Morgunblaðið - 22.07.1983, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JÚLl 1983
3
MorKunblaöið/ól.K.M.
Beinustu leið frá Bretagne
Frönsk skonnorta kom í gær til Reykjavík-
ur eftir 12 daga siglingu beint frá Bretagne
í Frakklandi. Það þykja kannski ekki mikil
tíðindi þó hingað komi erlend seglskip, en
hitt þykir kannski forvitnilegar að skip-
stjórinn er kona. Áhöfnin er 6 manns og
þegar haldið verður héðan verður komið
við í Færeyjum, Shetlandseyjum og Noregi
og verður skipt um áhöfn á leiðinni. A
myndinni má sjá skonnortuna sigla inn í
Reykjavíkurhöfn og á hinni myndinni er
áhöfnin, skipstjórinn 1 miðjunni.
Friðrik Ólafsson um staðarval
Campomanes fyrir áskorendaeinvígi:
Ákvörðunin ekki
í samræmi við
reglur FIDE
„EINS og málið kemur fyrir í blöðum virðist augljóst að Campomanes er að
taka ákvarðanir sem ekki eru í samrsmi við óskir keppenda, en reglur FIDE
segja að taka eigi tillit til óska keppenda um loftslag og aðstæður, þannig að
keppnisskilyrði séu sem best,“ sagði Friðrik Ólafsson, fyrrvcrandi forseti
Alþjóða skáksambandsins, FIDE, í samtali við Morgunblaðið.
Friðrik var spurður álits á
þeirri ákvörðun núverandi forseta
FIDE að taka ekki tillit til óska
þeirra Kortsnojs og Kasparovs um
staðsetningu áskorendaeinvígis
þeirra í skák, en Campomanes
ákvað að einvígið skyldi haldið í
Pasadena í Kaliforníu í Banda-
ríkjunum, en báðir keppendur
höfðu óskað eftir því að Holland
yrði fyrir valinu, en að því frá-
gengnu Spánn.
Eins og fram kom í blaðinu í
gær sendi Gunnar Gunnarsson,
forseti Skáksambands Islands,
skeyti til FIDE, þar sem mælst
var til þess að FIDE færi að regl-
um um val á keppnisstöðum fyrir
áskorendaeinvígin í skák.
Friðrik sagði ennfremur að í
svona málum yrði að taka til
greina hagsmuni keppenda, að
þeir væru ekki fyrir borð bornir og
keppendur væru ánægðir og yndu
vel aðstæðum. Staðarval Camp-
omanesar væri andstætt reglum
FIDE að því leyti að Kalifornía
var síðasti staðurinn á óskalista
beggja keppenda. Friðrik kvaðst
hafa heyrt að Kortsnoj hefði tekið
undir gagnrýni Rússa á val
Campomanes, en það væri óvenju-
legt að hann tæki undir gagnrýni
með Rússum.
Fólksfækkun í Austur-Barðastrandarsýslu:
Alvarleg áminning
til þingmanna
Mióhúsum, 21. júlí.
í NÝÚTKOMNUM Hagtíðind-
um stendur að íbúar Austur-
Barðastrandarsýslu hafi verið
árið 1930 922 talsins en 1980
voru íbúar aðeins 416 og 1982
voru þeir 406 talsins. Sam-
kvæmt þessum tölum er um það
mikla byggðaröskun að ræða að
með sama áframhaldi verður
hrun hér. Þrátt fyrir að á síðasta
áratug hafi íbúum á Reykhólum
fjölgað um 80 manns vegur sú
fjölgun ekki upp á móti fólks-
flóttanum úr sýslunni.
Ef sýslan á að vera í byggð
verður að taka hér fastar á
málum og fyrst og fremst að
auka aðstreymi fólks til
Reykhóla. Þar er nægjanlegt
heitt vatn og allgóð höfn.
Þessar tölur eru alvarleg
áminning til þingmanna Vest-
fjarðakjördæmis og reyndar
til allra þeirra sem vilja halda
landinu í byggð að taka nú
þegar raunhæft á málum.
— Sveinn
Tr\T%lf Íá3g!!ln ***
I V^tClmog luskumar
PQLFP-TOPK—.. =
Polér-Tork er mjúkur og sterkur klútur,
sem svo sannarlega hefur slegið í gegn hjá bílaeigendum.
Þú losnar við tvistinn, tuskurnar, ló og trefjar - og bónar bílinn
þinn á hreinlegan og snyrtilegan hátt.
Með Polér-Tork bónarðu bílinn, strýkur óhreinindi
af skónum, fægir silfrið og snýtir þér. Polér-Tork færðu
í handhægri, 32 metra rúllu, sem samsvara u.þ.b.
því magni af tvisti, sem sést á myndinni
Polér-Tork fæst í öllum betri verslunum og á bensínstöðvum.
Vesturgdtu 2. Slmi 26733. P 0 Box 826.101 Reykjavik