Morgunblaðið - 05.08.1983, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 05.08.1983, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1983 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. ÁGÚST 1983 17 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 230 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 18 kr. eintakiö. „Alþingi götunnar“ ótt ríkisstjórnin hafi lát- ið undir höfuð leggjast að kalla alþingi saman til fundar í sumar, afsakar það á engan hátt hvatningu Savars Gestssonar, formanns Al- þýðubandalagsins, um að „hið beina og milliliðalausa lýð- ræði láti til sín taka“, eins og hann orðar það hér í Morgun- blaðinu í gær. Segir Svavar að með þessu sé hann að hvetja fólk til þess „að hrista af sér þessa mannréttindasviptingu sem felst í bráðabirgðalögun- um“. Og hann bendir á þá leið að þetta verði gert með „afli fjöldans". Menn eru ýmsu vanir í slag- orðaflaumi Svavars Gestsson- ar og fæst af því sem hann segir er ástæða til að taka al- varlega þegar bornar eru saman yfirlýsingar hans og athafnir sem ráðherra. Tvö dæmi: 14 sinnum stóð hann að kjaraskerðingu með lögum og í ráðherratíð hans urðu fram- kvæmdir í þágu varnarliðsins hinar mestu á einu ári í ís- landssögunni. Hitt getur þó enginn látið sem vind um eyru þjóta þegar formaður stjórn- málaflokks í lýðræðisríki gengur fram fyrir skjöldu og hvetur beinlínis til þess að stjórnarskrá og lýðræðislegir stjórnarhættir séu látnir víkja og ofbeldi skuli beitt til að brjóta á bak aftur ákvarð- anir sem teknar eru af réttum aðilum með lögformlega rétt- um hætti. Sumir yppta vafalaust öxl- um yfir þessari hvatningu formanns Alþýðubandalags- ins um að „alþingi götunnar" taki við af alþingi ísiendinga, að vilji kjósenda í nýlegum kosningum verði að engu hafður og í hans stað ráði hnefarétturinn. Samhliða verðfalli á krónunni hefur gengið lækkað á orðum stjórnmálamanna á borð við Svavar Gestsson og vaðallinn fer inn um annað eyrað og út um hitt hjá öllum þorra fólks. En stundum er þó ástæða til að staldra við og spyrja: Mein- ar maðurinn það sem hann er að segja? Telur Svavar Gestsson það þjóðinni raun- verulega fyrir bestu núna að ofbeldi sé beitt gegn lands- stjórninni? Sé stefnuskrá Alþýðu- bandalagsins lesin kemur í ljós að þessi flokkur byggir baráttu sína á hugmynda- fræðilegu gjalþrotabúi Marx og Leníns. Markmið flokksins er að „ná úr höndum borgara- stéttarinnar helstu valdamið- stöðvum þjóðfélagsins" og það ekki aðeins eftir friðsamleg- um leiðum. í stefnuskrá Al- þýðubandalagsins kemur fram tortryggni í garð hins „þingbundna fulltrúalýðræð- is“ þar sem margt sé því til fyrirstöðu að það „geri vilja og fullveldi almennings að veruleika" og alþingi er lýst sem „eins konar afgreiðslu- stofnun í höndum ríkisstjórn- ar“ og síðan segir: „Allt um augljósar veilur þingræðisins sem raunverulegs lýðræðis- stjórntækis hefur borgara- stéttinni tekist að einskorða stjórnmálabaráttuna að miklu leyti við þingkosningar og undirbúning þeirra." Hvatningu og hótanir Svav- ars Gestssonar um valdbeit- ingu í nafni „alþingis götunn- ar“ verður að skoða í ljósi þess að Alþýðubandalagið er stjórnmálaflokkur sem lítur ekki endilega svo á að í þing- kosningum sé ákveðið hverj- um trúað skuli fyrir stjórn