Morgunblaðið - 04.09.1983, Page 8
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 1983
56
Ævintýri
„Þetta er rómantísk saga. Raun-
ar er myndin ævintýri eins og
Öskubuska og maður vonar að
stúlkunni vegni vel,“ segir Jenni-
fer Beals. „Mér líkar vel við Alex.
Hún er sjálfstseð og þegar hún vill
eitthvað leggur hún hart að sér til
að ná í það.“
Flashdance er kvikmynd sem
sver sig í ættir við myndir eins og
Saturday Night Fever og á jafnvel
eins miklum vinsældum að fagna
°f> myndin sem skaut Travolta upp
á stjörnuhimininn. „Þau eru ör-
u88lega einhver hin mest grípandi
og skemmtilegustu sem maður
heyrir," sagði stöndugur plötuút-
gefandi þegar hann var spurður
hvað honum fyndist um lögin í
myndinni.
Alex er hrífandi og indæl og full
af fjöri og það fyrsta sem mann
langar til að gera eftir að hafa
farið á myndina, er að dansa. „Það
er ég ánægð með. Ég hef líka heyrt
að í nokkrum kvikmyndahúsum
hafi fólk staðið upp og dansað á
göngunum. „Það er virkilega
„great“,“ segir Beals.
Fyrsta hlutverkið
Þetta er fyrsta hlutverk Jenni-
fer. Hún hefur verið í skóla og
unnið sem fyrirsæta til að fjár-
magna nám sitt í Yale. Það er ekki
ákveðið hvers konar hlutverk hún
tekur að sér næst, en Jennifer seg-
ist geta valið úr mörgum
skemmtilegum.
Hún var valin úr hópi 4000
stúlkna til að leika Alex. — „Ég
bjóst ekki við miklu. Venjulega
stenst maður ekki inntökupróf. En
mér finnst stórkostlegt að koma
inn í herbergi þar sem fólk stend-
ur og bíður og gerir svo eins góða
hluti og það mögulega getur. Þá
gerir ekki mikið til þó ég fái ekki
hlutverk.
Ég fann að leikstjóranum líkaði
vel við mig og að hann vildi mig
gjarnan í hlutverkið, svo ég gerði
mitt besta fyrir hann,“ segir
Jennifer um inntökuprófið.
„Ég komst að því að það er erf-
itt að vera kvikmyndaleikari. Til
dæmis er stór hluti starfsins fólg-
inn í að bíða og bíða og það er
álíka þreytandi og að versla í mat-
vöruverslun. Það var líka erfitt að
æfa fyrir nokkur dansatriðin í
myndinni. Ég er ekki dansari. Ég
dansa aldrei — að minnsta kosti
mjög sjaldan og aðeins þegar ég er
ein. Ég fer í leikfimi í staðinn.“
„Annars er þetta ekkert merki-
legt,“ segir Jennifer, og vinsældir
Flashdance hafa ekki haft mikil
áhrif á líf hennar til þessa. Hún
stundar fyrst og fremst nám sitt
af kappi. Einu kostirnir við allt
þetta tilstand eru þeir að nú er
auðveldara fyrir mig að fá sæti á
veitingastöðum og herbergi á hót-
elum og það er jákvætt að núna
get ég borgað mín skólagjöld og ég
hef tækifæri til að hitta heilan
helling af fólki. Neikvæðu hliðarn-
ar eru fáar. Það eina sem mér
finnst vera leiðinlegt er þegar fólk
er að biðja mig um eiginhandar-
áritun á hinum furðulegustu stöð-
um eins og á læknabiðstofum. En
það er ekki ráðist á mig á götum
úti og í rauninni hef ég bara ve'rið
heppin og mitt eigið líf er betra
ævintýri en það sem er í Flash-
dance."
— ai.
