Morgunblaðið - 04.09.1983, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 04.09.1983, Blaðsíða 16
64 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 1983 „ÁRIÐ 1919 fóru tveir sænskir fræðimenn, Hakon Wadell og E. Ygberg, austur yfir Vatnajökul sunnanverðan," skrifar dr. Sigurður Þórarinsson í bókinni Vatnajökull.„Þeir lögðu upp frá Kálfafelli í Fljótshverfi 27. ágúst með þrjá hesta, einn sleða og nesti og fóður til 10 daga. Haustið áður hafði Katla gosið, svo að Skaftárjökull var allur þakinn 10—20 sm þykku lagi af Kötluvikri. Sleðafæri var því afleitt og sóttist ferðin seint. Þegar hærra dró á jökulinn, 1200—1300 m, tók færi að léttast. Hinn 30. ágúst fóru þeir framhjá Pálsfjalli að austan og héldu um 5 km þaðan í norður, en breyttu þá stefnu til austurs. Daginn eftir munu þeir hafa farið yfir Háubungu (1700 m), og um kveldið rákust þeir á Grímsvötn, sem þeir töldu með réttu upptök Skeiðarárhlaupa. Gátu þeir fengið furðugott yfirlit yfir Grímsvötn og gert riss af sigdæidinni. Hinn 18. sept. héldu þeir áfram austur og lentu þá í snjóhríð og dimmviðri. Þeir munu hafa verið komnir austur á móts við Birnudalstind að kveldi hins 4. sept. og hölluðu sér þá austur á bóginn í stefnu á Heinabergsjökul. Brátt komust þeir í ógöngur vegna jökulsprungna og urðu að skilja sleða og farangur eftir. En sjálfir komust þeir með hestana til byggða að morgni 5. sept. Hinn 18. sept. héldu þeir upp á jökul til að sækja dót sitt, og fylgdi Eyjólfur Runólfsson á Heinabergi þeim. Uppi á jöklinuir skall á þá stórhríð og urðu þeir að láta þar fyrir berast í tvo sólarhringa, nauðulega staddir. Af fjórum hestum, er þeir höfðu meðferðis, misstu þeir tvo í jökulsprungu og auk þess mikið af farangri, þ.á m. öll sýnishorn er þeir höfðu safnað í ferðinni. Má kalla þetta fyrstu rannsóknarför á Vatnajök- ul. Hnúkar tveir á Grímsfjalli kallast Svíahnúkar, eystri og vestri, til minningar um þá félaga." Ría Ygberg, ekkja Eriks Ygbergs, geymir dagbókina hans. — Ég hitti hann eftir íslandsferðina, segir hún, og við dvöldum árum saraan í þremur heiras- álfum, þar sem hann var við málmleit. En hann náði sér aldrei eftir hrakn- ingana á Vatnajökli og dó 57 ára að aldri. Tilefni þess að þetta er hér rifjað upp er grein í Svenska Dagbladet 5. júní, skrifuð vegna gossins í Grímsvötnum í sumar og þar eru fréttir af því hvað síðan varð um þessa tvo 23 ára gömlu jarðfræði- stúdenta frá Stokkhólmi og birt frásögn úr gamalli og slitinni dag- bók Eriks R. Ygbergs frá fslandi, sem Ría kona hans geymir. En eftir henni er haft að hrakningarnir í íslandsleiðangrinum hafi kostað Erik Ygberg heilsuna og hann látist 57 ára gamall fyrir 30 árum. Hún segir að Erik hafi aldrei komist yfir það að þeim félögum var ekki trúað að þeir hafi fundið eldfjall undir Vatnajökli. Hann var læknissonur, fæddur 18%. Eftir að hann lauk há- skólanámi fluttu þau hjónin frá Svíþjóð og hann ferðaðist um Kan- ada, í Nýfundnalandi, Bandaríkjun- um og á Spáni sem málmleitarmað- ur. Þá tóku eftirköstin frá hrakn- ingunum á Vatnajökli að plaga hann, svo að hann varð m.a. að liggja í 4 ár í gifsi. Þau hjónin fluttu því heim til Svíþjóðar, þar sem hann dó 1952. Félagi hans Ha- kon Wandell var fæddur í Gauta- borg 1895 og flutti líka snemma til útlanda og varð doktor í Chicago. Hans lífsstarf varð gerð jarðfræði- korta af meginlandi Ameríku og hann skrifaði m.a. bók um maya- indíánana í