Morgunblaðið - 29.06.1983, Síða 20

Morgunblaðið - 29.06.1983, Síða 20
68 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 1983 Misnotkun áfeng- is og þjóðarátaks — eftir dr. Gunnlaug Þórðarson hrl. Það er óumdeilt, að vín og vín- yrkja eru aflvakar menningar og lista vestrænna þjóða. Áfengi er líka eitt besta meðal til þess að róa menn og vart getur betra svefnlausu fólki en áfengur bjór. Fátt er betra en áfengi til sátta manna á milli. Hitt er og víst, að sá, sem hefur Bakkus í þjónustu sinni, getur opnað flestar dyr. Margir hafa reynt mismun á því að borga mönnum greiða með þeirri fjárhæð, sem er jafnvirði einnar flösku af áfengi — og svo hins vegar að gefa flöskuna sjálfa. í fyrra tilvikinu þykir mörgum lítt til koma, en í hinu síðara faðma menn gefandann að sér, líkt og hann hafi með gjöf sinni á veigun- um gefið hlutdeild í himnariki. En þá er hins að gæta, að þeim, sem ganga Bakkusi algjörlega á hönd, verður fyrr eða síðar alls staðar úthýst. Hvergi minni áfengis- neysia og áfengissýking Hitt er og staðreynd, að sem betur fer er áfengisneysla íslend- inga minni en með öðrum vest- rænum þjóðum og áfengisvanda- málið ekki nærri eins alvarlegt og gerist annars staðar. Um þetta talar sínu máli' blað úr skýrslu landlæknisembættisins um áfeng- ismál frá 1982 og sýnir dauðsföil á hverja 100.000 íbúa af völdum skorpulifrar, sem er helsta við- miðunin (algengust dánarorsök drykkjusjúkra) og er hlutur okkar hverfandi í samanburði við flestar aðrar þjóðir. Þá er á sömu mynd sýnd áfengisneysla þessara þjóða á hverja 100.000 íbúa. Hlutur ís- lendinga er þar miklu minni en allra annarra menningarþjóða og er það lofsvert. Því hefur verið haldið fram, að um tíundi hver maður kunni ekki að umgangast vín á þann hátt, sem sæmir í menningarþjóðfélagi. Hjá okkur er jafnvel meira aðhald í þessu efni vegna þess hve kunn- ingsskaparböndin eru náin — þar sem allir næstum þekkja alla og á það sinn þátt í að við styrkjum hvert annað í réttri meðferð áfengis og að halda mönnum beint á réttri braut og er það viss kostur fámennisins. Á sama hátt er talið, að 10% af þjóðinni eigi á hættu að verða geðsjúkir ofdrykkjumenn, enda er langvarandi ofdrykkja áfengis af mörgum læknum talin geðveiki. Hitt er hugsanlegt, að í þessum hluta þjóðarinnar séu einhverjir þeir erfðagallar, eða hvað skal kalla það, sem leitt gætu til þess, að það fólk brygðist samfélaginu á sinhvern annan hátt, þótt það yrði ekki ofdrykkjusjúklingar. Þannig að rúm 10% af fólki meðal Norð- urlandaþjóða muni lenda í ein- hverjum félagslegum vandræðum hvort sem er. Drykkjusiðir okkar eru líka all- ólíkir því sem gerist með flestum oðrum þjóðum. íslendingar drekka /firleitt sjaldnar, en þegar þeir neyta áfengis, er það oft gert all- hömlulaust, birgðir helst klárað- ar, áður en hætt er. Ýmsir virðast drekka til þess að öðlast einhvers konar algleymi. Þá höldum við ukkur fremur að brenndum irykkjum en léttum vínum, sem er niklu óæskilegri áfengisneysla. Útlendingum þykir það sæta 'urðu næst, að vínkjallarar slíkir ;em gerast með öðrum þjóðum jekkjast varla hjá okkur. Nú er aðferðin helst sú að dekra /ið sjúklinga þessa líkt og þeir /æru kornabörn, enda er það skoð- an meðal geðlækna, að ein orsök irykkjusýki sé þörf hinna sjúku til þess að fá einhverja sérstaka aðhlynningu. Árum saman hafa góðtemplarar barist gegn áfengisneyslu en án árangurs, enda finnst mér oft gæta hysteriu í þessu efni hjá okkur, einkum í seinni tíð. Hins vegar hefur það verið heilbrigt al- menningsálit, sem átt hefur sinn þátt í því að halda áfengisvandan- um í skefjum hjá okkur, því það hefur löngum þótt til vansa að vera áfengissjúkur. Merkilegt starf AA-samtakanna Samhjálp AA-samtakanna