Morgunblaðið - 24.07.1983, Blaðsíða 13
56
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1983
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 1983
57
Tíminn er ávallt óvinurinn —
skelfileg áminning þeirrar þján-
ingar sem hlotist getur af því, að
vera einu skrefi á eftir morð-
ingja. Við upphaf nýrrar rann-
sóknar er útlit óvinarins oftast
óþekkt, en kraftur hans og ógn er
allt of vel þekkt. Auk gamaldags
aðferða og eðlislægs innsæis nota nútímavís-
indamenn nýjustu tækni til að safna upplýs-
ingum um hina ógnvekjandi ráðgátu, sem
náttúran er. Þetta er starf, þetta er hlutverk
vísindalegra „leynilögreglumanna" (disease
detectives) í Bandaríkjunum. Köilun þeirra
er að leita uppi ósýnilega „morðingja",
skilgreina leyndardómsfulla sjúkdóma, sem
skjóta allt í einu upp kollinum — enginn veit
hvaðan þeir koma, en tilvera þeirra ógnar lífi
og heilsu mannsins. Nú sameinar úrvalslið
sérfræðinga, meinafræðinga (pathologists),
faraldursfræðinga (epidemiologists) og heilt
herlið rannsóknarstofufólks og lækna krafta
sína gegn nýrri hættu: áunninni ónæmisbækl-
un (Acquired Immune Deficiency Syndrome),
„morðingjanum", er ber heitið AIDS.
í júnílok var tala fórnarlamba „morð-
ingjans" í Bandaríkjunum 1.641, þar af
voru 644 dauðatilfelli frá því AIDS var
fyrst skilgreindur sem sjúkdómur fyrir
tveimur árum. Mánaðarlega eru að meðal-
tali skráð 165 ný tilfelli vestan hafs. Flest
fórnarlömbin hafa verið íbúar New York-
borgar (732 tilfelli, 284 andlát). Næst í röð-
inni er San Fransisco (160 tilfelli, 54 and-
lát). Sjúkdómurinn AIDS er einnig farinn
að breiðast út til annarra landa, enda þótt
útbreiðslan sé hæg; tilkynnt hefur verið
um 122 tilfelli í 17 löndum.
Sjúkdómsvaldurinn ræðst á fórnarlömb
sín með því að eyðileggja ónæmiskerfi
þeirra og gerir þau því varnarlaus gegn
„tækifærissinnuðum" smitsjúkdómum.
Sjaldgæft krabbamein eða lungnabólga
(fyrst og fremst pneumocystis carinii
lungnabólga) verður dauöadómur, en einn-
ig sveppa- (fungus) eða veirusýking. Enn
sem komið er, er ekki til nein lækning við
AIDS og orsakir sjúkdómsins eru ókunnar.
„Við höfum athugað fjölda grunaðra sjúk-
dómsvalda," segir dr. Anthony Fauci, tals-
maður Þjóðarstofnunar fyrir heilbrigði
(National Institutes of Health, NIH). „Enn
höfum við ekki nægar sannanir til að stað-
hæfa neitt.“
Spyrja spurninga. Vera á höttunum eft-
ir vísbendingum. Reyna tilgátur. Stöðvast
á blindgötu. Spyrja enn frekari spurninga.
Hin víðtæka leit að AIDS-„morðingjan-
um“ er gott dæmi um það, hvernig vísinda-
legur „leynilögregluleikur" fer fram.
