Morgunblaðið - 13.09.1983, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 1983
Einn forstjóri og
deildarstjórar
með ákveðin svið
TILLAGA um breytingar á yfirstjórn
Bæjarútgerðar Reykjavíkur verður
tekin fyrir á fundi borgarráðs í dag,
þriðjudag, samkvæmt upplýsingum
sem Morgunblaðið fékk hjá Davíð
Oddssyni borgarstjóra í gær. Tillag-
an feiur það m.a. í sér að stjórnend-
um fyrirtækisins verður sagt upp
störfum og stöður hjá fyrirtækinu
verða auglýstar.
Davíð Oddsson sagði að tillagan
gengi út á hagræðingu í fyrirtæk-
inu og komið yrði á tiltekinni skip-
an sem gerð er í framhaldi af til-
lögum Hagvangs þar að lútandi.
„Æðsta stjórnin breytist töluvert
og að okkar mati verður hún betur
mörkuð og skilvirkari og hjá Bæj-
arútgerðinni verði einn forstjóri
og síðan deildarstjórar með ákveð-
in svið,“ sagði Davíð.
Allir bankarnir
fá leyfi til gjald-
eyrisviðskipta
MATTHÍAS Á. Mathiesen viðskipta-
ráðherra samþykkti í gær að tillögu
Seðlabankans, að viðskiptabönkum
sem sótt hafa um leyfi til gjaldeyr-
isverslunar verði veitt leyfi til að
versla með erlendan gjaldeyri. —
Fyrst um sinn verða heimildir bank-
anna miðaðar við að þeir sinni
tvenns konar þjónustu, opnun inn-
lcndra gjaldeyrisreikninga og gjald-
eyrisviðskiptum við ferðamenn.
Ráðherrann gaf þessar upplýs-
ingar á fundi með Seðlabanka-
stjórn, bankastjórum viðskipta-
bankanna og fulltrúum Sambands
íslenskra sparisjóða, þar sem rætt
var um ástand og horfur í pen-
ingamálum og ýmsa þætti efna-
hagsmála. Á fundinum kvaðst
ráðherra jafnframt gera ráðstaf-
anir til þess að unnt væri að veita
sparisjóðum sams konar gjaldeyr-
isréttindi og viðskiptabönkunum.
„Það hefur alltaf verið skoðun
mín að gjaldeyrisviðskiptin eigi að
Yíi
-‘r igYp rt
vera hjá öllum peningastofnunum,
afgreiðsla ferðamannagjaldeyris
og stofnun innlendra gjaldeyris-
reikninga," sagði Matthías Á.
Mathiesen viðskiptaráðherra í
samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins í gærkveldi, er hann var
spurður um ástæður þessara
breytinga. „Það getur svo verið
álitamái," sagði ráðherrann enn
fremur, „hvaða bankar og spari-
sjóðir verða með alhliða gjaldeyr-
isviðskipti, og verður það athugað
sérstaklega. Að mínum dómi er
hér um að ræða eðlilega fram-
vindu mála, sem Seðlabankinn
gerði tillögu um og ég hef nú sam-
þykkt," sagði Matthías Á. Mathie-
Morgunblaðið/AS.
Þeir sýndu nokkur tilþrif strákarnir í stóðréttum Miðfirdinga í gær, en
annað folaldið virðist hafa misstigið sig á töltinu í öllum látunum.
Fyrstu stóðréttir ársins
NÚ ER tími gangna og rétta í
sveitum landsins. Þessir árvissu
viðburðir í lífi sveitafólksins hafa
löngum haft yfir sér ævintýralegan
Ijóma, ekki sízt göngurnar, en
þessir haustdagar eru þó einnig
tregablandnir. Ekki þarf heldur að
taka þaö fram að þessar haustann-
ir eru erfiðar fyrir bændur og búa-
lið.
Stóðréttirnar voru hér áður
fyrr sérstakur hátiðisdagur, sem
dró að sér fjölda fólks, hvort sem
það átti von á hrossum af fjalli
eða ekki. Á seinni árum hefur
ýmislegt breytzt í stóðréttunum
og þær ekki eins líflegar og áður
fyrr. Stóðréttir Miðfirðinga voru
í gær og var þar réttað á fimmta
hundrað hrossa. Það mun vera
þriðjungur þess fjölda, sem rétt-
aður var í stóðréttum Miðfirð-
inga fyrir nokkrum árum.
