Morgunblaðið - 27.04.1983, Page 27

Morgunblaðið - 27.04.1983, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1983 27 höfðu komið til að heyra. Hann hafði fullt vald á hljóðfærinu og tónverkinu. Hinn bjarti tónn sem hefur verið hans aðalsmerki hljómaði út i hvert horn þessa stóra tónleikasalar, hljómburður- inn var frábær, og áheyrendur voru stórhrifnir. Á síðasta hluta tónleikanna lék Segovía verk eftir Ponce, Albeniz og að síðustu són- ötu eftir Scarlatti við mikla hrifn- ingu áheyrenda. Það var mikil snilld i leik hans. Menn risu úr sætum sínum og fögnuðu lengi. Ung stúlka gekk fram og færði listamanninum rauða rós. Straumar virðingar, að- dáunar og þakklætis lágu i lofti. Segovía naut sýnilega hyllinnar, hann lék mörg aukalög, þar til hann að lokum kom fram án git- arsins og tilkynnti styrkri röddu: „Ég er ekki þreyttur, ég get leikið lengi enn, en gítarinn minn er þreyttur, og ég leik ekki á hljóm- lausan gítar. Þakka ykkur fyrir.“ Það var ljóst að hugurinn var ungur þó að líkaminn væri farinn að gefa sig. Við yfirgáfum Kennedy Center full aðdáunar á þessum níræða meistara. Hann var okkur hinum yngri áminning um hvernig brennandi áhugi, vinna og árang- ur nær að varðveita vel þá ein- staklinga, sem lært hafa að lifa lífinu lifandi. Margrét Þorvaldsdóttir Reykjavíkurborg tekur við rekstri nýrrar Grænuborgar HINN 5. apríl sl. tók til starfa nýtt barnaheimili, Grænaborg, á Skóla vörðuholti. Þetta heimili er arftaki Grænuborgar, sem Barnavinafélagið Sumargjöf byggði austan Landspítal- ans sumarið 1931. Gamla Græna- borg hefur nú orðið að víkja, þar sem hún var fyrir skipulagi á Landspítalasvæðinu. Fyrir 15—20 árum hófust samningaumleitanir um framtíðarskipan mála milli stjórnar ríkisspítala og stjórnar Sumargjafar og lyktaði þeim árið 1%9 með samn- ingi milli ríkisstjórnarinnar og borg- arstjórnar, þar sem Heilbrigðisráðu- neytið skuídbatt sig til að kosta byggingu 800 m3 dagvistarstofnunar og Reykjavíkurborg tók að sér að útvega lóð í sama hverfi undir bygg- inguna. Reykjavíkurborg úthlutaði fyrst lóð við Droplaugarstíg (við hlið Sundhallarinnar), en seinna kom upp vandamál varðandi staðsetningu spennistöðvar í Austurbænum. Til GRÆNLENZKU rækjutogararnir, sem undanfarið hafa landað afla sín- um á ísafirði, eru hættir veiðum á Dhorn-banka og öðrum miðum útaf Austur-Grænlandi. Togararnir hafa fært sig á hefðbundin mið við Vestur-Grænland. Siðasti togarinn kom til ísa- fjarðar með afla á laugardag og var rækjan sett beint um borð í að leysa það var farið fram á að Sumargjöf gæfi lóðina eftir, en fengi í staðinn lóð við Eiríksgötu, við hlið- ina á Hnitbjörgum. Þetta var sam- þykkt. Lóðin er í minna lagi, en hún fullnægir þó staðli Menntamála- ráðuneytisins um 20m2 lágmarks- rými á barn. f ársbyrjun 1976 voru arkitekt- arnir Ormar Þór Guðmundsson og Örnólfur Hall ráðnir til að teikna húsið, og unnu þeir teikningarnar í samvinnu við byggingarnefnd Sumargjafar. Nýja Grænaborg er þriggja deilda dagvistarheimili fyrir börn á aldrinum 2—6 ára. Þar verða samtals 80 börn. Þau skiptast þannig að 17 verða á dagheimili, 8 verða 6 stundir á dag og 55 í venjulegum leikskóla (4—5 stundir á dag) og er hann tvísett- ur. í hverri deild eru tvær leikstof- ur, snyrting og móttökuherbergi. Auk þess sameiginlegt leikrými, flutningaskip, Ice Flower, sem fór frá ísafirði þá um kvöldið með 5—600 tonn af Grænlandsrækju til Hirtshals og er öll Grænlands- rækjan þar með farin. Umboðs- maður grænlenzku rækjutogar- anna á lsafirði, Gunnar Jónsson, sagði að afli hefði verið meiri í vetur en í fyrravetur og gizkaði hann á að heildarafli væri 1000—1200 tonn. sem er salur til hreyfileikja, verk- stæði, herbergi til