Morgunblaðið - 05.08.1983, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1983
21
kjarnyrtur í predikunum og allir
vita út á hvað ræðan gengur, sem
ekki er nú hægt að segja um alla
presta, því miður.
Hæfni mína til að meta prests-
störf þín má að vísu draga í efa,
þar sem ég er ekki ýkja kirkju-
rækinn maður og þú prestur í ann-
arri sókn, en ég hef orð annarra til
að staðfesta mitt mál. Síðan
hlaust þú það virðingar- og sæmd-
arembætti innan kirkjunnar að
vera kosinn prófastur í Húna-
vatnsprófastsdæmi.
Fyrir fáum árum var ég kosinn í
stjórn Sjúkrahúss Hvammstanga.
Þá hófst okkar vinskapur, þó við
höfum vitað hvor af öðrum í tæp-
lega 30 ár, því þar varst þú fyrir
og þar höfum við starfað saman
síðan. í þeirri stjórn gætir oft
nokkurrar óþolinmæði, enda oft
erfitt að skilja tómlæti ráða-
manna gagnvart litlu sjúkrahús-
unum og elliheimilunum úti á
landi, sem á allan hátt eru miklu
ódýrari og manneskjulegri rekstr-
areiningar en stóru stofnanirnar
fyrir sunnan.
Vonandi eigum við enn eftir að
þoka heilbrigðismálunum áfram
og helst með betri árangri en
hingað til, og hver veit nema þá
gefist líka tími til að taka upp
léttara hjal.
Að lokum óska ég og mín fjöl-
skylda þér innilega til hamingju
með daginn og alls hins besta í
framtíðinni og Vígdísi og allri
fjölskyldunni óskum við til ham-
ingju með afmælisbarnið.
Þórður Skúlason,
Hvammstanga
Það er merkisdagur hjá vini
okkar á Tjörn á Vatnsnesi. Hann
fyllir nú sjöunda tuginn í landi
fjær fæðingarstað sínum, landi
sem hann hefur tekið slíku ást-
fóstri við, að hann hefur kallað
föðurland sitt. Engan hefur órað
fyrir því, þegar ungur maður kom
frá Skotlandi til íslands árið 1936
til þess að þjálfa knattspyrnu, að
þjálfarinn myndi setjast hér að og
gerast þjónandi prestur. Honum
þótti landið sérstakt fyrir margra
hluta sakir og fólkið fremur lokað.
Margt var öðruvísi en í Skotlandi
og hér sá hann karlmenn kyssast í
fyrsta skipti. Þetta stakk hann í
augun við fyrstu kynni, en er hon-
um, sem og öðrum Vatnsnesing-
um, nú eðlilegur hluti tilverunnar.
Matarvenjur voru honum fram-
andi og veit ég að það er nýtilkom-
ið sé honum farið að líka við
lambakjötið, nema þá sem hangi-
kjöt. Engum manni sem ég þekki
fykir eins gott að fá það sem við
slendingar köllum „snarl". Hann
segir gjarnan þegar hann kemur í
heimsókn, að hann vilji ekkert til-
stand og bras, heldur hafa þetta
létt og þægilegt og gjarnan vill
hann fylgjast með matseldinni.
Enda þótt margt sé í fari okkar
íslendinga sem honum hefur þótt
framandi í fyrstu, þá hefur honum
farnast vel okkar á meðal. Með
frjálslegri og glaðlegri framkomu
hefur hann átt létt með að um-
gangast fólk og eignast fjölda
vina. Það eru margir sem hafa
sótt hann heim og gestrisni þeirra
Vigdísar á sér fáar hliðstæður.
Þegar við gerðumst nágrannar
þeirra fyrir nokkrum árum þekkt-
umst við ekki, en margar smellnar
sögur höfðum við heyrt af honum.
Ekki þurftum við lengi að bíða
hans, því á fysta kvöldi okkar á
nýjum stað kom hann til okkar
færandi hendi, eins og alla tíð síð-
an. Aldrei fór hann svo út fyrir
landsteina að hann kæmi ekki með
litla vinarkveðju frá því landi er
hann hafði heimsótt. Ef til vill
lýsir þessi siður hans betur þeirri
vináttu sem skapast hafði en mörg
orð, því það mátti finna að hvar
sem hann fór, voru vinir hans
honum ofarlega í huga.
Sr. Róbert er einlægur trúmað-
ur og boðberi kristinnar trúar.
