Morgunblaðið - 05.08.1983, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1983
5
Guðlaugur Guðmundsson SH 97, en þetta glæsilega skip bætist nú í
flota Vestmannaeyja.
Guölaugur Guðmundsson SH
keyptur til Vestmannaeyja
EITT nýjasta og fullkomnasta skip íslenzka flotans, Guðlaugur
Guðmundsson SH 97, hefur verið keypt til Vestmannaeyja og verð-
ur það afhent þangað á næstu dögum. Skipið, sem er 160 lestir að
stærð, er eins árs, en það var smíðað hjá Skipasmíðastöð Marselí-
usar Bernharðssonar á ísafirði. Skipið er tveggja þilfara, smækkuð
mynd af skuttogara og gert fyrir tog, neta- og línuveiði. Guðlaugur
Guðmundsson var gerður út frá Vestmannaeyjum sl. vetur og afl-
aði vel. Kaupendur eru ísfélag Vestmannaeyja, Bergur-Huginn og
aflaklóin Logi Snædal Jónsson skipstjóri. Kaupverð skipsins er 97
milljónir króna.
Takmörk fyrir flutningi
milli greina og landshluta
— segir Ólafur G. Einarsson alþingismaður um ráðstöfun gengismunar
„ÉG GET tekið undir allt, sem Eð-
varð Júlíusson sagði í Morgunblað-
inu í gær. Ég tel aö hann hafi full
rök fyrir því, sem hann segir þarna
og er honum sammála. Ég held að
það sé kominn tími til að við snúum
við á þeirri braut, sem við höfum
gengið í sambandi við gengismun-
arsjóðinn og ætlast til þess af þess-
ari ríkisstjórn, að hún taki tillit
þeirra aðstæðna, sem nú ríkja, bæði
að því er varðar skreiðina og sér-
staklega saltfiskinn, þar sem ástand-
ið er ekki allt of gott,“ sagði Ólafur
G. Einarsson, alþingismaður, er
Morgunblaðið innti hann álits á
hugmyndum um ráðstöfun gengis-
munar og orðum Eðvarðs Júlíusson-
ar í Grindavík í Morgunblaðinu í
gær.
„Ég tel einnig að það séu tak-
mörk fyrir því hvað mikið sé hægt
að flytja á milli bæði greina í sjáv-
arútvegi og ég tala nú ekki um
milli landshluta. Eins og Eðvarð
segir er mun skynsamlegra að
leggja í verðjöfnunarsjóð en að
vera með svona tilfæringar og ég
held að það sé alveg óhætt að
segja að Suðurnesin hafa ekki tek-
ið þátt í þessu fjárfestingarkapp-
hlaupi eins og sums staðar annars
staðar hefur átt sér stað. Ég held
það sé einnig óhætt að segja að
fjárfesting í saltfiskverkuninni
hefur verið miklu minni en í öðr-
um greinum eins og frystingu og
togarakaupum. Að því leyti eiga
Suðurnesjamenn mjög erfitt með
að sætta sig við svona tilflutning á
fjármagni," sagði Ólafur G. Ein-
arsson.
w
Akærður fyrir fjárdrátt
RÍKISSAKSÓKNARI hefur gefið út ákæru á hendur fyrrverandi fræðslustjóra í
Vestfjarðaumdæmi. Maðurinn er ákærður fyrir fjárdrátt og skjalafals í starfi sínu
á árunum 1976—1982 og er afbrot hans talið varða við ákvæði almennra hegn-
ingarlaga. Málið er höfðað fyrir Sakadómi Kópavogs, en þangað er sakborningur
nýlega fiuttur.
Nýr fræðslustjóri í Vestfjarða-
umdæmi hefur verið settur á meðan
málarekstur stendur yfir fyrrver-
andi fræðslustjóra, sem hefur verið
vikið frá störfum um sinn. Hann
heitir Ingólfur Ármannsson og hefur
gegnt fræðslustjórastöðu í Norður-
landsumdæmi eystra undanfarin tvö
ár meðan Sturla Kristjánsson,
fræðslustjóri þar, hefur verið í leyfi
frá störfum.
Bókauppboð
í Klaustur-
hólum
LISTMUNAUPPBOÐ nr. 111 á veg-
um Guðmundar Axelssonar í Klaust-
urhólum fer fram laugardaginn 6.
ágúst klukkan 14.00 að Klausturhól-
um, Skólavörðustíg 6b. Boðnar
verða upp bækur og verða þær til
sýnis að Skólavörðustíg 6b Tóstudag-
inn 5. ágúst klukkan 13.00 til 18.00.
Meðal margra verka sem boðin
verða upp má nefna bækurnar Ný-
ársgjöf handa börnum eftir Jó-
hann Halldórsson, sem gefin var
út í Kaupmannahöfn 1841; Stutt
undirvísun í Reiknislistinni og Al-
gebra. Samantekin og útgefin
handa Skóla-lærisveinum og öðr-
um unglingum á íslandi. Kaup-
mannahöfn 1785; Voyage en Is-
lande et au Groenland eftir Paul
Gaimard. Atlas historique. Paris.
Ljósprentað. Reykjavík 1967; For-
ordning om Kirckens Embede og
Möndighed mod ubodferdige Samt
om Atskillige Geistlighedens For-
hold. Kiöbenhaffn 1629; Sigfús
Sigurðsson. Fingramálsstafróf.
Akureyri 1857; Jón Espólín. ís-
lands árbækur í sögu-formi.
I.—XII. deild og Regist. Kaup-
mannahöfn 1821 til 1833. Ljós-
prentað. Reykjavík 1943—1947;
Þormóður Torfason. Historia
rerum Norvegicarum. I—IV.
Hafniae 1711.
Ferð aldr-
aðra í Hall-
grímssókn
llallgrímskirkja: Á vegum starfs
aldraðra í Hallgrímskirkju, verður
farið í ferð til Austurlands, dagana
17—20 ágúst. Farið verður með flugi
austur og gist á hóteli á Egilsstöðum.
Þaðan verður svo farið í bílferðir um
nágrcnnið m.a í Borgarfjörð—Eystra
og kringum Löginn. Ferðin kostar
5.000 krónur og er innifalið í því
verði flug fram og til baka, gisting,
matur og bílferðir.
Upplýsingar veitir Dómhildur
Jónsdóttir safnaðarsýstir og þurfa
pantanir að hafa borist henni í
seinasta lagi laugardaginn 6.
ágúst.
Sú sem allir hafa
beöiö eftir
hefst
í sex verslunum samtímis
Nú gefst tækifæri til að fá topp sumarvörur
um hásumar.
(ÍEíjl KARNABÆR
\eíu
LAUGAVEGI 66 - AUSTURSTR/ETI 22
SlMI FRA SKIPTIBORÐI 85055
L«ugav*gi 20. Simi tré akiptiborði 850S5.
Austurstræii 22 Simi trá skiptiboröi 85055
Austurstrntl 22