„Ég dansa aldrei“
— segir Jennifer Beals stjarnan úr Flashdance
Flashdance fer eins og eldur í
sinu um heiminn, ekki síst lögin úr
myndinni. Jennifer Beals heitir
stjama myndarinnar og mönnum
ber saman um að hún sé hrífandi, að
hún hitti beint í mark, að hún sé
kyntákn okkar tíma. Hún leikur Al-
ex Owens í Flashdance sem naut
feikilegra vinsælda í Bandaríkjun-
um og enn meiri vinsælda í London.
Lög úr myndinni hafa selst í milljón-
um eintaka um allan heim.
Alex Owens er hugguleg stúlka
sem vinnur í verksmiðju og
dreymir um að komast að í ball-
ettskóla. Hún notar hvert tæki-
færi sem býðst til að dansa þó hún
hafi aldrei hlotið nokkra kennslu í
þeirri iðkan. Hún býst ekki við að
standast inntökupróf í ballettskól-
ann. Hún býr ein með hundinum
sínum í yfirgefnu vöruhúsi og æfir
sig í dansinum sem á kvöldin vek-
ur mikla hrifningu á næturklúbbi
í hverfinu og ungur yfirmaður
Owens hrífst líka af dansinum og
dansaranum. Þar með er myndin
farin að rúlla.
Úr heimi kvikmyndanna
„Mín hugmynd um
virkilega írægð“
Rödd hans er fræg um allan heim,
ásjóna hans einnig, því hann hefur
leikið í næstum óteljandi hryll-
ingsmyndum og það er ekki að
ósekju að hann skuli vera kallaður
meistari ógnarinnar. Það er Vincent
Price. „Ég hringdi eitt sinn langlínu-
samtal í Egyptalandi og sá á síma-
miðstöðinni sagði: „Ó, þú ert herra
Prince“ um leið og hann heyrði
röddina mína. „Fyrir mig er röddin í
mér eins og í hverjum öðrum. Ég er
ekki viss um að Bela Lugosi hafi
hljómað eins og hver annar vegna
hreimsins sem hann hafði og Boris
Karloff gerði það ekki, því hann
hafði þessar skrítnu varir. Kannski
ég sé líka með einhver undarleg
sérkenni sem ég veit ekki af.“
Það er þó þetta „sérkenni" sem
komið hefur Vincent Prince í hóp
frægustu hryllingsmyndaleikara
hvíta tjaldsins. Hann fæddist í St.
Louise í Missouri og útskrifaðist
frá Yale með gráðu í listasögu og
ensku og eftir að honum mistókst
að komast inn í leikhús á Broad-
way, fluttist hann til Englands og
hóf nám við Courtauld-stofnunina
og fékk mastergráður í listum frá
Lundúnaháskóla 1935.
Það var í London sem hann hóf
feril sinn sem leikari, eftir örlítið
hlutverk í leikritinu Chicago, hlaut
hann aðalhlutverkið sem Prince
Albert í Victoria Regina. Þá rullu
fór hann seinna með á Broadway.
„Margt fólk heldur að ég sé
Englendingur," segir Prince
„vegna þess að ég segir ekki
„Caaant" og ég segi ekki „bin“ og
það er að öllum líkindum vegna
þess að ég byrjaði að leika í Eng-
landi. Ég kem frá þeim hluta
Bandaríkjanna þar sem ekki er að
finna sterkan staðbundinn hreim.
Þeir nota plöturnar mínar við
— Af Vincent
Price
meistara
hrollvekjunnar
enskukennslu í háskólunum í Evr-
ópu. Orðfæri mitt er mjög skýrt og
ekki með óeðliega sterkum hreim."
Meðfram löngum og virðulegum
kvikmyndaferli, allt frá 1938, þeg-
ar hann lék í Service de Luxe, hef-
ur Vincent Price ætíð haft sér-
stakt dálæti á útvarpi og öllu sem
því viðkemur, enda hefur hann
stanslaust unnið með þeim miðli
frá því í miðjum fjórða áratugn-
um.
„Mér finnst útvarpið vera eitt
besta þjálfunartæki sem völ er á
fyrir leikara, því í rauninni verður
þú að búa allt til, sviðið, farðinn
og allt. Ég hef alltaf verið viðloð-
andi útvarp og ég vinn við það við
hvert tækifæri sem mér býðst.