landsins. Alþýðubandalagið telur að með ofbeldi kunni að vera réttlætanlegt að „ná úr höndum borgarastéttarinnar helstu valdamiðstöðvum þjóð- félagsins". Blóðug bylting er sem sé ekki útilokuð af Al- þýðubandalaginu sem leið að því markmiði að hin nýja stétt þess með Svavar Gests- son í fararbroddi geti setið í ráðherrastólum til eilífðar- nóns. Frýjunarorð Svavars Gestssonar um „alþingi göt- unnar“ má almenningur ekki láta sem vind um eyru þjóta að þessu sinni. Menn verða að gera það upp við sig hvort þeir telja þann kost betri að grípa til valdbeitingar gegn ríkis- stjórninni eða herða ólina á meðan þjóðarskútan er í þess- um mikla öldudal. Það er ein- mitt fyrir tilstilli Alþýðu- bandalagsins sem jafn illa er komið fyrir okkur og við blas- ir. Kannski á að líta á dólgsleg ummæli Svavars Gestssonar um „alþingi götunnar" í því ljósi að með niðurrifsstarfi í ráðherrastólum hafi alþýðu- bandalagsmenn markvisst unnið að því að skapa öng- þveiti með gjaldþrotum heim- ilanna í von um að á rústum þeirra mætti reisa „alþingi götunnar" undir leiðsögn hinnar nýju stéttar í þjóð- frelsi sovésks friðar. Slæmar horfur í útimatjurtaræktun á Suðurlandi: Magnús Sigurðsson, Birtingaholti, Hrunamannahreppi: „Fljótsprottnari afbrigðin reynast betur í svona árferði" „ÞETTA er seint á ferðinni í ár, að minnsta kosti hálfum mánuði seinna en í meðalári. Er það aðallega vegna sólarleysis og júlíkulda, en einnig sá á kartöflu- grösum sumsstaðar vegna næturfrosta. Geta frostin hafa dregið úr vexti þó ekki hafi sést nema lítið á pliitum," sagði Magnús Sigurðsson bóndi í Birtingaholti I í Hrunamannahreppi í samtali við Mbl. er hann var spurður um kartöflu- uppskeruna í ár. Magnús er með 4 ha kartöfluræktun auk 30 kúa bús. Hann er jafnframt formaður Landssambands kartöflubænda og á sæti í stjórn Grænmet- isverslunar landbúnaðarins. Ekki kvaðst Magnús þora að spá um uppskeruhorfur í haust en sagði að ef gerði góða tíð það sem eftir er sumars, hlýnaði, þá gæti orðið reit- ingsuppskera á Suðurlandi. Á Norð- urlandi sagði hann að bæði hefði verið sett seint niður og allur gróð- ur verið seinn til, en þar hafi hlý- indin gert það að verkum að mögu- leikar væru þar á góðri uppskeru ef tíðin héldist góð. „En ef ágúst bregst hér sunnanlands þá fá bænd- ur ef til vill í útsæðið. Þegar grösin eru svona lítil eru þau viðkvæmari en ella og getur lítilsháttar nætur- frost orsakað að kartöflugrösin falla alveg og við það gæti orðið algjör uppskerubrestur. Það er þó nokkur hópur manna sem lifir eingöngu af kartöflurækt- uninni, aðallega í Þykkvabænum. Verður þetta ár sérstaklega erfitt hjá þeim. Ég reikna með að menn þurfi að taka upp úr görðunum þó uppskeran verði rýr og verður þá full vinna við þetta sem menn fá lítið sem ekkert fyrir. Erfitt er fyrir þessa menn að sækja vinnu annað því margvíslega vinnu þarf að inna af höndum á búunum. — Koma allar tegundirnar jafn illa út? „Ég var að gá undir hjá mér í dag. Tegund, sem við nefnum Dóru, virð- ist koma langbest út, áberandi best. Þetta er snemmsprottið afbrigði og þau virðast gefast betur í svona ár- ferði. Yfirleitt eru færri kartöflur undir hverju grasi en stærri kart- öflur. Mikil sveifla hefur orðið frá rauðu kartöflunum yfir í þær hvítu. Kartöflubændur hafa verið að