Morgunblaðið - 04.09.1983, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 04.09.1983, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 1983 52 úU W { y JÉhc J .wsam Tom Martin og Mariella, kona hans, á siglinu upp Zambesi-fljót. Þau bjuggu lengi í Reykjavík, en hann var forstðóumaður Menningarstofnunar Bandaríkjanna, en eru nú í Botswana, þar sem þau tóku á móti Pétri og Sigrfði. Fílapabbi stóð beint fyrir framan bflinn, reiðubúinn til varnar, meðan hjörðin hans gekk yfir stíginn fyrir aftan hann. Þegar hettan var liðin hjá fylgdi hann á eftir. Sigríður með íslenskri konu, Hildu Chilling, sem býr í Jóhannesarborg. Myndin er tekin á f Kalahari-eyðimörkinni. Termítaþúfa stendur upp úr grasinu, en þ*r geta orðið tv*r mannhæð- heimili hennar. ir. Termítadrottingin lifir í miðri þúfunni, og termítarnir afla henni f*ðu. hús. Þar fyrir utan er ekkert ann- að en strákofar, sem innlendir kalla Rondevals, en það er gamalt hollenzkt heiti frá tímum Búanna. En allt er þar prýtt, kofarnir og þeir fáu garðar sem þeir hafa í kringum þá. Hvert sem litið er blasa við augum fegurstu Bugen- villur í öllum litum og þær blómstra allt árið um kring. Þetta er óskaplega fallegt. Hvítt fólk, sem mest er sendiráðsfólk og fólk sem sest hefur að vegna einhverra starfa, býr í góðum húsum með fallegum görðum og strákofum f kring. Svartir verðir eru jafnan við húsin. Gabaroni er þó 50 þús- und manna borg.“ Leynifundir í eyðimörkinni —„Fyrir utan borgina er þó eitt frægt og sérkennilegt hótel, Hollyday Inn. Þar er spilavíti, sem Suður-Afríkumenn sóttu mikið meðan spilabankar voru bannaðir í þeirra landi. Nú er þetta hótel orðið samkomustaður alllitríks hóps. Þar koma sendiboðar Jonas- ar Savimbi, uppreisnarmanns Unita-hreyfingarinnar, sem berst gegn kommúnistastjórninni í Angola, fulltrúar Swaapo, sem berst gegn yfirráðum Suður- Afríkumanna í Namibíu, einnig sendimenn uppreisnarmanna í Mozambik, Suður-Afríkumenn senda sína menn og ofan á allt þetta hittast þarna sendimenn frá Bandaríkjunum, Bretlandi, Rúss- landi og Frakklandi. Þarna tala þeir saman, að því er virðist í bróðerni, og hverfa svo hver í sína áttina út í nóttina. Þarna eru 4—5 barir, og kvenfólkið, sem venju- lega er þar, víkur orðalaust af staðnum, þegar þessir menn koma inn og setjast á rökstóla og skipt- ast á upplýsingum. Tom Martin fór með mig inn á einn þessara bara og við gátum virt fyrir okkur mennina sem voru að tala saman. Hann þekkti suma þeirra. Sjálfur hafði ég aðeins hitt einn þeirra í bænum, Rússa, sem vann að því að fá lengingu á flugvöllinn, til þess að geta tekið á móti Aeroflot- flugvélum beint frá heimalandinu. Flugvöllurinn þarna er lítill, enda lenda þar ekki nema flugvélar Suður-Afríkufélagsins og flugvél- ar frá þeirra eigin félagi. Nei, enga blaðamenn sá ég þarna eða á hótelinu. Þessum óformlegu þreif- ingum er haldið utan við umtal, en svo fara samningafundir fram annars staðar. —Botzwana er nú frjálst lýð- veldi. Var áður verndarsvæði Suður-Afríku og háð henni um marga hluti, enda liggur það hvergi að sjó. íbúar munu vera um 800 þús. í öllu landinu, að mér var sagt. Við dvöldumst þar í hálfan mánuð, því við ætluðum í ferð til