Mér finnst það frábært.
í gamala daga var allt útvarps-
efni í beinni útsendingu. Ég hef
verið í 5.000 útvarpsþáttum. Ein-
hver gaf mér handrit að þætti sem
ég gerði með Jack Benny og Claud-
ette Colbert, sem ég gerði aftur
með Jack Benny og Barbara Stan-
wyck og svo gerði ég hann aftur
með Jack Benny og annarri mikilli
stjörnu. Ef Benny þótti einhver
þáttur skemmtilegur endurtók
hann hann aftur og aftur og
breytti bara hlutverkum örlítið.
Utvarp hafði geysileg áhrif í
gamla daga. Ég man þegar ég lék
The Saint í útvarpinu í Bandaríkj-
unum og Larry Dobkin lék Louis,
leigubílstjóra frá New York. Eg
fór til New York og settist inn f
leigubíl og bílstjórinn snéri sér við
og sagði við mig: „Hei, ég hélt allt-
af að þú ferðaðist með Louis“.
Það var lítill hópur leikara í
Hollywood, sem voru einstaklega
góðir útvarpsmenn. Kvikmynda-
fyrirtækið 20th Century Fox hafði
eigin útvarpsdagskra — það var
fyrir daga sjónvarpsins og með
þeim auglýstu þeir myndir sínar.
Við leikararnir fengum aldrei
krónu fyrir að koma framti út-
varpinu þeirra.
Ég man þegar við vorum að
flytja leikritið The Letter í útvarp-
inu með Bette Davis og Herbert
Marshall og Cecil B. DeMille. Við
æfðum í þrjá eða fjóra daga. Við
fengum ekki einu sinni peninga
fyrir æfingarnar. Þetta var á
stríðstímanum og okkur var gefin
sápa sem margir þáðu ekki. Svo
gastu allt í einu séð Bette Davis
rogast með 300 pund af sápu-
stykkjum heim til sín. Það var
gaman."
Price er orðinn fullorðinn mað-
ur og þegar hann er spurður að því
hvers vegna leikarar halda áfram
iðju sinni löngu eftir að menn í
annari vinnu hafi hætt störfum,
svarar hann að bragði: „Að hluta
til er það hégómi og mikið af því
er sjálsálitið. Ég hef gaman af því
að vinna. Ég hugsa í rauninni
aldrei um aldur. Það þykir mér
frámunalega leiðinlegt.
Ég átti langar samræður við
Orson Welles um daginn og við
vorum að hlæja a því hvað við
höfðum gert til að komast af í
starfi sem við báðir höfum gaman
af að vinna. Hann hefur framið
töfrabrögð. Ég hef gert marga
slæma hluti til að halda mér gang-
Meistari hrollvekjunnar, Vincent Price.
andi því ef þú hverfur, hverfur
þú.“
Það er enginn hætta á að Vinc-
ent Price hverfi. Honum er sífellt
boðið hlutverk í kvikmyndum, út-
varpi eða sjónvarpi og í fimm ár
hefur hann verið á ferðalagi með
eins manns verk eftir Oscar Wilde
og verið vel tekið.
í lokin talar Price um tvær af
mestu viðurkenningum sem hann
hefur fengið í lífinu. „Disney-fyr-
irt.ækið hefur nýlega lokið við að
gera stutta mynd sem þeir hafa
kallað Vincent, um hræðilegan lít-
inn strákorm, sem vill leika mín
hlutverk, svo hann dýfir fóstrunni
sinni í vax. Þessi mynd hefur ný-
lega hlotið verðlaun og það hefur
fyllt mig svo mikilli gleði. Svo var
það fyrir stuttu að einhver sendi
mér krossgátu úr The New York
Times, en lykilorð hennar var
nafnið mitt. Það er mín hugmynd
um virkilega frægð.“
þýtt og endursagt: — ai