Morgunblaðið - 10.06.1983, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. JÚNÍ 1983
STÁLFÉLAGIÐ hefur látið gera
endanlega áætlun um stáliðjuvcr til
nýtingar á innlendu brotajárni. IJnd-
anfarna 12 mánuði hefur verið unnið
að gerð þessarar áætlunar í sam-
vinnu við tvö bresk fyrirtæki.
Tæknilýsing verksmiðjunnar liggur
nú fyrir í öllum smáatriðum og er
hún miðuð við æskilegt framleiðsl-
umagn 15—20.000 tonn á ári.
Stofnkostnaöur er talinn nema 22
milljónum bandaríkjadala, eða um
það bil 600 milljónum íslenskra
króna. Framkvæmdir verða fjár-
magnaðar með lánum (70%) og
hlutafé (30%). Hönnunar- og
byggingatími er áætlaður 18 mánuð-
ir.
Þessar upplýsingar komu fram
m.a. á fundi sem forsvarsmenn
Stálfélagsins efndu til með frétta-
mönnum í gær. Á fundinum voru
einnig fulltrúar þriggja erlendra
fyrirtækja sem unnið hafa að at-
hugunum og undirbúningi í sam-
vinnu við Stálfélagið. Þegar að
loknum stofnfundi 25. apríl í fyrra
var hafist handa við gerð loka-
áætlunar fyrir íslenskt stálver. í
desember skipaði stjórn Stálfé-
lagsins þriggja manna verkefna-
nefnd til að hafa yfirumsjón er-
lendra og innlendra aðila er unnið
hafa að gerð hinnar endanlegu
áætlunar. Formaður hennar var
Jón Magnússon, en aðrir í nefnd-
inni voru þeir Markús Sveinsson
og Leifur Hannesson. Tæknilegur
ráðgjafi nefndarinnar var Friðrik
Daníelsson, verkfræðingur.
Jón Magnússon sagði á fundin-
um að í framtíðinni yrðu stálver
sniðin eftir ákveðnum staðbundn-
Teikning af fyrirhugaðri stálverksmiðju. Framleiðslan verður með nýtísku tækjum. Vinnslurásin hefst með því aö brotajárn, niðurskorið og flokkað í tilteknar
stærðir, er þurrkað og síðan brætt í rafbræðsluofni. Bráðinn málmurinn er síðan hreinsaður með íblöndun ýmissa efna svo sem kalks og súrefnis. Þá er stálið
steypt í stangir, um 10 cm í þvermál, í strengjasteypuvél og stangirnar síðan færðar inn í valsverkið með sem minnstu varmatapi. í valsverkinu eru pör af
rafdrifnum rúllum, sem minnka þvermál staiiganna stig af stigi um leið og þær fara milli rúllanna. Vinnslurás þessi er tölvustýrð. Stálstangirnar eru loks
kældar og klipptar niður í réttar stærðir.
Tæknilýsing stáliðjuvers liggur nú fyrir:
Starfræksla gæti hafist 1985
um markaði er nýtti brotajárn af
sama svæði til framleiðslunnar.
Ný tækni gerði lítil stálver mögu-
leg með sömu eða meiri hag-
kvæmni en risastálverin. tsienska
stálverið yrði miðað við fram-
leiðslu á stálvörum úr innlendu
brotajárni. Útflutningur væri ekki
talinn arðbær. Verksmiðjan yrði
því smá í samanburði við flestar
erlendar verksmiðjur. Jón sagði að
með því að nota nútímatækni við
stálbræðslu og völsun lækkaði
rekstrarkostnaður þannig að verk-
smiðjan yrði samkeppnishæf við
stærri erlendar verksmiðjur, þó
svo framleiðslan næmi aðeins
15—20.000 tonnum á ári. Verk-
smiðjan mun mæta þörfum inn-
lends markaðar fyrir steypu-
styrktarstál og grannt smíðajárn,
sem hefur verið á milli 10.300 og
15.200 tonn á ári síðasta áratug.
Verksmiðjan verður hönnuð fyrir
framleiðslu á 20.000 tonnum á ári
miðað við 5 daga vinnuviku og
möguleikar verða til frekari
stækkunar.
Jón Magnússon sagði að stofn-
kostnaður væri áætlaður 22 millj-
ónir Bandaríkjadala á núvirði að
meðtöldum vöxtum á bygginga-
tímanum. Hann sagði að frávik
frá þessum áætlaða stofnkostnaði
ætti ekki að vera meira en 5% til
eða frá. Hönnunar- og bygginga-
tími er áætlaður 18 mánuðir og ef
ákvörðun um að hefja fram-
kvæmdir yrði tekin fyrir 1. júlí
1983 gæti starfræksla verksmiðj-
unnar hafist um áramótin
1984/1985.
Áætlaðir afkastavextir af fjár-
festingunni (eftir skatta) eru 15%
miðað við meðalverð á innfluttu
stáli nokkur undanfarin ár. Jón
Magnússon sagði að ef heims-
markaðsverð á stáli félli og yrði út
öldina það lægsta sem orðið hefur
á síðasta áratug, yrðu raunvextir
af fjárfestingunni 1—2%. Hann
sagði verð á stáli hafa verið lágt
undanfarin ár vegna samkeppni
verksmiðja sem nytu ríkisstyrkja.
Áætlunin sem kynnt var á fundin-
um í gær gerði þó ráð fyrir að
verksmiðjan yrði rekstrarhæf þótt
sú yrði raunin áfram.
Þá kom það fram í máli Jóns
Magnússonar að framkvæmdir
verða fjármagnaðar með lánum
(70%) og hlutafé (30%). Allur
kostnaður vegna tækjakaupa er-
lendis og verkfræðiþjónustu yrði
fjármagnaður með láni, sem
endurgreiðist á 7 árum eftir
gangsetningu verksmiðjunnar.
Ríkissjóður mun eiga 40% hluta-
Ljósm. Kristján Einarsson.
Frá blaðamannafundi Stálfélagsins. Á myndinni eru I.aurent Palmer (við borðsendann til vinstri) frá Ferrco
Engineering, Dr. Peter Finlayson frá Babcock Contractor Ltd., Jón Magnússon, Jóhann Jakobsson, formaður
Stálfélagsins, Friðrik Daníelsson og Ted Maclntyre frá Co-Steel í Kanada.
Úr byggingavörudeild Kaupfélags Borgfirðinga í Borgarnesi.
Borgarnes:
Kaupfélagið opnar nýja
byggingavörudeild
Borgarnesi, 6. júní.
FYRIR nokkru opnaði Kaupfélag
Borgfirðinga nýja byggingavöru-
deild í gamla mjólkursamlags-
húsinu í Borgarnesi. Bygginga-
vörudeildin er þar í 700 fermetra
verslunarrými, auk þess sem
ágætt útisvæði er við verslunina
fyrir timbursölu og aðra útivöru-
sölu.
í fréttatilkynningu frá Kaup-
félaginu segir að með tilkomu
nýju byggingavörudeildarinnar
hafi skapast grundvöllur fyrir
mun víðtækari þjónustu, en
verslunin sé sú eina sinnar teg-
undar á stóru svæði og hún
þjóni íbúum Borgarfjarðarhér-
aðs og Snæfellsness. Deildar-
stjóri byggingavörudeildar hef-
ur verið ráðinn Sigurður Ei-
ríksson en starfsmenn eru alls
11.
HBj.