Morgunblaðið - 05.08.1983, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1983
13
því stungið undir stól, enda kosn-
ingar fyrir dyrum.
Nýjar forsendur
Hann fór þess því á leit við
Orkustofnun að hún gerði nýja at-
hugun, og nú á forsendum sem
hann sjálfur lagði til. Allir vita, að
niðurstöður slíka útreikninga ráð-
ast að miklu leyti af þeim forsend-
um sem menn gefa sér, og Hjör-
leifur vildi að Orkustofnun gæfi
sér forsendur, sem hentuðu hug-
myndum hans um niðurstöður.
Stofnunin hóf því að reikna að
nýju og nú út frá forsendum
Hjörleifs. Niðurstaða þessara at-
hugana birtust síðan í skýrslu frá
Orkustofnun, sem send var núver-
andi iðnaðarráðherra þann 14.
júní sl. Hefur þessarar skýrslu
nokkuð verið getið í fjölmiðlum,
en þó án þess að þessar skýringar
um forsögu málsins fylgdu með.
Vinnubrögð Hjörleifs
Þessi vinnubrögð fyrrverandi
iðnaðarráðherra eru ekkert eins-
dæmi. í málflutningi beitti hann
mjög fyrir sig niðurstöðum „virtra
og óvilhallra" stofnana, en þegar
betur var að gáð, voru „niðurstöð-
urnar" rígnegldar við forsendur,
sem hann sjálfur og fylgilið hans
hafði búið til og fyrirskipað að
byggt yrði á. Þessi vinnubrögð eru
æ betur að koma í ljós.
Þau sýna að því fer fjarri að
reynt hafi verið að nálgast niður-
stöður í ýmsum erfiðum vanda-
málum með hlutlægum hætti.
Vonandi eiga þessi vinnubrögð
ekki eftir að spilla málstað okkar.
f athugun Orkustofnunar er
gert ráð fyrir því að Búrfellsvirkj-
un hafi verið byggð í áföngum
fyrir almenningsmarkað, þannig
að virkjunin hefði tekið til starfa
á sama tíma og raun varð á, en
frestað hefði verið að setja upp
þrjár síðari vélarnar (105 MW), til
ársins 1976. Þá er gert ráð fyrir að
Þórisvatnsmiðlun hefði verið
Skýrsla Orkustofnunar um hag-
kvæmni ÍSAL-samninganna sýnir
ótvírætt ávinning fyrir almenning.
Hjörleifur Guttormsson stakk fyrri
skýrslu Orkustofnunar undir stól og
krafðist nýrrar, sem byggð væri á
forsendum, sem hann legði til.
frestað til 1976, gufuaflstöðin í
Straumsvík hefði aldrei verið
byggð og Sigölduvirkjun ekki tek-
in í notkun fyrr en 1982. Þá er
gengið út frá því, að orkusala til
Járnblendiverksmiðjunnar hefði
hafist á sama tíma og raun varð á.
Vafasamar niðurstöður
Þetta er sú meginforsenda sem
Orkustofnun byggir á, en síðan er
beitt þremur aðferðum við út-
reikning á því, hvað almenningur
hefði þurft að greiða fyrir orkuna
með framangreindri uppbyggingu
orkukerfisins, og það síðan borið
saman við það sem almennings-
veiturnar raunverulega greiddu.
Fjallað verður nánar um þessar
reikningsaðferðir síðar, en mjög
er vafasamt, að sú aðalforsenda
Orkustofnunar fái staðist, að Búr-
fellsvirkjun hefði verið byggð með
þessum hætti ef stóriðjusamn-
ingur á borð við ÍSAL samninginn
hefði ekki fylgt með. Strax af
þeirri ástæðu eru allar niðurstöð-
ur Orkustofnunar um mál þetta
mjög vafasamar, eins og reyndar
má sjá af þéim fyrirvara, sem
orkumálastjóri gerir í bréfi því,
sem hann skrifaði iðnaðarráð-
herra, og fylgir skýrslunni.
í annarri grein verður fjallað
nánar um sjálfa skýrslu Orku-
stofnunar og reikningsaðferðir
hennar.
Samband Alþýðu-
flokkskvenna:
Ráðstefna
vegna launa-
mála kvenna
SAMBAND alþýöuflokkskvenna hefur
ákveðið að boða til ráðstefnu laugar-
daginn 24. september nk. þar sem sér-
staklega verða kvaddir til fulltrúar
kvennasamtaka og stjórnmálaflokka
til að ræða launamál kvenna á vinnu-
markaðnum.
Ráðstefna þessi verður öllum opin
og verður haldin á Hótel Heklu við
Rauðarárstíg í Reykjavík.
I framhaldi af ráðstefnunni verð-
ur síðan skipuð framkvæmdanefnd
sem mun hafa það verkefni að skipu-
leggja aðgerðir og leita leiða til úr-
bóta til að uppræta það misrétti sem
ríkir í launamálum kvenna og karla
á fslandi, segir í fréttatilkynningu
Sambands Alþýðuflokkskvenna.
