Morgunblaðið - 13.09.1983, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 13.09.1983, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 1983 5 Listviðburð- ur í Húsa- víkurkirkju Húsavík, 12. september. KRISTINN Sigmundsson baritón- söngvari og Jónas Ingimundarson píanóleikari, héldu tónleika í Húsa- víkurkirkju á sunnudag við góða að- sókn og frábærar undirtektir áheyr- enda. Kom mönnum saman um að þeir hafi verið viðstaddir sérstak- an listviðburð, er þeir hlýddu á sönginn og undirleikinn. Á miðvikudag munu þeir halda tónleika í Stykkishólmi og í Kefla- vík á föstudag. — Fréttaritari. „Miskunn- arlaust fólskuverk“ STÍJDENTARÁÐ Háskóla ís- lands hefur ályktað vegna árásar sovézka hersins á suður-kóre- önsku þotuna á dögunum. Álykt- un SHI er svohljóðandi: SHÍ fordæmir hið miskunnar- lausa fólskuverk sovéska hersins að skjóta niður farþegaflugvél og drepa þannig saklaust fólk með köldu blóði án nokkurrar sýnilegr- ar ástæðu. SHÍ telur að þessi fáránlega hernaðaraðgerð sé enn ein sönnun þess hvað það er nauðsynlegt að vígbúnaðarkapphlaup verði hætt hið bráðasta, afvopnun komið á og tortryggni í samskiptum ríkja eytt. Ók af slysstaö í Árbæ: Ber, að hafa verið ókunn- ugt um að hafa ekið á stúlkuna Á mánudag var ekið á 11 ára gamla stúlku í Ásbúð í Garðabæ og fór ökumaður af vettvangi án þess að hafa kannað mciðsli stúlkunn- ar. Mbl. skýrði frá atvikinu. ökumaðurinn reyndist vera 15 ára gamall og réttindalaus. Hann ber að hann hafi reynt að forðast slys með þeim afleiðingum að bif- reiðin kastaðist upp á gangstétt. Hann hafi farið út til þess að kanna skemmdir á bifreiðinni og verið ókunnugt um að hafa ekið á stúlkuna. Týndur köttur SL laugardagskvöld týndist svart- ur köttur í vesturbæ Kópavogs. Hann er með bjöllu um hálsinn. Þeir sem kunna að hafa fundið köttinn eru vinsamlegast beðnir að hringja í eiganda hans í síma 42941. Stund milli ^ stríða M Á TÍMUM tækninnar, þá er gamla kvislin orðin úreltur gripur og til lítils gagns lengur við hirðingu á heyi. Frá því að grasið er slegið, það þurrkað og hirt með hleðsluvagni, kemur mannshöndin hvergi nærri. En oftast þarf síðan að moka heyinu með kvísl í blásara, sem blæs því inn í hlöðu. Á þessari mynd sjáum við, að það þarf ekki. Hleðsluvagninum er ekið að færibandi sem matar blásara og eftir mæninum í hlöóunni gengur dreifibúnaður fram og aftur, sem tryggir það að jöfn dreifing verður á innblæstrinum í hlöðuna. Mannshöndin tekur því ekkert á heyinu fyrr en farið verður að gefa það í vetur. Samt sem áður eru nokkrir snúningarnir sem bóndinn þarf að inna af hendi áður en heyið er komið í hlöðuna. Hann á því svo sannarlcga fyrir því bóndinn í Ásgarði í Reykholtsdal, Sveinn Hannesson, að styðja sig fram á kvíslina, töðugjaldadaginn nú í haust ásamt liðléttingi sínum, Magnúsi úr Keflavík. Auðveldari flutningur frá Nú þéttum við norska flutni netið W ■Trondheim ■ Alesund Bergen Oslo Meö fjórum nýjum þjónustuhöfnum í Osló, Bergen, Álasundi og Þrándheimi bætum viö vörustreymið, og tryggjum auöveldan vöruflutning til áætlanahafna í Kristiansand og Moss. Samhliða þessu bjóðum viö fast flutnings- gjald innanlands í Noregi milli þjónustu-og áætlanahafna, til aukinnar hagkvæmni fyrir viðskiptavini. Umboðsmenn___________________________ KRISTIANSAND BERGEN vikulega vikulega A. I. Langteldt & Co. Rðdhusgaten 8 4601 Kristlansand S Tel.: 042-22259 Telex: 21818 OSLO vikulega Berg Hansen & Co. A/S Festnlngskaien 45, Oslo 1 Tel.: 02-420890 Telex: 11053 VIOSS vikulega H. Schianders, Eftf. A/S Værlebryggen ’ostboks 428 1501 Moss Tel.: 032-52205 Telex: 71412 Kristiansandi Grieg Transport Postboks 245 5001 Bergen Tel.: (05) 310650 Telex: 42094 ÁLESUND/ SPJELKAVIK hálfsmánaðarlega Tyrholm & Farstad A/S Postboks 130 6001 Alesund Tel.: 071-24460 Telex: 42330 TRONDHEIM hálfsmánaðarlega B. Iversen & Rognes A/S Havnegt. 7 - Postboks 909 7001 Trondhelm Tel.: 07-510555 Privat: Turld Thorvaldsen Tel.: 07-511173 Kjell Evensen Tel.: 07-976918 Telex: 55419 Flutningur er okkar fag ■ P EIMSKIP Sfml 27100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.