vatnsleikja og bókaherbergi. Húsið er 441 m2 að flatarmáli og 1800 m3 að stærð. Framkvæmdir hófust 16. júlí 1980 og var gert ráð fyrir að hægt yrði að taka húsið í notkun sumar- ið 1982. Framlag það sem Sumar- gjöf átti að fá frá Heilbrigðisráðu- neyti og Menntamálaráðuneyti kom þó síðar en áætlað hafði ver- ið, og réðist framkvæmdahraði af því. Byggingarkostnaður er svipaður og kostnaður við dagvist- arheimili, sem Reykjavíkurborg hefur látið byggja. Helstu verk- þættir voru boðnir út. Jarðýtan hf. sá um jarðvinnu, Sturla Haralds- son steypti upp húsið og gerði það fokhelt og Byggingafélagið Höfði hf. sá um innréttingar og annan frágang. Auður Sveinsdóttir, landslagsarkitekt, var ráðin til að skipuleggja lóðina og er þar um að ræða nýstárlega útfærslu á leik- svæði. Einar Þorgeirsson, garðyrkjumeistari, var ráðinn til að vinna verkið. Gerður hefur verið samningur við Reykjavíkurborg um rekstur Grænuborgar, á sama grundvelli og gert hefur verið við önnur heimili Sumargjafar. í byggingarnefnd áttu sæti: Jón Freyr Þórarinsson, Jóhanna Bjarnadóttir, Bergur Felixson og Guðrún Jóhannsdóttir. Starfs- maður byggingarnefndar var fyrst Kristín Ólafsdóttir og síðar Þór- unn Sigurjónsdóttir. Forstöðu- maður þessa nýja dagvistar- heimilis er Jóhanna Bjarnadóttir. (Fréttatilk.) Hættir rækjuveiðum við Austur-Grænland Fjölþætt sálvaxtarnámskeið Breski leiðbeinandinn Helen Davies M.A. heldur hér á landi A. Helgarnámskeiö (30. apríl—1. maí) þar sem kenndar veróa að- feröir sem losa um vöövaspennu, leiörétta ranga öndun, bæta tjáningaraöferöir og auka almenna vellíöan. Námskeiðið byggir á aöferðum mannúöarsálarfræöi. Wilhelm Reich, C.G. Jung, Stanislav Grof og Gestalt meðferð. B. Fyrirlestur í Norræna húsinu föstudaginn 29. apríl kl. 20.30 sem ber heitið: „Bodywork and the transpersonal'-. Aögangseyrir 30 kr. Upplýsingar og skráning á námskeiöiö er í Miögaröi Bárugötu 11. S: 12980 kl. 13—18. Ath. Takmarkaöur þátttökufjöldi. /VIIÐG/1RÐUR Nuddnámskeiö NUDDARAR OG ÁHUGAFÓLK Bandariski nuddkennarinn JOSEPH MEYER MT heldur 6 vikna nuddnámskeiö sem byrjar 2. mai 1983. Nuddnámskeiöin eru tvenns konar: nám- skeið í sænsku vöövanuddi fyrir byrjendur og framhaldsnámskeiö í djúpnuddi Wilhelm Reich fyrir nuddara. Joseph Meyer MT er einnig meö einkatima í nuddmeöferö. Nánari upplýsingar í síma 12980 milli kl. 13 og 18. TAKMARKADUR FJÖLDI Ath.: Kynningarfundur aö Bárugötu 11, laug- ardaginn 30. apríl kl. 18. ^Dalc . Camegie STJÓRNUNARNÁMSKEIÐIÐ ER AÐ HEFJAST MÁNUDAGINN 2. MAÍ KL. 13.00 MARKMIÐ 1. Aö hjálpa stjórnendum aö skilgreina og skipu- leggja störf sín, svo aö þeir geti greinilega séö fyrir þann árangur, sem stefnt er aö og gert nauð- synlegar ráöstafanir til aö ná honum. 2. Að hjálþa stjórnendum aö skipuleggja, áætla og stýra verkefnum innan ákveöins tíma meö æski- legum árangri. 3. Aö kynna framkvæmdaeftirlit sem tryggir, aö raunverulegur árangur veröi í samræmi viö áætl- aðan árangur. 4. Aö tryggja aö öll störf séu tengd markmiöum fyrir- tækisins. 5. Að hjálpa stjórnendum aö byggja upp og hvetja starfsfólkið og skapa meiri áhuga og framleiöni. 6. Aö hjálpa stjórnendum aö finna tíma, til aö stýra verkefnum sem stjórnendur. 7. Aö hjálpa stjórnendum að reka fyrirtækin í jafn- vægi og tryggja stööugan vöxt. 8. Aö tryggja þaö, aö stjórnendur muni stjórna í samræmi viö reyndar og hagnýtar aöferöir stjórn- unar. Betri fyrirtæki og meiri hagnaður veröur þegar notuö eru grund- vallaratriöin, sem kennd eru í Dale Carnegie Stjórnunarnám- skeiöinu. Innritun og upplýsingar í síma 82411. [œ 82411 r Einkaleyfi á íslandi dalecarnegie stjórnunarskólinn namskeiðin Konráð Adolphsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.