hef- ur reynst gagnleg til innbyrðis stuðnings áfengisgeðsjúkra og hefur án efa hjálpað mörgum, einkum vegna þess, að á þann hátt hefur fólk, sem haldið er þessum sjúkdómi, getað fengið stuðning af þeim, sem sigrast hafa á vandan- um oft af eigin rammleik og með stuðningi annarra. Svo sem kunn- ugt er, hafa læknar í þessu þjóðfé- lagi hraðans nú, að því er virðist, síður tíma til þess að hlusta á vandræði fólks, en einmitt fólk, sem þjáist af áfengisgeðsýki, þarf öðrum fremur slíka aðhlynningu. í seinni tíð hefur orðið nokkur breyting á meðferð drykkjusjúkra og eiga AA sinn beina og óbeina þátt í því. Heilbrigðisstjórnin hef- ur einnig látið þennan geðsjúkdóm æ meir til sín taka og er það vel. AA-samtökin hafa rekið hér lækningastöð og unnið merkilegt verk, þannig að vera má, að það hafi dregið úr álagi því, sem hvílir á heilbrigðisstjórninni. Sennilega er það og skýring á því, að ekki hefur verð tekin í notkun 20 rúma sjúkradeild fyrir norðan, en fjár- skorti er borið við. Forustumenn AA-samtakanna hafa fundið þann velvilja, sem samtökin njóta hér á landi og hef- ur það eflt þá til frekari aðgerða. Þá hefur þeim og orðið ljóst, að hér er um talsverða fjármuni að ræða, sem eru daggjöld til stofn- ana þeirra fyrir hvert sjúkrarúm. Það er með öllu óskiljanlegt, hvers vegna þess konar „sjúkra- stöðvar", þar sem sjúklingarnir, eða öllu fremur mætti kalla þá vistmenn, eru yfirleitt hraustari en allt annað sjúkt fólk (auk þess með sjúkdóm, þar sem orsökin er ánægjulegri en afleiðingin, eins og einn slíkra orðaði það við mig), fá hærri daggjöld en t.d. elliheimili. Daggjöld vegna áfengisgeðsjúkra á Silungapolli eru kr. 906.00 á sjúkrarúm, eða t.d. nærri helm- ingi hærri en daggjöld vistmanna á Elliheimilinu Grund (á hjúkrun- ardeild), þar sem obbinn af heim- ilisfólkinu er meira og minna rúmfastur, en eru kr. 539.00 pr. sjúkrarúm á dag. Einkarekstur á ríkisframfæri Auðvitað er jafnan hætt við því, að þar sem um mikla fjármuni getur verið að ræða, að það rugli dómgreind manna. Því fór svo, að í AA-samtökunum gengu þeir menn fram fyrir skjöldu, er eink- um höfðu einhverja fésýslu með höndum og hugðust með því að koma upp lækningastöð, ná enn meira fé úr ríkissjóði með auknum daggjöldum fyrir hvert nýtt sjúkrarúm á vegum þeirra og skorin var upp herör. Aðferðin var einföld, komið skyldi upp lækn- ingastöð, en rekstur hennar kost- aður af almannafé. Það er allt gott um það að segja, ef ekki átti að leita eftir fé úr ríkissjóði í mjög vaxandi mæli með daggjöldum fyrir hvert sjúkrarúm, þar sem sjúklingarnir eru sjaldnast rúm- fastir. Það er nefnilega hégómi kostn- aðurinn við að koma slikri stoínun á fót miðað við að reka hana. Þá fyrst er vandi á höndum og þá þyrfti e.t.v. öðru fremur fórnfúst starf, sem væri til fyrirmyndar, en ekki öðruvísi. Einkaframtakið er oft miklu heilladrýgra en ríkis- rekstur. Það undarlega við þessa miklu fjáröflunarherferð var að þar voru formælendur einkafram- taksins fyrst og fremst að verki, en tilgangurinn var að ná auknu fé úr ríkissjóði. Miðað við verðlag í maí fyrir gjaldeyrisbreytinguna munu dag- gjöld úr ríkissjóði vegna hinnar nýju sjúkrastöðvar vera um 2,7 milljónir á mánuði eða um 35 milljónir á ári. Það er mikið fé og meiri þörf fyrir það til annarra og betri verka. Til þess að koma málum af stað söfnuðu þessir fjáraflamenn síðan undirskriftum nokkurra þeirra helstu manna, sem stjórna fjár- málum þjóðarinnar, ráðherra, þingmanna og bankamanna, auk þess ýmissa annarra til að punta upp á listann, forystumanna sveit- arstjórna, formanna stéttarfélaga og á sviði lista. Alls munu um 150 menn hafa skrifað undir áskorun- ina. Auðvitað treysti enginn sér til þess að neita að skrifa undir