Morgunblaðið - 13.09.1983, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 13.09.1983, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 1983 23 Morgunblaðið/ Friðþjðlur • Hér má siá Inga Björn sækja aö ögmundi markveröi, en aö þessu sinni haföi Ogmundur betur, þó litiu munaöi. KA öruggt upp KA-menn sigruðu UMFN 2—1 í Njarövík á laugardag og gull- tryggðu sér þá sæti í 1. deild aö ári. Sigurinn var mjög sanngjarn — og heföi getað oröiö stærri ef eitthvaö var. Það var Steingrímur Birgisson sem skoraöi fyrra mark KA á 10. mín. meö fallegum skalla eftir hornspyrnu. Haukur Jóhannsson jafnaði svo fyrir Njarövíkinga meö stórglæsi- legu marki úr aukaspyrnu nokkru fyrir utan teig. Hann skaut þrumu- skoti aö marki og knötturinn hafn- aöi alveg uppi í samskeytunum. Hinrik Þórhallsson, markahæsti maöur annarrar deildar, tryggöi KA svo sigur meö marki fjórum mín. seinna, eftir langt innfcast. ÓT. Heimsmet á ísafirði ísafiröi, 11. septembar. HEIMSMET í boögöngu á hjóla- skíðum var sett um helgina á ísa- firöi. Brynjar Guöbjartsson kom í Navratilova vann US-open Tenniskonan snjalla frá Tékkó- slóvakíu, Martina Navratilova, sigraði á opna bandaríska mótinu ■ tennis sem fram fór um helgina. Þetta var í fyrsta sinn sem hún tekur þátt í þessari keppni og hún hélt uppteknum hætti en þaö er aö tapa ekki lotu. í úrslitaleikn- um lenti hún á móti Chris Evert Lloyd og sigraöi hún þar 6—1 og 6—3. Lioyd haföi ekki tapaö lotu í keppninni þegar hún mætti Navratilovu í úrslitunum en þaö dugði skammt því Navratilova átti ekki í miklum vandræðum meö hana. Þess má geta í lokin aö Navratilova hefur náð frábær- um árangri í tennis og á þessu ári hefur hún aöeins tapaö einni lotu en hún hefur sigraöi í 65 — ekki amalegur árangur þaö. mark klukkan 9.47 aö morgni sunnudags og lauk þar meö 1000 km boögöngu sjö manna göngu- sveitar ísfiröinga, sem hófst klukkan 20.00 á fimmtudags- kvöld. Gengiö var frá Silfurtorgi aö vegamótum flugvallarvegar og er hver ferö 13 km löng. Hver göngumaöur gekk 11 feröir eöa 143 km, var meöalgönguhraðinn 49 mínútur í ferö, en bestan tíma átti Einar Ólafsson í næstsíöustu ferö sinni eöa 36 mínútur. Tilgangur göngunnar var tví- þættur; annars vegar aö steja heimsmet og hinsvegar aö safna fó til frekari þjálfunar sveitarinnar. Piltarnir hafa æft daglega í allt sumar bæöi á hjólagönguskíöum og meö hlaupum. Framundan er samæfing göngu- manna á Ólafsfiröi 15. til 18. sept., en þangaö fara tveir úr sveitinni. í okt. fara þrír þeirra til æfinga er- lendis og dveljast þar fram yfir áramót. Stefnt er aö því aö a.m.k. einn göngumaður frá ísafiröi veröi í íslenska OL-liöinu sem keppir í Sarajevo í Júgóslavíu næsta vetur. Úlfar. Valur áfram á sigurbraut VALSMENN eru nú heldur betur að taka við sér i knattspyrnunni. Á laugardaginn unnu þeir sinn þriðja leik í röð, að þessu sinni sigruðu þeir Víking. Leikurinn fór