reyna að laga sig að óskum neyt- enda með þessu og reyna að fylla út í þann markað sem kartöfluverk- smiðjurnar gefa kost á. Magnús Sigurdsson í Birtingaholti sýnir hvað kartöflugrösin verða há í venjulegu árferði. Morgunblaðið/Guðjón. Vegna mikillar gagnrýni neyt- enda út af lélegri vöru er einnig ver- ið að athuga hvar veiku hlekkirnir í geymslu og dreifingu kartaflna séu þannig að hægt sé að bæta þar úr, en einnig hefur verið ákveðið að bjóða kartöflur í eins kílós umbúð- um og reikna ég með að það verði til bóta þó það komi til með að kosta sitt að koma því af stað með véla- kaupum og fleiru." — Hvernig hefur kornrækt í kartöflugörðum reynst? „Flestir kartöflubændur hafa tek- ið eftir því að alltaf sprettur betur hjá þeim í nýju landi. Kartöflu- ræktunin kallar á hvíld af og til. Þess vegna hafa menn séð þessa möguleika að nýta garðana til kornræktar og held ég að það hafi gefist vel í Þykkvabænum." — En vatnsúðunin sem mikið er notuð hér um sióðir? „Vatnsúðun er á flestum bæjum hér í hreppnum. Menn hafa tekið þetta upp vegna þess að þeir hafa séð að þeir hafa gagn af þessu. Mesta gagnið er að geta hindrað næturfrostin. Þá er vökvað á meðan frost er og hindrar það að grösin skemmist. En einnig notum við þetta til að hindra sandfok á vorin og höfum fengið greinilegan upp- skeruauka þegar þurrkar hafa verið á sumrin." — En thiabendazol-úðunin, hver hefur orðið árangur hennar? „Þetta var fyrst leyft í fyrra af heilbrigðisyfirvöldum. Þeir sem þá reyndu þetta fengu mjög góða út- komu. Þetta er lyf sem er nefnt Tecto og er því úðað á kartöflurnar við upptöku. Það gerir það að verk- um að kartöflurnar haldast heil- brigðari lengur fram á vorið, og líta betur út. Ég reikna með að í ljósi þessarar reynslu verði þetta al- mennt tekið upp hjá kartöflubænd- um.“ Guðlaugur Árnason, Eyrartúni, Þykkvabæ: „Kraftaverk þarf til að þetta verði að söluvöru í haust“ „Já, þetta hefur verið mjög óhagstætt sumar fyrir kartöfluræktunina, enda hefur tíöarfarið verið þannig allt frá því við settum niður í vor og enn þann dag í dag að varla hefur sprottið gras hvað þá þessi jurt. Kemur hér hvorttveggja til að miklar rigningar hafa verið og þessir miklu kuldar í sumar. Kartöflurnar er 2—3 vikum á eftir miðað við meðalár þrátt fyrir að litlar frostskemmdir hafi orðið,“ sagði Guðlaugur Árnason kartöflubóndi í Eyrartúni í Þykkvabæ í samtali við blm. Morgunblaðsins. Aðspurður um uppskeru sagði Guðlaugur: „Útlitið er ekki gott eins og er, en ennþá gæti hugsanlega orðið léleg meðaluppskera, það er að segja ef ágústmánuður og fyrsta vika september verða okkur hag- stæð. Þessi tími hefur alltaf skorið úr um kartöfluuppskeruna og mun á þessum tíma ráðast hvort einhver uppskera fæst eða hvort við fáum kannski ekki neitt.“ Þið hafið stundum séð það svart, kartöflubændur? „Já, satt er það, þetta er þó aðeins skárra en 1979 en þá spratt vel í september. Grasvöxturinn er áber- andi minni það sem af er miðað við venjulegt ár en það segir þó ekki alla söguna því þó grösin séu ekki stór þá getur verið vel vaxið undir. En eins og þú sérð er eintómt berja- dót undir þessum grösum og það þarf kraftaverk til þess að þessar kartöflur verði að söluvöru í haust. Eitthvað eru þó snemmsprottnu af- brigðin betri. I venjulegu