Morgunblaðið - 27.04.1983, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 27.04.1983, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1983 Sambandið: Framkvæmdastjóra- skipti í Búvörudeild Rudiger Hess, sonur hins aldna nazistaforingja Rudolf Hess, sést hér koma til Spandau-fangelsisins í gær í tilefni af 89. afmæli fóðurins. Enn deilt um hvort dagbækur Hitlers séu ófalsaðar eða ekki: Hess segir Hitler hafa verið pennalatan mann Frankfurt, 26. aprfl. AP. RUDOLF HESS, sem í dag hélt upp á 89 ára afmæli sitt innan veggja Spandau-fangelsisins, minntist aldrei nokkru sinni á að Hitl- er hefði haldið dagbækur, í öllum þeim ótölulega fjölda yfirheyrslna, sem hann varð að ganga undir. Hefur Hess sagt, að Hitler hafi verið „schreibfaul“, eða pennalatur eins og það útleggst á íslensku. Kemur þetta fram í máli fræðingurinn Charles Hamil- Eugene K. Bird, sem ritað hef- ur söguna „Fangi númer sjö“ og fjallar um Hess. Dregur hann mjög í efa að dagbæk- urnar séu ófalsaðar. í sama streng hefur þekktur banda- rískur rithandarsérfræðingur tekið. Hann hefur rannsakað ótalin sýnishorn sýna af rit- hönd Hitlers og staðhæfir, að dagbækurnar séu ekki skrifað- ar af honum. „Það leikur ekki nokkur vafi á því, að dagbækurnar eru falsaðar,“ segir rithandarsér- ton. „Skriftin ber öll merki falsara. Hvergi er að sjá neinn stílbrigðamun á einstökum bókstöfum og slíkt er óhugs- andi í jafn löngu rituðu máli og hér er á ferð. Þá er að sjá vissan titring í skriftinni, sem stafar af þeirri staðreynd að falsarinn var ekki fær um að skrifa jafnhratt og Hitler." V-Þýska blaðið Stern segir hins vegar, að Hess hafi verið kunnugt um bækur þessar og hann geti borið vitni um, að þær séu ófalsaðar. Hins vegar er talið hæpið, að Hess fái leyfi til þess að skoða bækurn- ar. Sérfræðingar deildu enn í dag um það hvort dagbækur Hitlers, sem dregnar hafa ver- ið fram í dagsljósið, væru ófalsaðar. Á sama tíma skýrði hægrisinnað vikurit í Munch- en frá því að það hefði fyrst allra skýrt frá fundi dagbók- anna, þann 24. desember sl. Blaðinu hefði verið boðinn birtingarréttur á þeim, en því boði hafi verið hafnað vegna gruns um fölsun. Þá segir blaðið einnig og leggur á það áherslu, að fundurinn hafi ekki vakið neina athygli, þeg- ar frá honum var skýrt fyrir réttum fjórum mánuðum. Mótelrekstur í Hafnarfiröi: Svæði ofan Reykjanes- brautar koma til greina Skipulagsnefnd Hafnar- fjarðarbæjar vinnur nú að at- hugun á hvar hægt sé að koma fyrir tveimur mótelum, en umsóknir þar að lútandi bárust bæjaryfirvöldum fyrir nokkru, samkvæmt upplýs- ingum sem Mbl. fékk hjá Einari Inga Halldórssyni, bæjarstjóra í Hafnarfirði í gær. Sagði Einar Ingi að þegar um- sóknirnar bárust hefði bæjarráð óskað eftir því að skipulagsnefnd kannaði möguleika á staðsetningu og væri það mál í skoðun. Sagði Leiðrétting VILLA slæddist inn í kosninga- úrslit úr Norðurlandskjördæmi vestra. Þar sagði að auðir og ógild- ir seðlar hafi verið 622. Þetta er rangt, því að auðir og ógildir voru 185. Þá greiddu atkvæði 5.897 manns, sem er 85,46% af kjörskrá. Beðizt er velvirðingar á þessu. hann að nokkrir staðir á svæðinu fyrir ofan Reykjanesbraut kæmu til greina fyrir þessa starfsemi, en niðurstöðu um það væri að vænta fljótlega. Þeir aðilar sem sótt hafa um leyfi til þessa reksturs sagði Einar að væru Jón Kr. Gunnarsson ásamt fleirum og Þórður Stefáns- son. AGNAR Tryggvason, framkvæmda- stjóri Búvörudeildar Sambands ís- lenskra samvinnufélaga, verður 65 ára í febrúar á næsta ári. Samkvæmt gildandi reglum lætur hann þá af framkvæmdastjórastarfi, og aö eigin ósk hættir hann um næstu áramót. Agnar hefur starfað hjá Sambandinu frá 1947, þar af sem framkvæmda- stjóri Búvörudeilar frá 1962. Stjórn Sambandsins hefur ráðið sem eftir- mann hans Magnús G. Friðgeirsson sölustjóra í Sjávarafurðadeild. Hann kemur til starfa í Búvörudeild 1. júlí og starfar með Agnari til næstu ára- móta, en tekur þá við deildinni. Magnús G. Friðgeirsson er fæddur í Reykjavík 20. ágúst 1950. Hann sat í Samvinnuskólanum 1969—1971, en stundaði fram- haldsnám í The