Morgunblaðið - 05.08.1983, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1983
Arnarflug beðið
að flytja flótta-
menn á Sri Lanka
„ÞAÐ VAR óskað eftir því viö okkur, að við tækjum aö okkur flutninga á um
10 þúsund flóttamönnum milli svæða á Sri Lanka, en það er norsku samtök-
in „Children Organisation of Norway“ sem hafa haft milligöngu um málið,“
sagði Halldór Sigurðsson, sölu- og markaðsstjóri Arnarflugs, í samtali við
Mbl.
Halldór sagði að til stæði að
flytja um 10 þúsund flóttamenn af
indversku bergi brotnu milli
svæða á Sri Lanka, en þeim hefði
verið úthlutað ákveðnu svæði til
búsetu. Hins vegar hefði ekki ver-
ið talið nægilega öruggt vegna
hins ótrygga ástands í landinu, að
flytja fólkið Iandleiðina.
„Astandið í landinu hefur á síð-
ustu sólarhringum færst til betri
vegar og því hefur flutningunum
verið frestað um stundarsakir. Við
munum því bíða og sjá til,“ sagði
Halldór Sigurðsson ennfremur.
Gert er ráð fyrir, að flutningarnir
fari fram með Boeing 737 farþega-
þotu, sem er sömu tegundar og vél
félagsins í áætlunarfluginu milli
landa.
„Geri það sem
mögulegt er“
-segir Jón Helgason um ræktun Galloway
„ÉG SKIL mæta vel þörfina fyrir gott
búfé, því á því veltur hvort arður verö-
ur af búrekstri eða ekki. Því tel ég
nauösynlegt að gera það sem menn
telja mögulegt til að stuðla að slíku.
Það hlýtur auðvitað að vera grundvall-
arsjónarmiðið aö gera það,“ sagði Jón
Helgason landbúnaðarráðherra, er
álits hans var leitað á ummælum
Olafs E. Stefánssonar nautgriparækt-
arráðunauts Búnaðarfélags íslands
Handteknir
með 600 gr
af hassi
TVEIR menn voru handteknir af
starfsmönnum fíkniefnadeildar lög-
reglunnar í Reykjavík á mánudags-
kvöld með 600 grömm af hassi undir
höndum. Efnið hafði komið sama
dag til landsins með skipi og var
verið að flytja það frá borði með bíl.
Mennirnir játuðu á sig verknaðinn
við yfirheyrslur, annar að hafa
smyglað því og hinn að hafa ætlað að
sjá um sölu þess hér á landi. Á öðr-
um manninum fannst einnig kókaín
og amfetamín. Mennirnir sem eru
rúmlega tvítugir að aldri, hafa báðir
komið við sögu samskonar mála.
Þriðji maðurinn var handtekinn
á miðvikudagskvöld í Keflavík, en
hann reyndist við yfirheyrslur
ekki viðriðinn málið.
Efnið var keypt í Kaupmanna-
höfn. 400 krónur fást fyrir
grammið af hassi hér á landi, svo
þarna er um að ræða magn að
söluandvirði 240 þúsund króna.
Hass er þrefalt dýrara hér á landi
en í Kaupmannahöfn.
þess efnis, að landbúnaðarráöuneytið
hefði brugöist í því að koma upp að-
stöðu í landi til ræktunar á Gallo-
way-holdanautastofninum í Hrísey.
„Það er auðvitað með þessa gripi
eins og aðra að gott búfé er grund-
vallaratriði í búrekstri," sagði Jón
einnig. Hann sagði þegar hann var
spurður að því hvernig hann hygð-
ist beita sér í þessu máli: „Ef þarna
er einhver hindrun í vegi mun ég
vitanlega reyna að skoða það hvað
hægt er að fá fram um aðgerðir til
að bæta þar úr. Ég veit að um það
hefur verið rætt að láta þessa
stofnræktun fara fram á ríkisbúun-
um, en mér er ekki kunnugt um á
hverju hefur strandað. En þetta er
til skoðunar í ráðuneytinu og það er
minn vilji að reyna að ná sem best-
um árangri á þessu sviði."
Morgunblaðið Guðjón.
Skaðbitið lamb við Sandskeið
Dýrbitið lamb fannst á Vatnavöllum við Sandskeiðið á laugardag
og var það tilkynnt til lögreglunnar í Árbæ. Lambið var lifandi en
reyndist vera skaðbitið á snoppunni og alveg ósjálfbjarga. Aflífuðu
lögreglumenn það þegar. Ljóst er að refur hefur verið þar að verki
og hafði étið úr höfðinu á því alveg inn að tanngarði. Á meðfylgj-
andi mynd sést Bjarni Bjarnason lögregluþjónn með lambið.
Þrír gera
tilkall
til arfs
EINN lögerfingi og tveir aðrir aðilar
hafa gert tilkall I arf eftir hjónin
Sólveigu Jónsdóttur og Sigurjón
Jónsson, sem meðal annars er hús-
eignin Bollagata 12, en þau arf-
leiddu þau samtök, sem gætu sýnt
fram á að þau störfuðu í anda Marx
og Leníns, að húseign sinni.
