Morgunblaðið - 04.09.1983, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 1983
79
Ragnari lærðist ungum að taka
til hendinni, því aðeins 12 ára að
aldri hefur hann sjósókn með föð-
ur sínum á litlum opnum árabát-
um vestur við Djúp. Og sjórinn á
eftir að verða hans starfsvett-
vangur sem háseti, stýrimaður og
skipstjóri um rúmlega tveggja
áratuga skeið, eða þar til hann öll-
um á óvart axlar sjópokann og fer
í land.
Hann leitar ekki heim á æsku-
slóðir eins og mönnum er jafnan
tamt heldur kaupir jörðina Höfða-
brekku í Mýrdal og gerist bóndi.
Og ekki nóg með það. Hann byrjar
ritstörf, sem ávallt höfðu sótt á
hugann og gerist einnig kennari í
hjáverkum. Það fer ekkert á milli
mála að oft hafði glíman verið
hörð og erfið við Ránardætur
meðan sjórinn var sóttur og sá
mikli skattur sem sjósóknin
krafðist hafði ekki farið fram hjá
Ragnari. Hann fylkti sér í sveit
Slysavarnafélags íslands og vildi
vöxt félagsins og viðgang sem
mestan. Það var því ekki að undra,
þegar hann var nú búinn að koma
sér fyrir í Mýrdalnum að á hann
sækti sú hugsun á hvern hátt
hann gæti orðið sem mestur og
bestur liðsmaður í verki. Þarna
var hann kominn í þann lands-
hluta, sem hvað mest hefur tengst
björgunar- og sjóslysasögu lands
og þjóðar. Þar gerist hann for-
maður svd. Vonarinnar og jafn-
framt formaður bjsv. Víkverja og
hefur ávallt einvala liði á að skipa.
Og ekki veitir af karlmennsku og
kjarki, þrautseigju og þori, þegar
á reynir.
Á aðra hönd gnæfir Mýrdals-
jökull í öllu sínu veldi með ógn-
valdinn Kötlu og á hina beljandi
úthafið og brimaldan stríða en þar
á milli brunasandar með fjölda
torsóttra og óbrúaðra fallvatna.
Ýmsir höfðu þeir atburðir gerst
nokkrum árum áður er marka
djúp spor í undirmeðvitund hins
aðflutta manns. Þarna hafði tog-
ari strandað og áhöfnin komist í
land. Ráðvilltir, matarlausir og
klæðlitlir höfðu þeir eigrað um
sandinn, þar til loks að sjö þeirra
náðu að Höfðabrekku, en einn
hafði gefist upp við túnfótinn, þar
sem hann fannst örendur næsta
dag. Og nokkru síðar sama ár
hafði áraskipi hvolft í lendingu í
Vík og sex vaskir menn drukknað.
Ragnari skilst því strax að hér
þurfa menn að vera vel á verði og
halda vöku sinni.
Og fyrsta útkallið lætur ekki á
sér standa. Breski togarinn
Grimsby Town strandar skammt
austan ósa Blautukvíslar 23. apríl
1946. Togarinn er að veiðum, þeg-
ar hann strandar og skipverjar því
við vinnu á þilfari. Brotsjóir
ganga yfir skipið og taka fimm
menn fyrir borð. Tveim þeirra er
bjargað, en hinir þrír drukkna.
Björgunarsveitin brýst á strand-
stað og 15 menn eru dregnir til
lands í björgunarstól. Eins atviks
frá þessari björgun er vert að
minnast. Þegar skipstjórinn neit-
aði að fara frá borði, var Ragnar
ásamt félaga úr björgunarsveit-
inni dreginn um borð f togarann.
Tóku þeir karlinn með valdi, en
hann var þá mjög við skál, brutust
með hann úr lyftingu á milli ólaga
fram á hvalbakinn, þar sem þeir
bundu hann i björgunarstólinn,
áður en hann var dreginn í land.
Mest reyndi þó á þolrif björgun-
armanna hinn 17. febr. 1962, er
þeir brutust austur yfir sandana
og Blautukvísl til að bjarga 5
mönnum af vélbátnum Hafþóri
frá Vestmannaeyjum eftir að bát-
urinn strandaði í SV-stormi og
foráttu brimi. Voru aðstæður hin-
ar erfiðustu vegna veðurhæðar og
ófærðar. Fyrir þessa björgun var
bjsv. Víkverji sæmd afreksverð-
launum Sjómannadagsins það ár.
Svo einkennilega vill til að á
sandspildunni, sem er á milli
Blautukvíslar og Dýralækjarkvfsl-
ar hafa fimm skipsströnd átt sér
stað á árunum 1941 til 1975.
Áhafnir þessara skipa voru sam-
tals 100 manns og 85 þeirra bjarg-
að af björgunarsveitum SVFÍ í
Vík í Mýrdal og Álftaveri, 11
þeirra náðu landi af eigin ramm-
leik, þótt 4 yrðu úti á leið til
byggða, en 4 drukknuðu.
Og enn erum við stödd með
Ragnari og hans vösku björgun-
arsveit með fluglínutækin niður á
Höfðabrekkufjöru í janúar 1966.
Þar hafði Fleetwood-togarinn
Wyre Conqueror strandað og
áhöfn hans, 18 mönnum, er giftu-
samlega bjargað í land.
Þá eru þeir margir leitar- og
björgunarleiðangrar, sem Ragnar
og menn hans þurftu að fara um
heiðarlönd og jökla. Mun sá minn-
isstæðasti vera, er farið var til
leitar að Neptune-flugvélinni er
fórst á Mýrdalsjökli um miðjan
janúar 1953. Var 9 manna áhöfn
með velinni og fannst aðeins eitt
lík við hana þegar björgunarþyrla
komst að flakinu um viku seinna.