Þetta kemur ekki sist fram á erf-
iðum stundum, þegar starf hans er
að flytja syrgjendum huggunarorð
kristinnar trúar. Honum tekst í
einfaldleika orða sinna, að benda
mönnum á það ljós sem eilíft er,
og hrífa þá með. Þetta veitist
mörgum erfitt, en sr. Róbert segir
sjálfur að þetta sé ekki hann,
heldur máttur trúarinnar sem
honum er falið að boða. Prédikun
hans er með þeim hætti að hún
gleymist seint. Hann flytur boð-
skap sinn með myndrænni frásögri
og oft svo sterkum dæmum að
mönnum hnykkir við þegar þau
eru sögð. En þegar frá líður, finn-
ur maður að það er ekki aðeins
dæmið eitt sem situr eftir í hugan-
um, heldur sá boðskapur sem
hann vildi að næði til þín. Með
sama myndræna málinu er honum
lagið að ná til barna, enda barn-
elskur og ósjaldan bregður hann á
leik með börnum í knattspyrnu.
Sr. Róbert er gamansamur í
meira lagi og hefur yndi af því að
segja smellnar sögur, og þá ekki
hvað síst af sjálfum sér. Hann
hefur frá mörgu að segja og það
þreytist enginn sem tekur sér
ævisögu hans í hönd, en hún kom
út fyrir nokkrum árum.
Við sem hann þekkjum vitum að
það er ekki í anda hans að tíunda
lífshlaup hans í afmælisgrein.
Hann hefur gjarnan talað um
kollega okkar sem minnst hefur
verið á merkisdegi, sem „heitinn“
og talað um skemmtilegar minn-
ingagreinar. Þarna kemur kímni
hans vel í ljós, enda er það eigin-
leiki hans að hafa yndi og ánægju
af tilverunni allri. Við biðjum
hann því að sjá í gegnum fingur
við okkur þegar hann les þessar
línur.
Vinarkveðjur frá Akureyri.
Unnur, Pálmi og
Hanna María.
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Vélamaður og
verkamenn
óskast strax. Upplýsingar í síma 50877.
Loftorka.
Trésmiður
Keflavík
Blaöbera vantar í vesturbæ.
Upplýsingar í síma 1164.
íþróttakennarar
íþróttakennara vantar að grunnskólanum
Blönduósi. Umsóknarfrestur til 10. ágúst.
Upplýsingar gefur Björn Sigurbjörnsson
skólastjóri í síma 95-4114.
Skólanefnd.
Kennarar
Vanur trésmiöur óskast strax.
Upplýsingar í síma 44846 eftir kl. 7 á kvöldin.
Kennari í
rafeindavirkjun
Viö Iðnskólann í Hafnarfiröi vantar kennara til
að kenna verklegt og bóklegt í rafeindavirkj-
un.
Upplýsingar í síma 51490 eöa 40692.
Konur í Garðabæ
sem hugsa sér aö taka börn í heimagæslu
eru vinsamlega beönar aö hafa samband
sem fyrst viö skrifstofu félagsmálaráös
Garðabæjar í Sveinatungu, sími 45022.
Félagsmálafulltrúi.
Hjúkrunar-
fræðingar
Staöa hjúkrunarforstjóra viö Heilsugæslu-
stööina á Sauðárkróki er laus til umsóknar.
Staðan verður veitt frá 1. október 1983.
Eftirtaldar stööur eru lausar til umsóknar nú
þegar:
1. 50% staöa hjúkrunarfræðings við Heilsu-
gæslustöðina í Asparfelli 12, Reykjavík.
2. 60% staöa hjúkrunarfræðings viö Heilsu-
gæslustööina í Árbæ, Reykjavík.
3. 50% staöa hjúkrunarfræðings viö Heilsu-
gæslustöö Miöbæjar, Reykjavík.
4. 50% staða hjúkrunarfræðings við Heilsu-
gæslustöðina á Seltjarnarnesi.
5. 50% staða hjúkrunarfræðings viö Heilsu-
gæslustööina í Vík í Mýrdal.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf viö hjúkrun, sendist heilbrigöis-
og tryggingamálaráöuneytinu fyrir 1. sept-
ember 1983.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið,
2. ágúst 1983.
Kennara vantar að grunnskóla Hvamms-
tanga. Aðalkennslugreinar: íslenska og raun-
greinar eldri bekkja. Gott húsnæöi.
Uppl. gefa Flemming í síma 95-1440 og 95-
1367, Guörún í síma 95-1441 og Egill í síma
95-1358.
Pípulagninga-
meistari óskast
Þarf aö geta hafið störf eigi síöar en 1. sept.
1983.
Upplýsingar í síma 95-1593.
Atvinna
Okkur vantar 2—3 duglega og reglusama
menn í hreinlega vinnu. Góö laun í boöi fyrir
réttu mennina. Æskilegur aldur 20—30 ár.