Grunnurinn er lagður af faraldursfræð-
ingum, sem rannsakað hafa útbreiðslu
sjúkdómsins. Nú hafa 75,9% fórnarlamba í
Bandaríkjunum verið kynvilltir karlmenn,
sem hafa iifað virku kynlífi; 16% hafa ver-
ið eiturlyfjaneytendur, sem hafa fengið
eiturlyf í æð; 5% hafa verið innflytjendur
frá Haiti og 1% hafa verið dreyrasjúkl-
ingar (hemophiliacs). Enn sem komið er
hafa aðeins 96 fórnarlömb verið utan þess-
ara áhættuhópa. Yfir 90% fórnarlamb-
anna eru karlmenn á aldrinum milli 20 og
49 ára. Yngra fólk er aðeins 1,3% fórnar-
lamba. Áhyggjuefni er, að sá tími er líður
frá smitun til einkenna kann að vera allt
frá sex mánuðum til þriggja ára. Margir
eru því haldnir sjúkdómnum án þess að
vita af því.
Útbreiðsla sjúkdómsfaraldurs getur
vakið mikinn ugg meðal fólks (sígild
skilgreining sjúkdómsfaraldurs er á þann
veg, að um faraldur sé að ræða, ef sjúk-
dómur tekur skyndilega að breiðast út og
nær að hrjá yfir 1% þjóðar, en flestir
læknar líta nú svo á, að endurskoða beri
þessa skilgreiningu; um faraldur sé að
ræða, ef tíðni ákveðins sjúkdóms eykst
skyndilega). Alvarlegasta aukaverkun
AIDS er sennilega hinn ástæðulausi ótti,
sem fylgt hefur í kjölfar sjúkdómsins. Tií
að reyna að sefa fólk, heimsótti Margaret
Heckler, heilbrigðismálaráðherra Banda-
ríkjanna, Warren Magnuson-læknamið-
stöðina í Bethesda í Maryland og heilsaði
AIDS-sjúklingum með handabandi og sat
á rúmi þeirra. „óttinn við sjúkdóminn er
jafnslæmur og sjúkdómurinn sjálfur.
óttinn er orðinn óskynsamlega mikill,"
segir Margaret Heckler. Dr. James Curr-
an, yfirmaður AIDS-rannsóknarhópsins
við heilsugæslustofnunina í Atlanta fCent-
ers for Disease Control, CDC), hefur eftir-
farandi að segja: „Einstaklingur, sem ekki
getur talist til áhættuhópanna, er í lág-
markshættu. Hann er ekki aðeins í lág-
markshættu, heldur mun hann sennilega
halda áfram að vera einungis í lágmarks-
hættu. Sjúkdómurinn berst sennilega ekki
um venjulega leið sjúkdóma eins og t.d.
inflúensu, þ.e. með hversdagslegri snert-
ingu eða við öndun." Og ekki hefur nokkur
starfsmaður heilbrigðisstéttanna, sem
annast hefur AIDS-sjúkling, smitast.
En samt lagði Margaret Heckler, heil-
brigðismálaráðherra, áherslu á það í sam-
tölum sínum við AIDS- sjúklingana, að
„AIDS nýtur algjörs forgangs hvað varðar
rannsóknir og fjárframlög innan heil-
brigðiskerfisins". Ráðuneyti hennar, sem
NIH og CDC heyra undir, eyðir nú 14
milljónum Bandaríkjadala (um 386,3
milljónum íslenskra króna) í rannsóknir á
sjúkdómnum og hafa farið fram á frekari
12 milljónir dala í stuðning (um 331,1
milljón íslenskra króna). Sumir leiðtogar
kynvilltra karla hafa ásakað ráðuneyti
Reagans forseta um að vanrækja AIDS
vegna þess, að hann hrjái mest kynvillta
karlmenn. í raun er fjárstuðningur til
rannsókna á AIDS meiri en þær 20 millj-
ónir Bandaríkjadala (um 551,8 milljónir
íslenskra króna), sem eytt hefur verið í
rannsóknir á eiturlosti af völdum klasa-
sýkla (toxic shock syndrome — klasasýkl-
ar gefa frá sér eitrið toxín) og hermanna-
veikinni (Legionnaire’s disease). Heil-
brigðismálaráðuneyti Margaret Heckler
gefur út bækling, þar sem greint er frá
niðurstöðum vísindamanna. Þá hefur ráð-
uneytið einnig látið koma fyrir sérstakri
beinni línu, þar sem spurningum um AIDS
verður svarað (800-342-AIDS, toll free
hotline).