fram á velli þeirra Valsmanna og lauk honum meö sigri heimamanna, 2—1. Valsmenn voru sterkari aðilinn á vellinum allan tímann og var sigur þeirra mjög sann- gjarn. Þeir komu ákveðnir til leiks, enda ekki um annað að ræða fyrir þá, ef þeir vilja leika í 1. deild að ári. Þrátt fyrir aö Valur væri meira meö boltann, þá tókst þeim ekki að skora mark fyrr en á 26. mín. og kom það eftir mjög skemmtilega sókn hjá þeim. Ingi Björn gaf bolt- ann á Magna, sem sendi hann á Bergþór upp í hægra hornið. Berg- þór gaf síðan boltann fyrir markiö þar sem Valur skallaöi í netið. Ögmundur markvöröur og vörn Víkings voru þarna alls ekki nógu vel meö á nótunum, því fyrirgjöf Bergþórs var of nálægt markinu, en þeim tókst samt ekki aö ná knettinum. Eftir þetta mark fengu Valsmenn nokkur sæmileg færi, en þeim tókst ekki aö auka viö forskotiö í fyrri hálfleik. Víkingar léku ekki vel og fór mikil orka hjá þeim í aö rífast í dómaranum og jafnvel inn- byröis. Þeir ógnuðu marki Vals aldrei í hálfleiknum og má því segja, aö fyrri hálfleikurinn hafi veriö Vals. Víkingar byrjuöu af miklum krafti í síöari hálfleik og átti Aöal- steinn þá eitt dauöafæri, en skot hans fór beint í fangiö á Brynjari. Krafturinn hjá Víkingum entist ekki nema rétt fyrstu mín. hálfleiksins, en eftir þaö náöu Valsmenn aftur tökum á leiknum. Ögmundur mátti taka á honum stóra sínum í tví- gang til aö bjarga þrumuskotum frá Magna og Grími af löngu færi. Á 75. mín. fór aö færast fjör í leik- inn. Heimir átti gott skot úr auka- spyrnu, en Brynjar varði vel. Skömmu síöar var brotiö á Heröi Hilmarssyni, sem kom -inn á skömmu áöur, og góöur dómari leiksins dæmdi vítaspyrnu sem Ingi Björn skoraði úr, en litlu mun- aöi aö Ögmundur veröi hana. Skömmu fyrir leikslok var brotiö á Heimi í vítateignum og aftur dæmdi Guömundur Haraldsson vítaspyrnu. Heimir tók hana sjálfur og skoraöi hann af miklu öryggi. Besti maður Vals í þessum leik var Guöni Bergsson, en hann lék mjög vel í stööu miðvarðar og var besti maöur vallarins. Guömundur Haraldsson dómari stóö sig einnig mjög vel, og er hann, aö öörum ólöstuöum, án efa okkar besti dómari í dag. Hann sýndi ótrúlega mikla ró í leiknum, því leikmenn geröu sig hvað eftir annaö seka Valur — Víkingur^'1 um aö röfla, en Guðmundur veitti þeim aðeins tiltal, en var ekki aö sýna spjöldin í tíma og ótíma, eins og því miður hefur stundum sést hér í sumar. Guömundur Þor- björnsson, Þorgrímur, Ingi Björn og Bergþór léku allir vel aö þessu sinni, en hjá Víkingum voru Ólafur og Jóhann bestir, en Heimir átti ágætis spretti. Einkunnagjöfin: VALUR: Brynjar Guömundsson 6, Grimur Sæmundsen 6, Þorgrimur Þráinsson 7, Guöni Bergsson 8, Úlfar Hróarsson 5, Magni Póturs- son 6, Valur Valsson 6, Ingi Björn Albertsson 7, Guömundur Þorbjörnsson 7, Hilmar Sig- hvatsson 6, Bergþór Magnússon 7, Höröur Hilmarsson (vm) 4, Njáll Eiösson (vm) lék of stutt. VÍKINGUR: