Morgunblaðið - 04.09.1983, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 04.09.1983, Blaðsíða 22
70 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 1983 Eftir 54 ír hittast þeir aftur, Carrol B. Forster til vinstri og Norman Vaughan, hér á íslandi, en þeir eru tveir af tíu eða ellefu mönnum, sem enn eru á Iffí af leiðangursmönnum Richard E. Byrd á suðurskautslandið, 1928—1930. Morgunbi*Ai«/ kee Hljóp kríngum heim- inn á 7lA sekúndu Rætt við Norman Vaughan, kunnan heimskautafara, sem hitti aftur vin sinn Carroll B. Foster á íslandi eftir 54 ár, en síðast voru þeir saman á suðurskautinu í fyrsta leiðangri Richard Byrds þangað, 1928—30. Það var á suðurskautinu fyrir um 54 árum að tveir ungir vinir, Norman Vaughan og Carroll Baldwin Foster, kvöddust með handabandi og óskuðu hvor öörum góðs gengis í framtíðinni. Þeir áttu ekki eftir að hittast aftur fyrr en að 54 árum liðnum en þegar þeir loks gerðu það, var það hér uppi á íslandi. Vaughan átti eftir að dvelja á suðurskautinu næstu tvö árin ásamt 41 öðrum leiðangursmanni undir stjórn Richard E. Byrds landkönnuðar og seinna aðmíráls í bandaríska flotanum. Foster hélt aftur til Nýja Sjálands þaðan sem leiðangurinn hafði lagt upp og síðan heim til Bandaríkjanna. Þá Vaughan og Foster gat ekki grunað úti á köldum ís suðurskautslandsins að ríflega hálfri öld seinna ættu þeir eftir að hittast aftur, hinum megin á hnettinum. Árin liðu. Um síðir fluttist Foster til Islands þar sem hann gerðist forstjóri Menningarstofn- unar Bandaríkjanna, giftist ís- lenskri konu, Helgu Weisshappel, og býr nú á Vesturgötinni. Minn- ingar úr ferðinni á Suðurskautið fylgdu honum hvert sem hann íór. Svo var það einn daginn nú síðla sumars að hann frétti af því, í gegnum Morgunblaðið, að Norman Vaughan væri staddur hér á ís- landi í sambandi við fund átta bandarískra herflugvéla á austur- strönd Grænlandsjökuls. Hann hafði þegar upp á honum og loks hittust þeir aftur eftir öll þessi ár. Það voru fagnaðarfundir. Þeir eru tveir af tíu eða ellefu mönnum, sem enn eru á lífi af næstum hundrað manna leiðangri Byrds á suðurskautið. Það var fyrsti leið- angur Byrds þangað af mörgum og í honum flaug hann fyrstur manna yfir Suðurpólinn. Þessi leiðangur Richard E. Byrds, þá sjóliðsforingja en seinna aðmíráls, á suðurskautið stóð í tvö ár, frá 1928 til 1930. Eitt af markmiðum leiðangursins var að fljúga yfir Suðurpólinn, en 1926 hafði Byrd fyrstur manna flogið yfir Norðurpólinn. Norman Vaughan var hundasleðastjóri suðurskautsleiðangurs Byrds, en Carroll Foster var bátsverji á Ele- anor Bolling, öðru af tveimur skip- um, sem fluttu leiðangursmenn og birgðir þeirra til suðurskautsins. „Við vorum fyrstu Bandarfkja- mennirnir, sem komu á suður- skautið og það er mjög mikil- vægt,“ sagði Vaughan, þegar við vorum sestir í stofu á heimili þeirra hjóna Helgu og Carroll Fosters á Vesturgötunni til að rifja upp leiðangur Byrds fyrir 55 árum. Foster, sem var yngstur leiðangursmanna, er nú 75 ára en Vaughan er 78 ára. Báðir eru þeir vel ernir og viðræðugóðir og þeir skemmtu sér mikið yfir endur- minningum þess tíma er þeir voru á suðurskautinu. „Það að við vor- um þarna fyrstir Bandaríkja- manna hafði í sjálfu sér stórkost- leg áhrif. Það voru í kringum 5000 menn sem buðu sig fram sem sjálfboðaliða til fararinnar og við Foster hérna vorum aðeins tveir af þeim heppnu." Þeir lögðu af stað frá Nýja Sjá- landi á tveimur skipum, Eleanor Bolling, sem var birgðaskip, nefnt eftir móður Byrds, og