Áður fyrr dreymdi starfsmenn heil-
brigðisstéttanna í Bandaríkjunum um að
einangra smitsjúkdóma í landinu. Sá
metnaður hefur orðið að engu vegna
hreyfanleika bandarísks þjóðfélags, áhrifa
ferðamanna og innflytjenda (bæði ólög-
legra og löglegra), breytinga á tækni (er
skapað hafa nýtt, ákjósanlegt umhverfi
fyrir lífefni) og síðast en ekki síst, hinna
ópersónulegu kynna, er kynlífsbyltingin
hefur leitt til. Svo margar sem 20 milljónir
Bandaríkjamanna þjást nú sennilega af
herpes (einkum herpes genitialis), ólækn-
andi en skaðlausum sjúkdómi. Áuk þess er
árlega tilkynnt um milljón ný tilfelli af
lekanda (gonorrhea) og 100 þúsund tilfelli
af sýfilis (syphillis). „Það sem er hins veg-
ar öðruvísi við AIDS, er hinn mikli fjöldi,
sem kann að sýkjast á tiltölulega skömm-
um tíma,“ segir Dr. William Foege, fram-
kvæmdastjóri CDC. „AIDS-sjúklingur hef-
ur að meðaltali haft mök við 60 mismun-
andi kynlífsnauta sl. tólf mánuði."
Baráttan við slíkan faraldur sem AIDS
er, og þann ótta sem siglir í kjölfarið, er
verk sérmenntaðra manna. Þeir eru and-
legir niðjar dr. John Snow (1813-1858),
sem komst að orsökum kóleru (cholera), er
sjúkdómsins varð vart í Lundúnum árið
1831. Dr. Snow lét loka einni af vatnsdæl-
um borgarinnar og kom þannig í veg fyrir
frekari hörmungar. Á síðustu áratugum
hafa eftirmenn hans stórlega bætt lífsskil-
yrði mikils hluta jarðarbúa. í stórum
hluta heims hafa þeir nánast ráðið bug á
eitt sinn hryllilegum skaðvöldum eins og
lömunarveiki (polio), bólusótt (smallpox),
kóleru (cholera) og barnaveiki (diptheria).
Á meðal þessara vísindalegu „leynilög-
reglumanna" eru læknar og sérfræðingar,
sem hafa flækst inn í rannsóknir ákveð-
inna sjúkdóma, þar sem einn sjúklinga
þeirra hefur þjáðst af þeim. Aðrir eru úr
röðum starfsmanna ríkja- og borgar-
heilbrigðisyfirvalda. Vísindamenn við
NIH afla vísindalegrar þekkingar. Hinir
4.030 starfsmenn heilsugæslustofnunar-
innar i Atlanta, CDC, sérhæfa aðgerðir og
gegna hlutverki alríkislögreglu og Interpol
í sjúkdómaleit fyrir vísindamenn um allan
heim. Stafnbúar stofnunarinnar eru
starfsmenn Sjúkraþjónustunnar (Epidem-
ic Intelligtnce Service, EIS), sem sendir út
sveitir sínar til staða víðs vegar í Banda-
ríkjunum og í heiminum. Er hér um að
ræða 120 unga, vel menntaða og ákveðna
rannsóknarmenn. „Við lítum á CDC sem
stóra bróður okkar," segir dr. Otto Rav-
enholt hjá heilbrigðisyfirvöldum Nev-
ada-ríkis.
Heilsugæslustofnunin í Atlanta, CDC,
ber ekki mikilvægi sitt utan á sér. Aðal-
stöðvarnar eru til húsa í múrsteinshúsi,
sem ber þess merki, að það er í úthverfi.
