Morgunblaðið - 04.09.1983, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. SEPTEMBER 1983
57
Úr myndinni REDS, en þau atriði sem íttu að gerast í Pétursborg eða Moskvu voru öll tekin í Helsinki.
Engar fleiri mynda-
tökur í Helsinki
Spurning: í hvaða borg geturðu
fundið Kreml, Vetrarhöllina í Pét-
ursborg, Gorky Park (og Gorkyborg)
og hótel frá Riga?
Svar: Helsinki.
Gátan er skýrð með því að vísa til
þess þegar vestrænir kvikmynda-
framleiðendur fóru að nota Finn-
land sem leiktjald fyrir atburði sem
áttu að hafa gerst í Sovétríkjunum
og Rússlandi fyrir byltinguna.
Formúlan þótti fyrst borga sig
þegar furuskógar Karelia í Finn-
landi þjónuðu sem staðurinn sem
Omar Sharif (doktor Zhivago) var
sendur til í útlegð fyrir Holly-
woodsakir.
Síðan þá hafa framleiðendur
mynda eins og The Billion Dollar
Brain, The Kremlin Letter, Tele-
fon, Reds og Gorky Park, litið á
Helsinki sem draumastaðinn fyrir
myndatöku á sovéskum borgum.
Einn kollegi minn, sem hafði farið
á Reds, sagði við mig um daginn,
að það hefði munað hársbreidd að
hann hefði séð dómkirkjuna f
Helsinki í myndinni i atriði sem
átti að gerast í Pétursborg á dög-
um byltingarinnar.
Flestir kvikmyndagerðarmenn-
irnir reyndu, en án árangurs, að fá
leyfi yfirvalda í Sovétríkjunum til
að taka myndir sínar á þeim stöð-
um, sem þær eiga að gerast á. Og
nú fá vestrænir kvikmyndagerð-
armenn ekki lengur að nota Finn-
land í myndum sínum — eða
a.m.k. ekki höfuðborg landsins —
sem fulltrúa fyrir Rússland.
Það reyndi fyrst á þetta bann
þegar breskt kvikmyndafyrirtæki
Titus, bað yfirvöld í Helsinki ura
afnot af borginni til að taka þai
upp nokkur átakaatriði myndar
innar sem eiga að gerast í sovéskr:
borg. Myndin átti að fjalla uir
andófsmanninn Andrei Sakharov
og yfirvöld sögðu nei takk. Hér fá-
ið þið ekki að kvikmynda.
Erkki Heikonen, talsmaðui
stjórnvalda í þessum efnum, lét
hafa eftir sér: „Þessar nýju reglui
skulu gilda í framtíðinni og éf
býst við að þær nái yfir sovésks
kvikmyndaframleiðendur, sen
vilja nota Helsinki fyrir vestræní
borg.“
ai
Norma Shearer látin
Látin er í Hollywood Norma
Shearer, ein af kvikmyndadrottning-
um fjóröa áratugarins, 81 árs að
aldri. Shearer kom 16 ára til Holly-
wood frá Kanada með stjörnublik í
bláum augum, fullkominn próffl og
fallegan vöxt og bjarta framtíð. A
sínum dögum, sem hófust f þöglu
myndunum, varð hún næstríkasta
„kvikmyndadrottningin" í heimi.
Aðeins Mary Pickford var ríkari.
Heilsu hennar hrakaði mjög hin
síðari ár eftir að hún hafði fengið
þrjú hjartaáföll, svo hún hafði
næstum misst málið. Sæti hennar
sem stjórstjörnu í Hollywood varð
gulltryggt þegar hún hlaut óskars-
verðlaunin fyrir aðalhlutverkið í
The Divorcee, 1930. Ferill hennar
var merkilegur og hefði jafnvel
orðið enn meiri og merkilegri ef
hún hefði ekki notið ráðlegginga
misviturra manna.
Henni var boðið — og hún neit-
aði — hlutverk Scarlett O’Hara í
Gone With the Wind, vegna þess að
hún vildi ekki leika hlutverk
„vondrar konu“. Stuttu seinna
hafnaði hún aðalhlutverkinu í
Mrs. Miniver, af því þar hefði hún
þurft að leika móður með uppkom-
inn son.
