Morgunblaðið - 10.06.1983, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 10.06.1983, Blaðsíða 1
129. tbl. 70. árg. FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 1983 Prentsmiöja Morgunblaösins Stórsigur blasir nú við brezka íhaldsflokknum London, 10. júní, BB(\ AP. ÚTLIT er fyrir aö Ihaldsflokkurinn meö Margaret Thatcher í broddi fylkingar hafi unniö stórsigur í brezku þingkosningun- um og mjög bætt stööu sína frá því í kosningunum 1979. Þegar síðast spuröist, aðfaranótt föstudags, var Ihaldsflokkn- um spáö 385 sætum af 650 og er það 126 sæta aukning frá 1979. Virtist sem Verkamannaflokkurinn myndi fá u.þ.b. 216 sæti og bandalag frjálslyndra og jafnaöarmanna 25. Sam- kvæmt brezkum kosningareglum er ekki strangt hlutfall milli fjölda atkvæða er flokkur hlýtur og fjölda þingsæta. Þannig er taliö að íhaldsflokkurinn muni tapa allt aö 2% heildarat- kvæðamagns, Verkamannaflokkurinn 16%, en bandalag frjálslyndra og jafnaðarmanna bæta við sig 12%. „Ég held að ég muni hafa at- hvarf hér næstu fimm árin,“ sagði Thatcher og brosti breitt er hún yfirgaf forsætisráðherrabústað- inn að Downingstræti 10 og hélt áleiðis til kjördæmis síns í Finch- ley í norðurhluta Lundúna. Þá var þegar ljóst að íhaldsflokkurinn hafði unnið góðan sigur í fyrstu kjördæmunum sem talin voru. Þegar forsætisráðherrann fór frá embættisbústaðnum á fimmtudagskvöld hafði hópur að- dáenda safnast fyrir framan og klappaði henni lof í lófa. „Við hirðum ekkert um hve mörg þing- sæti hún vinnur, svo lengi sem hún sigrar aftur," sagði einn þeirra. „Hún er undraverð — og sterkari en nokkur karlmaður, sem um er að velja í stjórnmálum nú.“ Snemma var ljóst að Verka- mannaflokkurinn mundi bíða af- hroð í kosningunum og höfðu vart tuttugu kjördæmi verið talin er varaformaður flokksins, Denis Healey, jós úr skálum reiði sinnar yfir Jafnaðarmannaflokkinn, sem óánægðir félagar Verkamanna- flokksins stofnuðu fyrir tveimur árum. „Hann hefur unnið Verka- mannaflokknum mikið tjón,“ sagði Healey, „og hefur splundrað andstæðingum íhaldsmanna. Fari svo fram sem horfir sitjum við Voðavopn ein koma að haldi Addis Ahaba, 9. júní. AP. Blökkumannaþjóðir Afríku ættu að koma sér upp eigin kjarnorku- vígbúnaði til að hafa í fullu tré við stjórn hvítra manna í Suður-Afríku, að sögn fráfarandi aðalritara Eining- arsamtaka Afríkuríkja, Edem Kodjo, í dag. Aðalritarinn sagði að tal um kjarnorkuvopnalausa Afríku væri til einskis þar sem Suður-Afríka hefði þegar yfir kjarnorkuvopnum að ráða. Hann fullyrti að vopn þessi væru til að ógna öðrum Afríkuríkjum og kvað það vera skyldu hinna síðarnefndu að taka gereyðingarvopn í þjónustu sína sem fyrst. Ummælin komu fram á fundi Einingarsamtakanna í Addis Ababa í Eþíópíu. uppi með hægrisinnaðasta forsæt- isráðherra aldarinnar." Annar háttsettur forystumaður innan Verkamannaflokksins lýsti því yf- ir að baráttan yrði nú flutt utan veggja þinghússins. „Ég trúi því ekki,“ sagði hann, „að stjórn Thatchers muni endast önnur fimm ár.