Morgunblaðið - 10.06.1983, Side 17
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 1983
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 1983
17
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aóalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 230 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 18 kr. eintakið.
HálfVelgja
og stjórnmál
Idag, fimmtudag, ganga
Bretar að kjörborðinu og
velja menn á þing eftir fjög-
urra ára stjórn fhaldsflokks-
ins undir forystu Margaret
Thatchers. Þrátt fyrir öll
harmkvælin í vinstrisinnum
um að auðvitað myndu bæði
íhaldsflokkurinn og breskt
þjóðlíf lognast út af undir
stjórn Thatchers bendir allt til
þess á þeirri stundu, sem þetta
er ritað, að íhaldsflokkurinn
muni vinna góðan sigur.
Margaret Thatcher er ótví-
ræður leiðtogi flokksins og
sigur hans yrði einhver mesti
persónulegi sigur sem breskur
stjórnmálaforingi hefur unnið
á þessari öld og þótt yfir
lengri tíma sé litið.
Margaret Thatcher hefur þó
ekki hagað sér þannig undan-
farin ár eins og hún sé í ein-
hverju vinsældakapphlaupi,
að minnsta kosti ekki ef notuð
er sú mælistika sem vinstri-
sinnaðir fjölmiðlar og ríkis-
fjölmiðlar beita jafnan þegar
þeir meta gæði stjórnmála-
manna. Thatcher hefur ráðist
á ýmsar helgar kýr vinstri-
sinna og ekki lofað öllum öllu
fyrir ekki neitt — en þó á
kostnað skattgreiðenda. Með
fé skattborgaranna að vopni
finnst vinstrisinnum best að
afla sér fylgis og láta um leið í
veðri vaka að besta vörn Vest-
urlanda sé að friðmælast við
Sovétríkin enda séu þau ívið
skárra risaveldi en Bandarík-
in.
í því áróðursstríði sem nú er
háð hér á landi vegna harka-
legra efnahagsráðstafana
nýrrar ríkisstjórnar hafa
stjórnmálamenn gott af því að
íhuga stjórnarferil Thatchers
og sjá hvílíkri hörku hún hef-
ur orðið að beita til að sann-
færa þjóðina um að hún sé á
réttri braut. Auðvitað eru þeir
til innan bresku ríkisstjórnar-
innar og meðal áhrifamanna í
íhaldsflokknum sem telja að
alltof harkalega hafi verið að
málum staðið. En þessir menn
eru ekki dómarar í máli Marg-
aret Thatchers heldur kjós-
endur og það hefur verið til
þeirra sem hún hefur talað um
leið og hún hefur séð til þess
að samflokksmönnum hennar
gæfist ekki færi á að veikja
trú almennings á íhalds-
flokknum.
A erfiðleikatímum vaxa þeir
stjórnmálamenn sem kikna
ekki undan ábyrgðinni. Auð-
vitað getur enginn sagt, að
þeir hafi örugglega markað
hina einu og réttu stefnu.
Stjórnmál snúast ekki um það
að finna töfralyf. En stjórn-
málamönnum hlýtur að mis-
takast ætlunarverk sitt ef þeir
láta í veðri vaka þegar þeir
kynna almenningi stefnu sína
að þeir sjálfir hafi ekki trú á
henni nema með vissum fyrir-
vörum. Slík kynning er verri
en engin. Annað hvort trúa
stjórnmálamenn á það sem
þeir eru að gera eða þeir gera
það ekki. Hálfvelgja á síst af
öllu við þegar á móti blæs því
að hún leiðir til þess að and-
stæðingurinn gengur á lagið.
*
Utreikningar
birtir
Ablaðamannafundi í fyrra-
dag kynnti Steingrímur
Hermannsson, forsætisráð-
herra, útreikninga Þjóðhags-
stofnunar á efnahagsaðgerð-
um ríkisstjórnarinnar. Þar
Kemur fram eins og vitað var,
að eftir vondan viðskilnað
fráfarandi stjórnar voru engir
|kostir góðir. Hvernig sem
dæmið er reiknað hefðu tekjur
manna minnkað. Hitt blasir
þó við öllum sem viðurkenna
vilja staðreyndir, að hefði ekk-
ert verið gert stefndi jafn-
framt í hrun atvinnuveganna
en með ráðstöfunum stjórn-
valda hefur því verið forðað að
sinni að minnsta kosti.
