Morgunblaðið - 04.09.1983, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 04.09.1983, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 1983 73 alllangt að baki varnarlínu Norður-Kóreumanna við helztu birgðaflutningaleið þeirra. Jafn hernaðarlega mikilvægur og stað- urinn hlaut að teljast, voru að- stæður þar allar samt alveg ein- staklega erfiðar, því munur flóðs og fjöru í Inchon-víkinni nemur allt að 9 metrum tvisvar á dag. Hinn 15. september gengu sveit- ir úr bandaríska sjóhernum á land við Inchon og tókst landgangan ágætlega, en eftir tveggja vikna hörkubardaga hafði X-hernum bandaríska svo tekizt að ná Seoul á sitt vald. Meðan á þvi stóð, hafði hersveitunum við varnarlínuna Naktong-Pohang í suðri undir stjórn Walton H. Walkers hers- höfðingja, yfirmanns 8. hersins, tekizt að brjótast í gegnum víglin- una, samkvæmt fyrirfram ákveð- inni, samræmdri hernaðaráætlun. Hinn 9. október voru liðssveitir Sameinuðu þjóðanna að halda yfir 38. breiddargráðu og stefndu norð- ur. Herliðið við Inchon steig á skipsfjöl til að ganga á land langt norðantil á austurströndinni við norður-kóreönsku hafnarborgina Hungnam. Suður í Peking þótti Kínverjum nú skörin vera tekin að færast upp í bekkinn. Herlið úr landher, flugher og flota hafði verið við æf- ingar í norðausturhéruðum Kína frá því í júlímánuði, og var til- gangurinn sennilega að vera til taks við að reka smiðshöggið á skjótan sigur norður-kóreanskra kommúnista, ef nauðsynlegt reyndist. Nú var herafli Samein- uðu þjóðanna tekinn að nálgast landamæri Kína. Tsjú En-laí lét ýmsar aðvörunarorðsendingar frá sér fara til Vesturlanda, en sú opinskáasta var borin fram við indverska ambassadorinn í Pek- ing, þar sem sagði, að Kínverjar myndu koma til skjalanna, ef herlið Sameinuðu þjóðanna héldi inn í Norður-Kóreu. Ríkisstjórnir þeirra landa, sem sent höfðu liðs- afla á vígstöðvarnar í Kóreu og álitu þau helzt til innantómt mál- skrúð. Krökkt af Kínverjum í Kóreu Hinn 13. október tók Fjórði landher Kínverja að halda yfir landamærin inn í Kóreu, og létu Kínverjar í veðri vaka, að þarna væri um „sjálfboðaliða" að ræða. Tilgangurinn var að hefja sam- ræmda sókn fjögurra — skömmu síðar sex herja — gegn herfylkj- um Sameinuðu þjóðanna frá 25. breiddargráðu og suður úr. Walk- er hershöfðingja, sem kom þessi skyndilega stórsókn mjög á óvart, mistókst að halda uppi gagnsókn; hann hóf langvarandi undanhald, og við árslok ’50 höfðu hersveitir hans verið hraktar alla leið suður fyrir Seoul. Flugherinn, sem hafði lofað að binda endi á liðsflutninga Kin- verja yfir Yalu-fljót, reyndist ófær um að koma því til leiðar — að nokkru leyti vegna pólitískra mótbára af ótta við að ráðist yrði á kínverskt landsvæði, en framar öllu vegna þess að sveitir flug- hersins skorti vopn. Við ströndina höfðu flotadeildir brezku samveld- islandanna allar siglingaleiðir að vestanverðu á sínu valdi, en bandaríski flotinn að austanverðu. Þá urðu þáttaskil. Fyrirkomu- lag birgðaflutninga hjá Kínverj- um var heldur bágborið og fór hríðversnandi vegna árása úr lofti á flutningaleiðir þeirra. Vetrar- hörkurnar neyddu.