“ Ef miðað er við kosningaspár, er byggjast á úrslitum úr meira en, hundrað kjördæmum, er sigur íhaldsflokksins sá stærsti síðan Verkamannaflokkurinn undir for- ystu Clement Attlee sigraði Wins- ton Churchill, leiðtoga íhalds- flokksins, með hundrað og fjörutíu sæta meirihluta árið 1945. Ér talið að íhaldsflokkurinn fái að minnsta kosti 110 til 130 sæta meirihluta sem er allstór viðbót við þann 43 sæta meirihluta, sem flokkurinn hlaut 1979. POLLING STATION isea £ wesrmsm imiTUTE ENTRANCE ■msTEn cor ;e Suður-Afríka hefur þráfaldlega neitað því að hafa yfir kjarnorku- vopnum að ráða. Sjá frekar um S-Afríku á bls. 15 „Skæruliðar teknir af lífi“. V erkamannaflokkurinn Lifði 800 metra fall Osló. 9. júní. Frá frcttaritara Mbl., Jan-Erik Lauré SVO ótrúlega vildi til í Noregi fyrir nokkrum dögum að sautján ára gamall unglingur, Kolf Erik- sen, lifði af 800 metra fall úr flugvél. Hvorki fallhlíf né neyð- arfallhlíf opnuðust og Rolf féll til jarðar og kom á bakið ofan í á. Fólk þusti að ánni og dró Rolf, sem allir héldu fyrst að væri lát- inn, á þurrt en þá kom í Ijós að hann andaði enn. Var þá ekki beðið boðanna með að koma honum á sjúkrahús þar sem hann liggur nú og er ekki talinn alvarlega slasaður. 1ENTRA JE Sigurviss leiðtogi breska íhaldsflokksins, Margaret Thatcher, kemur út af kjörstað í Lundúnum ásamt eiginmanni sínum, Dennis, á fimmtudag. Gorbachev í ritarasætið? FARI svo að heilsu Andropovs hraki og Sovétmönnum verði sá kostur nauðugur að finna nýjan eftirmann, er Mikhail Gorbachev maður, sem vert er að hafa auga með að sögn sérffóðra fréttaskýr- enda. Gorbachev er 52 ára að aldri og er hann yngsti meðlimur miðstjórnar Kommúnistaflokks- ins. Gorbachev hefur verið mjög áberandi eftir að Andropov tók við völdum. er sterkari bandalaginu Þrautseigur til síðustu stundar. Leiðtogi brezka Verkamannaflokksins, Michael Foot, kemur af kjörstað ásamt eiginkonu sinni, Jill, í Tredegar á fimmtudag. London, 10. júní. AP, BBC. LEIÐTOGI brezka Verkamannaflokksins, Michael Foot, vidurkenndi þegar úrslit í meira en hundrað kjördæmum lágu fyrir, að Verkamannaflokkurinn hefði farið mjög halloka í þingkosningunum i gær. Forystumaður Frjálslynda flokksins, David Steel, lýsti því sömuleiðis yfír að vart yrði þaö flokkur hans sem ráða myndi valdajafnvæginu á brezka þinginu næstu fímm árin. Þótti sýnt akömmu eftir miðnætti að frjálslyndir fengju varla meira en 23 til 25 sæti en Jafnaðarmannaflokkurinn einungis um 2 til 3 þingsæti. Það vekur athygli að David Ow- ens og Roy Jekins virðast einu for- ystumenn Jafnaðarmannaflokksins sem náðu kjöri, en Shirley Willi- ams, einn aðalleiðtogi flokksins, féll. Ber fréttaskýrendum saman um að túlka megi væntanleg úrslit kosninganna á þann veg að Verka- mannaflokkurinn hafi tapað fylgi til Frjálslynda flokksins frekar en Jafnaðarmannaflokksins. Þrátt fyrir þann tilflutning benda spár til að Verkamannaflokkurinn haldi stöðu sinni sem annað stærsta aflið í brezkum stjórnmálum. Einnig hefur vakið mikla athygli að foringi hins róttæka arms Verkamannaflokksins, Tony Benn, náði ekki kjöri í Bristol og tapaði hann nær tvö þúsund atkvæðum til íhaldsflokksins. Erfitt er að segja með vissu um kosningaúrslitin, þar sem breyt- ingar hafa orðið á kjördæmaskipan síðan 1979. Hefur t.d. fimmtán sæt- um verið bætt við í Westminster, þannig að heildarfjöldi þingmanna verður sex hundruð og fimmtíu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.