slíka áskorun. Menn eru umkringdir á sinn hátt og enda þótt þeir vafa- laust gerðu sér grein fyrir, að „þjóðarátak" þyrfti til að leysa mörg önnur og brýnni vandamál þjóðarinnar, einkum á öðrum svið- um heilbrigðismála, hafa þeir vafalaust ekki talið sig geta kom- ist hjá því að skrifa undir áskor- unina. Hér var því um eins konar nauðungaraðferð að ræða. Einkafyrirtæki makar krókinn Nú mátti ætla, að þessir hug- sjónamenn myndu sjálfir fórna sér á einhvern hátt fyrir málstað- inn og leggja fram ómælda sjálf- boðavinnu. Nei, hugsjónamennirnir í SÁÁ nenntu ekki að standa í neinu fórnfúsi starfi sjálfir, heldur réðu þeir í þjónustu málsins einkafyr- irtæki til þess að hafa fjársöfnun- ina með höndum og mun það fá 8.000.000 af söfnuninni, ef ekki meira. Átta milljónir eða meira af söfnunarfé almennings til einka- fyrirtækis — það er furðuleg stað- reynd. Nauðungaraðferðinni var haldið áfram, þjóðinni var því næst stillt upp við vegg og mönnum gert að skuldbinda sig til þess að borga kr. 1.800 á tilteknum tíma. Flestum fjölskyldueiningum í landinu var skrifað eða 55.000 manns beðin um að leggja fram fé. Dæmið var klókindalega reiknað út, það þurfti ekki nema að einn þriðji þeirra, sem til var leitað, tæki á sig okið til þess að safnast myndu 35.000.000,-, en stefnt var að því að fá 25.000.000,- og þá myndi einka- fyrirtækið, sem tók að sér verkið, sem fyrr segir, fá a.m.k. 8.000.000.- í sinn hlut, en því meira sem meira safnaðist. — Þetta var ofur einfalt dæmi og úthugsuð spekúl- ation, þar sem litlu máli skipti, hvort almenningi í landinu væri sýndur yfirgangur eða tillitsleysi. f því sambandi kæmi ekki að sök, þótt einhverjum ofbyði, nógu margir myndu láta blekkjast. Hinir, sem ekki vildu leggja fram fé til einhvers einkafyrirtækis, voru líka á skrá. Slík aðferð er brot á friðhelgi einkalífs manna. Auk fjársöfnunarinnar innan- lands, ku vera öflug fjárplógsher- ferð í Bandaríkjunum — en hvort nokkuð fréttist, hve mikið safnast þar eða hvernig því fé verði ráð- stafað, er ekki vitað. Ætla mátti, að hinir sjálfsvor- kunnarfullu alkóhólistar, sem ganga um og berja sér á brjóst segjandi: „ég er alkólisti" hefðu án sérstakrar þóknunar gengið í hús til þess að safna skuldabréfum, en þeir nenntu ekki að rukka sjálfir, heldur voru vildarvinir og vanda- menn einkafyrirtækisins ráðnir upp á hátt kaup til að hringja um helgar í væntanlega skuldara og höfðu sumir tugi þúsunda upp úr slíkum símahringingum á einni helgi. Forkastanleg aðferð Aðferðin við að stilla fólki á þennan hátt upp við vegg var nán- ast fjárkúgun og því að sama skapi löglaus. Hver kærir sig um að styðja mannúðarverk á þennan hátt! Þá hitt, að láti menn ekki fé af hendi rakna, sést það um ókomna tima, að svo hafi verið. Þetta er innrás í einkalíf manna og þeim mun ámælisverðara, þar sem þingmenn og ráðherrar eru óbeinlínis að verki. Því miður hafa önnur góðgerð- arfélög misnotað aðstöðu sína á allsvipaðan hátt til óbeinnar fjár- kúgunar. Það er með því að gefa út happdrættismiða með bílnúmer- um eða símanúmerum. Þannig að eigendum þessara númera er nán- ast gert að kaupa þess háttar happdrættismiða, því fæstir vilja vera berir að þvi að hafa ekki vilj- að styðja einhverja góðgerðar- starfsemi, sem gæti og orðið fyrir mistök. Slíkt nálgast fjárkúgun, enda þótt tilgangurinn sé góður hafa menn tæpast frjálst val. Þetta er og brot gegn friðarhelgi einkalífs manna og er undarlegt, hve þetta hefur lengi verið látið óátalið. Alþingismenn og ráð- herrar bregðast Mér finnst það ábyrgðarhluti hjá ráðamönnum þjóðarinnar, eins og alþingismönnum og ráð- herrum, að skrifa undir áskorun um „þjóðarátak" til stofnunar hælis, sem engin heimild er fyrir á fjárlögum. Það