Fyrir framan bygginguna er stytta af
Hygeiju, grísku gyðjurmi, sem hafði heil-
brigðismál á sinni könnu. Sumar deildir
stofnunarinnar eru í trébröggum, sem eru
umhverfis fyrrverandi hersjúkrahús.
Heilsugæslustofnunin var stofnsett árið
1942 til að finna aðferðir til verndar
bandarískum hermönnum gegn malaríu
(malaria) og nefndist þá Stofnun fyrir
malaríustjórn á hernámssvæðum (Malaria
Control in War Areas, MCWA). Stofnunin
hefur síðan verið þátttakandi í vel heppn-
aðri herferð gegn lömunarveiki (fyrst til
notkunar Salk-bóluefnis) og dregið úr ógn
hundaæðis (rabies), er stofnunin sýndi
fram á, að sjúkdómurinn gæti borist með
leðurblökum. CDC stjórnaði einnig ónæm-
isaðgerðum á börnumí Bandaríkjunum
gegn mislingum (measles), hettusótt
(mumps) og rauðum hundum (rubella). Dr.
William Foege framkvæmdastjóri segir:
„Nú eru um 5.000 börn að leika sér, sem
væru ekki lifandi, ef ónæmisaðgerðirnar
hefðu ekki verið framkvæmdar."
Þrátt fyrir mikla velgengni, hefur
heilsugæslustofnunin þurft að berjast
fyrir því, að fá nægilegt rekstrarfé, einnig
er stofnunin stofnsetti Sjúkraþjónustuna
árið 1951. Hvíta húsið íhugaði árið 1981
23% niðurskurð fjárframlaga til heilsu-
gæslustofnunarinnar. Richard Schweiker,
þáverandi heilbrigðismálaráðherra, barð-
ist gegn hugmyndinni og var rekstrarfé
CDC ekki skert. Nú sem stendur virðist
stofnunin ekki þurfa að kvíða fjárskorti
vegna vaxandi áhyggja ráðamanna í
Bandaríkjunum af ÁIDS. Fjárframlög til
stofnunarinnar 1983 nema 261 milljón
Bandaríkjadala (um 7,.2 milljörðum ís-
lenskra króna), sem er minna en 1% þeirr-
ar upphæðar, sem eytt er í opinberar heil-
brigðistryggingar (Medicare og Medicaid).
Árlega tekur heilsugæslustofnunin við
um 60 starfsmönnum heilbrigðisstéttanna,
sem starfa í tvö ár við Sjúkraþjónustuna,
EIS. „Við viljum fá fólk, sem er greint, en
einnig ákveðið og sjálfstætt í hugsun.
Þetta verða að vera góðir hausar,“ segir
dr. Lyle Conrad, yfirmaður vettvangs-
rannsóknardeildar CDC. Helmingur
starfsmanna hennar er staðsettur í Atl-
anta, afgangurinn er ráðinn til starfa hjá
heilbrigðisyfirvöldum víðs vegar um
Bandaríkin, sem CDC vinnur náið með.
Allir eru starfsmennirnir á vakt 24
klukkustundir á sólarhring, reiðubúnir að
fara hvert þangað, sem sjúkdóms verður
skyndilega vart, hvort heldur það er mat-
areitrun eða upphaf lungnabólgufarald-
urs, eins og varð 1980 í Kaliforníu (þeir 185
einstaklingar, sem umgengist höfðu fórn-
arlambið, höfðu verið settir í einangrun
aðeins sex klukkustundum eftir að sjúk-
dómurinn var staðfestur). Eftir að hafa
lokið tveggja ára störfum hjá heilsugæslu-
stofnuninni, eru ElS-nemarnir útskrifaðir
og veitt viðurkenning fyrir störf þeirra;
keðja, sem á hangir bjórkrús, sem Watn-
ey’s Red Barrel-bjórinn er borinn fram í á
John Snow-kránni, sem er staðsett hjá
hinni alræmdu vatnsdælu í Lundúnum.