árferði höfum við verið byrjaðir að taka upp í sumarsöluna á þessum árs- tíma en nú er fyrirsjáanlegt að það verður ekki fyrr en undir mánaða- mót ef á annað borð verður hægt að tala um einhverja sumarsölu." Guðlaugur ræktar kartöflur á 13 ha lands og hefur sitt framfæri ein- göngu af kartöfluræktinni eins og fleiri bændur í Þykkvabænum. Hann var spurður að því hvernig gengi að lifa af kartöfluræktuninni. „Þessir 13 ha eru hættir að duga mér vegna þess að við höfum ekki fengið þær hækkanir sem við höfum þurft auk þess sem möskvastærðin á kartöflunum hefur verið hækkuð okkur í óhag að sjálfsögðu, sem hef- ur beina tekjurýrnun í för með sér, þó kartöfluverksmiðjan okkar gæti nýtt dálítið af þessum smærri kart- öflum. Þetta er að fara í það horf núna að við erum hættir að geta endurnýjað áhöld sem þó er nauð- „Það er tómt berjarusl undir þessu eins og þið sjáið,“ sagði Guðlaugur Árnason kartöflubóndi í Eyrartúni í Þykkvabæ við Morgunblaðsmenn, er hann sýndi þeim undir nokkur kart- öflugrös. Morgunblaðift/Guðjón. synlegt að gera til að hægt sé að standa í þessu. Hjá mér stendur þá fyrir dyrum að stækka garðana upp í 15 ha sem ég tel að sé of stórt fyrir eina fjölskyldu að sjá um eða hreinlega að hætta þessu basli.“ Þið ræktið korn í kartöflugörðun- um til að hvíla garðana, hvernig hefur það reynst ykkur? „Það hefur reynst okkur mjög vel, verð ég að segja. Við stefnum að því að setja eingöngu niður í hafra- eða byggland til að forða okkur frá foki auk þess sem við fáum greinilega hraustari og meiri uppskeru. Einnig verður minni klaki í jörð í þeim görðum sem korn hefur verið rækt- að í. Þetta hefur að vísu talsverðan aukakostnað í för með sér þar sem við þurfum að hafa garðlöndin tvö- falt stærri en við eigum þó þann möguleikann að fá svolitlar auka- tekjur í góðum árum af því að selja kornið. En augljóst virðist að við fáum ekkert korn núna, enda verð- um við að sætta okkur við það að ekki er hægt að reikna með að korn fáist af þessum ökrum nema í góðu árunum.“ „Ég vil nefna eitt sem valda mun gjörbyltingu í vörugæðum þessarar framleiðslu á næstu árum,“ sagði Guðlaugur, „það er thiabendazol- úðun kartaflnanna. Við keyptum 14 tæki hingað í fyrra en þau eru sett á upptökuvélarnar og úða fínum úða af þessu lyfi á kartöflurnar um leið og þær eru teknar upp. Mikill mun- ur er á kartöflum sem fengið hafa þessa úðun og öðrum, þær verða miklu frísklegri og fallegri og geym- ast mun lengur óskemmdar fram á vor. Þetta álít ég að verði að koma allsstaðar enda árangurinn mjög góður.“ Sighvatur Hafsteinsson, Gerði, Þykkvabæ: „Fæ lítið upp í fjár- festinguna á þessu ári“ .„ÞETTA er fjórða árið mitt í kartöfluræktuninni og lítur þetta mjög illa út í ár. Ég tel að kartöflurnar séu 3 til 4 vikum á eftir miðaö við tvö síðustu ár sem verða að teljast meðalár. En ef ágúst verður góður getur uppskeran orðið sæmileg en efið er of stórt til að stóla á,“ sagði Sighvatur Hafsteinsson kartöflubóndi í Gerði í Þykkvabæ í samtali við Mbl. Við hittum Sighvat í kartöfluverksmiðjunni í Þykkvabæ þar sem hann vinnur sem afleysingaverkstjóri þessar vikurnar, en annars sagðist hann vera að reyna að lifa af kartöflubúskapnum. Hann byrjaði kart- öflurækt fyrir rúmum þremur árum og er með 10 ha garða í landi