City of New York, sem var þrímastra seglskip en að sögn Vaughans var það eitt af síðustu seglskipunum sem not- uð voru í viðlíka leiðöngrum. „City of New York var mjög hægfara skip svo Eleanor Bolling varð að draga það mestan part í gegnum ísinn niður að suður- skautinu. City of New York hefði í sjálfu sér getað starfað eitt sér, en í þessari ferð þurfti í alla staði að hafa tvö skip. Birgðirnar voru svo miklar og Byrd aðmíráll, sem þá var sjóliðsforingi, vildi hafa tvö skip til öryggis, ef annað þeirra sykki. Að auki voru þrjár flugvél- ar sem við höfðum með okkur um borð fyrir pólarflugið. Því voru góðar ástæður til að hafa tvö skip.“ Var ekki erfitt að sigla niður að álfunni? „t kringum Antarktfkuálfuna er gríðarlega mikið ísbelti á hreyf- ingu og er kallað íshella og að ferðast í gegnum hana var einhver stórkostlegasta reynslan sem við urðum fyrir í Ieiðangrinum. Við vorum kramdir af ísnum og bátar okkar sukku og ef vindáttin hefði ekki verið rétt, hefðum við getað lokast inni f fsnum og það hefði gereyðilagt allt fyrir okkur. Við komumst þó klakklaust gegnum íshelluna en hún er ein af ástæð- um þess að margir könnuðir hafa ekki komist yfir á Antarktíku- meginlandið. Árið 1910 hafði Amundsen farið á sama stað og Little America var sett á fót og hann kallaði sfna stöð, Framheim, heimili Fram, en það var nafnið á bátnum hans. Þaðan hélt hann yf- ir ísinn og á Suðurpólinn og varð fyrstur manna til að ná þangað. Eitt af markmiðum okkar leiðang- urs var að fljúga yfir Suðurpólinn og aftur til baka, sem við gerðum 29. nóvember 1929.“ Af hvaða tegund voru flugvél- arnar sem þið höfðuð meðferðis? „Flugvélarnar voru „Ford Trim- otor“, „Fokker* og „Fairchild". Ford Trimotor var gerð af Ford- fyrirtækinu, en Henry Ford var náinn vinur Byrds og sérstakur stuðningsmaður Byrd-leiðangurs- ins. Sú flugvél var það nýjasta f þá daga og var stærsta farartækið, sem við gátum fengið. Fokkerinn og Fairchild-vélin voru notaðar f styttri könnunarferðir því mjög lítið var vitað um þessa víðáttu- miklu álfu og Byrd fór á þessum minni vélum til kortlagningar þessa mikla landflæmis. Þúsundir fermílna lands sem enginn maður hafði áður augum litið. Eitt lands- væðið var nefnt eftir eiginkonu Byrds, Marie Byrd Land. Það er gríðarlega stórt svæði." Gekk slysalaust að flytja flug- vélarnar í land? „Flugvélarnar voru teknar af skipunum og settar á ísinn og minni vélunum var flogið strax til stöðvarinnar sem við reistum, Little America, eftir að snjólend- ingarskfðunum hafði verið komið undir þær. En þriðja vélin, Ford Trimotor, hreyfðist ekki eftir að hafa verið sett á ísinn því hún fraus föst við hann. Byrd spurði mig sem var yfir hundasleðastjór- unum, hvort hundarnir gætu dreg- ið þessa stóru flugvél alla leið til Little America, en stöðin var nfu mílur frá brún íssins. Við urðum að koma stöðinni fyrir svo langt frá sjónum því stórir hlutar ís- brúnarinnar voru allan tímann að brotna frá og reka út og mynda iskletta Antarktfku. Einn var meira en mílu langur. Við vildum ekki vera á svæði sem gæti brotn- að og svo myndum við vakna einn morguninn og vera umkringdir sjó og á minnkandi svæði og engin leið væri að komast f burtu. Ég sagði við Byrd að við skyld- um reyna að láta hundana, sem voru 97 að tölu, draga vélina til Little America. Við settum í hana langan kaðal og allir bundu hund- ana sína við hann. Vélin var á stórum skíðum og eitt af því sem allir vita núna er að undir skfðin á alltaf að setja eitthvað sem lyftir