Morgunblaðið - 04.09.1983, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 04.09.1983, Blaðsíða 32
80 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 1983 Andveringurinn Finn Myrvang og rit hans „I havsaugau Finn Myrvang höfundur rítsins „I havsauga'*. — eftir Lúðvík Krístjánsson rithöfund í Noregi hefur tölu- vert verið gert af því að halda til haga og rann- saka hvers konar heiti í sambandi við fiskveiðar og fiskifang, veðurfar og sjólag, ennfremur fiski- mið, örnefni við sjávar- síðuna og nöfn á skerj- um, hólmum og eyjum. Finn Myrvang hefur rannsakað þetta ítarlega á Andeyjarsvæðinu í Vesturálnum, og sér þess m.a. glögg merki í tveggja binda riti hans „I havsaugau. Margt er þar, sem minnir á skyldleika í orðafari norskra og íslenskra fiskimanna, eins og ráða má af dæmum, sem hér verða tínd til. Þá er vert að gaumgæfa náttúru- nöfn og athuga á mynd- um, hvernigþau höfða til staðhátta. I íslenskt sjómannamál árabáta- aldar er ekki nema að nokkru leyti sambærilegt við það tungutak, sem sjómönnum er nú tamast. Ástæðan til þess er auðskilin, en aftur á móti mun fæstum ljóst í hverju munurinn er fólginn, m.a. vegna þess að engin rannsókn hef- ur verið gerð á máli fyrri tíðar sjómanna. Eins er því farið um orðafar strandbúa og eyjaskeggja, t.d. í sambandi við mismunandi heiti á landslagi sjávarsíðunnar, við hana og undan henni. Rfkur þáttur í daglegri önn fiskimanna var notkun fiskimiða, en á þvi sviði hefur einnig fátt verið kann- að hérlendis, og dylst þó ekki, að þar er margt vert rannsóknar. Að þessu er vikið hér í öndverðu sökum þess, að ætlunin er að geta rits, þar sem á norska vísu er fjallað um ofangreint efni. Finn Myrvang er meðal þeirra Norðmanna, sem á undanförnum árum hafa ritað margt, er flokka má undir þjóðfræði og þjóðhætti. Hann er maður á besta aldri, fæddur 1937 í Bö í Vesturálnum, og heimabyggðin orðið hans aðal rannsóknarefni, einkum Andeyja og héraðið kringum hana. Finn lauk fyrst prófi í lyfjafræði, en síðar í málvísindum og fjallaði lokaprófsritgerð hans í Þránd- heimi um örnefni við sjó og sjáv- arsíðu á Andeyjarsvæðinu og orð tengd fiskifangi og fiskveiðum. — Á árunum 1%6—1968 var hann styrkþegi „Norges Allmennvit- skaplege Forskningsr&d". Margar ritgerðir hans f tímaritum fjalla einkum um örnefni, og hefur hann þráfaldlega haldið svæðisbundin námskeið í þeim efnum fyrir kennara. Andveringar gefa út veglegt ársrit, sem heitir „Böfjerding" og er Finn aðalritstjóri þess. í því á hann margar ágætar ritgerðir og mikið og fagurt ljósmyndaefni. Fremur var fágætt í Noregi eins og hér að sjómenn skrifuðu miða- bækur. Ein þeirra, sem geymir miðin í kringum Væröya, er birt í „Böfjerding" 1982. Henni fylgja skýringar frá Finn, glöggar og ítarlegar, og taka öllu fram, sem ég hef áður séð um það efni, sök- um þess hve margt er þar skýrt með myndum. Fyrsta rit Finn Myrvangs — Huh - tetta — kom út hjá Há- skólaforlaginu í Ósló 1963 og í kjölfar þess bækurnar „Björne- törk og reinkalvri", „I Trollbotn" og „Att i Ariblá". Efni þessara rita er að langmestu leyti þjóð- fræðilegt, sumt telst til þjóðhátta, þjóðsagna og ævintýra. Sögu- og sagnasviðið er norður-norskt, eða að langmestu leyti Vesturállinn — Böfjörðurinn og Andeyjan. Tölu- vert af bókaefni Finns er komið úr Þessi klettur heitir Kvalbaken (Hvalbak) og getur talist lifandi eftirmynd. Skrinet. Minnir lögunin ekki Ijóslega á skrín? Mjelde* o Hagbariholmen Steigen Skagsiad Lillesirter^ Öngulseyja. Er samlíkingin ekki