föður síns, Smáratúni, en keypti jörðina Mel í vor þar sem hann ætlar að setja niður næsta vor. Sighvatur sagði, þegar hann var spurður að því hvernig ástandið núna horfði við honum, eftir þessi jarðarkaup: „Ef svo heldur fram sem horfir fær maður lítið upp í fjárfestinguna á þessu ári og því gæti maður allt eins lent á vertíð. Þeir gamalgrónu standa svona áföll frekar af sér en þeir sem hafa verið að fjárfesta undanfarin ár og þeir sem eru nýlega byrjaðir standast þetta síður. Þetta kemur sér sérstaklega illa í ár vegna þess hversu saumað hefur verið að þessari grein að undan- förnu. Þá á ég bæði við möskva- stækkunina og það að við fengum engar verðhækkanir í vetur en einn- ig höfum verið aftarlega á merinni hér í Þykkvabæ með afsetningu vör- unnar. Þess vegna fáum við meiri rýrnun og vaxtakostnað, en ég tel að þetta sé fyrst og fremst vegna stjórnleysis í greininni, og hand- vömm hjá yfirmatsmanni í birgða- haldi.“ — Þessi grein hefur alltaf verið áhættubúskapur. „Já, og ágúst hefur alltaf verið mikilvægasti mánuðurinn. Þess vegna óþarfi að vera óþarflega svartsýnn enn sem komið er. Tvö undanfarin sumur hafa menn verið farnir að taka upp í sumarsöluna viku af ágúst. Núna er fyrirsjáan- legt að hún verður lítil sem engin og þá í fyrsta lagi í lok mánaðarins." Sighvatur Hafsteinsson, kartöflu- bóndi í Þykkvabæ við skrælingarvél- ina í kartöfluvcrksmiðjunni þar sem hann starfar sem verkstjóri í afleys- ingum um þessar mundir. Morgunblaftift/ Guftjón. Einar Hallgríms Garði Hrunamannahreppi: „Útlit fyrir uppskerubrestu ,;ÚTLIT er fyrir það að uppskeran geti alveg brugðist í ár. Ágúst verður að vera ákaflega góður mánuður ef einhver uppskera að gagni á að verða í ár. Þetta kemur sér auðvitað mjög illa því hér í nágrenninu eru margir garðyrkjubændur sem lifa eingöngu á útiræktuninni,*' sagði Einar Hallgríms garðyrkjubóndi í Garði í Hrunamannahreppi er Morgun- blaðsmenn hittu hann við vinnu sína á kálakri að Garði en Garður er skammt frá Flúðum. Einar er mest með útimatjurtaræktun svo sem kál, rófur, gulrætur og ýmsar kryddjurtir en einnig er hann með 400 fermetra undir gleri. „Maður verður að vona það besta en því er ekki að neita að þetta hefur gengið mjög illa það sem af er sumri. Kuldinn og sólarleysið hafa gert það að verkum að ræktunin er 3 vikum á eftir. Ég hef verið í grænmetisræktuninni í rúm 40 ár en ég minnist þess ekki að jafn erfitt ár hafi komið allt þetta tímabil. Okkur þótti 1979 slæmt ár, en mér líst svo á að þetta sumar verði miklu verra. Kuldinn hefur verið svo mikill að garðlönd sem heitt vatn hefur verið leitt í dugar jafnvel varla til, munar þó miklu á því og ræktuninni sem er á óupphituðu landi. Það versta er að engin breyting virðist ætla að verða á þessu veðurlagi. Matjurtir sem nú eiga að vera full- þroskaðar eiga langt í land og ég held að æði langt þurfi að leita til að finna sumar sem kál hefur verið flutt inn á þessum tíma,“ sagði Einar Hallgríms. Afar slæmt útlit er með uppskeru í útiræktun hjá garð- yrkjubændum á Suður- og Vesturlandi. Hér sýnir Einar Hallgríms í Garði afrakstur sumarsins í ræktun þessara blómkálshausa, þeir eru margfalt minni en venjulega á þessum tíma. Mortfunblaftift/Guftjón.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.