Guatemala. Wandell féll frá 1962. Vonbrigði með viðtökurnar Þeir félagar töldu sig hafa fyrstir manna komið að eldgígnum, sem þeir nefndu Svíagíg. Stungu skírn- arvottorðinu í tóma viskíflösku ásamt nafnspjöldum sínum, sem á stóð Erik R. Ygberg og Hakon Wad- ell. En íslendingar sögðu að þeir hefðu þarna fundið aftur gömlu eldstöðina Grímsvötn, segir í frá- sögn sænska blaðsins. Þegar þeir Ygberg og Wadell komu aftur heim til Stokkhólms í nóvember 1919 og sögðu frá því sem þeir höfðu orðið áskynja, þá var gert gys að þeim. Virkt eldfjall undir jökíi var á þeim tíma ekki talið annað en uppspuni. Alltof ósennilegt til að því væri trú- að, hvað þá heldur stærðin á þess- um gíg, sem þeir félagar áætluðu 8 _ kjii ájengd pg5_á brejdd. Þeir höfðu kostað ferðina sjálfir og voru af- greiddir sem æfintýramenn. Wadell skráði frásögn úr ferðinni í Geo- , grafiska annaler árið 1920, og svo lagðist málið í þagnargildi. Þótt ferð próf. Nielsar Nilsen 15 árum síðar, þegar eldgos hafði orðið í Grímsvötnum, staðfesti athuganir sænsku stúdentanna, þá var þeirra að engu getið og aldrei skrifuð bók um hrakninga þeirra. Og þegar prófessor Hans Áhlmann fór sjálf- ur á skíðum í Vatnajökulsleiðangur 1936, þá er sagt að þeirra hafi verið eins lítið getið og mögulegt var. Sýnilega haft eftir frú Ríu Ygberg, sem endurspeglar vonbrigði manns hennar. En viðurkenningu dansks prófessors gat sænskur prófessor ekki alveg gengið fram hjá, stendur þar. Því má skjóta hér inn í, að sænsku stúdentarnir máttu víst þakka fyrir að þeir urðu ekki allir við að finna þennan gíg, sem þeir kölluðu Svíagíg (raunar hestarnir þeirra sem fundu hann), því þegar þeir komu í kófi á klettabrúnina sunnan Grímsvatna, þar sem síðan heitir Svíahnúkar, snarstönsuðu hestarnir og vildu ekki lengra. Og þegar birti sáu þeir að þeir voru á hárri brún og hefðu ekki þurft um sár að binda, ef þeir hefðu farið fram af og hrapað ofan á íshelluna í Grímsvötnum. Þótt ekki sé það í dagbókinni segja þeir frá því í blaðagrein. Dagbókin hjá Ríu Ygberg Ría Ygberg á í fórum sínum í íbúð sinni í Stokkhólmi litla svarta og slitna dagbók, sem maður henn- ar skrifaði í ferðinni. Innfærslur eru stuttorðar, hefjast þegar þeir félagar leggja af stað með lest til Kaupmannahafnar kl. 7.10 síðdegis 26. maí 1919. Dagbókinni lýkur með jafn fáum orðum 19/11 1919. Komið til Stokkhólms kl. 10.30 f.h. Stutt- orðar innfærslur í bókina varða fyrst og fremst athuganir á náttúr- unni, steintegundum, plöntum og fuglalífi. Við grípum niður í frá- sögnina í dagbókinni. Þeir Ygberg og Wadell fara með gufuskipinu ís- landi til Reykjavíkur og lentu við komuna ásamt farþegum í sóttkví Dagbók Eriks R. Ygberg frá fórinni á Vatnajökul er vel varðveitt. Hún geymir fáorða frásögn af leiðangrinum. Byrjar í Kaupmannahöfn 26. maí 1919. Úr slitinni svartri dagbók: Hestarnir björguðu lífi þeirra vegna ótta við spönsku veikina. En þegar þeir koma í land þykir Erik Ygberg það helst tíðindum sæta að í bænum eru 125 bílar, sími, sím- skeytaþjónusta og kvikmyndahús. Engum liggur á. Þeir fara í fjölda heimsókna og kaupa inn, m.a. út- vega þeir sér hesta. Og 21. júní er skráð: rasssárir og fótstirðir. Þeir koma á gamlan torfbæ á ferðalag- inu austur og Ygberg skrifar: Ótrú- lega vesæll. í júlílok skilja stúdent- arnir tveir við Henrik Strindberg dósent og kvikmyndagerðarmann- inn Borge. Þeir koma í Vík í Mýr- dal, þar sem þeir heyra