nógu skýr? Hakvig f\ \ [ Steinmoa X J J \ x Storsirter \ ( \ / / x Vinjen \j y Laskesiad x Slornessel x Nygðrd Melleskog Myklebosiad X x Kvelvet: Hvolf. Gæti þetta ekki verið bátur á hvolfi? munnlegri geymd, og voru margir heimildamenn enn á lífi, þegar rit- in birtust. í ritinu „Att i Ariblá", sem á íslensku gæti þýtt „úti í glyrnu" eða „úti á ballarhafi", er fjölbreytt sjávarháttaefni, mest allt tengt Andey og Andveringum, en að Finn standa sjómenn í ættir fram. Margt kemur þar kunnug- lega fyrir og er til marks um, hvað sameiginlegt hefur verið íslensk- um og norskum fiskimönnum. Enn verður þetta ljósar, þegar gaum- gæft er rit hans „I havsauga", sem er í tveim bindum og kom út 1981-1982. II Undirtitill þessa rits Finns er: Andey í ljósi örnefna og aldarfars við sjávarsíðuna. í formála fyrra bindis segir hann: „I havsauga" er ekki einungis skrifað fyrir And- veringa, heldur er ætlunin að leiða í ljós, hversu efni þess er í senn norskt og norrænt, og hefur glím- an við það fært mér augljóslega heim sanninn um, hvert gildi er fólgið í sögu- og menningararf- leifð þeirra, sem búið hafa við haf- ið. — Athyglisverður er. skyldleiki orðafars sjómanna og gömlu mið- alda-skáldanna. — Ótrúleg eru þúsund ára gömul tengsl í mál- notkun sjómanna í Noregi og þeirra, sem búa fyrir vestan haf (Suðureyjar — Færeyjar — ís- land). — Höfundur greinir fjölda dæma til áréttingar þessari skoð- un sinni og verður síðar vikið að nokkrum þeirra. Höfuðkaflar fyrra bindis eru: Haf og himinn — Úti á miðum — Úr einu í annað — Sker, grynn- ingar, tangar. í kaflanum Haf og himinn er fjallað um flóð og fjöru, ný og nið, strauma, sjói og bárur, vind og úrkomu, loft og hita, storm- og veðurmerki á sérstökum stöðum. Aftan við hvern kafla eru ítarlegar skýringar, þar sem m.a. kemur greinilega í ljós, hve norska sjómannamálið er skylt því ís- lenska. Aðbristi — byrjun aðfalls er í Vesturálnum: „Sjöen er i brest". — Þegar verið var á veiðum með handfæri sögðu menn: Færið ber út á gjót — ber frá borði vegna straums. — Andveringar orða það þannig: „Dá gjóta det for mykje“. — Þegar bát ber af miði, er það reiðsla, hann reiðir, en á norsku: „Reie det for mykje". — Vekja straum): „lage straum". Það lóar ekki við stein): „Han dreg ikkje om ein stein". — Svartalogn): „Svartstilla" — stafalogn): „stav- stilla". — Grunnbrot — landbrot): „grunnbrott" — „landbrott". — Bárukambur): „bárekammer". — Fylling, mikil alda); „fyllingen". — Haugasjór): „bár som haug“. — Bárufax): „Faksbára“. — Agg, aggva, lítil alda): „agg i sjöen". — Bærlingur, litil alda): „bærling". — Krakkildi): „sjökrakk". — Skaflasjór): „skavlsjö". — Gráð): „grá“. — Kæla); „kjöla". — Kemur á norðan): „kjem nordan av“. — Bálhvass, bál): „báling“. — Dyngdi niður snjó): „han dyngte ned sny“. — Hundslappadrífa): „lapps- kletta“. — Rýkur upp): „ryk op“. — Garðaveður): „rokkgard". — Kaldyrja): „Kaldörje“. — Skoða veðrið): „sjá i verit". Að óska byrj- ar — gefa vindakára): „kjöpe vind“. — Klóra í mastrið): „ídadde mastra". — Blístra í vindátt): „plystre vind“. — Þannig mætti lengi halda áfram, en Finn rekur einnig oft skyldleikann til Fær- eyja og Suðureyja. í kaflanum „Út á mið“ er margt ákaflega áþekkt og hér tíðkaðist, m.a. hvernig mið verða til, örnefni þeim tengd, hvernig miðað var, varúðarorð vegna miða, að örnefni sama staðar er annað á sjó en landi, að staður ber fleiri en eitt heiti eftir því hvaðan er miðað f

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.