Morgunblaðið - 10.06.1983, Page 10

Morgunblaðið - 10.06.1983, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 1983 STEFÁN FRIÐBJARNARSON AFINNLENDUM VETTVANGI Sextugföld krónutöluhækk- un — en kaupmáttarrýrnun en 1982, eftir efnahagsaðgerðirn- ar, en hefði versnað að óbreyttu um 11%. Aðgerðirnar sjálfar kosta því 3% rýrnun miðað við ár- ið í heild. Á síðari hluta ársins valda aðgerðirnar 4% kaupmátt- arrýrnun umfram „óbreytt ástand“. Hinsvegar ná þær verð- bólgustigi niður úr 134% í 82%, miðað við árið í heild, og verðbólgustigi september til des- ember nk. niður í 27%. í þessum samanburði er ekki haft í huga, hver áhrif það hefði haft á kjara- stöðu fólks almennt, ef óðaverð- bólgan hefði, óáreitt, fengið að loka fyrirtækjum og hrifsa at- vinnuna úr höndum mikils fjölda manna. Mildandi aðgerðir eru: 1) sér- stakur persónuafsláttur af tekju- skatti verður kr. 1.400; 2) sérstak- ar barnabætur verða greiddar, kr. Launaþróun á áratug óða- verðbólgu og viðbrögð núverandi ríkisstjórnar Ef vísitala kauptaxta, það er mælikvarði kauphækkunar í krónutölu, er sett á 100 árið 1971, þegar óðaverðbólga hóf vegferð sína hérlendis, sýnir mælikvarðinn 304 1975, 1804 1980, 2754 1981, 4107 1982 — og spár standa til 6200 1983. Ef vísitala — mælikvarði — kaupmáttar er á sama hátt sett á 100 1971, sýnir kvarðinn 99,3 1975, 113,1 1978, 106,7 1980, 105,4 1981, 104,3 1982 og 80—85 1983 (spá). Prátt fyrir það að kauptaxti hafi 60-faldast að krónutölu á þessu 12 ára tímabili er kaupmáttur taxtakaups 1983 innan við 85% þess sem hann var 1971. Verðbólgan, hið vélgenga og sjálfvirka víxlhækkunarkern, hefur gert gott betur en að brenna upp allar „vísitölubætur" á þessu tímabili. Atvinnuöryggi steytir á skeri verðbólgu og taprekstrar Hér að framan er rakið, hvern veg kaupmáttur taxtakaups hefur í raun rýrnað, þrátt fyrir sextug- falda hækkun að krónutölu á sl. 12 árum. Vísitalan, þetta vélgenga og sjálfvirka víxlhækkunarkerfi, hef- ur því engan veginn tryggt kjara- stöðu launafólks. Það hefur þó leikið efnahagslíf og atvinnuvegi þjóðarinnar enn verr. Mjög fáar þjóðir eru jafn háðar milliríkjaverzlun og við íslend- ingar. Við þurfum að selja stóran hluta framleiðslu okkar erlendis og flytja inn verulegt magn lífs- nauðsynja. Útflutningsframleiðsla okkar hefur þurft að sæta tilkostnaði 60—100% verðbólgu næstliðin ár. Jafnframt hefur hún staðið í harðri sölusamkeppni við fram- leiðslu þjóða, sem búa við stöðug- leika í verðlagi, aðeins 5—10% verðris. Annarsvegar hefur þessari uppákomu verið mætt með „geng- isaðlögun" (stanzlitlu gengissigi og nokkuð reglubundnum gengis- lækkunum) til að breyta söluverði, sem hækkað hefur óverulega í er- lendri sölumynt, í fleiri en smærri íslenzkar krónur. Hinsvegar með erlendri skuldasöfnun. Nýkrónan heldur í dag aðeins rúmlega 30% af verðgildi sínu þá upp var tekin í ársbyrjun 1981, miðað við skráð meðalgengi erlendrar myntar. Gengisþróunin hefur síðan þyngt hina erlendu skuldabyrði, aukið innfluttan kostnað og verðbólgu- hraðann. Þegar sýnt þótti að verðbólgan stefndi vel yfir 100% vöxt 1983, að nýrra samninga sem og óbreyttu, var ekki lengur til set- unnar boðið. Taprekstur undir- stöðuatvinnuvega var þegar far- inn að segja til sín í atvinnubresti. Skráðir atvinnuleysisdagar vóru tvöfalt fleiri hér á landi 1982 en 1981. Skráð atvinnuleysi í janú- armánuði sl. samsvaraði rúmlega 2% landsmanna á starfsaldri. Samtímis lá það fyrir að