norðurhéraðanna, fylgja dýrunum til að sjá þau þegar þau kæmu að vatnsbólunum. En norður að fljót- unura miklu eru um 1000 km. Þeg- ar við vorum að fara frá Gabaroni eftir 2 vikur, var vatnsþurrðin þar að verða svo mikil að sendiráðin voru farin að gera ráðstafanir til að safna vatni eða fá það með tankbílum frá Suður-Afríku. En stutt var til forsetakosninga og enginn forseti þorir að skammta vatn rétt fyrir kosningar." Eiturslöngur í Kalahari — Við þekkjum svo lítið til eyði- marka. Segðu okkur meira frá Kalahari-eyðimörkinni og ferð ykkar norðureftir. —„Dagleiðirnar þar eru svo langar að stendur á endum að ná til byggða með benzín og annað sem þarf. Því urðum við að hafa með okkur bæði drykkjarvatn á flöskum, mat og benzín. Við ókum inn í eyðimörkina og komum í þorpin, sem myndast hafa kring- um vatnsbólin. Sameiginlegt er með þeim að þar er lifað frum- stæðasta lífi í Afríku. Folkið geng- ur berfætt, stöku maður hefur náð sér í litrík föt, annars er hann eins og hann er af guði gerður. Mikill sóðaskapur er í kringum þorpin. Þeir lifa á nautgripum eða rækta einhverja ávexti. Auk þess er þarna að finna Norðmenn, Dani og Svía, sem veita landinu efnahags- lega hjálp, og sumir fá vinnu hjá þeim. Þá hittum við raunar líka í Kenýa og Tanzaníu. —Molepoele heitir lítið þorp, drjúgan spöl frá höfuðborginni. Þar var varla nokkur hundur, sem ekki var blindur eftir slönguna, sem nefnd er Spitting Copra. Hunda þurfa menn að hafa vegna nautgripanna. Maður verður að fara mjög varlega í Kalahari- eyðimörkinni, því þar er svo mikið af eiturslöngum. Þær eru litlar en baneitraðar margar, svo að inn- fæddir segja að maður sé dauðans matur ef maður ekki nær í móteit- ur innan 15 mínútna. Sjálfir safna þeir móteitri úr slöngunum og það er til f þorpunum og bæjunum. Þarna er græn mamba, svört mamba, sem getur stokkið mann- hæð upp í loftið, og ein sú versta, spýtimamban, sem getur spýtt eitrinu tveggja metra vegalengd. Það gerir hún helst á nóttunni. Sér þá augun í myrkrinu og spýtir í þau og blindar. Við lentum í því síðar að svört mamba stökk skyn- dilega fram úr runna og upp á framrúðuna á bílnum í einu stökki. En slöngurnar höfðu ein- mitt leitað svo mikið til byggð- anna um þetta leyti, þar sem fæða þeirra, mýs og önnur nagdýr, voru ýmist dauð eða höfðu leitað þang- að undan þurrkunum. Tom Martin hafði einn daginn fundið svarta mömbu við laugina sína. Og fleiri kvörtuðu undan því að slöngur hefðu komið inn í garðana. Allir hafa þó ketti, sem halda slöngun- um í burtu. Kötturinn hefur lært að forða sér, jafnvel undan spýti- slöngunum, þótt hundarnir hafi ekki roð við þeim. — Annað furðulegt sáum við í eyðimörkinni í Botswana. Þar eru víðsvegar skrýtnar strýtur, þær hæstu tvær mannhæðir. Þetta eru termítabú, en tel-mítarnir hegða sér svipað og maurar. Inni í hverri strýtu er ein drottning, gríðarstór og feit. Stríðalin af termítunum. Hún er hjartað í hverju búi.