Morgunblaðið - 05.08.1983, Síða 14

Morgunblaðið - 05.08.1983, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1983 KGB rær á borð með friðarsinnum Ix>rtnet i þaki sovézka sendiráösins í Kaupmannahöfn. Mynd af danska rithöfundinum Arne Petersen er innsett. YFIRVÖLD í Danmörku og Sviss og víðar hafa á undanförnum tveim- ur árum flett ofan af tilraunum út- sendara sovézku leyniþjónustunn- ar, KGB, til að hafa áhrif á friðar- hreyfinguna í Evrópu og koma í veg fyrir staðsetningu meðaldrægra eld- flauga í NATO-rfkjunum síðar á þessu ári. Fullyrðingar þessar koma fram í grein, sem blaðamaður við New York Times, John Vinocur, reit nýlega. I greininni segir Vinocur m.a.: „Sérfræðingar við leyniþjónustur á Vestúrlöndum eru reiðubúnir að fallast á að hundruð þúsunda manna berjist gegn kjarnorku- vopnum án þess að sovézka leyni- þjónustan eigi þar nokkurn hlut að máli. Friðarhreyfingin er ekki tilbúningur Sovétmanna heldur er hún þeim óvenjulegt tilefni til að gefa áróðursfíkn sinni lausan tauminn." Síðar segir greinarhöf- undur: „í Evrópu, segja sérfræð- ingarnir, eru það kommúnista- flokkar viðkomandi landa, sem sjá að mestu um að hafa áhrif á friðarhreyfinguna. Áhrif Sovét- manna eru fyrir hendi, segja þeir, en í mörgum tilvikum er hér um algerlega löglegar aðgerðir að ræða. Er þannig engin ástæða fyrir sovézku leyniþjónustuna, KGB, til að beita sér þar sem kommúnistaflokkar viðkomandi landa hlíta leiðsögn Alþjóða- deildar Sovézka kommúnista- flokksins, en sú deild hefur náið samband við KGB.“ Blaðamaðurinn nefnir síðan nokkur dæmi: Öryggismáladeild hollenzka ríkisins hefur sýnt fram á að Alþjóðadeild Sovézka kommúnistaflokksins og hol- lenski kommúnistaflokkurinn höfðu samvinnu um að reyna að móta skoðanir hollenzku kirkj- unnar í kjarnorkumálum. Sovézk- ur sendiráðsritari var árið 1981 rekinn frá Danmörku sakaður um njósnir. í ljós kom að ritarinn, Vladimir Merkulov, hafði ráðið danskan rithöfund og blaðamann, Arne Petersen, í þjónustu sína. Petersen var m.a. falið að skrifa áróðursgreinar í blöð og bauðst Merkulov til að borga fyrir birt- ingu stuðningsyfirlýsingar um kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd, sem kunnir danskir rithöfundar og listamenn undirrituðu. í Sviss lokuðu yfirvöld skrifstofu Nov- osti-fréttastofunnar í Bern í apríl eftir að í ljós kom að skrifstofan var skipulagsmiðstöð fyrir frétta- rangfærslur, mótmælagöngur og fleira. Fréttastofan hafði t.d. skipulagt mótmælagöngur gegn stefnu Bandaríkjanna á Karíba- hafi og í Mið-Ameríku. Sovézkur sendiráðsfulltrúi, Leonid Ovchunnikov, sem hafði yfir- umsjón með fréttaþjónustunni, var rekinn úr landi. Vinocur vitnar í ummæli KGB-mannsins Stanislav Lev- chenko, sem flýði til Bandaríkj- anna 1979, í þá átt að Sovétmenn hafi eytt u.