þjóðin hafði sem heild eytt stórlega um efni fram. Það kom fram í miklum viðskiptahalla sl. tvö, þrjú ár og verulega auknum skuldum erlend- is. Þjóðarframleiðsla og þjóðar- tekjur höfðu og minnkað. Staða ríkissjóðs hafi snöggversnað, fjár- festingarsjóðir tæmst og innlend- ur sparnaður hrunið. Miðstjórn ASÍ sendi frá sér ályktun 10. maí sl. þar sem segir m.a.: „Verulegar blikur eru nú á lofti í atvinnumálum. Aflasam- dráttur, stöðvun og frestun verk- legra framkvæmda á vegum ein- staklinga og opinberra aðila teikn- ar til erfiðleika í atvinnumálum nú og næstu mánuði. Gegn þessum erfiðleikum verður að snúast. Verkalýðshreyfingin lítur svo á að frumskylda stjórnvalda á sviði efnahagsstjórnunar sé að tryggja fulla atvinnu ...“ Ekki er ágreiningur um þann vanda sem til staðar er Við þær aðstæður grípur ný- skipuð ríkisstjórn til harðra ráð- stafana, sem ætlað er að hægja á víxlhækkunum verðlags og launa. Þessar aðgerðir skerða verðbætur á laun, sem hækka áttu um 22% 1. júní sl., en hækka aðeins um 8%. Þó hækka lágmarkstekjur um 10%. 3412341234123412341 1978 1979 1980 1981 1982 1983 Tafla þessi sýnir kaupmáttarþróun kauptaxta ASl, BSRB, meóalkauptaxta í landinu og elli- og örorkulífeyris með og án tekjutryggingar á stjórnarárum Alþýðubandalags 1978—1983. Það er að vísu ekkert nýtt að gripið sé inn í gerða kjarasamn- inga með stjórnvaldsaðgerðum, því miður. Verðbætur á laun vóru skertar fjórtán sinnum á stjórn- arferli Alþýðubandalagsins 1978—1983. Kaupmáttur launa lækkaði á þessu tímabili svo sem meðfylgjandi tafla sýnir, en hún er byggð á heimildum Þjóðhags- stofnunar. Það er meginniðurstaða í úttekt Þjóðhagsstofnunar að kaupmáttur verði að meðaltali 14% lakari 1983 3.000 á árinu fyrir hvert barn inn- an 7 ára; 3) bætur lífeyristrygg- inga hækka eins og laun um 8% 1. júní og 4% 1. október en jafn- framt kemur sérstök 5% hækkun á tekjutryggingu; 4) mæðralaun með einu barni verða tvöfölduð en hækka um 30% með börnum um- fram eitt; 5) veitt er 150 m.kr. um- fram fjárlagafé til Jöfnunar á Leggjum áherslu á samruna trúar og náms — rætt við yfirmann menntamála SD aðventista í heiminum, Charles Richard Taylor Yfirmaóur menntamála Sjöunda dags aðventista í heiminum, Charles Kichard Taylor, var staddur hér á landi fyrir nokkru og notaði m.a. tækifærið til að skoða skóla SD að- ventista í Ölfusi. Morgunblaðið átti viðtal við Taylor og ræddi við hann um menntamál aðventista og kirkju SD aðventista almennt. „Kirkja SD aðventista er í meg- instraumi mótmælendatrúar. Flestar helstu kenningar Lúters eru hluti af okkar trú. En það er kannski einkum tvennt sem greinir okkur frá lútersku kirkjunni, það er annars vegar trúin á endurkomu Krists og hinsvegar sú inikla áhersla sem við leggjum á líkam- legt heilbrigði." — Hvað kemur góð heilsa trú- arbrögðum við? „Mikið. Heilbrigð sál í hraustum líkama. Við leggjum mikla áherslu á að fólk stundi heilbrigt líferni, því hraust og heilbrigt fólk geislar frá sér orku og gleði.“ — Hvað eru aðventistar fjöl- mennir? „Það eru um 4 milljónir aðvent- ista í heiminum í 196 löndum. Og söfnuðurinn stækkar. Ég er fæddur í Brasilíu og þar voru árið 1941 10 þúsund aðventistar, en eru nú um 300 þúsund, svo dæmi sé tekið.“ — Nú ert þú yfirmaður mennta- mála SD aðventista í heiminum. Charles Richard Taylor (t.v.), yfirmaóur menntamála SD aðventista í heimin- um og Jón Hj. Jónsson prestur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.