frásagnir af Kötlugosinu frá árinu áður og ösku- regni svo þykku að varla sáust handa skil. Og nú hefst hinn eigin- legi leiðangur á Vatnajökul. Fundu eldgíg í Vatnajökli Hinn 12. ágúst ríða þeir af stað frá Kálfafelli, eftir að hafa keypt sér gærur og hestahúðir fyrir 15 kr., og halda á vit Vatnajökuls. Þann 24. ágúst urðu þeir fyrir töf- um á uppleiðinni, því hestur féll í skriðu og erfiðleikar að láta hann halda áfram. Einn bagginn losnaði og rúllaði niður brattann. Sem bet- ur fer var það ekki eldsneytisbrús- inn, segir Ygberg og andar sýnilega léttara. Þeir halda áfram Svolítið inn á jökulinn, losa farangurinn, gera við sleðann og snúa við í myrkrinu aftur í Kálfafell. Og nú eru teknar 10 daga vistir handa hestunum (109 kg af heyi, 20 af rúg, 10 kg af haframjöli og 20 kg af rúgmjöli). Hestarnir eru líka út- búnir með „ísbrodda", skrifar Yg- berg. Það er ekki fyrr en 27. ágúst að hin eiginlega ferð upp á jökulinn hefst í fögru veðri og logni. Æði mikil aska er á jöklinum, en þó gengur vel að draga sleðann. Tjald- að er kl. 9 um kvöldið. Daginn eftir er öskulagið þó orðið of þykkt fyrir sleðann og þeir verða að breyta stefnu. Héldu í átt til „fjalls sem gekk langt inn í jökulinn". Eftir nokkurra daga ferðalag í norðurátt, taka þeir kompásstefnuna beint í austur. í 1600 m hæð á hájöklinum var ísinn loks orðinn sléttur, svo að sleðinn rann jafnt og vel. Um há- degi 31. ágúst skall yfir dimmviðri. Wadell sat á sleðanum með komp- ásinn í hendi og tók stefnuna fyrir Ygberg, sem reið á undan og teymdi sleðahestinn. Hríðin fór stöðugt vaxandi, svo að Ygberg gat ekki greint annað en hófa hestsins og rödd Wadells. Allt í einu stansaði hesturinn, skrifar hann í blaðagrein árið 1945. Viðbragð hestsins var aðvörun sem ekki var hægt að láta sem vind um eyrun þjóta og Ygberg hallar sér fram á makkann. Vindhviða sviptir frá svo að sést nokkra metra fram fyrir hestinn í kófinu og við blasir gapandi hyldýpi. Ygberg hrökk aft- ur á bak og lestin sneri frá. Þeir höfðu í raun og veru næstum lent í eldgígnum sínum. Þann 1. septem- ber blasti við í glampandi sólskin- inu geysistór ísi lögð sigdæld. Á þrjár hliðar var þessi slétta um- kringd 125 m háum klettum og á fjórðu hlið myndaðist dalverpi sem opnaðist út á Skeiðarárjökulinn og endaði í sandbrekku. Þeir fóru í línu niður á botninn á dældinni, sem var þakinn ís. En meðfram klettaveggnum var þó mjó ræma af vatni og út um sprungur í berginu barst reykur og gufa, sem lyktaði eins og brennisteinn. í dagbókina skrifar Ygberg: — Stikaði lengd gígsins frá vestri til austurs. Hann reyndist vera 8 km og 5 km á breidd. Gengum upp á vinstri barminn. Þar sem við vorum fyrstir við þennan gíg, kölluðum við hann Svíagíg. Ekki er skírnar- vottorðið í viskíflöskunni og nöfnin þeirra nefnd í dagbókinni, en frá þeim segir Ygberg í blaðagreininni 1945. En hann skrifar: — Kl. 4 dimmdi aftur yfir og við urðum að snúa við til tjaldsins. Kófið heldur áfram 2. og 3. sept- ember og að morgni 4. september vita þeir ekki hvar þeir eru. Sprungurnar í ísnum reynast þeim svo erfiðar að þeir verða að lokum að skilja sleðann eftir í 1500 m hæð. — Tókum með 2 reiðhesta og baggahest með koffortin. Langt fyrir neðan okkur gátum við greint Hornafjörð og handan hans hafið. Höfðum í fyrstu ætlað að halda niður mjög bratta jökulbrekku með þéttum djúpum sprungum. Komum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.