Auk hinna árlegu þúsund hjálparbeiðna
frá heilbrigðisyfirvöldum ríkis og bæja í
Bandaríkjunum sinnir CDC um 50 verk-
efnum erlendis. Nýleg dæmi: lömunar-
veikifaraldur í Indónesíu, heilahimnu-
bólgufaraldur (meningitis) á Efri Volta,
malaríufaraldur í Zanzíbar, eiturverkanir
mengaðrar matarolíu á Spáni og eftirlit
með ónæmisaðgerðum á börnum í Kína.
Dr. Bess Miller var örmagna eftir að hafa
unnið við AIDS-sjúkdóminn í fyrra, er
heimasíminn hringdi eitt kvöldið. „Mér
datt fyrst í hug, að stofnunin vildi senda
mig eitthvert," segir hún. Og sú varð raun-
in. Brátt var hún komin á hernámssvæði
ísraelsmanna á vestur-bakka Jórdanár til
að rannsaka leyndardómsfullan krank-
leika, er hrjáði ungar, palestínskar skóla-
stúlkur. Dr. Miller og starfsmenn ísra-
elskra heilbrigðisyfirvalda komust að
þeirri niðurstöðu, að sjúkdómurinn orsak-
aðist af móðursýki; hann hvarf skjótt.
Mesta tækniundur heilsugæslustofnun-
arinnar, er sérstaklega einangruð rann-
sóknarstofa (Maximum Containment Lab-
oratory), þar sem fengist er við banvæna
sjúkdómsvalda, sem lítil vörn er til gegn.
Baráttan við sjúkdóm hefst með skráningu
tilfella og útreikningi á fylgni fjölmargra
þátta. Grady Waters tölfræðingur hjá Heilsu-
gæslustofnuninni í AtlanU, CDC, nýtir tölvur
til samanburðar gagna frá mismunandi ár-
um.
Starfsmenn stofunnar, sem aliir eru
sjálfboðaliðar, verða að styðja á rétta
talnasamstæðu hurðar rannsóknarstof-
unnar svo hún opnist, en við tekur efna-
klefi, þar sem starfsmennirnir fara í efna-
fræðilega „sturtu". Síðan þarf rétt per-
sónunúmer til að fá aðgang að því allra
heilagasta, en rannsóknarstofan er undir
þrýstingi. Þar klæðast vísindamennirnir
samfelldum, bláum geimfarabúningum.
Þeir ganga um með sitt eigið súrefnissíun-
arkerfi. Svona útbúnir starfa vísinda-
mennirnir innan um sumar hættulegustu
örverur heimsins, s.s. sjúkdómsvald
Lassa-hitasóttar (Lassa fever) og Ebola-
veiruna, en þetta eru tveir sjúkdómasvald-
ar, sem orsaka heiftarlegar innri blæð-
ingar og eiga sér heimkynni í Afríku. Eng-
in slys hafa orðið á rannsóknarstofunni.
Ef einhver starfsmaður hennar sýkist, er
samstundis flogið með hann til Smitsjúk-
dómarannsóknarstofnunar bandaríska
hersins (Army’s Medical Research Insti-
tute of Infectious Diseases) í Frederick,
Maryland.
Aðrir sérfræðingar CDC vinna m.a. með
starfsmönnum bandaríska útlendingaeft-
irlitsins til að koma í veg fyrir, að fram-
andi sjúkdómar berist til landsins. Joseph
McCormick, framkvæmdastjóri á rann-
Hvar borðuðu þau og drukku? Var gluggi
hótelherbergis þeirra opinn? Hvert fóru
þau? Ýtarlegur spurningalisti var sendur
til allra þeirra um 4.400 fyrrverandi her-
manna, sem setið höfðu ráðstefnuna og
3.500 þeirra svöruðu innan þriggja daga.