verður að teljast andstætt inntaki lýðræðis að skuldbinda sig á einhvern hátt fyrirfram að órannsökuðu máli. Það er og umhugsunarefni, þeg- ar svona heilagar kýr, eins og SÁÁ-samtökin eru í þjóðfélaginu, umkringja einn á fætur öðrum, þingmenn sem aðra, til þess að fá þá til að ljá málefni lið, sem fáir treystist til að neita af ótta við að vera stimplaðir mannúðarlausir menn eða af hræðslu við tilekinn hóp kjósenda. Því miður er það svo, að í þessu máli, sem flestu öðru, er snertir áfengissjúka, er yfirborðsmennsk- an ráðandi. Vitað er, að ríkið hef- ur ekki treyst sér til að reka hæli fyrir áfengissjúka með 20 sjúkra- rúmum á Norðurlandi vegna fjár- skorts, rúm munu vera laus á Víf- ilsstöðum. Þetta vita ráðamenn okkar á Alþingi og í bönkum, samt leggja þeir nafn sitt við, vitandi að vandinn er alls ekki sá, sem sagt er. Það er t.d. einfalt mál fyrir SÁÁ að reka svona lækningastöð, þegar ríkið borgar brúsann. Því trúa fáir, að SÁÁ hafi tekist að lækna 6.600 áfengissjúklinga og 2.000 hafi læknast fyrir milli- göngu þeirra í Freeport eða ann- ars staðar í Ameríku eins og gefið hefur verið í skyn. Svo undarlega vill til, að SÁÁ-samtökin hafa ekki viljað gefa upp til landlækn- isembættisins nöfn þeirra manna, sem læknast hafa, undir yfirskini trúnaðar, samt eru þessir menn alltaf að berja sér á brjóst og segja, að þeir séu alkóhólistar. Vafalaust er leyndin yfir þessu vegna þess, að meginhluti þessara manna hefur margsinnis fengið „klössin" eða endurhæfingu til þess að geta dottið í það aftur og farið í þau miklu náttfatapartý, sem ku vera aðal þessara lækn- inga. Heilbrigðisstjórninni hafa engar upplýsingar borist um raunverulegan árangur þessarar starfsemi SÁÁ. Það er ekki rétt að gera eitthvert vandamál enn al- varlegra en það er í augum al- mennings og að reyna að láta það fá forgang með þjóðinni, þegar önnur miklu alvarlegri vandamál eru óleyst. Margir hinna raunverulegu áfengisgeðsjúku eru menn, sem ekki nenna að vinna eða eiga í geð- rænum erfiðleikum, en þeir eru sem betur fer fáir og eru tölur um þetta án efa mjög ýktar. Áfengisgeðsjúkir ætlast greini- lega til forréttinda og hafa þegar fengið ýmiss konar forréttindi, t.d. með skattaívilnunum, hærri dag- gjöldum. Auðvitað er sjálfsagt að hjálpa, þegar nauðsyn krefur, en þá eiga alvarlega sjúkir að ganga fyrir. Misrétti varðandi stuðning við fólk til þess að komast undir læknishendur erlendis og forgang áfengisgeðsjúkra i því éfni, er atriði, sem þyrfti að rannsaka og upplýsa almenning um. Tilefni þessara skrifa er það, að undirrituðum þykir of mikill fjár- plógsblær á aðferðum SÁÁ og treystir ekki þeim samtökum að sama skapi, sem unnt væri að gera betur grein fyrir, ef tilefni verður til. Spurning er, hvort unnt sé fyrir hið opinbera að fylgjast með því, að það séu raunverulegir áfengis- geðsjúkir, sem fái meðferð og daggjöld séu greidd með, og þá ætti heilbrigðisstjórnin einnig að hafa hönd í bagga með læknisað- gerðum. En sem fyrr segir vill svo ótrúlega til °ð ueilbrigðisstjórnin Svo sem kunnugt mun vera hafði SÁÁ opið hús í tilefni af sjónvarpsdagskrá, sem gerð var í tilefni „átaksins gegn áfengisböli" og þótti greinarhöfundi rétt að fara þangað til þess að láta vita, að til stæði að skrifa grein til að mótmæla þeirri aðferð, sem hér hefur verið gagnrýnd. í þessu kaffiboði var kvikmyndaleikarinn Ken Kercival, sem er óvirkur alkóhólisti, eins og hann kynnti sig, og var fenginn til þess að koma fram í sjónvarpsþættinum. Áttum við spjall saman og viðurkenndi hann, að það væri ekki rétt, að í slíkri söfnun hefði sá aðili, sem leitaði eftir fjárframlögum, skrá yfir þá, sem ekki hefðu sinnt beiðninni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.