Morgunblaðið - 27.04.1983, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1983
23
kvæði og 5,5% kjörfylgi. Kjör-
dæmakjörinn þingmann í Reykja-
vík og tvo uppbótarþingmenn.
Saman fá hin nýju framboð 12,8%
kjósendasveiflu, einkum frá A-
flokkum og Framsóknarflokki.
Nú sitja níu konur á þingi í stað
þriggja, sem óhjákvæmilega hlýt-
ur að segja til sín í skipan
framboðslista stjórnmálaflokk-
anna í framtíðinni.
IJrslitin í Reykjavík
Bæði nýju framboðin, Bandalag
jafnaðarmanna og Kvennalisti, fá
meira kjörfylgi í Reykjavík en
landsmeðaltal (ef hægt er að nota
það orð um kvannaframboðin sem
aðeins buðu fram í þremur kjör-
dæmum) segir til um. Atkvæða-
hlutfall annarra framboða skerð-
ist því meir þar en í öðrum kjör-
dæmum.
Alþýðuflokkurinn fær þannig
5.689 atkvæðum færra en 1978 og
3.221 atkvæði færra en 1979. Al-
þýðubandalag fær 2.382 atkvæðum
færra en 1978 og 1254 atkvæðum
færra en 1979. Framsóknarflokkur
fær ögn fleiri atkvæði en 1978 en
hinsvegar 2.471 atkvæði færra en
1979. Sjálfstæöisflokkur fær 2.292
fleiri atkvæði en 1978 og 379 fleiri
atkvæði en 1979. Hinsvegar er
kjörfylgi Sjálfstæðisflokksins
broti úr prósentu lægra en 1979.
Engu að síður er ljost að sex fram-
boðsaðilar 1983 í stað fjögurra
1978 og 1979 hafa bitnað mun
hóflegar á Sjálfstæðisflokknum en
A-flokkum og Framsóknarflokki í
Reykjavík.
Atkvæðahlutfall Sjálfstæðis-
flokksins kemur verr út í Reykja-
vík, í samanburði við útkomu 1979,
en í öðrum kjördæmum, ef Vest-
firðir eru undan teknir. Ein af
skýringum þess er — sem fyrr
segir — að sveiflan yfir til hinna
nýju framboða er þar meiri en
annars staðar. Áróður Alþýðu-
flokks, þess efnis, að hann væri í
útrýmingarhættu í kosningunum,
kann og að hafa komið hér við
sögu.
Hvað er framundan?
Telja verður gefið að forseti lýð-
veldisins feli formanni Sjálfstæð-
isflokksins, Geir Hallgrímssyni,
að gera tilraun til stjórnarmynd-
unar. Annað er naumast sýnt í
stöðunni, eriða vóru úrslit án
niðurstöðu talin uþp úr kjörköss-
unum, svo vitnað sé til orða
Björns Bjarnasonar í hugleiðingu
um kosningaúrslitin.
Sjaldan hefur stærri vandi beð-
ið óleystur en nú í þjóðarbúskapn-
um, er nýtt þing kemur saman til
starfa. Ríki, sveitarfélög og
atvinnuvegir hanga á horrim; spáð
er samdrætti í þjóðarframleiðslu
og þjóðartekjum; verðbólga nálg-
ast 100% ársvöxt; erlendar skuldir
taka til sín fjórðung útflutnings-
tekna; atvinnuöryggi fólks stendur
tæpar nú en um langt árabil. Það
er því mikilvægt að mynda starf-
hæfa og sterka ríkisstjórn sem
fyrst. Það þolir enga bið.
— sf.
Stjórn Migrenesamtakanna. Fremri röð: Egína, Björg Erla. Aftari röð: Helga,
Jóna Dóra, Norma og Valdemar.
Migrenesamtökin 5 ára
Kaffisala 1. maí
UM ÞESSAR mundir eru 5 ár liðin
frá stofnun Mígrenesamtakanna á
íslandi, eða Samtökum mígrene-
sjúklinga eins og nafnið var í upp-
hafi. Nafninu var breytt árið 1981
vegna þess að ýmsir fleiri en mígr-
eneþolendur vildu ganga í félagið,
bæði aðstandendur og fyrrverandi
mígrenesjúklingar.
Félagið starfar með svipuðu
sniði og önnur mígrenesamtök á
Vesturlöndum. Markmiðin eru:
Að auka samkennd og samstöðu
mígrenesjúklinga,
að veita fræðslu með fræðslufund-
um, útgáfu fréttabréfs og annars
fræðsluefnis,
að berjast fyrir bættum rannsókn-
um og meðferð t.d. með göngu-
deildarþjónustu o.fl.