Aðrir starfsmenn EIS athuguðu mikilvægi
upplýsinga sem rannsóknarhópnum barst,
s.s. símtal frá töframanni, sem viður-
kenndi að hafa kveikt á úðara í úðunar-
kerfi Bellevue Stratford-hótelsins. I Atl-
anta tóku vísindamenn eftir hinu mikla
magni hvítra blóðkorna í sýnum úr fórn-
arlömbunum og hófu leit að sýklum (Sig-
urður B. Þorsteinsson sýklafræðingur á
Landspítalanum vill nefna bakteríur -
bacteria - sýkla, enda þótt hann hafi sagt
orðið e.t.v. vera of yfirgripsmikið) í smá-
sjám sínum.
í fyrstu grunaði vísindamenn CDC að
um svínaveiki (swine flue) væri að ræða,
sem heilbrigðisyfirvöld höfðu óttast það
árið. En rannsóknarniðurstöður renndu
ekki stoðum undir þá kenningu. Veikin var
ekki smitandi, enginn smitaðist af hinum
upphaflegu 182 fórnarlömbum, en 29
þeirra létust. Enginn sýkill fannst. „Smám
saman komumst við að því, að við höfðum
ekki hugmynd um, við hvað væri að etja,“
segir dr. Tsai.
Faraldurinn stöðvaðist eins skyndilega
og hann hófst, en vísindamenn CDC héldu
áfram rannsókn á sýnum úr fórnarlömb-
um veikinnar. Einn þeirra var Joseph
McCade, örverulíffræðingur (microbiolog-
ist). Fimm mánuðum eftir ráðstefnuna at-
Helstu „leynilögreglumennirnir": Dr. James Curran umsjónarmaður AIDS-rannsóknarhópsins
(til vinstri) og dr. William Foege framkvemdastjóri CDC.
sóknarstofu heilsugæslustofnunarinnar,
sem rannsakaði Lassa-hitasótt í Sierra
Leone, ók í janúar sl. á jeppa með öllum
drifum í snjóstormi til Atlanta-flugvallar
til að ná í farþega frá Nígeríu, sem þjáðist
af undarlegum sjúkdómi. Maðurinn var
settur í einangrun þar til gengið hafði ver-
ið úr skugga um, að hann gengi ekki með
eina hinna banvænu veira.
Það sem gerði heilsugæslustofnunina í
Atlanta fræga er sígilt dæmi um læknis-
fræðilega „leynilögreglustarfsemi". Penn-
sylvaniuútibú Samtaka fyrrverandi her-
manna (American Legion) hélt ráðstefnu á
Bellevue Stratford-hótelinu í Fíladelfíu í
júlí 1976. Næstu daga létust ellefu Penn-
sylvaníubúar, að því er virtist úr lungna-
bólgu; starfsmaður samtakanna gerði heil-
brigðisyfirvöldum viðvart, að öll hefðu
fórnarlömbin verið á áðurnefndri ráð-
stefnu. Hringt var til Atlanta til að biðja
um hjálp. Um nóttina kom dr. Theodore
Tsai frá Sjúkraþjónustunni, EIS, á skrif-
stofu heilbrigðisyfirvalda ríkisins með
kælitæki til að setja í blóð- og öndunar-
sýni. Hann var fyrstur 32 CDC-starfs-
manna, sem áttu eftir að koma við sögu við
rannsókn málsins.
Þegar um óþekktan sjúkdóm er að ræða,
þá er byrjað á því að ákveða, hvernig eigi
að skilgreina hann. „Við vildum að skil-
greiningin væri nægjanlega sveigjanleg til
að ná yfir sem flest tilfelli, en þó ekki svo,
að allir sem væru haldnir kvefi flokkuðust
með sjúkdóminn," segir dr. Tsai. Sex
starfsmenn EIS þutu út um allt Pennsyl-
vaníuríki til að spyrja grunuð fórnarlömb.
hugaði hann enn frekar einhverja rauð-
leita ílanga sýkla og dró þá ályktun af
niðurstöðum sínum, að þeir væru skað-
valdurinn. Þeir höfðu tekið sér bólfestu í
vatni kælikerfis hótelsins og borist um loft
þess, er vatnið gufaði upp. Fúkalyfið er-
ythromycin (C37H67NOis) reyndist
áhrifaríkt við meðferð sjúklinganna. Nú er
settur klór í kælikerfi í Bandaríkjunum,
sem svipuð eru kælikerfi Bellevue Strat-
ford-hótelsins, til að hindra það, að her-
mannaveiki verði aftur vart.
