sagði
Sven Andersson.
Sven Andersson, fyrrum utanríkis- og varnarmilaráöherra Svía, formaður
kafbátanefndarinnar, skýrði frá niðurstöðunum á blaðamannafundi í gær-
morgun. Sím»mynd AP.
Vildu kaupa smákaf-
bát frá Norðmönnum
Osló, 26. aprfl. Frá Jan Erik Lauré,
frétUriUra Morgunblaðsins.
SOVÉTTMENN gerðu fyrir tveinmur
árum tilraun til þess að kaupa
ómannaðan smákafbát af Norð-
mönnum, en fyrirhuguð viðskipti
voru stöðvuð í norska utanríkisráðu-
neytinu.
Myrens-verksmiðjan í Osló er
sú eina í landinu, sem framleiðir
ómannaða smákafbáta. Þeir eru
fjarstýrðir og hafa til þessa eink-
um verið notaðir við neðansjáv-
arverkefni við sérlega erfiðar að-
stæður á olíuborunarsvæðum í
Norðursjó.
Fyrirspurn Sovétmannanna
barst í gegnum japanskt fyrir-
tæki, sem á hinn bóginn dró enga
dul á að það væru Sovétmenn sem
ættu að fá kafbátinn yrði af kaup-
unum. Ekki var þá skýrt frá því til
hvers Sovétmenn ætluðu að nota
hann.
Það var norska fyrirtækið, sem
gerði utanríkisráðuneytinu við-
vart um fyrirspurnina og fékk þá
strax að vita, að ekki væri æski-
legt að selja Sovétmönnum kafbát
af þessari gerð. Aðalskýringin var
sú, að báturinn væri útbúinn raf-
eindakerfi, sem er bandarískt að
uppruna og mjög háþróað.
Forstjóri fyrirtækisins telur
ekkert því til fyrirstöðu, að nota
megi báta af þessari gerð til
njósnastarfa á grunnsævi við
strendur annarra ríkja. Auðvelt sé
að stýra þeim frá stórum móður-
kafbáti.