Morgunblaðið - 22.07.1983, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 22.07.1983, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 1983 5 Ljósmyndari Mbl., RAX, tók þessa mynd af hinum fóngulega hópi flugfreyja Arnarflugs, ásamt leiðbeinanda þeirra, Stefáni Halldórssyni. Flugfreyjur Arnar- flugs á námskeiði „FLUGFREYJUR félagsins höfðu óskað eftir því að fá frekari fræðslu um ýmsa þætti, er varða áætlunar- flugið, en flestar hafa þær mikla reynzlu í flutningi á leiguflugsfar- þegum og því var þetta námskeið sett á laggirnar, þegar Boeing 737 þota félagsins fór í skoðun í vik- unni,“ sagði Stefán Halldórsson hjá Arnarflugi, er hann var inntur eftir námskeiði er haldið var í vikunni fyrir flugfreyjur félagsins. „Flugfreyjurnar voru sérstak- lega fræddar um farseðlaútgáfu og ýmsa þætti er lúta að áætlun- arflugi, en eins og kunnugt er hóf félagið áætlunarflug á síðasta sumri. Flugfreyjurnar höfðu lýst áhuga sínum á því, að geta veitt viðskiptavinum félagsins betri upplýsingar og þjónustu varðandi ýmsa þætti ferða þeirra áfram, er ferðinni með félaginu lýkur," sagði Stefán ennfremur. Stefán Halldórsson sagði enn- fremur aðspurður, að haldið yrði áfram á þessari braut og haldin frekari námskeið og fræðsla fyrir flugfreyjur og reyndar einnig fyrir aðra starfsmenn félagsins. Hinn nýi bfll lögreglunnar á Hvolsvelli við merki á leiðinni upp í Þórsmörk, þar sem varað er við Krossá á íslensku og ensku. Lögreglan á Hvolsvelli: Leitar ölvaðra öku- manna á hálendinu „VIÐ ætlum að skera upp herör gegn því að menn aki undir áhrifum áfengis inn á hálendinu, en um það hefur okkur borist talsvert af kvört- unum að undanfórnu," sagði Valgeir Guðmundsson, lögreglumaður á Hvolsvelli, í samtali við Morgun- blaðið. Kaupmannahöfn; íslending- urinn á batavegi íslendingurinn sem varð fyrir árás i Kaupmannahöfn um miðja síðustu viku, og var sleginn illa í höfuðið, er nú á góðum batavegi, að sögn séra Ágústs Sigurðssonar, prests fslendinga í Kaupmanna- höfn, en ennþá hefur samt ekki verið hægt að yfirheyra hann vegna heilsu hans. Séra Ágúst sagði að árásarmennirnir myndu ekki hafa haft mikið upp úr krafs- inu, því að flest verðmæti manns- ins myndu hafa verið geymd í ör- yggishólfi í hótelinu. Árásar- mennirnir hafa ennþá ekki náðst. „Við erum að taka í notkun nýj- an lögreglubíl af Chevrolet-gerð nú í vikunni og munum fara á honum inn á hálendið nú um helg- ina og stöðva bíla og athuga ástand ökumanna. Læknir frá heilsugæslustöðinni á Hellu verð- ur með í förinni og getur tekið blóðprufur af ökumönnum. Við viljum segja frá þessu áður en við framkvæmum þetta, svo að þeir sem vilja geti varað sig á okkur og látið áfengi eiga sig, ef þeir ætla að aka bíl. Þeir vita þá að hverju þeir ganga, ef þeir gera það,“ sagði Valgeir. Valgeir sagði að lögreglan vildi einnig nota þetta tækifæri til þess að vara fólk við þeim hættum sem fyndust í óbyggðum, eins og t.a.m. Krossá, en á svæði lögreglunnar á Hvolsvelli er m.a. Þórsmörk, Landmannalaugar, virkjana- svæðin í Þjórsá og Veiðivötn. „í bílnum er einnig fullkomið radarmælingatæki sem við mun- um nota á ferðum okkar um sýsl- una. Við fórum síðast svona upp á hálendið 1976 og þá voru fjöl- margir teknir. Eftir það sló veru- lega á þennan þátt afbrota, en okkur grunar eftir kvörtunum að dæma að ástandið hafi aftur versnað í þessum efnum," sagði Valgeir að lokum. Umferðin í júnímánuði: Færri hafa slasast nú en í fyrra SLYS í júnímánuði urðu alls 49 og er það fækkun frá júnímánuði 1982, en Þ* urðu slys alls 67. Tvö dauðaslys urðu í umferðinni í júnímánuði í ár og er það sama tala og í fyrra. Slys þar sem eignatjón varð ein- ungis voru 488 en 487 í fyrra. Flestir af þeim sem slösuðust voru farþegar í ökutækjum eða 18 alls og þar af voru flestir (6) í aldurs- flokkunum 15—16 ára og 24—64. Af þeim 47 sem slösuðust í júní- mánuði í ár, hlutu 22 meiriháttar meiðsl, á móti 27 af 65 slysum i fyrra og 16 af 45 1981. „Islensk spjör betri kjör“ „með bros a vor Létt sportleg sumarföt í úrvali KARNABÆR P ~ LAUGAVEGI 66 - GLÆSIBÆ - AUSTURSTRÆTI 22 V SÍMI FRÁ SKIPTIBORÐI 85055 Og umboðsmenn um allt land í Reykjavík: Austurstræti 22 — Laugavegi 20 — Laugavegi 66 — Glæsibæ. Úti á landi: Epliö — ísafiröi, Eyjabær — Vestmannaeyjum, Fataval — Keflavík, Álfhóll — Siglufiröi, Nína — Akranesi, Ram — Húsavík, Bakhúsiö — Hafnarfiröi, Austurbær — Reyöarfirði, Kaupfél. Rangæinga — Hvolsvelli, Sparta — Sauöárkróki, Skógar — Egilsstöðum, ísbjörninn — Borgarnesi, Lea — Ólafsvík, Lindin — Selfossi, Paloma — Vopnafirði, Patróna — Patreksfirði, Báran — Grindavík, Þórshamar — Stykkishólmi, Hornabær — Höfn Hornafiröi, Aþena — Blönduósi, Nesbær — Neskaupstaö, Pex — Akureyri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.