Kona slapp
naumlega
FULLORÐIN kona slapp naumlega
þegar eldur kom upp í húsinu
Oddagata 10 í Reykjavík laust eftir
klukkan 16 á sunnudag. Hún mun
hafa sofnað út frá pottum á eldavél.
Eldur kviknaði og verður að telja
mildi, að konan vaknaði, gat gert
slökkviliðinu viðvart og komist út úr
húsinu með lak yfír herðum sér. Þá
var mikill reykur í húsinu, bæði á
hæðinni og í kjallara.
Nærstaddur maður hóf að
sprauta vatni á eldinn úr garð-
slöngu og skömmu síðar kom
slökkviliðið á vettvang. Reyk-
kafarar fóru inn í húsið og hófu
slökkvistarf og gekk greiðlega að
slökkva eldinn. Talsverðar
skemmdir urðu á húsinu, þá mest
vegna mikils hita sem myndaðist
og reyks.
Bfll í veg
fyrir Ijóslaust
reiðhjól
UMFERÐARSLYS varð á mótum
Skipasunds og Kleppsvegar í
Reykjavík í gærkveldi, er bifreið var
ekið í veg fyrir unga konu á reið-
hjóli. Meiddist konan lítillega á
höfði, en þó ekki alvarlega að sögn
lögreglunnar. Nær engar skemmdir
urðu á farartækjunum, bflnum eða
hjólinu.
Slysið varð með þeim hætti, að
bifreið, sem ekið var norður
Skipasund, var ekið inn á Klepps-
veg, í veg fyrir konuna sem hjólaði
austur götuna. Varð bifreiðar-
stjórinn stúlkunnar ekki var er
hann ók inn á aðalbrautina, en
reiðhjólið var ljóslaust.
Vísitala framfærslukostnaðar hækkar um 0,74%:
Verulegur árangur hefur náðst
í baráttunni við verðbólguna
Tillaga um hagræðingu hjá BÚR í borgarráði í dag:
Eldsvoði á Oddagötu:
segir Matthías Á. Mathiesen
ÚTAN SKÓIAIlMA:
iHorouublnbib wk. T ’M
Stundaskrá
Morgunblaðsins
STUNDASKRÁ Morgunhlaðsins
hefur verið dreift í bókaverzlanir og
afgreiðslu blaðsins. Að þessu sinni
eru nokkur reikningsdæmi á bak-
síðu stundaskrárinnar og er þar
greint frá raunum blaðbera nokkurs.
Skólanemendur verða trúlega
hjálplegir við að leysa úr þeim
flækjum, sem við er að glíma.
Lausnirnar verða síðan birtar í
Myndasögum Moggans næstu
fimmtudaga.
„Á ÞVÍ er enginn vafi, að sú hækk-
un framfærsluvísitölu, sem í Ijós er
komiö að verður milli ágúst og sept-
ember, gefur til kynna að verulegur
árangur sýnist vera orðinn í barátt-
unni við verðbólguna,“ sagði Matt-
hías Á. Mathiesen viðskiptaráöherra
í samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins í gær. En á fundi með
Seölabankastjórn, bankastjórum
viðskiptabankanna og fulltrúum
Sambands ísl. sparisjóða í gær, upp-
lýsti ráðherrann að kauplagsnefnd
hefði staðfest útreiknaða hækkun
Hagstofunnar á vísitölu framfærslu-
kostnaðar fyrir tímabilið ágúst til
september. Nemi hækkun 0,74%. —
Lækkun sem orðið hefði vegna auk-
inna niðurgreiðslna á dilkakjöti
næmi 0,9%, og bæri að taka tillit til
þess þegar verðlagsþróunin milli
mánaðanna væri metin.