Alþýðusambandið hamast
við að svara yfrirlýsingum
ráðherra og skýra útreikninga
Þjóðhagsstofnunar, er engu
líkara en verkalýðsforingjar
hafi ekki áttað sig á því að
kosningarnar fóru fram 23.
apríl síðastliðinn. Hefði verið
æskilegt að fyrir þær hefðu fé-
lagsmenn verkalýðsfélaganna
átt eins greiðan aðgang að
upplýsingum um herfilega
stöðu efnahagsmála og nú.
Heildardæmið liggur þó
ekki fyrir enn og framsetning
á útreikningum Þjóðhags-
stofnunar er ekki með þeim
hætti að nokkur von sé til þess
að almenningur átti sig á meg-
inatriðum þeirra. Steingrímur
Hermannsson skýrði frá því á
blaðamannafundinum, að nú
væri unnið að nákvæmri út-
tekt á stöðu ríkissjóðs. Því ber
að fagna og niðurstöður út-
tektarinnar þarf að birta
opinberlega eins og upplýs-
ingar um aðra þætti í viðskiln-
aði fyrri stjórnar eftir 5 ára
vinstri verðbólguveislu.
Aðeins tvö blöð
gegn Thatcher
I<ondon, 9. júní. AP.
ÖLL helztu dagblöð Bretlands að
tveimur undanskildum skoruöu á
kjósendur í dag að styðja íhaldsflokk-
inn og endurkjósa Margaret Thatcher
forsætisráðherra.
„Kjósið Möggu og tryggið ykkur
og börnum ykkar betra Bretland,"
sagði metsölublaðið The Sun, sem er
gefið út í fjórum milljónum eintaka.
„Nú er stundin runnin upp. Magga
er TL. okkar maður," sagði The
Daily Express.
„Magga sigurviss, slegizt um ann-
að sætið," segir The Daily Mail.
Daily Telegraph og Daily Star
styðja einnig frú Thatcher. öll þessi
fimm blöð fylgja venjulega íhalds-
flokknum að málum.
The Daily Mirror styður hins veg-
ar Verkamannaflokkinn að venju og
frjálslynda blaðið The Guardian
hvatti lesendur sína til að kjósa
annaðhvort Verkamannaflokkinn
eða bandalag frjálslyndra og sósíal-
demókrata.
The Financial Times, sem hefur
ekki komið út vegna verkfalls prent-
ara, dreifði ritstjórnargrein þeirri
sem blaðið hefði birt ef allt hefði
verið með felldu. Þar er væntanleg-
um yfirburðasigri íhaldsflokksins
fagnað og látin í ljós ánægja með að
bandalagið komi fram í hlutverki
stjórnarandstöðuflokks, sem geti
komið í staðinn fyrir Verkamanna-
flokkinn.
The Times lýsti yfir stuðningi við
frú Thatcher í leiðara í dag og sagði
að hún byði beztu leiðina til að snúa
við hnignunarþróuninni í Bretlandi
frá stríðslokum.
— sagði Margaret Thatcher þegar hún hafði greitt atkvæði
Frá blaðamanni Morgunblaðsins, Magnúsi Sigurðssyni, London, í gær.
„ÚRSLIT þessara kosninga eiga eftir að bergmála langt inn í framtíðina," sagði
frú Margaret Thatcher forsætisráðherra þegar hún og Denis maður hennar
höfðu greitt atkvæði í morgun.
Þau mættu á kjörstað 20 mínút-
um eftir að kosning hófst, kl. 7 í
morgun. Þau greiddu atkvæði í
miðkjördæmi London, þar sem
íhaldsmaðurinn Peter Brooks hefur
verið þingmaður og er nú enn í
kjöri.
Frú Thatcher kvaðst viðurkenna
að hún byði úrslitanna með mikilli
eftirvæntingu. Hún bað stuðnings-
menn fhaldsflokksins að duga sem
bezt í kosningastarfinu, því að þrátt
fyrir hagstæðar kosningaspár gæti
flokkurinn ekki verið öruggur um
sigur.
Mjög gott veður var hér í London
í dag og víðast hvar annars staðar í
Bretlandi. Þannig var hitinn hér í
London 23 stig og léttskýjað. Þetta
góða veður átti sinn þátt í góðri
kjörsókn.
1 miðborg London var annars
fremur fátt sem minnti á kosn-
ingarnar og daglegt líf í milljóna-
borginni virtist tiltölulega ósnortið
af kosningunum.