Að þessu hefur verið unnið og
formlega hefur félagið fengið að-
stöðu fyrir mígrenesjúklinga á
göngudeild taugadeildar Land-
spítalans. Þar hafa að vísu verið
byrjunarörðugleikar en vonandi
rætist úr því sem fyrst.
Mígrenesamtökin héldu nýverið
aðalfund sinn. í stjórn voru kosn-
ir: Björg Bogadóttir formaður,
Valdemar S. Jónsson varaformað-
ur, Jóna Dóra Karlsdóttir ritari,
Regína Ingólfsdóttir gjaldkeri,
Erla Gestsdóttir spjaidskrárrit-
ari, Helga Jónsdóttir meðstjórn-
andi og Norma E. Samúelsdóttir
sem sér um útbreiðslu og tengsl
við félaga.
Fyrir utan félagsgjöld og sölu
minningarkorta safna samtökin fé
til starfseminnar með kaffisölu að
Hallveigarstöðum 1. maí ár hvert
og verður svo einnig 1. nk. Þar
verða veittar upplýsingar og tekið
á móti nýjum félögum.
(FrétUtilkynning)
Morgunblaöiö/ Emilía.
Frá starfsdegi hannyrðakennara, sem haldinn var að Grettisgötu 89.
Starfsdagur hannyrðakenn-
ara haldinn í fyrsta skipti
Franska byltingin
í Regnboganum
22. apríl 1983 var í fyrsta sinn
haldinn almennur starfsdagur hann-
yrðakennara. Þátttakendur voru 79
víðs vegar að af landinu.
Eftir fyrirlestur Kristrúnar ís-
aksdóttur fóru fram í hópum um-
ræður um ýmis þau málefni sem
varða hannyrðakennslu svo sem
námsskrá, kennslugögn og
kennslufræði. Greinilega kom
fram óánægja kennara með skert-
an tíma til verklegrar kennslu.
Eftir hádegið voru unnin hóp-
verkefni og niðurstöður hópa
kynntar.
Kvikmyndaklúbbur Alliance
Francaise sýnir miðvikudaginn 27.
og fimmtudaginn 28. aprfl kl. 20.30 í
E-sal Regnbogans, Hverfisgötu 54 í
Reykjavík, myndina „1789“, Ijóslif-
andi sögu frönsku byltingarinnar.
Tilurð myndarinnar „1789“, sem
tekin var upp á 13 síðustu sýning-
um samnefnds leikrits í París í
júnímánuði 1973, má rekja til
þeirrar löngunar að varðveita
þennan leiklistaratburð. Notaðar
voru fimm 16 mm myndavélar til
að mynda þessa leikhúshátíð.
Leikurinn fer fram á nokkrum
pöllum umhverfis áhorfendur en
röðin kemur líka að þeim og veit-
ist þeim sú ánægja að verða sjálfir
leikarar. Hér er sagt frá, sungið
um og leikin með látbragði
franska byltingin í upphöfnu and-
rúmslofti sameiginlegrar sköpun-
ar. Leikstjóri er Ariane Mnouch-
kine.
Myndin er í lit og tekur um tvær
og hálfa stund í sýningu.
Allar myndir Kvikmynda-
klúbbsins eru sýndar með enskuni
skýringartextum.
Karlakórinn
Þrestir heldur
tónleika í
Bæjarbíói
ÞESSA dagana heldur karlakórinn
Þrestir tónleika í Bæjarbíói í Hafnar-
firði. Tónleikarnir eru miðvikudags- og
fostudagskvöld klukkan 20.30, en
lokatónleikarnir eru laugardaginn 30.
aprfl kl. 16.
Stjórnandi er Herbert H. Ágústs-
son og undirleikari Sveinbjörg Vil-
hjálmsdóttir. Einsöngvarar Inga
María Eyjólfsdóttir og John Speight.
Flutt verða bæði innlend og erlend
verk, svo sem Vorvísur, lag eftir Jón
Laxdal, Látum sönginn hvellan
hljóma eftir Grieg og Lát koma vor
eftir Árna Thorsteinsson.
(FrétUtilkynning).
NÚNA Á APRÍL TÖLLGENGI
AMERICAN
EAGLB 4X4
EGILL,
VILHJALMSSON HF
Smiðjuvegi 4, Kópavogi, s. 77200 og 77202
Stórkostlegux bill sem nýtur sín
jafnt innanbæjar sem til fjalla.
American Eagle 4X4 fýrir þá sem
vilja bíl fyrir íslenskar aöstæður.
Vegna sérstakra samninga við
verksmiðjumar, getum við boðið
takmarkað magn af Eagle 4x4
árg. 1982, á sérstöku af-
sláttarverði.
AMC-Eagle 4x4