þeim af snjónum því annars veld- ur þungi vélarinnar því að skíðin frjósa við ísinn. Þessar upplýs- ingar höfðum við ekki þá, en við lærðum fljótt því skíðin undir vél- inni höfðu þegar festst við ísinn. Við gátum ekki hreyft hana fyrr en eftir mikið strit og erfiði í einn og hálfan tíma. Þá loks fengum við vélina til að renna og 97 hund- ar drógu hana alla leið til Little America í einum rykk því við gát- um ekki hætt á að stoppa af ótta við að koma vélinni ekki á ferð aftur. Við hundasleðastjórarnir svitn- uðum mikið við að koma vélinni af stað og við höfðum því rifið af okkur yfirhafnirnar og kastað þeim frá okkur hér og hvar á fs- inn. Og svo þegar vélin fór að renna gátum við ekki stoppað til að klæða okkur aftur í yfirhafn- irnar og hver og einn af okkur fór á skyrtunni þessar níu mflur til Little America. Þegar við komum þangað þustum við allir inn f eld- húsið til að hlýja okkur og súpa á kaffi. Þetta var stærsti hunda- sleðahópur sem nokkurn tíma hafði verið beytt saman f heimin- um fram á þann dag en hundarnir komu víðsvegar að, frá Grænlandi, Labrador, Nýfundnalandi, Banda- ríkjunum, Alaska og Kanada.“ Hvað varð um Little America? „Tólf árum eftir að við reistum hana, brotnaði svæðið sem hún stóð á og flaut í norðurátt. Á hverju ári eftir að við höfðum ver- ið þama nálgaðist sjórinn meira og meira þar til hann náði stöð- inni. Það sýnir kannski best fram- sýni Byrds að hafa komið henni fyrir svo langt frá sjónum að hún myndi ekki brotna þau tvö ár sem við vorum þarna.“ Var ekki mikið erfiði að vera hundasleðastjóri þegar engin far- artæki önnur voru til flutninga og hundasleði var eina mögulega far- artækið? „Það var gríðarleg vinna, sér- staklega þegar við vorum að koma Little America á fót, því á hunda- sleðunum urðum við að flytja 600 tonn af mat og öðrum vistum frá skipunum þessar níu mílur til stöðvarinnar. Þetta allt gerðu hundasleðastjórarnir með hund- unum sínum og lifðu f tjöldum á Little America. Og á morgnana vorum við svo þreyttir að við sváf- um á sleðunum á leiðinni að skip- unum þar sem hlaðið var á þá, en það gerðum við ekki því við fórum í skipin og fengum okkur morgun- mat. Ef við vildum gátum við fengið f öll mál, mörgæsa-, sels- eða hvalkjöt. Þegar við svo vorum búnir að fá okkur morgunmat var búið að hlaða á sleðana, en við bundum alltaf birgðirnar sjálfir við sleðann. Það var mjög mikilvægt að koma eins miklu á sleðana f hverri ferð og hægt var. Og það var allt vigtað sem sett var á þá, hvort sem það voru kol, matur, pottar eða byggingarefni svo allir vissu hvað hver var með mikið. Eftir hádegi héldum við aftur til Little America, hlupum með sleðunum, affermdum þá og sváfum á leið- inni til baka að skipunum. Þar voru sleðarnir aftur fermdir og aftur hlupum við með þeim til Little America. Og svona var þetta á hverjum degi að við hlup- um tvisvar sinnum nfu mílur frá skipunum. Mig minnir að við höf- um tvisvar og kannski jafnvel þrisvar hlaupið þrisvar sinnum níu mílur til stöðvarinnar á einum degi.“ Segðu mér nánar af því þegar Byrd flaug yfir pólinn. „Áður en Byrd lagði af stað frá Little America til að fljúga yfir pólinn á Ford Trimotor vélinni hafði næstráðandi hans, dr. Lawr- ence M. Gould, sem er stórkostleg- ur maður og kallaður af öllum sem þekkja hann Herra Antarktíka, því hann veit allt um þessa álfu (hann er enn á lífi og hefur það gott við háskólann í Arizona), með höndum stjóm á leiðangri niðri á

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.