Síðar grófst allt í snjó og sjálfan
jökulinn og týndist þrátt fyrir
mikla leit.
Það var svo ekki fyrr en í októ-
ber 1981 að þessi sorglegi atburður
rifjaðist upp, þegar gangnamenn
urðu flaks vélarinnar varir í skrið-
jöklinum á milli Gvendarfells og
Moskambs í Mýrdalsjökli. Þar
fundust einnig lík hinna 8 manna,
sem týndir höfðu verið í 28 ár.
Og minnisstæð er mér svipmynd
frá íandsþingi SVFÍ 1968, þegar
Ragnar ásamt sonunum Þorsteini
og Reyni mættu sem fulltrúar
sinna slysavarnadeilda og björg-
unarsveita, allir vaskir menn og
virkir félagar. Eplið fellur ekki
langt frá eikinni segir hið forn-
kveðna. Enn er Reynir í fullu fjöri
sem umdæmisstjóri 10. SVFÍ um-
dæmis. Hann hlaut sína eldskírn á
jöklinum 1953 aðeins 19 ára gam-
all og best sést í skilmerkilegri
frásögn hans í Árbók SVFÍ 1982,
þótt hann geymi með sjálfum sér
merkilega draumsýn frá þeirri
svaðilför. Það er háttur þeirra
Höfðabrekkufeðga að bera ekki
tilfinningar sínar á torg. Og áður
en Ragnar bregður búi og flyst frá
Höfðabrekku eftir nær 26 ár er
skipbrotsmannaskýli risið við
Hafursey og undirbúningur haf-
inn að byggingu björgunarstöðvar
í Vík.
Það, sem að framan er skráð eru
aðeins svipleiftur úr starfi mikils
metins og góðs félaga til að sýna
fram á hið óeigingjarna starf
björgunarmannsins, sem jafnvel
einhver mundi freistast til að
kalla „aðeins góðhjartaðan
bónda“, en einmitt hjartagæskan
hlýtur að vera aðalsmerki þeirra
sem þessum ábyrgðarmiklu störf-
um sinna, ásamt þekkingu á stað-
háttum, skarpskyggni og dóm-
greind.
Og nú er Ragnar fluttur á möl-
ina eins og kallað er og tekinn til
við næturvörslu í banka og að
telja mynt. Það er stutt til hans að
leita og ávallt er kalli svarað, sem
fyrr. SVFÍ hefur aldrei þurft að
ganga bónleitt til búðar. Hann
gegnir sem fulltrúi félagsins
ábyrgðarmiklum nefndastörfum
um björgunarmál, ráðhollur og
rökvís og lætur reynsluna tala
sínu máli. Unga ofurhuga, sem
telja sig allt vita, setur hljóða en
ber þó gæfu til að hlusta.
Og þegar aldurinn leyfir honum
ekki lengur að telja og flokka
myntina, er síður en svo að árar
séu lagðar í bát. Enn svellur selt-
an í blóði og þá er keypt lítil trilla
og haldið út á mið eins og forðum
á bernskuárum vestur við Djúp.
Slysavarnafélag íslands, stjórn
þess og starfsfólk að ógleymdum
fjölda vina og samherja í deildum
þess og björgunarsveitum senda
þér hugheilar hamingjuóskir,
þakka samfylgdina og árna þér
alls góðs um langa framtíð.
Lifðu heill vinur.
Hannes Þ. Hafstein,
framkvæmdastjóri SVFÍ.
Fimm daga haustferð
um Luxemborg,
Móselhérað og Rínardalinn
fyrir aðeins 12.400.- krónur
3.900.- króna afsláttur
fvrir bömin
Hér er úrvals ferðin, sem svo margir hafa beðið eftir. Frábær ferð
í þægilegum langferðabíl um ein fallegustu vínræktarhéruð
Evrópu fyrir aðeins 12.400.- krónur á mann,
miðað við gistingu í tvíbýli.
Aukagjald vegna einbýlis, er kr. 1000.-, 3.900 króna afsláttur
fyrir börn 2ja-ll ára.
Innifalið í verðinu er flug, rútuferð og íslensk fararstjórn
Brottför 9. september. Heimkoma 13. september.
Ferðaáætlun:
9. sept. Flogið til Luxemborgar -
Komið sér fyrir á Hótel Aerogolf
Sheraton - Eftirmiðdagurinn frjáls -
Gisting.
10. sept. Morgunverður - Ekið um
sveitir Luxemborgar, Ardness, Wiltz,
Clervaux, Vianden, Berdorf, Echter-
nach og Luxemborg - Gisting.
11. sept. Morgunverður - Ekið frá
Luxemborg til Grevenmacher og vín-
kjallari Bernard Massard heimsóttur
- Síðan til Wasserbilling og Trier -
Skoðunarferð um Trier - Gisting á
Hótel Holiday Inn.
12. sept. Morgunverður - Nú er lagt
upp í heils dags skoðunarferð um
Mósel- og Rínardalinn - Farið til Bern-
kastel Kues, Traben Trabach, Rúdes-
heim, farið með ferju yfir til Bingen
og ekið um Hunsrúck til Trier - Gist-
ing.
13. sept. Morgunverður - Frjáls tími
fram að hádegi fyrir þá sem vilja
versla og skoða sig um, en síðan er
ekið til Luxemborgar. Flogið til Kefla-
víkur.
Tryggðu þér far
STRAX:
✓
I fyrra seldist þessi ferð upp á nokkrum klukkustundum.
ER ÞETTA EKKI FERÐIN, SEM ÞÚ VARST AÐ BÍÐA EFTIR?
URVAL
vió Austurvöll S26900
Umboósmenn um allt land
.o^