Morgunblaðið - 05.08.1983, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 05.08.1983, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1983 11 konar vörur hafa verið fáanlegar fyrir á heimsmarkaðinum. Þegar mikill olíuskortur var á Vestur- löndum árið 1974 vegna af- greiðslubanns Arabaríkja, bitnaði það alls ekki á okkur. Árið 1982 komu 66% af olíuvöruinnflutn- ingnum frá Sovétríkjunum. Hefur orðið mikill samdráttur í gasolíu- kaupum vegna minnkandi inn- fiutningsþarfa og aukinna kaupa frá öðrum löndum. Það hefur ver- ið mikið hagsmunamál fyrir okkur að fá alla svartolíu afgreidda frá Sovétrikjunum, sem vegna sér- stakra gæða er notuð af meiri- hluta togaraflotans í stað miklu dýrari gasolíu. Olíukaupin eru nú eins og áður tvímælalaust for- senda fyrir hinum víðtæku við- skiptum. Viðskiptabókanir I upphafi gilti viðskiptasamn- ingurinn frá 1953 aðeins í 2 ár, en hann hefur síðan verið framlengd- ur fyrst í önnur 2 ár, síðan nokkr- um sinnum í 3 og 4 ár, en síðan 1975 hefur gildistíminn verið framlengdur í 5 ár í senn. Um leið og samningurinn hefur verið framlengdur, hefur verið samið um nýja vörulista með kvótum sem gilda fyrir næsta samnings- tímabil. Slíkt samkomulag, sem nefnt hefur verið Bókun (Protocol) um viðskipti, er í reynd sá samn- ingur sem viðskiptin miðast við. Gamli viðskiptasamningurinn hefur tekið miklum breytingum. Árið 1975 var samið um að fella niður jafnkeypi, þannig að frá 1. janúar 1976 hafa viðskiptin farið fram í frjálsum gjaldeyri, venju- lega Bandaríkjadollurum. Þurfti þá að greiða skuldina sem hafði myndast á jafnkeypisreikningn- um, einkum eftir að olíuverð hækkaði 1973. Breytingin á greiðslufyrirkomulaginu var gerð samkvæmt eindreginni ósk Rússa og vakti hún nokkurn ugg um að hún mundi torvelda sölu íslenskra afurða til Sovétríkjanna. Til þess að draga úr þessari hættu var samkomulag um að halda áfram að semja um vörulista með kvót- um sem væru vísbending um árleg vörukaup á samningstímabilinu. Reynslan hefur sýnt, að breyting- in á greiðslufyrirkomulaginu hef- ur ekki orðið til þess að draga úr viðskiptunum. Er síðast var samið um viðskiptin fyrir árin 1981— 1985 var gert ráð fyrir verulega aukinni sölu á íslenskum afurðum. Á síðustu 3 árum hefur sala á freðfiskflökum verið tvisvar sinn- um meiri að magni en hún var á næstu árum á undan og sala á saltsíld þrisvar sinnum meiri. Miklu máli skiptir að auka enn frekar sölu þessara vara og ann- arra til Sovétríkjanna. Viðskipta- viðræðurnar, sem fram eiga að fara í Moskvu í ágústlok, munu að verulegu leyti snúast um þessi mál. Lokaorð I þessu yfirliti hefur verið reynt að gera grein fyrir viðskiptunum við Sovétríkin síðustu 30 árin og þýðingu þeirra fyrir efnahagslífið. Yfirleitt hefur ríkt einhugur með- al þjóðarinnar um afstöðu til þess- ara viðskipta. Það ætti ekki að vera ágreiningsefni að við eigum að selja framleiðslu okkar til þeirra markaða sem hagkvæmast- ir eru á hverjum tíma, án tillits til stjórnarfars og efnahagskerfis í viðskiptalöndunum. Þetta hefur verið stefna allra ríkisstjórna. Á 50 ára afmæli rússnesku bylt- ingarinnar skrifaði dr. Oddur Guðjónsson, fyrrum sendiherra, sem manna best þekkir viðskiptin við Sovétríkin, grein í Morgun- blaðið um viðskipti Islands og Sovétríkjanna og sagði þar meðal annars: „Komið hefur í ljós, að þessi viðskipti eru sönnun þess, að þjóð- ir með ólíkt stjórnarfar og efna- hagskerfi geta með góðu móti átt samskipti á sviði viðskipta- og menningarmála báðum aðilum tii gagns og farsældar." I>órhallur Ásgeirsson er ráduneyt- isstjóri í iðnaðarráðuneytinu. SSM! ERIÍENDUM LOUJíaíIÆ AMERÍKA PORTSMOUTH/ NORFOLK City of Hartlepool Bakkafoss City of Hartlepool Bakkafoss NEW YORK City of Hartlepool Bakkafoss City of Hartlepool Bakkafoss HALIFAX City of Hartlepool City of Hartlepool BRETLAND/ MEGINLAND IMMINGHAM Eyrarfoss Alafoss Eyrarfoss FELIXSTOWE Vessel Eyrarfoss Álafoss Eyrarfoss ANTWERPEN Vessel Eyrarfoss Álafoss Eyrarfoss ROTTERDAM Vessel Eyrarfoss Alafoss Eyrarfoss HAMBORG Vessel Eyrarfoss Álafoss Eyrarfoss WESTON POINT Helgey Helgey LEIXOES Skeiðsfoss BILBAO Skeiösfoss Skeiösfoss NORÐURLÖND/ EYSTRASALT 2. ágúst 12. ágúst 23. ágúst 2. sept. 1. ágúst 11. ágúst 22. ágúst 1. sept. 4. ágúst 25. ágúst 14. ágúst 21. ágúst 28. ágúst 8. ágúst 15. ágúst 22. ágúst 29. ágúst 9. ágúst 16. ágúst 23. ágúst 30. ágúst 10. ágúst 17. ágúst 24. ágúst 31. ágúst 11. ágúst 18. ágúst 25. ágúst 1. sept. 18. ágúst 30. ágúst 6. sept. 8. ágúst 4. sept. BERGEN Mánafoss 29. júlí Dettifoss 5. ágúst Mánafoss 12. ágúst Dettifoss 19. ágúst KRISTIANSAND Mánafoss 1. ágúst Dettifoss 8. ágúst Mánafoss 15. ágúst Dettifoss 22. ágúst MOSS Mánafoss 2. ágúst Dettifoss 5. ágúst Mánafoss 16. ágúst Dettifoss 19. ágúst HORSENS Dettifoss 10. ágúst Dettifoss 24. ágúst GAUTABORG Mánafoss 3. ágúst Dettifoss 10. ágúst Mánafoss 17. ágúst Dettifoss 24. ágúst Mánafoss Dettifoss Mánafoss Dettifoss HELSINGJABORG 4. ágúst 11. ágúst 18. ágúst 25. ágúst Mánafoss 5. ágúst Dettifoss 12. ágúst Mánafoss 19. ágúst Dettifoss 26. ágúst HELSINKI irafoss 22. ágúst írafoss 17. sept GDYNIA írafoss 26. ágúst ÞÓRSHÖFN Dettifoss 20. ágúst VIKULEGAR STRANDSIGLINGAR -fram ogtil baka frá REYKJAVÍK alla mánudaga frá ÍSAFIRÐI alla þriðjudaga frá AKUREYRI alla-fimmtudaga EIMSKIP *

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.