þ.b. 200 milljónum dollara í áróðursbaráttu gegn nifteindasprengjunni í Evrópu. Ekki hefur tekizt að fá áreiðan- legar heimildir fyrir þeim upp- hæðum, sem Sovétmenn eyða á friðarhreyfinguna í Evrópu, en e.t.v. er það nokkuð til marks um þær fúlgur, sem um er að ræða, að Sovétmenn eyða meira en 300 milljónum á „Heimsþing friðar- ins“ að áliti bandarísku leyni- þjónustunnar. „Bann-Svíar“ endanlega orðnir brjálaðir, segja Danir: Vilja leyfi fyrir sandkastölum EINS og fram hefur komið í fréttum deila Svíar og Danir nú ákaft um svæði nokkurt í Kattegat, sem báðar þjóðirnar gera tilkall til. Þjóðunum ber þó margt fleira á milli og að undanförnu hafa breiðsíðurnar ekki verið sparaðar í sænsku og dönsku blöðunura. Svíum fínnst allt ömur- legt í hinni flötu Danmörk og Danir segja á móti margar hryllingssögur af sænsku ríkisforsjánni og afskipta- seminni, sem lætur sér ekkert óvið- komandi, hvorki á himni né jörðu. Eftirfarandi frétt birtist í danska blaðinu BT 2. ágúst sl. og er augljóst af henni, að þarna þykjast Danir heldur betur hafa komist í feitt. „Bann-Svíar“ (eins og Danir kalla þá) hafa nú tekið það til al- varlegrar athugunar að krefjast byggingarleyfis fyrir sandköstul- um á ströndinni. Hingað til hafa krakkarnir algjörlega eftirlits- laust — án teikninga og opinberra leyfa — farið sínu fram og hrófað upp sandköstulum, sem ekki hafa lotið neinum reglugerðum öðrum en þeirra eigin ímyndunarafli, en nú er mál að linni. Raunar er mál- ið svo alvarlegt, að það er ekki einu sinni vitað til að hið opinbera hafi gefið frá sér hinar minnstu upplýsingar um hvernig staðið skuli að þessum framkvæmdum. í sænska blaðinu Laholms Tidn- ing varar yfirmaður náttúru- verndarinnar í Hallandsléni, Olve Olsson, alvarlega við stjórnlaus- um sandkastalabyggingum á ströndinni. „Við getum ekki lengur brugðið kíkinum fyrir blinda augað hvað sandkastalana varðar," segir emb- ættismaðurinn í viðtali við blaðið en fyrirsögnin, sem er upp á átta dálka, hljóðar þannig: „Er þörf á byggingarleyfi fyrir sandköstui- um?“ „Einhverjum kann að finn- ast þetta skrýtið og vera bara ein- hver brandari um kerfið en svo er alls ekki,“ segir Laholms Tidning. Olve Olsson, náttúruverndarfor- stjóri, hefur áhyggjur af litlu krökkunum, sem klifrast yfir kletta og klungur með skóflu og fötuna sína að vopni. „Lítil hola getur orðið að stórri holu þegar haustrigningarnar ganga í garð,“ segir OÍsson og óttast um framtíð sænsku strandanna ef ekki verður gripið í taumana í tæka tíð.“ BT gefur lesendum sínum, Dön- um, að lokum nokkur heilræði ef þeir skyldu hafa í hyggju að fara í sumarleyfi til Svíþjóðar á næsta ári: „Sendið fyrst umsókn fyrir kastalabyggingu á ströndinni i þremur eintökum og takið þar fram áætlaða stærð, innan- og utanmál og fyrirhugaða brúkun á sænskum sandi." Bylting í íran í undirbúningi París, 4. ájrúfrt. AP. TALSMAÐUR Mujahadeen-skæruliAanna, sem berjast gegn klerkastjórninni í íran, tilkynnti í París í dag, aA á einu ári hefðu 2.800 „leiguþý kúgunarstjórnarinn- ar“ veriA drepin og aA í undirbúningi væri allsherjaruppreisn í landinu við fráfall Khomeinis, sem hann sagði ekki mundu dragast lengi úr þessu. Skyldi þessi litli strákur vera inn út á glapstigu eða hefur kannski byggingarleyfi fyrir kastalanum? Talsmaðurinn sagði, að jafnvel þótt Khomeini lifði enn í nokkur ár, gæti ekkert komið í veg fyrir efna- hagslegt hrun í íran af völdum óstjórnarinnar og stríðsrekstursins gegn Irökum. Framleiðslutæki þjóð- arinnar væru flest komin í niður- níðslu, olíuútflutningurinn óveru- legur og unnið væri dag og nótt í prentsmiðjum stjórnarinnar við að prenta seðla, sem engin verðmæti