“ —Hvernig þolduð þið hitann? Og eru ekki orðin einhver áhöld um hve vel kínínið ver mann gegn malaríunni? —„Við komum þarna að haust- lagi, þótt við færum úr vorinu í Evrópu. Þessvegna var hitinn al- veg þolanlegur, svona 20—25 gráð- ur. En sumrin eru lítt bærileg fyrir Evrópumenn, einkum í vot- ari hlutanum norðurfrá, því þar renna stórfljótin og jarðvegur vatnsmengaður með tilheyrandi raka í lofti. Þar er frægt malaríu- bæli. Ég var með kíníntöflur héð- an að heiman, sem maður á að taka einu sinni í viku. En læknir frá Sameinuðu þjóðunum, sem við hittum, tók þær af okkur og lét okkur fá nýjar, sem taka verður daglega. Sagði þessar gagnslaus- ar, því nýir bakteríustofnar hefðu þróast upp, sem þeir gætu aðeins haldið í skefjum með nýju daglegu kíníntöflunum. Var mér ráðlagt að halda áfram að taka þær í 8 vikur eftir að við færum frá Kairo. Þegar maður er kominn svona 200—300 mílur norður fyrir Gab- aroni, þá drekkur maður ekkert vatn nema á lokuðum flöskum, sem flutt er frá Gabaroni á vögn- um. Þarna er svo mikið af bakterí- um, sem þeir eru vanir en við þol- um ekki. Við komumst þó ekki hjá því að lenda í flugnafarganinu við Chobe-fljót, þar sem allt er mor- andi í moskítóflugum. Taka ekki fanga fremur en eyðimörkin „Francistown er ákaflega fal- legur bær. Þar er eitt hótel, sem er byggt í stíl gömlu „hvíldarhús- anna“. Margir strákofar með leir í þéttingu að innan og kalkaða veggi standa þar í hring. Og þetta var besta hótelið sem við komum í alla ferðina. Húsin voru umlukt dásamlega fallegum garði. Við hittum nokkra Dani, sem eru að vinna í Francistown, sem er ná- Iægt landamærum Zimbabve. En þangað flykktust flóttamenn í stríðum straumum, þvf þetta var rétt eftir að Nkomo hafði verið hrakinn yfir til Botswana. Ætt- bálkur hans, sem herflokkar stjórnarinnar voru að hrekja og þyrmdu fáum, búa einmitt í suðvesturhluta Zimbabve, í kring- um borgina Boulevajo, sem er þeirra höfuðstaður. Þeir voru þvf að flýja undan herflokkum, sem m.a. samanstóðu af þjálfuðum sveitum Norður-Kóreumanna, að því er þeir sögðu. Hin svokallaða 5. deild, (5th Brigade), er fræg á þessum slóðum fyrir það sama og Kalahari-eyðimörkin, að taka enga fanga. Af þessum ástæðum fylgdust með okkur litlir herflokk- ar, sem þeir hafa sent norðureftir, til þess að ekkert kæmi fyrir okkur. Þeir tóku númerin af bíln- um okkar, eins og reglur sögðu fyrir um, og við urðum að gefa okkur fram í næstu borg, Nata, sem er miðja vegu milli Francis- town og Chobe-fljóts." — Á hverju lifa menn f svona bæ, eins og Francistown? —„Bærinn er á stað, þar sem hægt er að rækta ávexti. Svo má finna Iitla námabæi inni í eyði- mörkinni, þótt ekki fari mikið fyrir þeim, venjulega svona 50 km frá aðalveginum. Þarna eru unnir málmar. Fjárfestingarfé kemur frá Suður-Afríku, Frakklandi, Bandaríkjunum, Bretlandi og stundum frá fleiri vestrænum ríkjum. Innfæddir hafa af þessu atvinnu og stjórnin er meðeigandi. Þeir búa úti í eyðimörkinni, 0g kofarnir eru faldir í runnagróðr- inum. En í námabænum búa venjulega hvítir verkfræðingar 0g tæknimenn og eru þar með fjöl- skyldur sínar, enda er þar mikið lagt í húsakynni og aðbúnað. Yfir- leitt er þarna eitt lítið hótel í vest- rænum stíl, en ákaflega óhreint og rekið af heimamönnum. Þó eru þau í eigu fyrirmyndar hótel- hrings, sem starfar á svæðinu frá Nairobi og suður urn Afriku. Yfir- stjórnina hefur Astralíumaður nokkur. Þarna vinna þeir dýr-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.