Morgunblaðið - 10.06.1983, Page 8

Morgunblaðið - 10.06.1983, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 1983 Hjúkninarheimilið Sunnuhlíð f Kðpavogí. Óvænt svigrúm í kjallara Mjúkrunarheimili aldraðra, Sunnu- hlíð í Kópavogi, var tekið í notkun á sl. ári. llpphaflega var aðeins gert ráð fyrir að heimilið yrði á einni hæð, en þegar grafið var fyrir húsinu kom ( ijós að hagkvæmast yrði að hafa einn- ig kjallara undir jarðhæðinni. Þama skapaðist því óvænt rými sem nemur um 450 fermetrum. Mbl. hafði samband við Ásgeir Jóhannesson formann stjórnar hjúkrunarheimilisins og sagði hann að einungis væri lokaátakið eftir við að fullklára húsið. Innrétta á þetta óvænta kjallarapláss, en þar eiga að vera vinnustofur fyrir allt að 40 manns, félagsaðstaða og sjúkraþjálfun auk bókasafns. Þessi verndaði vinnustaður aldraðra og öryrkja verður rekinn af Kópa- vogsbæ, en önnur starfsemi verður á vegum Sunnuhlíðar. Um 150 manns hafa nú þegar notið þjónustu hjúkrunarheimilis- ins, sem rúmar 40 manns í senn, en aðstandendur þess gera sér vonir um að tvöfalda þann fjölda með til- komu kjallarans. Ásgeir sagði að Sunnuhlíð hefði verið byggð að miklu leyti fyrir fjárframlög bæjarbúa í Kópavogi, en ríkið og Kópavogsbær hefðu einnig styrkt byggingu heimilisins. Vonaðist Ásgeir eftir áframhald- andi stuðningi þessara aðila svo að ljúka mætti þessum framkvæmdum sem fyrst og hafa í því skyni verið sendir gíróseðlar inn á heimili í Kópavogi. VILTU ENDURNÝJA GAMLA ELDHÚSIÐ? Kalmar hefur þaö sem þarf Sú mikla fjölbreytni sem er aö finna í útliti og skápageröum gerir okkur kleift aö laga innréttingar aö hvaöa rými sem er. Viö ráðleggjum, mælum og teiknum yöur aö kostnaðarlausu. Sá sem eignast Kalmar-innréttingu, eignast vandaöa vöru á vægu verði. Sérti/bod tnV/s-ipum w 14■ juní Kalmar SKEIFAN 8 - 108 REYKJAVÍK - SlMI 82011 Spænsk nú- tímatónlist Tónlist Jón Ásgeirsson José Ribera, spænskur pían- isti, sem búsettur er í Svíþjóð, hélt tónleika á vegum sendiherra Spánar í Norræna húsinu og lék eingöngu spænska nútímatón- list. Fyrir utan þá frægu meist- ara de Falla, Albeniz og Grana- dos, er spænsk tónlist lítið þekkt í Norður-Evrópu. Fyrsta verkið á efnisskránni var Svíta eftir Esplá (1886-1976). Esplá samdi balletta, sinfónísk ljóð, fiðlusón- ötu og mikið af píanótónlist. Hann var búsettur í Belgíu frá 1936 til 1951, er hann sneri aftur til Spánar. Annað verkið á efnisskránni var Preludía nr. 2, eftir Lamote de Grignon. Þriðji höfundurinn var svo Robert Gerhard (1896—1970) en hann var nemandi Petrells og Schönbergs. Gerhard samdi fjór- ar sinfóníur, fiðlukonsert, óperu og raddsetti mikið af gamalli spænskri alþýðutónlist. Frá 1934 var hann landflótta og starfaði til æviloka í Englandi. Bæði Esplá og Gerhard vinna mikið með spænsk þjóðlög og í píanó- verkum sínum eru þeir allir mjög spænskir í stíl, skrúðmikl- ir, hrynsterkir og svo á milli uppfullir dapurleika. Eiginlega nútímaverkið á tón- leikunum er eftir Delfin Colomé, en hann er fæddur 1946. Verk hans er sambland nýrra og gam- alla vinnubragða, en alvörulaus tónsmíð, þar sem slegið er úr einu í annað og vitnað til gam- alla meistara. Fyrri hluta tón- leikanna lauk með þremur lög- um eftir meistara de Falla og síðast þeirra var sá frægi Eld- dans. Eftir hlé lék Ribera verk eftir Mompou (1893), Albeniz og Granados. Mompou samdi aðal- lega verk fyrir píanó og einnig sönglög. Frá 1921 hefur hann bú- ið í París og þó hann kalli tónstíl sinn „primitivista" er hann sterklega tengdur frönskum „impressionisma". Einn þáttur í píanóverki Mompou, er hann kallar Sú blinda, er einkar falleg tónsmíð. Albeniz var mikill pí- anóleikari, enda nemandi Liszts. Sum verka hans, eins og t.d. Ley- enda, eru orðin eins konar vöru- merki Spænskrar menningar. Síðastur á efnisskránni var Granados. Hann er meðal mestu tónskálda Spánverja en fórst á besta aldri 1916. Hann var ásamt konu sinni á leið til Eng- lands frá Bandaríkjunum eftir vel heppnaða tónleikaferð, er þýskir kafbátar vörnuðu þeim heimkomunnar. Ribera er góður píanóleikari og lék á köflum mjög vel. Spænsk píanótónlist er á margan hátt skemmtileg og glæsileg, en tæplega hægt að kalla þá tónlist er Ribera lék, nútímalega. Jón Ásgeirsson. Fiðlunámskeið John Kendalls á TÓNLISTARSKÓLINN á Akur- eyri gengst fyrir námskeiði í strengjahljóðfæraleik undir leið- sögn John Kendalls prófessors dagana 15.—19. júní nk. I för með Kendall eru 14 banda- rískir fiðlunemendur hans og fer hópurinn til Svíþjóðar í þessari viku, en á leið sinni þangað hefur hann sólarhringsviðdvöl í Reykja- vík, 8. júní, og verður þá haldin Akureyri opin æfing á sal Tónmenntaskól- ans kl. 17. f tengslum við námskeiðið á Ak- ureyri fara þátttakendur 17. júní til Mývatns og taka þátt í hátíða- höldum þar með tónleikum. Nám- skeiðinu lýkur með tónleikum í íþróttaskemmunni á Akureyri 19. júní þar sem nemendur Kendalls og þátttakendur á námskeiðinu koma fram. T Lóðir fyrir íbúðarhús Hafnarfjaröarbær hefur til úthlutunar nokkrar lóöir fyrir raöhús og parhús. Lóöirnar eru fljótlega bygg- ingarhæfar. Nánari upplýsingar veitir skrifstofa bæjarverkfræö- ings, Strandgötu 6, þar meö taliö um gjöld og skil- mála. Umsóknum skal skila á sama staö eigi síöar en 21. júní nk. Bæjarverkfræöingur. Metsölublaö á hverjum degi! Happdrætti Sjálfstæðisflokksins Afgreiöslan í Valhöll. Háaleitisbraut 1, er opin í dag kl. 9—22. , Sími 82900. Sækjum greiöslu heim, ef óskað er. Vinsamlega geriö skil, sem allra fyrst.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.