þá til að hörfa undan. í stað Walkers hershöfð- ingja, sem látið hafði lífið I bíl- slysi, tók Matthew B. Ridgeway hershöfðingi við yfirstjórn land- hersins. Hinn nýi yfirmaður her- liðsins kom með nýjan og ferskan hugsanagang; hann ætlaði að fylgja alls staðar fast eftir og hefja gagnárásir, hvenær sem Kínverjar hygðust sækja fram á ný. Ridgeway hershöfðingi hélt uppi stöðugum gagnárásum á Kínverjana, en það var mjög tekið að draga af herliði þeirra og mesti vígamóðurinn runninn • af þeim. Höfðu hersveitir Sameinuðu þjóð- Vopnahlésviðræður í júlí 1953. anna undir yfirstjórn Ridgeways hershöfðingja brátt sótt fram að 38. breiddargráðu, þar sem herlið hans hætti frekari sókn, en til þess lágu pólitískar ástæður. Síð- ari hluta aprílmánaðar 1951 hófu Kinverjar svo nýja, öfluga sókn suður yfir 38. breiddargráðu. Enda þótt kínverski herinn hefði þarna engum flugsveitum á að skipa, sem ryddu brautina á sóknarstöð- unum með loftárásum, né heldur stórskotaliði, tókst hinu afar fjöl- menna fótgönguliði þeirra, skipað harðsnúnum, djörfum og færum hermönnum, samt að herja sér leið fram eftir sóknarlínunum og brjóta varnarlínu Sameinuðu þjóðanna enn einu sinni á bak aft- ur. Þrátefli Ridgeway hershöfðingi hafði skömmu áður verið sendur til Tókýó til að taka við störfum Mac- Arthurs hershöfðingja. Hinn nýi yfirboðari herliðs Sameinuðu þjóðanna í Kóreustríðinu, James fá sig fullsadda af að sitja og bíða eftir að endanleg úrlausn fengist í þessu máli. Syngman Rhee stofnaði sam- komulaginu um vopnahlé f hættu með því að láta lausa þá Norður- Kóreumenn, sem ekki vildu hverfa aftur til sinna heimkynna, fyrr en ráð hafði verið fyrir gert. En Kína og Rússland voru þess hins vegar engan veginn fýsandi að halda styrjöldinni áfram. Það hafði ekki tekist að ná þeim markmiðum, sem Stalín hafði sett sér með Kóreustríðinu. Það hafði auk þess reynzt Rússum kostnaðarsamt í hergögnum og tæknibúnaði og Kfnverjum jafnt í tölu mannslffa sem og fjármuna. Kínverski her- inn hafði fengið eftirminnilega fyrir ferðina hjá andstæðingunum á vfgvöllunum. Engin ofríkisstjórn Sameinuðu þjóðunum hafði tek- izt að bera þann málstað sinn fram til sigurs að ekki mætti þröngva ríkisstjórn upp á neina þjóð með vopnavaldi, en þetta hafði orðið sársaukafull reynsla, sem margar þjóðir mundu eftir, þegar Bandaríkjamenn fóru síðar að hafa bein hernaðarleg afskipti af málefnum Indókína. Ein af afleiðingum þessarar styrjaldar var sú, að Vestur- Þýzkaland öðlaðist skjótar fullt sjálfstæði með eigin herafla sér til varnar og sem Sambandslýðveldið Þýzkaland varð það þýðingarmik- ill aðili að Atlantshafsbandalag- inu. Bandalagsþjóðum Vesturianda ætti þegar að hafa lærzt, að styrj- aldir brjótast út á óheppilegustu tímum og á óliklegustu stöðum. En þeim hefur alveg láðst að gera nægilega ráð fyrir þessu allar göt- ur frá því að Kóreustyrjöldinni lauk, og að nauðsynjalausu hafa þær líka orðið að súpa seyðið af þessari vanrækslu sinni. Landherinn í Kóreu hlaut að læra sínar gömlu lexíur upp á nýtt, og þá alveg sérstaklega fót- gönguliðið; þetta var stríð fót- gönguliðans framar öllu. Flug- hernum tókst ekki að standa við þá fullyrðingu sína, að hann hefði strategíska yfirburði í styrjald- arrekstrinum, en stóð sig hins vegar frábærlega við að veita ein- stökum hernaðaraðgerðum öflug- an og ómetanlegan stuðning. Her- þyrlurnar sýndu strax við frum- raun sína á vígstöðvunum hve mikilsverðar þær geta