Skýringin á þessu er sú að mjög
fáir búa í miðhluta London, heldur
úti í úthverfunum og það er þar sem
þeir kjósa. Af þessum sökum hefur
mátt sjá miklu fleiri kosningaspjöld
og önnur merki kosninganna úti í
úthverfunum en í miðborginni.
Kjördæmin í London eru 84 og
úrslit voru mjög óviss fyrirfram í
a.m.k. fjórðungi þeirra.
Spenna í Ulster
Mikil sprenging, sem varð á
Norður-írlandi í dag, varð þó til
þess að varpa skugga á kosninga-
áhugann og þá spennu, sem ein-
kennt hefur kosningabaráttuna,
þrátt fyrir sigurlíkur íhaldsmanna.
í vesturhluta Belfast sprengdu
hryðjuverkamenn tank fullan af
benzíni í loft upp rétt eftir að kjör-
staðir voru opnaðir í morgun. f
þessum borgarhluta búa einkum
kaþólskir menn.
Sem betur fór slasaðist enginn al-
varlega í þessari sprengingu, sem
var svo kröftug að nærliggjandi
bygging stórskemmdist. Mikið,
svart reykský grúfði yfir vestur-
hluta Belfast lengi á eftir.
í þessari viku hafði lögreglan í
Belfast verið vöruð við því að atvik
af þessu tagi gætu átt sér stað í
borginni. Mikil spenna hefur ríkt
þar að undanförnu.
Tuttugu þúsund manna lið átti að
fylgjast með því að kjósendur á
Norður-írlandi gætu farið óhræddir
á kjörstað, en þar var rúm ein millj-
ón manna á kjörskrá.
Sprengingin í dag varð í tæplega
300 metra fjarlægð frá næsta kjör-
stað og talið er víst að hún muni
hræða marga á Norður-írlandi frá
því að fara og kjósa.
Áhrifa kosninganna gætti annars
víða í dag, t.d. í kauphöllinni hér í
London. Þar fóru hlutabréf og verð-
bréf almennt hækkandi er leið á
daginn og var það þakkað sigurlík-
um íhaldsmanna.
Sterlingspundið hækkaði líka
gagnvart Bandaríkjadollar.
Drottningin
situr heima
London, 9. júní. AP.
ELÍSABET drottning og flestir með-
limir brezku konungsfjölskyldunnar
sitja heima á kjördag. En I.inley vísi-
greifi, sonur Margrétar prinsessu,
rauf gamla hefð og neytti kosninga-
réttar síns.
Samkvæmt hefð kjósa drottning-
in og nánustu ættingjar hennar
ekki, þar sem þjóðhöfðinginn er
tákn þjóðarinnar og höfuð ríkis-
stjórnarinnar og hafinn yfir flokka-
drætti. En Linley vísigreifi var ekki
talinn í hópi nánustu skyldmenna
drottningarinnar, að sögn tals-
mannsins.
Hertogar og aðrir fulltrúar í lá-
varðadeildinni hafa ekki kosninga-
rétt og sama gildir um prinsana
Karl, Andrés og Játvarð og Filippus
drottningarmann. En Linley hefur
ekki tekið sæti i lávarðadeildinni.
Lokaspá
London, 9. júní. AP.
BANDALAGI frjálslyndra og jafn-
aðarmanna hafði ekki tekizt að
fara fram úr Verkamannaflokkn-
um samkvæmt síðustu skoðana-
könnun BBC og ITV rétt fyrir lok-
un kjörstaða.
ITV spáði að íhaldsflokkurinn
fengi 383 þingsæti, Verka-
mannaflokkurinn 227, bandalag-
ið 17 og aðrir 23.
Spá BBC var sú að íhaldsmenn
fengju 398 þingsæti, Verka-
mannaflokkurinn 208, bandalag-
ið 21 og aðrir 23.
Margrét Thatcher forsætisráðherra og leiðtogi íhaidsflokksins sést hér bregða á leik með tíu mánaða gamalli dóttur
eins frambjóðanda íhaldsflokksins í suðurhluta Lundúna meðan á kosningafundi stóð fyrr í vikunni.
„Úrslit kosninganna eiga
eftir að hafa mikil áhrif ‘
Lokakannanir spáðu
stórsigri Thatchers
londnn innf AP ^
Loodon, 6. júnf. AP.