væru á bak við. Mujahadeen-skæruliðar halda því fram, að á tímabilinu 20. júní 1982 til jafnlengdar í ár hafi þeir fellt Vestur-Þýskaland: Jós blóði yfír banda- rískan hershöfðingja Wiesbaden, 4. ágúst. AP. SAKSÓKNARINN í Wiesbaden í Vestur-Þýskalandi tilkynnti í dag, að ákveðið hefði veriA að höfða mál á hendur róttækum stjórnmálamanni úr flokki græningja, Schwalba-Hoth að nafni, sem sl. miðvikudag jós blóði yfir banda- rískan hershöfðingja. Vildi hann með því sýna í verki friðarást sína og mann- kærleika og hefur flokkur hans nú lagt blessun sína yfir þessa baráttuaðferð. Atburðurinn átti sér stað þegar is. Nærstaddur Bandaríkjamaður þingið í Hessen hafði boð inni fyrir 50 foringja úr Bandaríkjaher og eiginkonur þeirra, en Schwalba- Hoth er þingmaður fyrir flokk græningja, sem hafa umhverfis- vernd og baráttuna gegn Atlants- hafsbandalaginu efst á sinni stefnuskrá. Hershöfðinginn, sem fyrir árásinni varð, Paul Williams, var að flytja þakkarræðu fyrir hönd landa sinna þegar Schwalba- Hoth ruddist fram, bölvandi og ragnandi og hellti yfir hann blóði úr flösku, sem hann hafði meðferð- kom Williams strax til hjálpar, sneri Schwalba-Hoth í gólfið og var hann síðan leiddur út úr húsinu af lögreglumönnum. Schwalba-Hoth kom aftur í þing- ið í dag, en þegar hann ætlaði að taka til máls gengu næstum allir þingmenn kristlegra demókrata og jafnaðarmanna af þingi í mót- mælaskyni við skammarlega fram- komu hans. Saksóknarinn í Wies- baden tilkynnti svo í dag, að Schwalba-Hoth yrði kærður fyrir líkamsárás og hneykslanlega fram- 2.800 embættismenn og hermenn klerkastjórnarinnar og að nú eigi „Khomeini og hans lýður ekki önnur ráð í pokahorninu en nýjar hreins- anir, fleiri aftökur og að lokum hrun“. Segjast Mujahadeen-skæru- liðarnir nú aöeins bíða dauða höfuð- klerksins og þá muni þeir taka völd- in í landinu í sínar hendur. Talsmaður íranska sendiráðsins í París vildi ekkert um þetta mál segja, kvað hann franstjórn ekki leggja í vana sinn að svara „hryðju- verkamönnum". komu og að hann gæti búist við sektum og tveggja ára fangelsi ef hann yrði sekur fundinn. Talsmaður flokks græningja sagði í gær, að ekkert væri athuga- vert við þessa baráttuaðferð. Schwalba-Hoth hefði hellt yfir bandaríska hershöfðingjann sínu eigin blóði og að það væri „tákn- rænt fyrir stefnu Bandaríkja- manna í hermálum". Græningjar eru fremstir í flokki þeirra, sem berjast gegn Atlantshafsbandalag- inu og áætlun þess um að koma fyrir kjarnorkueldflaugum í Vestur-Evrópu. Eiga þær að vega upp á móti þeim flaugum, sem Rússar hafa um nokkurt árabil beint að álfunni vestanverðri. Margaret Thatcher: Aðgerðin heppnaðist Wind.sor, 4. ágúst. AP. RICHARD Packerd, sem stjórnaði augnuppskurðinum á Margréti Thatcher, segir að aðgerðin hafi hcppnast fullkomlega og frú Thatch- er leiki við hvern sinn fingur. Forsætisráðherrann var mrð rifna vothimnu á hægra auga og geislameðferð heppnaðist ekki. Frú Thatcher reyndi að leyna því hvað væri á seyði og hvar hún væri niður komin. Packerd læknir segir að það geti tekið frú Thatcher allt að mánuð að fá fullan bata. Fyrst um sinn mun frú Thatcher spóka sig meö sólgleraugu. JERLENT,

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.