Önnur fræg ráðgáta var að mestu leyti
leyst af faraldursfræðingum, fremur en
vísindamönnum rannsóknarstofa CDC. í
janúar 1980 tóku læknar í Wisconsin- og
Minnesota-ríki eftir því, að óeðlilegur
fjöldi ungra kvenna var allt í einu farinn
að þjást af háum hita og lágum blóðþrýst-
ingi, sem hafði alvarlegar afleiðingar í för
með sér; af þeim 55 sjúklingum, sem CDC
rannsakaði í upphafi, höfðu sjö látist í
maílok. Dr. Kathryn Shands hjá EIS
stjórnaði rannsókninni, sem fram fór á
vegum CDC. Rannsóknin leiddi til ágætrar
skilgreiningar á því, sem brátt var farið að
nefna eitrun af völdum klasasýkla (toxic
shock syndrome). Niðurstöður urðu til
þess, að öll sjúkdómstilfelli voru greind.
Klasasýkillinn (staphylococcus bacteria)
var greinilega orsök sjúkdómsins, en hin
læknisfræðilega spurning var „hvers
vegna?" Með frekari faraldursfræðilegum
rannsóknum komust vísindamennirnir að
því, að flest nýgreind tilfelli, sem til rann-
sóknar voru, voru konur með tíðir, er not-
að höfðu tíðatappa (tampons). Meirihluti
þeirra hafði notað Rely-tíðatappa frá
Procter & Gamble, sem auglýstir voru sem
sérstaklega notagóðir. Þeir kunna að hafa
myndað ákjósanlegt umhverfi fyrir sýkla-
gróður. Er þeir höfðu verið fjarlægðir af
markaðnum, stórfækkaði sjúkdómstilfell-
um.
Heilsugæslustofnuninni í Atlanta hafa
ekki orðið á mörg mistök. En þó verður að
telja skráningu faraldurs, sem aldrei varð
vart, mistök. Það var árið 1976, að svína-
veiki varð vart í Dix-virkinu (Fort Dix) í
New Jersey og varð hún einum hermanni
að bana. Heilbrigðisyfirvöld óttuðust, að
veiran líktist veiru, sem valdið hafði hin-
um banvæna inflúensufaraldri, er gekk um
Bandaríkin 1918 og orsakaði dauða yfir
500 þúsund Bandaríkjamanna. Vegna
áskorana Geralds Fords, þáverandi for-
seta, var um 100 milljónum Bandaríkja-
dala (um 2.8 milljörðum íslenskra króna)
veitt til bólusetningar Bandaríkjamanna.
Það var ekki aðeins, að enginn faraldur
breiddist út, heldur urðu um 100 manns
fyrir fötlun, er sennilega orsakaðist af
bóluefninu. Afgangs bóluefni var um 90
milljón skammtar. Opinberar fregnir her-
ma, að svínaveikin hafi orðið til þess, að
ráðuneyti Carters forseta ákvað að endur-
skipa ekki dr. David Sencer, þáverandi
framkvæmdastjóra CDC. Dr. Sencer er nú
formaður heilbrigðisráðs New York-
borgar (New York City Board of Health). í
stöðu hans var skipaður William Foege,
heilbrigðisstarfsmaður frá Washington,
sem stjórnaði herferðinni gegn bólusótt í
heiminum.