íhaldsflokki Margaret Thatcher for-
sætisráðherra var spáð yfirburðasigri
samkvæmt fjórum skoðanakönnunum
á kjördag.
Áð meðaltali var forskot flokks-
ins á Verkamannaflokkinn 20%
samkvæmt þessum skoðanakönnun-
um. Flokknum nægði að fá 200 þing-
sæta meirihluta og samkvæmt því
var talið að flokkurinn ynni mesta
sigur sinn síðan 1935. Ihaldsmenn
höfðu 35 þingsæta meirihluta þegar
þing var rofið 13. maí.
Verkamannaflokkurinn hefur
sagt að ekkert mark sé takandi á
þeim 40 skoðanakönnunum, sem
hafa verið gerðar síðan kosninga-
baráttan hófst.
Flokkurinn bendir á að sam-
kvæmt öllum skoðanakönnunum
nema einum 1970, hafi Verka-
mannaflokknum verið ranglega
spáð sigri. íhaldsmenn sigruðu þá
undir forystu Edward Heath.
Samkvæmt skoðanakönnun
MORI í Daily Express og Daily Star
var því spáð að íhaldsmenn fengju
47%, Verkamannaflokkurinn 26%
og bandalagið 25%.
Samkvæmt skoðanakönnun Gall-
ups í Daily Telegraph fengi íhalds-
flokkurinn 45,5%, Verkamanna-
flokkurinn 26,5%, bandalagið 26%.
Skv. skoðanakönnun Marplan í
The Guardian áttu íhaldsmenn að
fá 46%, Verkamannaflokkurinn
26% og bandalaghið 26%.
Leiðtogar bandalags jafnaðarmanna og frjálslyndra settust á rökstóla á heimili David Steel, leiðtoga frjálslyndra, fyrr
í vikunni og sjást hér nokkrir þeirra, talið frá vinstri: Roy Jenkins, leiðtogi jafnaðarmanna, dr. David Owen, David
Steel, John Pardoe og Shirley Williams.
Leynivopn Thatchers
í kosningabaráttunni
London, 9. júní. AP.
SIGUR Breta í Falklandseyjastríóinu
var „leynivopn" Margaret Thatcher í
kosningabaráttunni í Bretlandi og hún
færði sér það óspart í nyt á lokastigi
baráttunnar þegar Denis Healey,
varaleiðtogi Verkamannafiokksins,
hafði sakað hana um að „hreykja sér
af blóðsúthellingum.“
{haldsflokkurinn var í einhverri
mestu lægð sem hann hefur komizt
í þegar Falklandseyjastríðið hófst,
en síðan hafa vinsældir Járnfrúar-
innar“ aukizt.
í kosningabaráttunni virtust allir
stjórnmálaflokkarnir forðast að
minnast á stríðið og aðalmálin voru
atvinnuleysi, kjarnorkuvarnir og
útgjöld til velferðarmála.
Síðan gerðist það 2. júní að Heal-
ey, sem er harður í horn að taka,
setti fram ásökun sína um blóð-
þorsta járnfrúarinnar. Að vísu dró
hann seinna í land og sagði að hann
hefði ekki átt að tala um „blóðbað"
heldur „átök“, en aðrir stjórnmála-
leiðtogar og blöðin, sem yfirleitt
fylgja íhaldsmönnum að málum,
hneyksluðust óspart á orðum vara-
leiðtogans.
Sjálf sagði frú Thatcher að Heal-
ey hefði farið út fyrir öll mörk al-
menns og pólitísks velsæmis með
orðum sínum.
Bandalag frjálslyndra og sósíal-
demókrata jók eftir þetta fylgi sitt
samkvæmt skoðanakönnunum, þeg-
ar David Owen, varaleiðtogi banda-
lagsins, tók undir hina hörðu gagn-
rýni á Healey. „Að tala um það að
frú Thatcher hreyki sér af blóðsút-
hellingum er að færa stjórnmála-
umræðuna frá göturæsunum inn í
sláturhúsin,“ sagði hann.
Fréttaskýrendur kölluðu ummæli
Healey pólitískt glappaskot og
sögðu að það gæti aðeins orðið vatn
á myllu frú Thatcher að færa Falk-
landseyjastríðið inn í stjórnmála-
baráttuna.