Ögmundur Kristinsson 5, Ragnar Gíslason 5, Ólafur Ólafsson 7, Stefán Hall- dórsson 6, Þóröur Marelsson 6. Jóhann Þor- varöarson 7, Ómar Torfason 6, Ómar Björns- son 5, Aöalsteinn Aöalsteinsson 5, Heimir Karlsson 6, Magnús Þorvaldsson 6, Óskar Tómasson (vm) 4, Siguröur Aöalsteinsson (vm) lék of stutt. í STUTTU MÁLI: Valsvöllur 1. deild. Valur — Víkingur, 2—1 (1-0). MÖRKIN: Valur Valsson (26. mín.) og Ingi Björn Albertsson (80. mín., víti) skoruöu fyrir Val, en Heimir Karlsson (83. mín., viti) skoraöi fyrir Víking. GUL SPJÖLD: Þóröur Marelsson, Víkingi. DÓMARI: Guömundur Haraldsson og dæmdi hann framúrskarandi vel. ÁHORFENDUR: Um 700. ~ sus • Ingi Björn var oft aðgangsharöur viö Víkingsmarkið þegar Valur og Víkingur mættust á laugardaginn. Hér hefur hann skallaö að marki, en aö þessu sinni sluppu Víkingar meö skrekkinn, því boltinn fór rétt framhjál Ögmundur reynir af fremsta megni að fylgjast meö boltanum. Morgunbisðíð/ Friðþjðtur Guðmundur rekinn út af — er Fram sigraði Reyni í Sandgerði deildinni — gegn FH á fimmtudag- I þaö efst í deildinni. Tapi það hins inn, og sigri liðið í þeim leik veröur | vegar veröur þaö í ööru sæti. Galvin settur út Frá Bob Henneisy, fréttamanni Morgunbiaðains í frlandi. KRISTINN Jónsson tryggöi Fram sigur gegn Reyni í Sandgeröi á sunnudgínn og þar með eru Frammarar öruggir um sæti í 1. deild að ári á ný. Fram vann 1:0 og skoraði Krist- inn eina markið á 14. mínútu. Stuttu seinna fékk Kristinn víta- spyrnu sem Hafþór Sveinjónsson framkvæmdi. Skot Hafþórs fór í stöng. Leikurinn var nokkuö sögulegur og var Guömundi Baldurssyni, markveröi Fram, t.d. vikiö af leik- velli eftir aö hafa lent í útistööum viö Sigurjón Sveinsson, Sandgerö- ing. Sigur Fram var sanngjarn og heföi átt aö geta orðið enn stærri. Þeir voru mun ákveönari og þaö var Jón Örvar, markvörður Reynis, sem bjargaöi liöi sínu frá stærra tapi. Fram á nú eftir einn leik í EOIN Hand, einvaldur írska landsliösins í knattspyrnu, hefur nú valiö endanlegan hóp sinn fyrir landsleikinn gegn íslandi á Laugardalsvellinum 21. þ.m. Þaö hefur vakiö mikla furöu hér á írlandi aö útherjinn Tony Galvin frá Tottenham skuli hafa dottiö út úr upprunalega hópnum, en auk hans duttu út þeir Kevin Sheedy, Ashley Grimes, Paul McGrath, Gerry Payton, John Pender, John O’Driscoll, Gerry Ryan og Brendan O’Callaghan. Hópurinn lítur því þannig út nú: Markverðir: Jim McDonagh, Peter Bonner. Aðrir leikmenn: John Dev- ine, Kevin Moran, Kieren O’Reag- an, David O’Leary, Mark Lawren- son, Chris Hughton, Gary Wadd- ock, Gerry Daly, Tony Grealish, Liam Brady, Frank Stapleton, Mike Robinson, Mick Walsh, Kevin O’Callaghan, Eamoon O’Keefe. Allt eru þetta sterkir leikmenn. Þaö veröur örugglega Kevin O’Callaghan frá Ipswich sem leika mun sem útherji í liðinu, þar sem hann var tekinn fram yfir Galvin. — SH.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.