Frestur til að gera tilkall í arf-
inn rann út 30. júlí. Að sögn Mark-
úsar Sigurbjörnssonar, fulltrúa
yfirborgarfógetans í Reykjavík er
ekki hægt að gefa upp nöfn kröfu-
hafa fyrr en þau hafa verið lögð
fram formlega í réttarhaldi, sem
verða mun að öllum líkindum
seinna í þessum mánuði.
Helgarveðrið
Á VEÐURSTOFUNNI var þær frétt-
ir að hafa að veður héldist svipað um
helgina og verið hefur. Á þetta við
um landið allt. Má því búast við suð-
austanátt og suðvestan á Suður- og
Vesturlandi og væntanlega rign-
ingarskúrum.
Þeir Norðlendingar eru öllu
heppnari með veður, því þurrt
verður á þeim slóðum, hlýtt og sól-
skin. Sömu sögu er að segja um
Austurland.
Aðstoðarmað-
ur félagsmála-
ráðherra
JÓHANN Einvarösson hefur verið
ráðinn aðstoðarmaður félagsmála-
ráðherra, Alexanders Stefánssonar.
Jóhann var þingmaður Fram-
sóknarflokksins I Reykjaneskjör-
dæmi frá 1979 og fram að kosning-
unum í vor. Hann var áður bæjar-
stjóri í Keflavík og þar áður bæj-
arstjóri á ísafirði.
Stjórn Útgerðarfélags Akureyringa:
Þegar gengið til samn-
inga við Slippstöðina
— Ekki sammála þessari ákvörðun sejgir
Gísli Konráðsson, framkvæmdastjóri UA
Á stjórnarfundi Útgerðarfélags
Akureyringa hf. þann 4. þessa mán-
aðar var eftirfarandi tillaga sam-
þykkt með 4 atkvæðum, einn
stjórnarmanna sat hjá: „Vegna synj-
unar ríkisstjórnarinnar við þeirri
ósk félagsins að fá leyfi til að smíða
nýjan togara, þar sem það telur hag-
kvæmast miðað við tilboð, sem bor-
izt hafa, samþykkir stjórn Útgerðar-
Sat sem fastast á grunninum
Morgunblaðið/Július.
í GÆRKVÖLDI átti að flytja húsið frá Suðurgötu 7 upp í Árbæ. Ráðgert var að flutningarnir byrjuðu um
klukkan 21, en er Mbl. hafði síðast fregnir af undir miðnætti hafði ekki tekist að ná sjálfu húsinu af grunninum.
Hins vegar gekk sæmilega að ná viðbyggingu hússins og var hún flutt á stórum vörubíl í Árbæjarsafn. Margt
fólk fylgdist með framvindu mála og er meðfylgjandi mynd tekin er viðbyggingin var hífð af grunni sínum.
félags Akureyringa hf. að ganga nú
þegar til samninga við Slippstöðina
hf. um smíði nýs togara fyrir félagið
samkvæmt teikningum og smíðalýs-
ingu, sem fylgdu nýlegu útboði."
Vegna þessa ræddi Morgunblað-
ið við Gísla Konráðsson, annan af
framkvæmdastjórum félagsins og
innti hann álits á þessari ákvörð-
un stjórnarinnar. Sagði hann, að
sér væri engin launung á því, að
hann væri ekki sammála þessari
samþykkt. Hann teldi að fyrirtæk-
ið ætti að leita fyrir sér á grund-
velli þeirra tilboða, sem fengizt
höfðu, það væri að semja alls ekki
um smíði fyrir hærra verð en
hægt er að ná annars staðar, jafn-
vel þó bíða þyrfti eitthvað eftir því
að banni á innflutning fiskiskipa
yrði aflétt. Það væri réttara en að
semja um smíði fyrir verð, sem
væri verulega hærra en það, sem
unnt væri að fá annars staðar.
Taldi hann, að líklega væri það
verkefnaskortur Slippstöðvarinn-
ar, sem réði mestu um þessa
ákvörðun. Sér litist engan veginn
á að reka svona dýran togara og
segja mætti fyrir fram að það
væri ekki hægt, þess vegna fyndist
þeim framkvæmdastjórunum full
ástæða til þess, að semja ekki um
smíði fyrir hærra verð en hægt
væri að fá annars staðar. Þar sem
skreiðar- og saltfiskvinnsla væru
nú í verulegri lægð lægi ekki eins
mikið á því að fá fimmta togar-
ann, þó vissulega væri rétt að
stefna að því síðar. Með tilliti til
þess, meðal annars, fyndist honum
þessi ákvörðun stjórnar félagsins
ekki rétt.
Skákmótið í Gausdal:
Hilmar og
Margeir
með IV2
vinning
NÚ HAFA verið tefldar þrjár
umferðir á alþjóðlega skákmót-
inu í Gausdal í Noregi. Þar tefla
íslendingamir Margeir Péturs-
iwn, Hilmar Karlsson og Árni A.
Árnason. Þeir Margeir og Hilm-
ar hafa nú IV2 vinning og Árni 1.
Margeir hefur gert jafntefli í
öllum sínum skákum, Hilmar
hefur unnið eina og gert eitt
jafntefli og Árni hefur gert tvö
jafntefli. Efst á mótinu, að
óloknum biðskákum, eftir
þrjár umferðir eru sænska
stúlkan Pia Crambing og Norð-
maðurinn Kristiansen með 2‘A
vinning.