Þeir sem hafa áhuga sendi umsókn er greini
nafn, aldur og fyrri störf til afgreiðslu blaðs-
ins fyrir 6. ágúst merkt: „Reglusemi — 8179“.
8179“.
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
FREEPORT
KLÚBBURINN
Freeport-klúbburinn
minnir á Þórsmerkurterölna
12.—14. ágúst nk. Þeir sem enn
hafa ekki tilkynnt þátttöku, þurfa
aö gera þaö fyrir mánudags-
kvöld 8. þ.m. í síma 26088.
Nefndin
FERÐAFELAG
ÍSLANpS
ÖLDUGÓTU 3
SÍMAR 11796 og 19533.
Helgarferöir
5.-7. ágúst:
V Alftavatn — Hólmsárbotnar.
Gist í sæluhúsi vlö Alftavatn.
2. Þórsmörk. Glst í Skagfjörös-
skála i Langadal.
3. Landmannalaugar — Eldgjá
Gist í húsi.
4. Hveravellir — Þjófadalir.
Gist i húsi.
Brottför I allar feröirnar kl. 20.
föstudag. Farmiöasala og allar
upplýsingar á skrifstofunni,
Öldugötu 3.
Feröafélag Islands.
ÚTIVISTARFERÐIR
Dagsferðir
Laugardagur 6. ágúat kl. 09.00:
Vigsluhátíó i Básum. 5—6 tima
stans í Þórsmörkinni. Verö kr.
400.
Sunnudagur 7. ágúst
Kl. 08.00 Þórsmörk. Verö kr.
400. Papahellar aö Ægissíöu
skoöaöir á heimlelö.
Kl. 13:00 Húsltólmi — Gamla
Krisuvík. Verö kr. 250. Frítt f.
börn. Brottför frá bensínsölu
BSÍ. SJáumstl
Útlvlst
ÚTIVISTARFERÐIR
Vígsluhátíð í Básum
6.—7. ágúst
Útivistarskálinn formlega opn-
aóur. Nú mætir allt Útivlstarfólk.
Brottför kl. 09.00 á laugar-
dagsmorgun Ath. verð aöeins
kr. 450. Kaffiveitingar innifaldar.
Ekta Utivistardagskrá. Þetta er
einmitt líka ferö fyrir þig. sem
ekki hefur feröast meö Útivist
fyrr. Bjar*- tramundan. Sjáumst
öll.
Upplysingar og farmiöar á
skrifstofunni Lækjargötu 6a,
sími 14606. (Simsvari). Sjáumst.
Útivist.
ÚTIVISTARFERÐIR
Helgarferð 5.—7. ágúst
Eldgjá — Landmannalaugar
(hringferö). Gist í húsi.
Sumarleyfisferðir:
1. Vatnajökull — Kverkfjöll.
Ævintýraleg snjóbílaferð fyrir
alla. Elnnig fariö i Mávabyggöir
(Öræfajökull ef veöur leyfir). Þrír
dagar á jökli. Gist í Kverkfjalla-
skála. Hægt aö hafa skiöi. Jökla-
ferðir 7.—9. ágsut og 14.—16.
ágúst. Aöeins 12 sæti.
2. Lakagígar 5.—7. ágúst. Skatt-
áreldar 200 ára Brottför kl.
08 00. Svefnpokagisting aö
Klaustri.
3. Eldgjá — Strútslaug —
Þórsmörk 8. —11. ágúst. 7 dag-
ar. Skemmtileg bakpokaferö.
4. Þjórsárver — Arnartell hiö
miklaÆ —14 ágúst. Góö bak-
pokaferö. Fararstj. Höröur Krist-
insson, grasafræöingur.
5. Þórsmörk. Vikudvöl eöa Ví
vika í góöum skála í Básum.
Upplýsingar og farmiöar á
skrifstofunni, Lækjargötu 6a,
simi 14606. (Simsvari). Sjáumst.
Utivist
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR 11798 og 19533.
Dagsterðir
Ferðafélagsins.
Laugardaginn 6. ágúst kl. 08.
Söguferö austur undir Eyjafjöll.
J Verö kr. 500.
Sunnudaginn 7. ágúst.
1. kl. 08 Bláfell — Bláfellsháls.
Verö kr. 400.
Hveravellir. Verö kr. 600.
2 kl. 13. Tröllafoss — Hauka-
fjöll. Verö kr. 200.
Brottför frá Umferöarmiöstöö-
inni, austanmegin. Farmiöar viö
bíl. Fritt fyrir börn i fylgd tullorö-
inna
Feröafólag Islands.