The Times hrósaði íhaldsmönnum
fyrir að reyna ekki að gera sér mat
úr stríðinu í pólitísku skyni og sagði
að stríðið hefði verið heraflanum og
ríkisstjórninni til sóma.
Vinsældir frú Thatcher höfðu
minnkað í 25% áður en stríðið hófst
og enginn annar brezkur leiðtogi
hafði notið eins lítilla vinsælda frá
stríðslokum. Vinsældirnar jukust í
59% eftir stríðið og hafa síðan verið
um 44%.
Veidin í Elliða-
ánum hefst í dag
LAXVEIÐI í Elliðaánum hofst i morgun, en i gær var vitað að nokkrir laxar
væru gengnir í árnar, þó ekki hafi
teljarann í ánum í gær.
I gær sáust laxar í Fossinum og
í Holunni, þannig að allar líkur
benda til að ekki sé lát á laxagöng-
um í ána, en fyrstu laxarnir sáust
í Holunni á sunnudagskvöld.
Einnig má nefna að stórstreymt
verður um helgina og örvast þá
laxagöngur venjulega.
Samkvæmt venju átti borgar-
stjórinn í Reykjavík að renna
fyrstur í árnar í morgun, en ásamt
honum áttu að vera við veiðar
neraa einn fiskur gengið í gegnum
fyrir hádegi í dag þeir Aðalsteinn
Guðjohnsen rafmagnsstjóri og
Jón G. Tómasson borgarritari.
Eftir hádegi áttu síðan að veiða
þeir Þórður Þ. Þorbjarnarson,
borgarverkfræðingur, Ragnar
Júlíusson, formaður Veiði- og
fiskiræktarráðs, Gunnar Eydal,
skrifstofustjóri borgarstjórnar, og
Haukur Pálmason, yfirverkfræð-
ingur Rafmagnsveitu Reykjavík-
ur.
Minningarkapella sr. Jóns Steingrímssonar.
Ljósm. Mbl./Gudjón.
200 ára af-
mælis Skaft-
árelda minnst
Á MIÐVIKUDAGINN 8. júní voru nákvæmlega 200 ár liðin frá því að
Skaftáreldar hófust, og safnaðist fólk saman á Klaustri til að minnast þess.
Dagskráin hófst í Minningarkapellu sr. Jóns Steingrímssonar, en hann er sá
maður sem tengdari er þessum atburðum en nokkur annar.
Sr. Sigurjón Einarsson stað-
arprestur hóf samkomuna á
ávarpi þar sem þessa merka
manns var minnst, en að því loknu
opnaði forseti íslands, Vigdís
Finnbogadóttir, sýningu þá sem
standa mun í kapellunni í sumar
og lýsir þróun og sögu gossins. Rut
Ingólfsdóttir og Hörður Áskelsson
léku á fiðlu og orgel. Þvínæst voru
flutt ávörp.
Dr. Þorleifur Einarsson jarð-
fræðingur rakti sögu eldgossins,
sem er mesta hraungos sem menn
hafa orðið sjónarvottar að og
mesta hraun sem runnið hefur frá
því sögur hófust. Dr. Sveinbjörn
Rafnsson sagnfræðingur rakti
sögu fólksins sem ógnirnar lifði en
á því dundu ólýsanlegar hörmung-
ar.
Sálmur Hallgríms Péturssonar
„Son Guðs ertu með sanni“ var
sunginn í lokin. Mikíll hátíðleiki
ríkti í kapellunni þetta síðdegi.
Þarna var samankomið margt
manna á öllum aldri, bæði úr
Eldplássinu eins og V-Skafta-
fellssýsla hefur verið nefnd og víð-
ar að. Meðal gesta voru biskupar
íslands, Pétur Sigurgeirsson og
Sigurbjörn Einarsson, ásamt kon-
um sínum.
Ferðaskrifstofa ríkisins bauð
síðan fólki til kaffidrykkju að
Kirkjubæjarskóla á Síðu. Undir
borðum töluðu þeir Jón Helgason
ráðherra og Þórður Tómasson
safnvörður í Skógum. Eftir að
veitingum höfðu verið gerð skil,
var gestum að lokum boðið að
skoða sýningu þá um Skaftárelda
og afleiðingar þeirra sem nemend-
ur skólans hafa unnið í samein-
ingu í vetur.
Margt var um manninn í kapellunni og hófst dagskráin á að sr. Sigurjón
Einarsson staðarprestur flutti ávarp.