Morgunblaðið - 09.09.1983, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER 1983
47
HeimiHshorn
Bergljót Ingólfsdóttir
Fötin skapa manninn
Þaö er kunnara en frá þurfi aö segja, aö sniö á fatnaði okkar getur haft
mikil áhrif á útlitiö, bæði til góös og ills. Mörgum er sú gáfa gefin aö geta
meö klæönaöi undirstrikað sínar bestu hliöar, ef svo má aö oröi komast
aðrir eru ekki jafn heppnir á því sviöi og veröa á dýr mistök í þeim efnum
Lærðir klæðskerar og kjólameistarar geta hjálpaö til þegar saumaö ei
á fólk, dulbúið smá galla á líkamsvexti, en ööru máli er aö gegna þegar
flíkur eru keyptar tilbúnar, þá er óhægara um vik. En þá er um að gera aö
vanda sig viö valið, huga vel að því hvort flíkin klæðir eöa ekki, þaö er
alveg sjálfsagt aö gera þaö sem hægt er til aö blekkja augaö, sitt eigiö
og annarra. Dálkahöf. kemur hér á framfæri myndum, meö ráölegging-
um, úr blööum þar sem kunnáttufólk segir til um hvaö beri aö forðast og
hvaö eigi aö velja viö vissar aöstæöur.
Til að mittiö sýnist grennra
Ef flíkin er breiö um herðarnar, eöa notaöir eru axlapúöar, sýnist
mittiö mjórra. Mynd 1.
Vesti, sem fellur aö í mittið og endar í „spíss“ gerir þaö aö verkum aö
mittiö sýnist grennra. Mynd 2.
Belti má aldrei reyra aö heldur þarf þaö aö vera laust til aö mittiö
sýnist grennra. Efniö þarf aö vera mjúkt, stíf belti valda gagnstæðum
áhrifum. Mynd 2.
Ef haft er bundiö belti er um aö gera aö hafa endana langa, ef óskaö
er eftir því aö mittiö sýnist grennra. Mynd 4.
Ef hálsinn er stuttur
bogadregið hálsmál, skyrtu-
blússusnið þar sem efstu
hnöppum er ekki hneppt og
svo rykktum kraga sem ekki
fellur of þétt aö hálsinum. Þar
aö auki er þaö svo v-laga háls-
máliö sem gerir þaö að verkum
aö hálsinn sýnist lengri.
Hálsmál geta veriö
misklæðileg og fer þaö eftir
ýmsu, ekki síst hálslengd og
þykkt persónunnar.
Fyrir hálsstuttar konur er
mælt með hálsmálum eins og
þeim sem sjást hér á myndun-
um, það er „rundað“ eða
Þegar efrí
hlutinn er
grennrí
(en sá
neðrí)
Svokallað „Empire-
sniö“ er klæöilegt fyrir
„,peruvöxt", þ.e. þær
sem eru minni um sig
aö ofan. Axlasaumur-
inn má þá vera aöeins
út á öxlunum til aö
betra jafnvægi fáist í
heildarsvipinn.
HAGKAUP
Reykjavík
Akureyri
Njaróvik
ÞÁ ERU ÞAÐ • •
Nýjar vörur streyma inn
daglega, allt sem þarf til
skólans fæst í Hagkaup.
Á Hagkaupsveröi.