Morgunblaðið - 13.09.1983, Side 13

Morgunblaðið - 13.09.1983, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 1983 13 Leikfélag Reykjavíkur: Hart í bak frum- sýnt annað Áróra spákona (Soffía Jakobsdóttir) spáir fyrir Ardísi (Eddu Heiðrúnu Backman). Á miðvikudagskvöldið kemur verður fyrsta frumsýning leikárs- ins hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Það er hið vinsæla leikrit Jökuls Jakobssonar Hart í bak, sem þá verður frumsýnt, en þennan dag hefði Jökull orðið fimmtugur, hefði hann lifað. Þetta leikrit Jökuls var fyrst sýnt hjá Leikfélaginu, fyrir rúmlega tveimur áratugum og öðlaðist þá meiri vinsældir en dæmi voru til. Urðu sýningar á þriðja hundrað á þremur leikár- um. Verkið þykir marka tíma- mót í íslenskri leikritun seinni tíma og er eitt einlægasta og áhrifamesta verk höfundar, seg- ir í frétt frá LR. Þar greinir frá fjölskyldu, sem býr í Vesturbæn- um kringum 1960: Jónatan strandkapteinn, Áróra spákona dóttir hans, vandræðapilturinn Láki, sonur hennar, búa þar í gömlu niðurníddu húsi. Þangað kemur stúlka að austan, Árdís, i leit að föður sínum. Meðal ann- arra persóna eru Finnbjörn skransali, viðhald Áróru; Stígur skóari, Pétur kennari Láka og tvær ungmeyjar. Með stærstu hlutverkin fara Jón Sigurbjörnsson, sem leikur Jónatan, Soffía Jakobsdóttir, sem leikur Áróru, Pétur Einarsson, sem leikur Finnbjörn og kemur nú aftur til leiks eftir alllangt hlé og í hlutverkum Láka og Árdísar eru tveir nýir leikarar, þau Kristján Franklín Magnús og Edda Heiðrún Backman. Þau luku bæði prófi frá Leiklistarskóla ís- lands í vor og þreyta hér frum- raun sína. Með hlutverk Stígs fer Þorsteinn Gunnarsson, Jón Hjartarson leikur Pétur og með önnur hlutverk fara Lilja Þóris- dóttir, Hanna María Karlsdóttir og Karl Guðmundsson. Leikmynd og búninga í sýn- inguna gerir Steinþór Sigurðsson, lýsingu annast Daníel Wlliams- son, tónlist er eftir Eggert Þor- leifsson og leikstjóri er Hallmar Sigurðsson. Þetta er þriðja verk- efnið sem Hallmar leikstýrir hjá LR, hin voru Að sjá til þín, mað- ur og Undir álminum. Jökull Jakobsson hefði sem fyrr segir orðið fimmtugur 14. september en hann lést 1978. Hart í bak var annað leikrit hans, sem sýnt var hjá Leikfé- lagi Reykjavíkur, áður hafði það sýnt gamanleikinn Pókók árið 1961. Síðan fylgdu fleiri verk í kjölfarið: Sjóleiðin til Bagdad, ár- ið 1965, Sumarið ’37 árið 1968, Dóminó árið 1972 og loks Kerta- kvöld log, árið 1974. Flest þessara verka náðu miklum vinsældum, þótt ekkert kæmist í líkingu við Hart í bak hvað það snerti. Þjóðleikhúsið hefur einnig sýnt nokkur verka Jökuls: Klukku- strengi, Herbergi 213, Son skóar- ans og dóttur bakarans og I ör- uggri borg. Mörg þessara verka hafa verið leikin af áhuga- leikfélögum víða um land og sum erlendis. Þá samdi Jökull einnig fjölmörg útvarpsleikrit og nokk- ur sjónvarpsleikrit auk þess sem hann gaf út nokkrar skáldsögur, smásagnasöfn og var ennfremur þekktur fyrir skemmtileg vinnu- brögð í gerð útvarpsefnis. Hart í bak var upphaflega frumsýnt hjá LR 11. nóv. 1962. Leikstjóri var Gísli Halldórsson, leikmynd gerði Steinþór Sig- urðsson og tónlist samdi Jón Þórarinsson. í stærstu hlutverk- um voru: Brynjólfur Jóhannes- son, sem lék Jónatan, Helga Val- týsdóttir (Áróra), Birgir Brynj- ólfsson (Láki — síðar tók Borgar Garðarsson við því hlutverki), Guðrún Ásmundsdóttir (Árdís), Gísli Halldórsson (Finnbjörn), Steindór Hjörleifsson (Stígur) og Guðmundur Pálsson (Pétur). Leikritið var þá sýnt samtals 205 sinnum, þar af 45 sinnum í leikför um landið og 5 sinnum í leikferðalagi til Færeyja. Frumsýning á Hart í bak er á miðvikudagskvöldið kl. 20.30. Önnur sýning er föstudagskvöld- ið 16. sept. og þriðja sýning á laugardagskvöldið. Minnt skal á, að sala að- gangskorta sem gilda á fimm ný leikrit leikársins, stendur nú yfir í miðasölu Leikfélagsins. Felur slíkt kort jafnframt í sér afslátt frá venjulegu miðaverði. Áskriftarkort á þessar fimm sýningar kostar kr. 750.- en leik- ritin eru: 1. Hart í bak eftir Jökul Jak- obsson, 2. Guð gaf mér eyra (Children of a lesser God) eftir Mark Medoff, 3. Gísl (The Hos- tage) eftir Brendan Behan, 4. Bros úr undirheimum (Under- jordens leende) eftir Lars Norén, 5. Nýtt leikrit eftir Svein Ein- arsson. Jónatan skipstjóri (Jón Sigurbjörnsson) og Láki (Kristján Franklín Magnús). Óskað eftir íslenskum pennavinum E.A. Vicke skrifar: Velvakandi. Ég er frá Pakistan og bý í Frakklandi. Ég hef áður skrifast á við íslenskan strák, en er búinn að týna heimilisfanginu hans og hef þess vegna ekki haldið neinu sam- bandi við hann. Núna langar mig til að skrifast á við íslenskan pennavin aftur, hvort heldur er strákur eða stelpa. Ég heiti E.A. Vicke og er 23 ára gamall Pakistani. Áhugamálin eru mörg, m.a. lestur, ljósmyndun, tennis og að kynnast fólki. Mikið væri ég þakklátur ef ég gæti eign- ast góða pennavini á íslandi á aldrinum 20—24 ára. Með kveðju, E.A. Vicke, Hotel Soncotra 8/1, 21 Rue d’Allonville, 80000 Amiens, France. XJöföar til JL X fólks í öllum starfsgreinum! JHtjr0unIiTntiití MICROLINE tölvuprentari á aðeins kr. 9.900! Við höfum nú flutt starfsemi okkar í nýtt og rúmgott húsnæði í Síðumúla 6. Af þessu tilefni höfum við ákveðið að bjóða tölvueigendum Microline 80 tölvuprentara á sérstöku tilboðs- verði kr. 9.900 og gildir tilboðið út september. Við viljum ennfremur benda á að vegna hagstæðra innkaupa hefur verð á öllum gerðum MICROLINE prentara lækkað stórlega, eða um ca. 40%. MICROLINE Mest seldu tölvuprentarar á íslandi. MÍKR Síöumúla6 Sími39666

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.