Náttúruverndarfélag Suðvesturlands:
Skordýraskoðun-
arferð um Reykja-
vík og nágrenni
Ný stjórn
hjá NAN
Á AÐALFUNDI Neytendafélags Akur-
eyrar og nágrennis (NAN) í vor var
kjörin ný stjórn, sem er þannig skipuð:
Arnheiður Eyþórsdóttir formaður,
Margrét Ragúels varaformaður, Sig-
ríður Jóhannesdóttir gjaldkeri, Una
Sigurliðadóttir ritari, Stefán Vil-
hjálmsson meðstjórnandi. Vara-
stjórn skipa Inga Einarsdóttir, Jón
Árnason, Kolbeinn Sigurbjörnsson
og Steinar Þorsteinsson.
í sumar hefur skrifstofa NAN að
Eiðsvallagötu 6 verið opin og hefur
þó nokkuð verið leitað þangað um
ráð og upplýsingar. Nýtt tölublað
NAN-frétta kemur væntanlega út
innan tíðar. Athygli skal vakin á því
að blaðið er eingöngu sent félags-
mönnum.
Sími NAN er 22506 og skrifstofan
er opin þriðjudaga og miðvikudaga
frá kl. 16 til 18. Fréttatilkynning.
f fimmtu laugardagsferðinni á
morgun 6. ágúst, kynnum við skor-
dýr í fyrirhuguðu Náttúru-
gripasafni íslands, dýrasal, en til
þess verðum við að fara út í nátt-
úruna. Við vitum ekki annað en að
þetta sé fyrsta skordýraskoðunar-
ferð fyrir almenning sem farin
hefur verið hér á landi undir leið-
sögn dýrafræðings.
Farið verður frá Norræna hús-
inu kl. 13,30 ekið þaðan að
Náttúrufræðistofnun íslands. Þar
er skoðuð smásýning á skordýrum
sem sett hefur verið upp í tilefni
ferðarinnar.
Fargjald verður 150 kr. og frítt
fyrir börn í fylgd fullorðinna.
Leiðsögumaður verður Erling
Ólafsson dýrafræðingur.
íslensk skordýr
Fræðsluferð Náttúruverndarfé-
lags Suðvesturlands laugardaginn
6. ágúst verður helguð skordýrum
og öðrum smádýrum á landi. Eins
og allir vita, sem lagt hafa leið
sína í sýningarsal Náttúrugripa-
safnsins, er þessum dýrahópi þar
engin skil gerð. Bækur um þessi
smádýr hér á landi eru heldur
ekki fyrir hendi. Það er því eðli-
legt, að almenningur sé ófróður á
þessu sviði. Víða leynist þó áhuga-
neisti, sem á bara erfitt uppdrátt-
ar vegna aðstöðuleysis.
Þær fræðsluferðir, sem farnar
hafa verið, hefur verið reynt að
tengja sýningarsal Náttúrugripa-
safnsins. Þótt smádýrum á landi
séu þar engin skil gerð nú er ljóst,
að það verður gert í „sýningarsal
framtíðarinnar".
Næsta fræðsluferð hefst á
heimsókn á Náttúrufræðistofnun
íslands. Verður þar gerð grein
fyrir hinum ýmsu flokkum smá-
dýra á landi og sýnd eintök úr
safni stofnunarinnar. Síðan verð-
ur farið út og þess freistað að
finna dýrin í sínu rétta umhverfi.
Ræðst það af veðri, hvernig ferð
verður háttað, en dýraskoðun af
þessu tagi er mjög háð veðri. Sér-
staklega er erfitt um vik í rign-
ingu, því að þá verður helsta
hjálpartækið, háfurinn, ónothæft.
Ástæðulaust er að leita langt eftir
smádýrunum, sem eru venjulega
allt í kringum okkur. Farið verður
upp í Öskjuhlíð og hugað að gildr-
um, sem þar hefur verið komið
fyrir, og síðan svipast um eftir
smádýrum. Ef veður leyfir verður
hugsanlega einnig farið í Heið-
mörkina og dýralífið skoðað í
mýrlendi og kjarrlendi við Millu-
tjörn. Þeir sem hug hafa á að
safna dýrum og hafa með sér heim
til nánari skoðunar skulu hafa
með sér dósir. Flísatengur eru
einnig mjög gagnlegar. í ferðinni
verða helstu söfnunaraðferðir
kynntar og einnig hvernig dýrin
verða best varðveitt.
Þótt smádýralíf hér sé fáskrúð-
ugt í samanburði við nágranna-
löndin, þá leynist hér furðu margt.
Er því ekki ólíklegt, að eitthvað
muni koma flestum þátttakenda á
óvart í þessari ferð.
E.Ó.
60.000
verðlækkun
a
F0RD ESC0RT
Nú er tækifæri til aö tryggja sér Ford Escort, mest selda bíl í heimi
árin 1981 og 1982, á ótrúlega hagstæöu veröi.
Hafiö samband viö sölumenn okkar eöa söluumboð okkar strax,
því aöeins fáir bílar eru í boöi.
Sveirrn Egilsson hf,
SKEIFUNNI 17 — SÍMI 85100