„Það er hins vegar augljóst,"
sagði Matthías í gær, „að vísitölu-
hækkunin í næsta mánuði verður
hærri. En þær áætlanir sem gerð-
ar voru þegar ríkisstjórnin var
mynduð hafa staðist og nokkru
betur. Þess vegna er ekki ástæða
til annars en ætla að okkur takist
að ná verðbólgunni niður í 30%, að
hún verði um 30% eða heldur
lægri um áramót. — Það er þó að
sjálfsögðu enginn endapunktur,
því árið 1984 verðum við að halda
áfram í baráttunni við verðbólg-
una. Mín skoðun er sú að þegar
menn sjá hvað þegar hefur áunn-
ist og hvað á eftir að ávinnast
fram að áramótum, muni þeir fall-
ast á þær hugmyndir og tillögur
sem ríkisstjórnin mun leggja
fram, um hóflegar kauphækkanir
og stöðugt gengi. Nái þetta fram
að ganga á verðbólgan að geta orð-
ið mun minni í lok ársins 1984 en í
upphafi ársins 1984, án þess þó að
ég vilji þar nefna neinar ákveðnar
tölur,“ sagði Matthías Á. Mathie-
sen viðskiptaráðherra.
Nýfundnaland:
Fiskvinnslufyrirtækin að
komast undir opinbera stjórn
Frá blaAamanni Morgunblaðsins, Birni Bjarnasyni, St. John s, Nýfundnalandi. ”
MIKIL óvissa ríkir nú um framtíö-
arskipan útgerðar og fiskvinnslu á
Nýfundnalandi. í dag, þriðjudag,
hefjast málaferli um það í Hæsta-
rétti Nýfundnalands hér í St.
John's hvort sambandsstjórnin í
Ottawa geti sameinað þrjú stærstu
útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækin
á Nýfundnalandi, en það telur
stjórnin nauðsynlegt til að koma
rekstrinum á réttan kjöl.
Ástæðurnar fyrir þvi að það er
nú lagt í hendur dómstólana að
taka ákvörðun um rekstrar-
stjórn og eignarhald á þessum
fyrirtækjum, sem veita mann-
fíestu atvinnugrein fyrirtækis-
ins forustu, eru bæði pólitískar
og viðskiptalegar. Fylkisstjórnin
hér er andvíg stefnu fylkis-
stjórnarinnar og eigendur
stærsta útgerðarfyrirtækisins
Fishery Products sætta sig ekki
við ákvörðun stjórnvalda í
Ottawa.
Þegar þessi afstaða Fishery
Products, sem er hlutafélag, lá
fyrir nú í sumar, ákvað helsti
lánardrottinn fyrirtækisins
Bank of Nova Scotia, sem fyrir-
tækið skuldar 68 milljónir kana-
dískra dollara, að ekki kæmi til
frekari skuldbreytinga og þar
með var fyrirtækið tekið til
opinberra skipta. Lýtur það nú
stjórn endurskoðenda á meðan
eigna og skuldastaðan er könn-
uð. Kæmi til nauðungaruppboðs
kynni sambandsstjórnin í
Ottawa að kaupa meirihluta í
fyrirtækinu og ná þannig fram
áformum um sameininguna. En
ljóst virðist að þessi fiskvinnslu-
fyrirtæki hér á Nýfundnalandi
komist með einum eða öðrum
hætti undir opinbera stjórn.
Kanadísku fyrirtækin sitja
uppi með töluverðar birgðir af
fiski en þær eru þó minnstar hjá
Fishery Products. Ég hef bæði
rætt við menn í Ottawa og hér
um það hvort hætta sé á því að
keppni myndist um það að losna
við þessar birgðir með undirboð-
um á Bandaríkjamarkaði.
Hvorki hér né í Ottawa telja
menn líkur á því enda samræm-
ist slíkt ekki hagsmunum neinna
sem hlut eiga að máli.
Ég heimsótti höfuðstöðvar
Fishery Products í gær, en þar
er Jens Eysteinsson fram-
kvæmdastjóri gæða- og þróun-
armála. Þar var starfsemin með
eðlilegum hætti. Um 40 togarar
fyrirtækisins halda áfram veið-
um og unnið er í 9 frystihúsum
þess víðs vegar um Nýfundna-
land. Hins vegar veit enginn
hvað framtíðin ber í skauti sér
þótt eitt sé víst að fiskveiðar
verða enn sem fyrr mikilvægasta
atvinnugrein Nýfundlendinga.