Morgunblaðið - 04.09.1983, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 04.09.1983, Blaðsíða 18
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 1983 66 íslendingarnir bera saman bækur sfnar f leikhléi. Næst á mynd- inni eru Jón Baldursson og Sævar Þorbjörnsson. Við hlið Sævars er Elín, kona Jóns Baldurssonar, þí Jón Ásbjörnsson, Guð- mundur Pétursson, fyrirliði utan leikvallar og Sfmon Símonar- son. Við hlið Sfmonar stendur kona hans, Kristín. Mjrndir Arnér. Tveir af æðstu forsvarsmönnum bridgefþróttarinnar í fundi með blaðamönnum, Nils E. Jensen, forseti Evrópusambandsins, og J. Ortiz-Patino, forseti Alþjóðabridgesambandsins. Á fundinum kom fram raikil óánægja meðal fréttamanna með heimsmeistaramótið, sem fram fer í Stokkhólmi f haust, en þar verður spilað í litlum herbergjum þar sem almenningur og blaðamenn fá ekki að sjá spilarana nema á sjónvarpsskjám. Það var hátt til lofts og vítt til veggja í byggingunni sem spilað var í. Eins og sjá má var þar glæsilegt um að litast. Efri myndin er tekin fram á ganginn en hin framan við húsið, en beggja vegna þess voru gosbrunnar. í húsinu var matsölu- staður og lítið spilavíti. Svipmyndir frá Evrópumótinu Spánverjar vermdu flestu 24 sætin á mótinu. Þeir voru í efsta sæti eftir þrjár umferðir en enduðu f neðsta sæti. Á myndinni horfir einn spænsku spilaranna til himins, trú- lega að reyna að finna lausn á ein- hverju vandamáli bridgespilsins. Bridge Arnór Ragnarsson Evrópumótið í bridge var haldið i Wies- baden dagana 15.—31. júlí sl. og var ís- lenzka landsliðið þar meðal þátttakenda og stóð sig eftir vonum. Ýmislegt hefir verið skrifað um árangur íslenzka liðsinsiaf þeim sem heima sátu þar sem þeir reyndu að geta í eyðurnar um gang mála. Undirritaður var í Wiesbaden síðasta hluta mótsins og fylgdist með íslenzka liðinu. Um árangur einstaks pars er ekki hægt að dæma um að mínu mati — sízt hjá þeim sem ekki voru á staðnum. Mitt mat er það að öll pörin hafi átt bæði góða og vonda daga eins og gengur og hreint fráleitt að tala um að eitt par hafi spilað verr en annað ef á heildina er litið. Eg held að okkar pör séu með jafnvel betri kerfi en andstæðingarnir en það er eins og vanti meiri aga og að spilarar sem spila saman læri betur hver á annan frekar en að andstæðingarnir séu óvinn- andi. Annars stóð ekki til að skrifa langt mál um þetta mót svo löngu eftir að því er lokið en birta heldur nokkrar myndir frá mótinu. Benito Garozzo og Giorgio Belladonna. Garozzo hefir fimm sinn- um orðið Evrópumeist- ari, en Belladonna hvorki meira né minna en ellefu sinnum. Hann varð fyrst Evrópumeist- ari 1956 og er enn í fremstu röð 27 árum síð- ar. IKAUPMENN- VERSLUNARSTJÓRAR AVEXTIR IKUHNAR oananar uei Monie sínur Brazil — Mineolas — Epli rauö frönsk — Epli < — Sítrónur Outspan — Greip Outspan — Greipfr Ruby Read — Meiónur gular — Melónur Quatalop — Vatnsmelónur ítalskar — Avocado — Plómur döl ar — Plómur grœnar — Ferskjur — Nektarínur Kókoshnetur — Ananas. EGGERT KRISTJANSSON HF Sundagörðum 4, sími 85300 Leiðrétting í þættinum „Hvað er að gerast um helgina" í blaðinu í gær var sagt frá hreyfilistarsýningu sem haldin verður á sunnudag kl. 20.00. Þar misritaðist í mynda- texta föðurnafn eins hreyfilist- armannsins, Sif Björnsdóttur. Morgunblaðið biðst velvirðingar á þessum mistökum. Regnboginn sýnir mynd með Rolling Stones REGNBOGINN er nú að hefja sýningar á kvikmyndinni „Let’s Spend the Night Together", sem tekin var á síðustu hljómleikaferð hljómsveitarinnar „Rolling Ston- es“ til Bandaríkjanna. Myndin er tekin upp í Dolby Stereo. í myndinni syngja og leika „Rolling Stones" mörg af frægustu lögum sínum. SKÓLAVÖRUR [^Bnea I HLÉMMI I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.