reynzt í hernaði. Sjóherinn, sem þarna átti ekki í höggi við neina kafbáta, né heldur við óvinaflota, stóð sig einkar vel og sýndi vel hæfni sina í hernaði, alveg sérstaklega með því að sanna enn á ný á áþreifan- legan hátt þá geysilegu hernaðar- legu möguleika, sem liggja í sam- ræmdum aðgerðum landhers og flota, t.d. við landgöngu að baki víglínunni; en vestrænar ríkis- stjórnir höfðu áður lýst því yfir, að þær myndu aidrei þurfa á slik- um hernaðaraðgerðum að halda aftur. Hermenn frá vestrænum lönd- um, sem teknir voru til fanga í styrjöldinni, áttu fyrir höndum þungbæra reynslu og mikið harð- rétti í vörzlu hinna kommúnísku stríðsaðilja: Norður-Kóreumenn reyndust hinir grimmustu vörzlu- menn, Kínverjarnir algjörlega miskunnarlausir, ef þeim bauð svo við að horfa og þeir álitu, að það gæti þjónað hagsmunum þeirra í hernaðinum. Þetta stríð, háð .í afskekktu horni heimsins frá 1950—1952, er núna kallað takmarkað stríð. Landfræðilega séð var það líka vissulega takmarkað og einnig að því er varðar þau hefðbundnu vopn sem beitt var í þá daga. Lyktir þessa stríðs hafa líka reynzt takmarkaðar: Frá því að vopnahléð gekk í gildi árið 1953, hefur enginn friðarsamningur lit- ið dagsins ljós, og ennþá halda samninganefndir Norður- og Suður-Kóreu áfram að hittast á fullkomlega árangurslausum fundum sínum. van Fleet III, reyndi hvað hann gat að halda vígstöðunni, en það varð mikið mannfall í liði Samein- uðu þjóðanna á allmörgum stöð- um, þar sem til hörðustu átaka kom. En herlið Sameinuðu þjóð- anna, ásamt her Suður-Kóreu, hafði nú öðlast miklu meiri reynslu; sá stuðningur, sem flug- herinn veitti, var framúrskarandi góður, og Kínverjum tókst ekki að ná Seoul á sitt vald i þessari síð- ustu sóknarlotu sinni. James van Fleet valdi rétt augnablik til gagnsókna á óvinina, þegar þeir voru hvað fáliðaðastir fyrir og verst settir með alla aðdrætti til liðsafla síns. f júnímánuði 1951 var Áttundi herinn kominn í næsta nágrenni við Kaesong á austurströnd Kóreu og allt norður að Kosong á vestur- ströndinni, það er að segja um 50 mílur norður fyrir 38. breiddar- gráðu. Ef frá eru taldar nokkrar minniháttar breytingar á víglín- unni, hélzt þessi staða hinna strið- andi aðilja óbreytt það sem eftir var styrjaidarátakanna. f júni árið 1951 bar rússneski fulltrúinn, sem þá hafði aftur tek- ið sæti sitt i Öryggisráði Samein- uðu þjóðanna, fram tillögu um vopnahlésviðræður. Enda þótt þessar viðræður drægjust mjög á langinn, og stæðu yfir i tvö ár, og á meðan kæmi alloft til heiftúð- legra bardaga á einstaka stöðum, en skilmálarnir fyrir gagnkvæm- um skiptum á striðsföngum virt- ust aftur á móti standa mjög í vegi fyrir að viðræðuaðilar kæmust að endanlegu samkomulagi, þá gekk samt vopnahléð loksins i gildi hinn 27. júlí árið 1953. Það voru tveir pólitískir atburð- ir, sem höfðu áhrif á gerð vopna- hlésins: Dauði Stalins í marzmán- uði 1953 og dulbúin aðvörun Eis- enhowers Bandarikjaforseta um að ef ekki næðist samkomulag um vopnahlé með fullri sæmd, myndu Bandarikin grípa til sinna ráða með frekari aðgerðum til þess að ráða þessu stríði til lykta. Það var alveg augljóst, að þetta var ekki sagt i blekkingarskyni. Banda- ríska þjóðin var greinilega búin að

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.