London School of Foreign Trade 1972—1973. Frá 1. nóvember 1973 hefur hann starfað að sölumálum hjá Sjávarafurða- deild, og haft sérstaklega með höndum sölu á skreið, mjöli og lýsi. Hann sat í stjórn Sambands íslenskra samvinnufélaga sem fulltrúi starfsmanna árin 1980—1982. Magnús er kvæntur Sigrúnu Davíðsdóttur, og eiga þau tvö börn. Sýningum á „Húsinuu fækkar í Reykjavík NÚ HAFA 47.000 manns séð kvik- myndina Húsið, sem sýnd hefur ver- ið í Háskólabíói í nokkrar vikur. Samkvæmt upplýsingum frá Edda-film, sem gerði myndina fer nú að fækka sýningum á myndinni í Reykjavík. Það fer því að verða hver síðastur hér á höfuðborg- arsvæðinu að sjá myndina. Leiðrétting LÍTILS HÁTTAR villur slæddust inn í kosningafrétt Morgunblaðsins á bls. 47 í gær. Þar var rætt um hvaða áhrif tilkoma T-listans á Vestfjörðum hefði haft og upplýs- ingarnar hafðar eftir Þorkeli Helga- syni dósent við Háskóla íslands. Réttar eru þessar vangaveltur á þá leið, að hefði T-listinn fengið meira af atkvæðum og fellt Þorvald Garðar Kristjánsson, hefði það ekki orðið til þess að Geir Hallgrímsson hefði orðið uppbótarmaður. Það hefði kostað Sjálfstæðisflokkinn kjördæmakjörinn þingmann án þess að uppbótarmaður hefði komið í staðinn. Hefðu atkvæði T-listans hins veg- ar orðið nokkru fleiri og talizt til Sjálfstæðisflokksins, hefði uppbót- armaður flokksins á Austurlandi fallið út og flokkurinn fengið upp- bótarmann á Vestfjörðum. Þannig hefði þingmannafjöldi flokksins ekki breytzt. Stykkishólmi, II. apríl. UM ÞESSA helgi hafa verið hér í Stykkishólmi á vegum Kristniboðs- sambands íslands þeir Skúli Svav- arsson kristniboði og Benedikt Arnkelsson guðfræðingur. Þeir hafa haldið hér samkomur í kirkjunni laugardags-, sunnu- dags- og mánudagskvöld og sýnt litmyndir frá starfinu í Afríku. Þá hafa þeir heimsótt skólana, haft barnasamkomur og eins heimsótt sjúkrahúsið hér og Dvalarheimili aldraðra. Næst er ferðinni heitið út á Snæfellsnes og verða sam- komur bæði á Hellissandi og í Magnús G. Friðgeirsson Fyrirlestri Geð- hjálpar frestað FYRIRLESTRI þeim, sem vera átti á vegum Geðhjálpar annað kvöld, fimmtudag, hefur verið frestað vegna veikinda. Um fyrir- lesturinn verður tilkynnt síðar. Siglufjörður: Leikritið Getraunagróði frumsýnt Siglufirði, 25. apríl. Hér hafa staöið yfir æfingar á leik- ritinu Getraunagróði eftir Philip King. Jónas Tryggvason er leiksstjóri. Frumsýning verður í Nýja bíó á Siglufirði, þriðjudaginn 26.4. Sýn- ingar verða einnig 27. og 28. á Siglufirði, 29. á Hofsós og 30. á Dalvík. Sjö leikendur koma fram í verkinu, sem tekur um tvo tíma í sýningu. Matti. Leiðrétting í GREIN um úrslit kosninganna sem birtist í dálkunum af innlendum vett- vangi hér í blaðinu í gær segir, að skipting þingsæta hafi raskast þéttbýl- inu „í óhag“ í kosningunum á laugar- dag. Þetta er rangt. A síðasta þingi sátu 38 þingmenn sem fulltrúar ann- arra kjördæma en Reykjavíkur og Reykjaness, en nú eru þeir 35. Þá er einnig nauðsynlegt að árétta það, að sú breyting varð ekki í þessum kosningum að dreifbýlis- þingmenn fengju meirihluta í þing- flokki Alþýðubandalagsins — þeir höfðu hann fyrir. Hins vegar tapaði Alþýðubandalagið nú þingmanni í þéttbýli og hlutfallslega styrktu al- þýðubandalagsmenn úti á landi stöðu sína innan flokksins. Björn Bjarnason Ólafsvík. Það er undravert hve mikið hef- ir áunnist í kristindóms- og líkn- armálum í Afríku af hálfu kristni- boðsins. Enda skilur almenningur þetta og metur störf kristniboð- anna mikils, það sýna öll hin frjálsu framlög landsmanna sem halda þessu starfi uppi. Það eru fjármunir sem gefa mikinn arð og þeim arði grandar hvorki mölur né ryð. Ég hvet alla landsmenn til að kynna sér þessi mál og veita þeim liðsinni. Fréttaritari. Fyrir utan sjúkraskýlið í Konsó. Hópur sjúkra og þjáðra bíður þess aö komast að. Ættingjar og vinir, sem hafa fylgt þeim á staðinn, nota tímann á ýmsan hátt á meðan þeir bíöa. Þcir hafa tekið með sér nesti, enda þarf oft að fara um langan veg. Kxistniboðið f Konsó kynnt í Stykkishólmi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.