Hún viðurkenndi það seinna, að
þetta hefðu verið tvö mestu mis-
tökin sem hún hefði gert á ævinni.
Þær sem komu í stað hennar voru
Vivian Leigh og Greer Garson og
Garson tók brátt titilinn „First
Lady“ Metro-Goldwyn-Mayer
fyrirtækisins af Shearer.
Faðir Normu hafði verið ríkur
arkitekt i Montreal, sem missti
allt sitt í fyrri heimsstyrjöldinni.
Hún fluttist með móður sinni og
Norma Shearer, kvikmyndadrottn-
ing fjórða áratugarins.
systur til New York, þar sem hún
tók fljótlega upp á að leika í
kvikmyndum, en þær voru heldur
rislitlar. Ein af þeim, Canning of
the Northwest, vakti athygli ungs
kvikmyndaframleiðanda, Irving
Thalbergs. Kvikmyndaiðnaðurinn
var á þessum tíma í leit að ljós-
hærðum stúlkum með fullkominn
vöxt. Thalberg sendi henni skeyti
um að koma til Hollywood. Hún
hafði það að engu, en um síðir,
þegar hann bauð henni 150 dollara
á viku — tvisvar sinnum New
York-kaupið hennar — tók hún
næstu lest vestur.
Thalberg átti eftir að verða
undrabarnið í Hollywood, en hann
hafði þó tíma til að verða ástfang-
inn af ungu stjörnunni, kvæntist
henni 1928 og leiðbeindi Shearer
sinni giftusamlega í gegnum
breytingarnar frá þöglu myndun-
um í talmyndirnar. Ástarsamband
þeirra var eitt aðalgaman slúður-
dálka á þessum tíma. Það endaði
þó á hörmulegan hátt þegar
Thalberg dó 1936, skömmu eftir að
hafa framleitt Romeo and Juliet,
þar sem konan hans var stjarnan.
Eignir Thalbergs, um fimm
milljónir dollara, áður en maður-
inn frá skattinum hafði tekið sitt,
runnu allar til Shearer, sem varð
hræðilega rík kona og hún gerði
ekki aðra mynd næstu tvö árin.
Þegar hún sneri aftur til starfa í
myndum eins og Marie Antoinette,
Idiots Delight og The Women, fögn-
uðu kvikmyndaunnendur henni
ákaflega. Síðasta myndin sem hún
gerði var Her Cardboard Lover,
1942. Eftir hana lýsti hún því yfir,
að hún ætlaði að draga sig í hlé og
lifði hljóðlátu lífi með börnum
sfnum, Irving og Katharine.
Fjölskyldan eyddi einum vetri á
skíðum í Sun Valley, Idaho, en
skíðakennarinn þar reyndist verá
dökkhærður ungur maður sem hét
Martin Arrouge, og líktist töluvert
Thalberg heitnum. Þau giftu sig
innan nokkurra mánaða og hann
skrifaði undir plögg þar sem hann
hét því að sækjast aldrei eftir
persónulegum eigum hennar.
Hörðustu aðdáendur Shearer
héldu því fram að hjónabandið
myndi ekki vara nema í nokkra
mánuði. Hún var 10 árum eldri en
hann, en hrakspárnar rættust
ekki.
Hin seinni ár fluttust þau til
Hollywood þar sem þau fóru ein-
staka sinnum í bíó, en forðuðust
ætíð að vekja á sér athygli.
Samantekt ai
TIL DAGLEGRA NOTA
SÆKID UIHI í
AFGREIÐSLU OKKAR
SPARISJÓDUR VÉLSTJÓRA
Viltu bæta
hljómburöinn
í tækinu .. .?
Viö aðstoðum þig viö aö velja nákvæmlega réttu hljóödósina
fyrir plötuspilarann þinn. Pickering hljóödósirnar eru meö
„Dustmatic” bursta sem hindrar aö óhreinindi setjist á nálina.
Burstinn dempar jafnframt bjögun.
Pickering „Dustamatic” burstinn er einkaleyfisverndaöur.
Yfir 20 mismunandi gerðir hljóödósa og nála.
Sendum gegn póstkröfu.
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
Bergstaðastræti 10 A Sími 16995
GRLRNT
STATION
Verð frá kr. 325.700
(Qengi 5J. <83)
HEKLA HF
Laugavegi 170-172 Sími 21240