Stundum er það heppni, sem ræður úr-
slitum í baráttunni við nýjan sjúkdóm. í
fyrrasumar var komið með 42 ára eitur-
lyfjaneytanda í Santa Clara Valley-lækna-
miðstöðina. Hann var ófær um að tala, var
krepptur saman og gat vart hreyft sig.
Einkenni hans voru svipuð einkennum
Parkinsonsveikinnar (Parkinson’s dis-
ease), sem hrjáir venjulega gamalt fólk.
Dr. William Langston datt í hug, að þessu
kynni eitthvað að valda, er leyndist í heró-
íni því, sem sjúklingurinn neytti. Dr.
Langston og starfsfólk hans fann eitur-
lyfjaneytendur, er notað höfðu sams konar
heróín og þjáðust af sams konar sjúkdómi.
Vegna tilviljanakennds samtals við annan
lækni, hjálpar frá lögreglunni og ábend-
inga, sem komu í kjölfar dagblaðsgreinar,
tókst dr. Langston að bera kennsl á önnur
tilfelli sama eðlis og fá sýni af hinu illa
eiturlyfi.
Nokkrum mánuðum síðar las dr. Lang-
ston grein í læknablaði um efnafræðing,
sem hafði svipt sig lífi, er hann hafði feng-
ið einkenni svipuð Parkinsons-veikinni úr
skammti af tilbúnu heróíni. Af lestri
krufningsskýrslu, þar sem gerð var grein
fyrir heila efnafræðingsins, komst dr.
Langston að því, að heróín hins látna hafði
að geyma aukaefni, svipað því, sem var í
hinu mengaða heróíni eiturlyfjaneytand-
ans. Hið leyndardómsfulla aukaefni, sem
nefnt er MPTP, hafði farið úr blóði inn í
heila og skemmt sama svæði og Parkin-
sons-veikin hefur áhrif á. Ekkert annað
efni er talið gera þetta. í apríl sl. tilkynnti
dr. Irwin Kopin hjá Þjóðarstofnun fyrir
geðheilsu (National Institutes of Mental
Health), einn af höfundum áðurnefndrar
læknagreinar, að hann hefði kallað fram
einkenni Parkinsons-veiki með því að gefa
öpum MPTP-efnið. Niðurstöður þessara
tveggja manna gáfu í skyn, að áður óskýrð
einkenni Parkinsons-veiki gætu hlotist af
snertingu við MPTP-efnið og sjálfur
sjúkdómurinn jafnvel orsakast af um-
hverfisþáttum.
Ekkert atvik í sögu sjukdómaleitar hef-
ur valdið jafnmiklum úlfaþyt og jafnmik-
illi athygli og sá eltingaleikur, sem nú fer
fram; leitin að sjúkdómsvaldi ÁIDS. Leitin
hófst snemma árs 1981, er dr. Michael
Gottlieb við UCLA-háskólann skýrði heil-
brigðisyfirvöldum í Los Angeles frá því, að
hann væri læknir fimm sjúklinga, sem all-
ir væru kynvilltir karlmenn og lifðu fjör-
ugu kynlífi og væru allir haldnir óvenju-
legri, en jafnframt banvænni lungnabólgu
(pneumocystis carinii pneumonia). Það
sem var enn meira ógnvekjandi var það, að
ónæmiskerfi þeirra virtist hafa farið úr
sambandi. Dr. Gottlieb og ElS-starfsmað-
ur, sem staðsettur er í Los Angeles, skýrðu
frá málinu í vikuriti CDC. A sama tíma
veitti dr. Alvin Friedman-Kien við New
York-háskólann því eftirtekt, að nokkrir
kynvilltra sjúklinga hans þjáðust af óreglu
ónæmiskerfis og sjaldgæfu húðkrabba-
meini, Kaposis (Kaposiá sarcoma), sem
sést venjulega ekki nema hjá öldruðum
körlum. Seinna um sumarið var dr. Harold
Jaffe við heilsugæslustofnunina í Atlanta
SJÁ NÆSTU SÍÐU